Fleiri fréttir

Hættur að drekka kókómjólk eftir árekstur

Umferðaróhapp varð við Merkigerði á Akranesi í gærkvöldi en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var bifreið ekið á mannlausa og kyrrstæða bifreið sem staðsett var út í vegkanti. Bílarnir skemmdust talsvert en eru þó óökuhæfir.

450 þúsund krónum fátækari vegna ölvunaraksturs

Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt ökumann á þrítugsaldri til ökuleyfissviftingar í 14 mánuði og til greiðslu sektar upp á 210 þúsund krónur og til greiðslu sakarkostnaðar upp á rúmlega 240 þúsund krónur, eða samtals rúmlega 450 þúsund krónur. Dóminn hlaut maðurinn fyrir akstur undir áhrifum ífíkniefna í tvígang, með aðeins nokkurra daga millibili.

Fatlaðir kjósendur fá að velja sér aðstoðarmann

Fatlaðir kjósendur hafa nú með tilteknum skilyrðum sjálfir rétt til að ákveða hver aðstoðar þá við atkvæðagreiðslu utan kjörfundar og á kjörfundi. Lög þar um voru samþykkt á Alþingi í gær.

ESB handhafi friðarverðlauna Nóbels

Evrópusambandið hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár. Þetta tilkynnti norska Nóbelsnefndin fyrir skömmu. Formaður nefndarinnar sagði að Evrópusambandið hafi á síðustu sex áratugum stuðlað að auknum friði í Evrópu og lýðræðisumbótum. Þá hafi sambandinu tekist að breyta Evrópu í heimsálfu friðar eftir margra áratuga átök.

Þrjú innbrot í borginni í nótt

Tilkynnt var um þrjú innbrot á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Fyrst var brotist inn í Skeljungsstöð við Gylfaflöt rétt fyrir miðnætti og rúmlega klukkustund síðar inn í Skalla við Ögurhvarf.

Maður stunginn með hnífi í Bankastræti í nótt

Karlmaður var stunginn með hnífi eða skærum í slagsmálum, sem brutust út í Bankastræti, á móts við Lækjarbrekku rétt upp úr miðnætti og var hann fluttur í sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans. Hann er ekki lífshættulega meiddur.

Þverpólitísk ábyrgð á óráðsíu OR

Allir helstu stjórnmálaflokkarnir á Íslandi báru ábyrgð á stjórnun Orkuveitunnar á því tímabili sem skuldir hennar ruku upp. Þeir komu líka allir að ákvörðunum um að greiða sér arð út úr fyrirtækinu. Úttektarnefnd telur arðgreiðslur fjármagnaðar með lántökum.

Ísland alltaf verið töluvert á eftir

Því fyrr sem meðferð vegna geðsjúkdóma hefst þeim mun minni líkur eru á langvarandi örorku. Eina sérhæfða meðferðarúrræðið fyrir ungt fólk í byrjandi geðrofi er á Laugarásvegi. Kynjahlutföll eru afar skökk. Neysla kannabisefna meðal hópsins hefur aukist.

Vill aukið samstarf á norðurskautssvæði

Meiri alþjóðlegrar samvinnu er þörf í málefnum norðurslóða og Ísland getur gegnt lykilhlutverki í að breyta því ástandi til batnaðar. Þetta segir Michel Rocard, fyrrverandi forsætisráðherra og sérlegur sendimaður forseta Frakklands í málefnum heimskautanna. Hann sótti landið heim og hélt fyrirlestur í Háskóla Íslands auk þess sem hann hitti ráðamenn og vísindamenn.

Veiðimenn vilja dauð lömb burt úr Elliðaey

Yfir fjörutíu lömb fundust dauð í Elliðaey við Vestmannaeyjar nú í haust. Veiðifélag eyjarinnar vill hræin burt hið fyrsta. Bæjaryfirvöld vilja skýringar frá fjáreigandanum. Hann segir lömbin hafa drepist úr bráðapest sem sé alvanaleg. "Það blöstu bara við dauðar rollur um allt,“ segir Ívar Atlason, formaður Veiðifélags Elliðaeyjar, um aðkomuna í eyna um miðjan september.

Grænt ljós á Perluna fyrir náttúrusýningu

Starfshópur á vegum mennta- og menningarráðuneytisins og Reykjavíkurborgar telur mögulegt að setja upp náttúruminjasýningu Náttúruminjasafns Íslands í Perlunni. Slík sýning útheimtir hins vegar breytingar á húsnæðinu, að mati hópsins. Nú verða teknar upp viðræður til að kanna betur fjárhagslegan grundvöll hugmynda starfshópsins en Perlan hentar ekki sem framtíðarhúsnæði fyrir safnið að óbreyttu.

Samið um olíuvarnir á norðurslóðum

Aðildarríki Norðurskautsráðsins hafa náð saman um bindandi samning um sameiginlegar varnir og viðbrögð vegna olíumengunar á norðurslóðum.

