Fleiri fréttir

Íslenskt fyrirtæki blómstrar

Íslenska tímaskráningar- og áætlunargerðarkerfið Tempo frá TM Software er nú orðið söluhæsta viðbótin á sölutorgi ástralska upplýsingafyrirtækisins Atlassian, en sölutorgið er með stærri markaðstorgum fyrir viðskipti á fyrirtækjalausnum. Tempo er starfseining innan TM Software sem er dótturfélag Nýherja.

Fangarnir brosa hringinn þegar þeir ná fyrsta prófinu

Ásókn fanga í nám eykst ár frá ári. Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litlahrauni, segir það mjög jákvætt enda er hún á þeirri skoðun að "ekki sé til betri leið til betrunar og betra lífs heldur en að ljúka námi."

Rannsóknir á kalkþörungum hefjast á Ísafirði

Rannsóknir á kalkþörungasetlögum í Ísafjarðardjúpi munu hefjast í næsta mánuði. Ef allt gengur að óskum og rannsóknirnar reynast jákvæðar sjá menn fram á að verksmiðja geti risið á norðanverðum Vestfjörðum innan fimm ára. Þar með skapast 25-35 föst störf.

Annie Mist í gírnum

Annie Mist Þórisdóttir er komin á skrið á heimsmeistaramótinu Reebok CrossFit Games. Nú eru fjórar greinar eftir og hún er í fyrsta sæti með 46 stiga forystu.

Réði niðurlögum eldsvoða með handslökkvitæki

Snör handtök heimilisföður á Reyðarfirði í morgun skiptu sköpum þegar eldur kom upp í íbúðarhúsnæði. Þrír voru inni í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Fimmtán manna slökkvilið var sent af stað en þegar það kom á svæðið, um 7 mínútum eftir útkallið, hafði húsráðandi slökkt eldinn með handslökkvitæki.

Rasandi hissa yfir ummælum Ögmundar

Illugi Jökulsson krefst skýringa á ummælum sem höfð voru eftir Ögmundi Jónassyni á dv.is í gær. Við samsæti til heiðurs Karli Sigurbjörnssyni, fráfarandi biskupi, á Ögmundur að hafa sagt að undanfarið hefðu "árásargjarnir menn vegið grimmilega að kirkjunni og rofið samstöðu kirkju og þjóðar."

Vill bændur á YouTube

Borgarbúar hvarvetna í heiminum þekkja oft lítið sem ekkert til landbúnaðarframleiðslu. Þeir skilja því oft ekki sjónarmið bænda. Kanadískur prófessor við háskólann í Colorado er með lausnina við þessum vanda. Hann ráðleggur bændum að nota YouTube til að kynna sjálfa sig og framleiðslu sína.

Líkamsárás í Vestmannaeyjum

Karlmaður á tvítugsaldri var fluttur á sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum snemma í morgun eftir líkamsárás fyrir utan skemmtistað. Hann er ekki talinn alvarlega slasaður að sögn lögreglu. Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn vegna málsins. Hann flúði af vettvangi en lögregla gómaði hann stuttu síðar. Hann verður yfirheyrður síðar í dag.

Í fótspor frumbyggja í dag

Gestum í Viðey verður í dag boðið að setja sig í fótspor frumbyggja. Skátarnir í Landnemum kenna áhugasömum að reisa skýli, kveikja eld og ýmislegt annað sem nauðsynlegt er fyrir frumbyggja að kunna skil á. Þá verður einnig efnt til fjársjóðsleitar í formi ratleiks og flugdrekaeigendum stefnt saman með það að markmiði að slá Íslandsmet í flugdrekaflugi sem sett var í Viðey fyrir tveimur árum. Dagskráin hefst klukkan hálf þrjú og lýkur hálf fimm.

Dælubílar tvisvar í útkall

Dælubílar slökkviliðsins voru tvisvar kallaðir út í nótt. Annars vegar barst brunaboð frá Landspítalanum í nótt en þar reyndist engin hætta vera á ferðum. Hins vegar gleymdist pottur á eldavél að Funahöfða í Árbæ, slökkviliðið kom á svæðið og reykræsti húsnæðið. Þar fyrir utan var talsverður erill í sjúkraflutningum en alls voru sjúkraflutningamenn kallaðir út 35 sinnum sem er nokkuð yfir meðallagi samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu.

