Fleiri fréttir

Yfirheyrslum yfir hælisleitendum lokið

Búið er að yfirheyra tvo menn sem fundust um borð í flugvél Icelandair á Keflavíkurflugvelli í nótt. Vélin var á leið til Kaupmannahafnar og höfðu mennirnir læst sig inn á salerni vélarinnar.

Allir blása á Bestu útihátíðinni

Hver einasti ökumaður á Bestu útihátíðinni hefur verið látinn blása í áfengismæli lögreglunnar á Hvolsvelli. Á annan tug hafa verið teknir undir áhrifum.

Borgarahreyfingin greiðir ógoldin laun

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Borgarahreyfinguna til að greiða Herberti Sveinbjörnssyni og kvikmyndagerðarmanninum Gunnari Sigurðssyni tæpar 2.6 milljónir vegna vinnu sem þeir inntu af hendi við gerð kynningarmyndbanda fyrir flokkinn.

Of Monsters and Men þakka fyrir sig og kveðja

Hljómsveitin Of Monsters and Men stóð fyrir sannkölluðum stórtónleikum í Hljómskálagarðinum í gær. Talið er að um 18 þúsund manns hafi mætt á svæðið. Hljómsveitarmeðlimirnir eru afar sáttir með tónleikana og þakka Íslendingum fyrir stuðninginn.

Jarðskjálfti við Hveragerði

Jarðskjálfti varð á á Suðurlandi rétt eftir hádegi. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu var skjálftinn 2.7 til 2.9 að stærð en skjálftamiðja hans var norðarlega í Ingólfsfjalli eða um 6.6 kílómetrum norðaustur af Hveragerði. Upptök hans voru á 1.7 kílómetra dýpi.

Lokuðu sig inn á salerni flugvélar

Tveir ungir hælisleitendur fundust um borð í flugvél Icelandair á Keflavíkurflugvelli í nótt. Vélin var á leið til Kaupmannahafnar og höfðu piltarnir læst sig inn á salerni vélarinnar. Nokkur seinkun varð á fluginu og eru drengirnir nú í haldi lögreglu.

Kólera á Kúbu

Vísir að kólerufaraldri hefur greinst í Havana, höfuðborg Kúbu. Þrír létust af völdum sjúkdómsins í vikunni í bænum Manzanillo, að því er fram kemur á BBC.

Tillaga Íslendinga felld á ársþingi ÖSE

Tillaga sem þeir Róbert Marshall og Björn Valur Gíslason, alþingismenn, fluttu um þátttökurétt Palestínumanna í Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu var felld með með sex atkvæða meirihluta í Mónakó nú um helgina.

Hamarshöllin risin

Nýja Hamarshöllin í Hveragerði er risin. Er þetta fyrsta loftborna íþróttahúsið á Íslandi.

Læri gleymdist í ofni

Slökkviliðið á Selfossi var kallað út í hús við Kirkjuveg á Selfossi í gærkvöld eftir að nágrannar heyrðu í reykskynjara.

Hundrað mál á borði lögreglu í nótt

Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu í nótt. Í öðru tilfellinu var maður skorinn með brotinni flösku utan við skemmtistað í miðborginni og hlaust af þó nokkur blæðing. Talið er að upphaf megi rekja til ágreinings inni á staðnum milli aðila sem endaði með fyrrgreindum afleiðingum. Þá var maður slegin í höfuð með glasi á dansgólfi á skemmtistað í Reykjavík og hlaut hann við það skurði í andlit og á hendi. Í báðum tilfellum voru aðilar fluttir með sjúkrabifreiðum á slysadeild Landspítalans en ekki er um alvarlega áverka að ræða. Málin eru til rannsóknar hjá lögreglu.

Bjargað út úr reykfylltri íbúð

Tilkynnt var um reyk út um glugga í Efstalandi 24 í Reykjavík í kvöld. Slökkvilið var kallað út og fóru reykkafarar inn.

Hestamennirnir komnir í Hrútafjörð

Hestamennirnir fjórir, sem fyrir viku lögðu upp í leiðangur milli Látrabjargs og Gerpis, vestasta og austasta odda Íslands, eru væntanlegir í Hrútafjörð í kvöld. Þar með hafa þeir riðið bæði um Vestfirði og Vesturland en í dag fara þeir úr Dalasýslu yfir í Strandasýslu. Fjórmenningarnir, þeir Magnús Pétursson, Pétur Óli Pétursson, Ólafur Finnbogason og Sigurður Sævar Sigurðsson, hafa sextán hesta til reiðar.

Ónákvæmni í lyfjagjöfum sjúklinga

Hátt í fimm hundruð tilvik komu upp á Landspítalanum í fyrra þar sem lyfjagjöf til sjúklinga var röng. Sérstök vinna er nú í gangi á spítalanum til að fækka slíkum tilfellum.

Fyrsti vinningur gekk út

Fyrsti vinningur í Lottóinu gekk út í kvöld. Vinningstölurnar voru 1, 5, 10, 13, 18 og bónustalan var 34.

Hugnast ekki hækkun eftirlaunaaldurs

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, segir það ekki koma til greina að eftirlaunaaldurinn á íslandi verði hækkaður eins Fjármálaeftirlitið hefur lagt til. Hún segir Íslendinga nú komast eina síðast Evrópuþjóða á eftirlaun og þá sé ekki tilefni til frekari hækkunar.