Velti því fyrir sér að hætta þingmennsku

Róbert Marshall velti því fyrir sér að bjóða sig ekki fram til þings á ný áður en hann ákvað að ganga til liðs við Bjarta framtíð. Hann ræddi þau áform sín við Guðmund Steingrímsson, forsvarsmann Bjartrar framtíðar, fyrir nokkrum vikum og í kjölfarið hóf hann að skoða málefnastarf flokksins.

Fréttablaðið heldur yfirburðum

Flestir landsmenn lesa Fréttablaðið, eða 58,5 prósent fólks á aldrinum 12 til 80 ára á landinu öllu. Tæplega 73 prósent fólks á höfuðborgarsvæðinu lesa blaðið. Þetta kemur fram í könnun Capacent Gallup á lestri prentmiðla.

Bláa lónið flestum minnisstæðast

Erlendir ferðamenn sem sóttu landið heim síðasta vetur voru sáttir við dvöl sína, samkvæmt könnun sem MMR vann fyrir Ferðamálastofu.

Um 99% með tölvur og net

Eitt af hverjum hundrað íslenskum fyrirtækjum með tíu starfsmenn eða fleiri var ekki með tölvur og nettengingu á síðasta ári, að því er fram kemur í könnun Hagstofunnar.

Hlutfall kvenna er áhyggjuefni

Einungis fimm konur eru í endurhæfingu á Laugarásvegi, meðferðarstöð fyrir ungt fólk í byrjandi geðrofi. Nú sækja 32 einstaklingar þjónustu í húsnæðið, þar af 27 karlar. Meðalaldur einstaklinganna er 24 ár og hefur farið lækkandi á síðustu árum vegna breyttra áherslna í meðferðinni.

Munu skoða sameiningu

Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að kanna áhuga á sameiningu við Garðabæ, Álftanes og Hafnarfjörð hjá þessum sveitarfélögum. Tillaga að nafni er þegar komin fram; Heiðmörk.

Dæmdur í 45 daga fangelsi

Fótboltamaðurinn Mark Doninger, sem lék með úrvalsdeildarliði ÍA og síðar með Stjörnunni í Garðabæ, hlaut í gær 45 daga fangelsisdóm fyrir að ráðast í tvígang á þáverandi kærustu sína.

Rifrildi leiddi til líkamsárásar

31 árs Reykvíkingur var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir að ganga í skrokk á fyrrverandi sambýliskonu og barnsmóður sinni, auk fíkniefnabrota. Konunni voru dæmdar 200.000 krónur í bætur og 125.000 í málskostnað.

Þarf að huga að þolmörkum ferðamannastaða

Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, segir mikilvægt að huga að þolmörkum ferðamannastaða á landinu, þ.e. hversu margir geti sótt staðina án þess að þeir láti á sjá af áganginum.

Vilja marka Vestfjörðum sérstöðu í sjávarútvegsfræðum

Nokkrir þingmenn með Ólínu Þorvarðardóttur fremsta í flokki lögðu í dag fram þingsályktunartillögu um að Vestfirðir verði gerðir að sérstökum vettvangi rannsókna í málefnum hafsins og kennslu í sjávarútvegsfræði. Þannig verði Vestfjörðum mörkuð sérstaða á sviði sjávarútvegs.

Ekki orðinn heimsfrægur

Jón Jónsson tónlistarmaður segir það hafa verið draumi líkast að fá að spila fyrir útgáfustjórann LA Reid og skrifa undir samning hjá Sony. Hann segist hins vegar ekki vera orðinn heimsfrægur og hlakkar til að sjá hvert framhaldið verður.

Ólétt á ný eftir að hafa misst tvíbura

Kristín Guðmundsdóttir handboltakona er ólétt á ný eftir að hafa misst tvíbura á síðasta ári. Hún sér eftir því að hafa ekki tekið ljósmyndir af tvíburunum.

Götublað á að bæta úr neyð útigangsmanna

Uppi eru hugmyndir um að stofna nýtt blað sem útigangsfólk fær í hendur til að selja. Útigangsfólkið fengi sjálft að eiga andvirðið til að kaupa sér mat eða annað og þannig myndi blaðið bæta úr neyð meðal útigangsmanna.

Öll met slegin á Keflavíkurflugvelli

Nýliðið sumar sló öll fyrri met í farþegafjölda á Keflavíkurflugvelli þegar um ein milljón farþega lögðu leið sína um völlinn. Ef fram fer sem horfir verður þetta ár stærsta ferðaár flugvallarins með 2,4 milljón farþega yfir árið.

Heiður að stýra milljarðsverkefni

Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur stýrir verkefninu ""Ofurstöð í eldfjallafræði" sem fær tæpan milljarð í styrk frá Evrópusambandinu. Þetta er eitt stærsta rannsóknarverkeffni sem íslenskur vísindamaður hefur stýrt.

Eins árs fangelsi fyrir árásir á sambýliskonu

Karlmaður var í dag dæmdur í 12 mánaða fangelsi í Hæstarétti fyrir að ráðast á sambýliskonu sína í tvígang. Hann var á sama tíma dæmdur fyrir nokkur umferðarlagabrot.

