Innlent

Upprættu kannabisræktun í Hafnarfirði

Lögreglan upprætti kannabisræktun í heimahúsi í Hafnarfirði seint í gærkvöldi.

Að sögn lögreglu fannst talsvert magn af kannabisplöntum á lokastigi ræktunar og verður þeim nú fargað. Ekki er gefið upp hvort einhver var handtekinn í tengslum við málið, eða hvort grunur leikur á að ræktun hafi verið stunduð þar lengi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×