Innlent

Helgi Hjörvar vill leiða annað kjördæmið í Reykjavík

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Helgi Hjörvar þingmaður.
Helgi Hjörvar þingmaður. mynd/ Stefán.
Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sætinu í sameiginlegu prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir Reykjavíkurkjördæmin og þar með eftir forystu í öðru kjördæminu.

„Fyrir síðustu alþingiskosningar skpaði ég annað sætið í Reykjavíkurkjördæmi norður á eftir Jóhönnu Sigurðardóttur sem ekki gefur kost á sér. Ég mun leggja höfuðáherslu á eflingu velferðarkerfisins, stöðu fátækra, auðlindamál og breytingar á bankakerfinu," segir Helgi.

Helgi Hjörvar er formaður efnhags- og viðskiptanefndar Alþingis og hefur auk þess setið í utanríkismálanefnd á kjörtímabilinu, verið forseti Norðurlandaráðs og er formaður sósíaldemokrata í ráðinu. Hann hefur setið á Alþingi síðan 2003.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×