Annie Mist komin í fyrsta sæti

Annie Mist Þórisdóttir er í fyrsta sæti í kvennaflokki á heimsmeistaramótinu Reebok CrossFit Games. Síðasti dagur mótsins fer fram í dag. Síðan á miðvikudag hafa keppendur tekið þátt í ýmsum þrautum og framan af gekk Annie ekki sérlega vel. Á föstudaginn og í gær náði aftur á móti hún góðum sprettum, skaut sér upp stigatöfluna og upp í fyrsta sæti.

Réðst á mann í Bankastræti

Maður var handtekinn í Bankastræt um hálffjögurleytið i nótt, grunaður um líkamsárás. Hann var vistaður í fangageymslu. Árásarþola ekið á slysadeild til aðhlynningar. Ekki hafa fengist upplýsingar frá lögreglu um það hvort sá hafi verið alvarlega slasaður.

Handtekinn ölvaður um hánótt í Sæbjörginni

Þrír menn voru handteknir um borð í erlendu skipi við Miðbakka í Reykjavíkurhöfn um þrjúleytið í nótt. Mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að reyna að komast til Ameríku. Mennirnir voru handteknir og vistaðir í fangageymslu og mál þeirra verður rannsakað. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er þetta ekki í fyrsta skipti sem þeir reyna að koma sér úr landi með þessum hætti. Þá var maður handtekinn um borð í Sæbjörginni, skipi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, um fjögurleytið í nótt. Maðurinn, sem er erlendur, gat illa skýrt veru sína þar og var vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls.

Tónlistin tók yfir fyrir tilviljun

Lögin Sumargestur og Leyndarmál hafa ómað í eyrum Íslendinga í sumar. Það er tvítugur tónlistarmaður sem á heiðurinn af þeim, Ásgeir Trausti Einarsson . Hann sagði Sigríði Björgu Tómasdóttur frá því hvernig skipuleg áætlun um að sópa til sín Íslandsmeistaratitlum í kraftlyftingum fuðraði upp eftir að hann var hvattur til dáða á tónlistarsviðinu.

Fyrsta póló æfing landsins

Hið íslenska póló félag hélt sína fyrstu formlegu æfingu í dag í reiðhöll í Mosfellsbænum. Íþróttin hefur aldrei verið leikin hér á landi áður svo vitað sé en stofnandi þess óttast ekki að hún verði einungis fyrir ríka og fína fólkið.

Kemur til greina að banna munntóbak

Velferðarráðherra hefur áhyggjur af aukinni munntóbaksnotkun og íhugar að skattleggja það hátt eða hreinlega banna það. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Banaslys á Norðurlandi

Karlmaður á sjötugsaldri lést þegar bifreið hans hafnaði utan vegar á Vatnsskarði í dag. Maðurinn var einn í bifreiðinni og á leið eftir þjóðvegi eitt. Ekki er vitað hvernig slysið atvikaðist en bifreiðin valt ekki á leið sinni út af veginum.

Erlendur ferðamaður lést í Þjórsárdal

Erlendur ferðamaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn eftir að tilkynnt var um alvarleg veikindi hans í sundlauginni í Þjórsárdal. Tilkynningin barst um tvö leytið og kallað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar. Þyrla var send af stað en fljótlega kom í ljós að hennar var ekki þörf þar sem maðurinn var úrskurðaður látinn.

Fluttur á Landspítalann vegna verkja við hjartað

Írskur ferðamaður sem fékk fyrir hjartað við Jökulsárlón á fimmta tímanum í dag var fluttur með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík. Hann lenti við Landspítalann um átta leytið í kvöld. Ekki er vitað hvað nákvæmlega olli aðsvifunum en ekki er talið að hann sé í lífshættu. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var líðan hans stöðug í fluginu.

Laugavegshlaupinu er lokið

Sextánda Laugavegshlaupinu lauk rétt fyrir sjö leytið í kvöld. 301 hlaupari var ræstur í morgun og 289 hlauparar luku hlaupinu sem er 55 kílómetra langt. Allir hlauparar voru ánægðir með að ekki var eins heitt í veðri og búið var að spá.

