Innlent

Um 99% með tölvur og net

ÞJ skrifar
Í tölum Hagstofu kemur fram að 99% íslenskra fyrirtækja með fleiri en tíu starfsmenn noti tölvur og internet í starfi. Fréttablaðið/Valli
Í tölum Hagstofu kemur fram að 99% íslenskra fyrirtækja með fleiri en tíu starfsmenn noti tölvur og internet í starfi. Fréttablaðið/Valli
Eitt af hverjum hundrað íslenskum fyrirtækjum með tíu starfsmenn eða fleiri var ekki með tölvur og nettengingu á síðasta ári, að því er fram kemur í könnun Hagstofunnar.

Þar segir jafnframt að 86% fyrirtækja með tíu starfsmenn eða fleiri séu með eigin vefsíður, sem er fjölgun frá fyrra ári. 30% fyrirtækja af þeirri stærð hafa starfandi sérfræðing í upplýsingatækni og 67% nettengdra fyrirtækja veita starfsfólki þráðlaus tæki til að tengjast neti utan vinnustaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×