Þingmenn upp til hópa ósammála Þór Saari

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokks, telur að þingmenn séu upp til hópa ósammála Þór Saari um að ferðamenn á Íslandi séu orðnir of margir. Að hennar mati er ferðaþjónustan og ferðamenn á landinu mjög mikilvægir fyrir íslenskt samfélag og atvinnulíf.

Skiptar skoðanir um sveitarfélagið Heiðmörk

Bæjarráð Kópavogs samþykkti í morgun að senda mann út af örkinni til þess að kanna áhugann á því í nágrannasveitarfélögum að sameinast í eitt risasveitarfélag.

Ekki ánægður með allt í skýrslunni

Alfreð Þorsteinsson, fyrrum stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, er ekki sáttur við allt sem fram kemur í skýrslu úttektarnefndar Orkuveitunnar. Hann segir m.a. sorglega mikið af staðhæfulausu slúðri í skýrslunni og ekki farið nákvæmlega með heimildir.

Enginn hefur tilkynnt lögreglu um horfna ketti

Það hafa engar tilkynningar um horfna ketti á Eyrarbakka borist til lögreglunnar í Árnessýslu samkvæmt upplýsingum frá embættinu. Fyrr í vikunni kom fram í fréttum að kettir hefðu ítrekað horfið sporlaust á Eyrarbakka en Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Selfossi, efast um að það sé rétt.

Íslendingur framseldur til Danmerkur - Grunaður um fíkniefnaviðskipti

Íslenskur karlmaður var í dag framseldur til Danmerkur, en hann er grunaður um að hafa móttekið allt að 1,1 kíló af amfetamíni og 20 grömm af kókaíni í Danmörku á tímabilinu 1. október 2008 til 1. desember 2009. Brot mannsins eru talin varða allt að tíu ára fangelsi.

Með 200 lítra af vodka á heimilinu

Landaframleiðsla í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ var stöðvuð í gær. Lagt var hald á tæplega 400 lítra af landa, enn meira af gambra sem og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Karl á fertugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar, en maðurinn var vistaður í fangageymslu í nótt. Í sama húsi, en í óskyldu máli, var einnig lagt hald á rúmlega 200 lítra af sterku áfengi (vodka). Karl um þrítugt var yfirheyrður vegna þessa.

Hefndi sín eftir hrekk á bland.is

Um miðjan júní síðastliðinn var lögreglunni á Selfossi tilkynnt um þjófnað á Scarlet Macaw páfagauki úr búri í dýragarðinum á Slakka í Laugarási. Síðast var vitað um fuglinn í búri sínu að kvöldi 16. júní en var horfinn að morgni þjóðhátíðardagsins.

Svipti sig lífi eftir hræðilegan hatursglæp

„Hann var rólegur, prúður og hógvær; brosmildur, glaðsinna og jákvæður. Lífið brosti við honum," segir Jens Guðmundsson, rokksérfræðingur og skrautskriftarkennari um færeyska tónlistarmanninn Rasmus Rasmussen. Sá svipti sig lífi fyrir tveimur dögum en hann barðist við afleiðingar hrottalegrar líkamsárásar sem hann varð fyrir árið 2006 í Færeyjum. Ástæðan fyrir árásinni var sú að Rasmus var samkynhneigður, og einn af örfáum í Færeyjum sem fór ekki leynt með það.

Óli Björn vill á þing

Óli Björn Kárason hefur ákveðið að bjóða sig fram í eitt af efstu sætunum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi sem haldið verður 10. nóvember næstkomandi. Hann hefur verið varaþingmaður flokksins á yfirstandandi kjörtímabili.

Dópsali handtekinn í Garðabæ - sterar, rafbyssa og þýfi á heimilinu

Karl á þrítugsaldri var handtekinn í Garðabæ í gær en á heimili hans fannst kókaín. Maðurinn, sem hefur áður komið við sögu hjá lögreglu, viðurkenndi að kókaíni0000000000000000000000000ð hefði verið ætlað til sölu. Á sama stað var einnig lagt hald á rafbyssu, stera og töluvert af þýfi, en hluta þess er þegar búið að tengja við innbrot á höfuðborgarsvæðinu.

Lýður og Bjarnfreður neituðu báðir sök

Lýður Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður Exista, og Bjarnfreður Ólafsson neituðu báðir sök þegar ákæra sérstaks saksóknara gegn þeim var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Baráttan í Norðaustri: Óæskilegt að ræða málið mikið í fjölmiðlum

Þingmenn Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, þeir Ásmundur Einar Daðason og Gunnar Bragi Sveinsson, sendu kjördæmabréf á flokksmenn í gærkvöldi þar sem þeir reyna að skýra það sem þeir kalla "óljósar fréttir“ af framboðsmálum í Norðausturkjördæmi. Þar takast á þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, og Höskuldur Þórhallsson þingmaður, sem hefur ávallt boðið sig fram í kjördæminu.

Sjá næstu 50 fréttir