Stefnir í metsumar í hvalaskoðun

Það stefnir í metsumar í ár hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu sem gerir út frá Reykjavíkurhöfn. Sé bara horft á sumarið er útlit fyrir 20% aukningu frá því í fyrra. Sé veturinn tekinn með í reikninginn blasir við 40-50% aukning en veturinn var sérlega góður í ár.

Umferðarslys við Blönduós

Umferðarslys varð í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi fyrir skömmu. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er slysið talið alvarlegt en einn hefur verið fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.

Íslenski tuktuk-inn klikkaði á fyrsta degi

Íslenski tuktuk-inn sem þakinn er auglýsingum frá Nova gafst upp í brekkunni á neðsta hluta Hverfisgötu á fyrsta deginum sem hann eyðir á götum borgarinnar.

Ungar knattspyrnustúlkur á keppnisskóm

Um helgina reimar yngsta kynslóð knattspyrnukvenna á sig takkaskóna og reynir mátt sinn og meginn á fótboltavellinum. Símamótið fer fram í Kópavogi en þar etja 5., 6. og 7. flokkur kvenna kappi. Mótið hófst með skrúðgöngu á fimmtudag en keppni hófst í gær. Mótsslit verða síðdegis á morgun.

Sól og partí á Eistnaflugi

Um þrettán hundruð manns eru nú saman komnir á tónlistarhátíðinni Eistnaflugi á Neskaupstað að mati lögreglu. Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri hátíðarinnar segir framúrskarandi stemningu á svæðinu og veðrið með eindæmum gott. "Hér er sól og partí,“ segir hann.

Heyrúllum teflt gegn ESB aðild

Fólk reynir ýmislegt til að ná eyrum samlanda sinna og nú hafa bændur í Reykholtsdal brugðið á það ráð að líma slagorð á heyrúllur og stilla þeim upp við veginn um dalinn. Á vefsíðu fréttamiðilsins Skessuhorn eru leiddar að því líkur að margs konar áróður muni færast í aukana þegar nær dregur fullbúnum samningi í lok aðildarviðræðna Íslendinga í Brussel.

Tónleikamaraþonið hafið

Tólf klukkustunda tónlistarveisla verður í boði fyrir gesti Kex Hostel í dag en meðal annarra koma fram íslensku hljómsveitirnar Hjálmar og Tilbury. Tónleikarnir verða teknir upp og munu hljóma í bandarísku útvarpi.

Annie Mist í góðri stöðu fyrir helgina

Sem stendur er Annie Mist Þórisdóttir í þriðja sæti á heimsmeistaramótinu Reebok CrossFit Games sem hófst á miðvikudaginn. Staða hennar lítur vel út fyrir helgina en að sögn rúllaði hún síðustu þraut dagsins í gær upp með einstökum sóma.

Fischer safn á Selfossi

Undirbúningur er hafinn að opnun Fischer-safns við Austurveg á Selfossi. Viljayfirlýsing um það var undirrituð fyrir helgi í tilefni þess að 40 ár voru liðin frá einvígi aldarinnar í Reykjavík þar sem Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu í Reykjavík. Fischer Selfoss Foundation leggur til stofnfé og mun auk þess standa fyrir söfnun muna til sýningar á safninu.

Þjófnaður á hótelherbergi

Tilkynnt var um þjófnað í morgun á Hótel Klöpp við Klapparstíg í miðborg Reykjavíkur. Farið var inn á herbergi og taska gripin þaðan. Í töskunni voru m.a. 600 evrur og snyrtivörur. Málið hefur ekki verið upplýst og er sem stendur í rannsókn hjá lögreglu.

Vilja gönguleið umhverfis flugvöll

Á þriðja hundrað íbúa í Fljótsdalshéraði krefjast þess að gert verði ráð fyrir gönguleið umhverfis flugvöllinn á Egilsstöðum í nýju deiliskipulagi á svæðinu. Með gönguleiðinni opnast möguleiki fyrir útivistarfólk til að fylgjast með margbreytilegu flugi við Egilsstaðaflugvöll auk þess sem fjölbreytt fuglalíf er á svæðinu. Um þessar mundir er verið að fjalla um nýtt deiliskipulag Isavia fyrir svæðið. Til að kröfurnar verði að veruleika mun nauðsynlegt að breyta aðalskipulagi sveitarfélagsins og sömuleiðis fá heimild landeiganda.

