Innlent

Þrjú innbrot í borginni í nótt

Tilkynnt var um þrjú innbrot á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Fyrst var brotist inn í Skeljungsstöð við Gylfaflöt rétt fyrir miðnætti og rúmlega klukkustund síðar inn í Skalla við Ögurhvarf.

Samkvæmt eftirlitsmyndavélum voru þar tveir menn á ferð, sem huldu andlit sín og stálu töluverðu af tóbaki.

Og klukkan rúmlega þrjú var tilkynnt um innbort í Snælandsvídeó við Furugrund, en ekki er vitað hverju var stolið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×