Innlent

Hættur að drekka kókómjólk eftir árekstur

Umferðaróhapp varð við Merkigerði á Akranesi í gærkvöldi en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var bifreið ekið á mannlausa og kyrrstæða bifreið sem staðsett var út í vegkanti. Bílarnir skemmdust talsvert en eru þó óökuhæfir.

Engin slys urðu á fólki. að sögn lögreglu kvaðst ökumaðurinn hafa misst kókómjólkurfernu á gólfið og verið að beygja sig eftir henni þegar hann klessti á mannlausabílinn.

Hann tjáði lögreglumönnum á vettvangi að hann væri hættur að drekka kókómjólk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×