Sárbænir gesti Eistnaflugs að keyra varlega

Á síðasta sólarhring hafa 11 verið kærðir fyrir of hraðan akstur í nágrenni Neskaupstaðar þar sem tónlistarhátíðin Eistnaflug fer fram. Sá sem hraðast ók var mældur á 135 km/klst í sunnan verðum Hólmahálsi á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. Sá á í vændum mjög háa fjársekt .

Grímsey trekkir að

Erlendir ferðamenn sem hafa viðkomu á norðurlandi eru gjarna spenntir að heimsækja Grímsey og því hefur verið mjög líflegt í eyjunni síðustu daga. Grímsey er 40 kílómetra norður af Íslandi og Norðurheimskautsbaugurinn gengur í gegnum eyjuna norðanverða. Marga ferðamenn fýsir að komast að heimskautsbaugnum og af þeim sökum hefur verið nóg að gera hjá Flugfélaginu Norlandair, en til Grímseyjar er flogið einu sinni á dag yfir sumartímann.

Alþingi þarf að virða lögbundna fresti

Sigurður Líndal, prófessor emeritus í lögfræði, segir þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá verða að markleysu ef Alþingi virðir lögbundna fresti að vettugi.

Slökkvilið ræst út af suðupotti

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út að íbúð í Gaukshólum í Breiðholti um eittleytið í nótt. Þar hafði pottur gleymst á eldavél og lagði mikinn reyk um íbúðina. Engum varð meint af en húsráðandi var heima og óskaði eftir aðstoð við að reykræsta. Þá fór dælubíll slökkviliðsins í tvö útköll til að svipast um eftir reyk eða eld sem tilkynnt hafði verið um. Fyrst í Garðabæ og síðar í Breiðholti en í hvorugu tilfellinu reyndist nokkuð vera í gangi.

"Á að einangra landið? Ef ekki, hver er þá lausnin?"

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir stjórnmálaflokkana á Alþingi sem leggjast gegn aðild að ESB harðlega fyrir að vera ekki búna útskýra fyrir almenningi hvernig eigi að tryggja pólitíska og efnahagslega hagsmuni Íslands í alþjóðasamfélaginu til lengri tíma, ef það felist ekki í aðild að Evrópusambandinu.

Gufubað í Nauthólsvík

Til stendur að opna gufubað fyrir gesti ylstrandarinnar í Nauthólsvík og þá sem nýta sér aðstöðuna þar til sjósunds, en frá þessu er greint á forsíðu Reykjavíkur Vikublaðs í dag. Víða erlendis þekkjast slík gufuböð nálægt baðstöðum í sjó, en til þessa hafa sjósundgarpar í Nauthólsvíkinni getað nýtt sér heitar sturtur og pott í víkinni. Ekki liggur fyrir hvenær gufubaðið opnar en framkvæmdir standa yfir.

Ógnaði sjúkraliði og lögreglu

Maður ógnaði sjúkraflutningamönnum og lögreglumönnum í nótt. Tilkynning barst um að maðurinn hefði dottið en þegar lögreglan og sjúkralið kom á staðinn reyndist hann vera ómeiddur. Hann var aftur á móti mjög ölvaður eða í mikilli vímu og neitaði að gefa upp persónuupplýsingar. Þá var hann með ógnandi tilburði eins og fyrr segir. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu þangað til að víman verður runnin af honum

Alvarlegt slys við Selfoss

Alvarlegt slys varð í umdæmi lögreglunnar á Selfossi rétt í þessu. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar á þessu stigi málsins.

Skoða hvort afnema eigi þagnarskyldu hjá ríkinu

Skoðað verður hvort létta eigi þagnarskyldu opinberra starfsmanna og tryggja betur vernd heimildarmanna. Þetta er á meðal þeirra atriða sem stýrihópur mennta- og menningarmálaráðherra hefur til athugunar, en hann skoðar breytingar á lagaumhverfi til að tryggja betur tjáningar- og upplýsingafrelsi.

Sefur rótt þótt Ármann sé hissa

Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar, gagnrýndi í bæjarráði Kópavogs á fimmtudag að ekki væri staðið við ákvörðun fyrri meirihluta í bænum um hækkun á framlögum til foreldra barna hjá dagforeldrum.

Sjá næstu 50 fréttir