Innlent

Fréttablaðið heldur yfirburðum

Flestir landsmenn lesa Fréttablaðið, eða 58,5 prósent fólks á aldrinum 12 til 80 ára á landinu öllu. Tæplega 73 prósent fólks á höfuðborgarsvæðinu lesa blaðið. Þetta kemur fram í könnun Capacent Gallup á lestri prentmiðla.

Engin breyting hefur orðið á lestri Fréttablaðsins á þriðja ársfjórðungi miðað við annan ársfjórðung. 56,6 prósent fólks á landinu öllu lásu blaðið samkvæmt síðustu könnun.

Næstflestir lesa Fréttatímann, en lestur þess hefur dregist saman um þrjú prósent milli ársfjórðunga, úr 41,8 prósentum niður í 40,6 prósent. Þá hefur lestur Morgunblaðsins dregist saman um fjögur prósent, úr 33,3 prósentum í 31,9 prósent.

Bæði Viðskiptablaðið og DV sækja í sig veðrið. Sextán prósenta aukning hefur orðið á lestri Viðskiptablaðsins og lesa nú 11,2 prósent fólks það samanborið við 9,6 prósent á síðasta ársfjórðungi. Tíu prósentum fleiri lesa nú DV eða 12,4 prósent, en voru 11,3 prósent síðast. Þá dróst lestur á vikublaðinu Monitor saman um þrjú prósent, úr 22,7 prósentum í 22,1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×