Vélhjólaslys og árekstur á Selfossi

Þetta hefur verið annasamur dagur hjá lögreglunni á Selfossi. Tveggja bíla árekstur varð á Austurvegi á Selfossi um hádegisbil í dag. Um aftanákeyrslu var að ræða.

Mikil stemning á Goslokahátíð

Fjölmenni er nú í Vestmannaeyjum en hin árlega Goslokahátíð stendur nú sem hæst. Hátíðin var formlega sett í gær en hún hefur að sögn skipuleggjenda gengið vonum framar.

Thelmu-hringurinn hjólaður

Helga Hrönn Melsteð hjólar nú hringinn í kringum landið. Ferðin er tileinkuð Thelmu Dís, 12 ára, sem nú berst við krabbamein.

Ferðalagið hófst með ósköpum

Ferðalag tveggja ferðamanna um Ísland hófst með ósköpum í dag. Stuttu eftir að hafa lent á Keflavíkurflugvelli og gengið frá sínum málum tóku þau jeppa á leigu.

Styttist í tónleika Of Monsters and Men

Hljómsveitin Of Monsters and Men mun halda stórtónleika í Hljómskálagarði í kvöld. Sveitin hefur ekki spilað á tónleikum hér á landi síðan hún fór í tónleikaferðalag fyrir nokkrum mánuðum.

Sóldögg tryllti lýðinn á Bestu útihátíðinni

Um 6.000 manns eru nú saman komin á Gaddstaðaflötum við Hellu þar sem Besta útihátíðin fer fram. Mikið var um dýrðir í gær þegar nokkrar af þekktustu hljómveitum landsins stigu á stokk. Þar á meðal voru 200.000 Naglbítar og Sóldögg. Lítið hefur farið fyrir þeirri síðarnefndu síðustu ár en augljóst er að félagarnir hafa engu gleymt.

Gegndrepa Ólympíueldur

Ólympíueldurinn varð að engu þegar hann var fluttur niður brattar flúðir í Essex í Bretlandi í dag. Fimmtíu dagar eru liðnir síðan Ólympíueldurinn var tendraður í Grikklandi, síðan þá hefur hann ferðast um heiminn og nálgast nú Ólympíuleikvanginn í Lundúnum óðfluga.

Mikil kólnun í Eldfelli

Eldfell í Vestmannaeyjum hefur kólnað verulega á síðustu árum. Nýjar mælingar Náttúrufræðistofnunar Íslands og Náttúrustofu Suðurlands sýna að svæði með meira en 50 gráðu hita er nú aðeins 5.300 fermetrar en var tæplega 69 þúsund fermetrar árið 1990.

Óttast afleiðingar veiðigjalda

Fulltrúar Vinnslustöðvarinnar og Ísfélagsins í eyjum óttast að talsmenn veiðigjalda geri sér ekki grein fyrir því hve þungt þau munu leggjast á Vestmannaeyjar. Útreikningar þeirra sýni að gjöldin muni nema 2,2 milljöðrum króna á næsta ári og leiða til hruns á uppbyggingastarfi síðustu ár.

Ræðir við sjálfan sig fyrir 20 árum

Myndband sem kvikmyndagerðarmaður frá Maine í Bandaríkjunum hefur birt á myndbandavefsíðunni YouTube fer nú eins og eldur um sinu á veraldarvefnum. Í myndskeiðinu ræðir maðurinn við sjálfan sig þegar hann var 12 ára gamall.

Mannfall eftir flóð í Rússlandi

Að minnsta kosti 78 létust í miklum skyndiflóðum í Krasnodar-héraðinu í suðurhluta Rússlands í nótt. Mikið úrhelli hefur verið á svæðinu síðustu daga, samt sem áður komu flóðin fólki í opna skjöldu.

Alvarlegt slys á Bestu útihátíðinni

Alvarlegt vinnuslys átti sér stað á leiksvæði Bestu útihátíðarinnar í nótt. Maðurinn var að setja þrýstiloft á litbolta-byssu er sprengingin varð og fékk maðurinn alvarleg brunasár.

Skrá viðsjárverða sjúklinga

"Starfsfólk og sjúklingar á Hjartagátt eru berskjaldaðir gagnvart ofbeldi og árásarhneigð af hálfu þeirra sem til deildarinnar leita,“ segir í erindi Landspítalans til Persónuverndar sem ekki leggst gegn áformum spítalans um að halda skrá yfir hættulegt fólk.

Fréttaskýring: Makríllinn þyngist um 650 þúsund tonn í lögsögunni

Stál er í stál í makríldeilunni og hvorugur aðilinn virðist ætla að gefa eftir. Íslendingar hafa sett sér kvóta fyrir makríl og telja það vera verndaraðgerð af sinni hálfu. Evrópusambandið (ESB) og Noregur telja hins vegar að með því séu Íslendingar að skammta sér einhliða kvóta úr sameiginlegum stofni.

„Þurfti að láta lesa fréttina tvisvar“

„Ég þurfti að láta lesa fréttina tvisvar fyrir mig áður en ég trúði að þetta væri ekki brandari,“ segir Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri á Akranesi, vegna fréttar í Fréttablaðinu í gær um bókhald vegna gjafa og risnu á vegum bæjarins.

Steingrímur í stað Oddnýjar

Steingrímur J. Sigfússon tók í gær við starfi Oddnýjar G. Harðardóttur sem starfandi iðnaðarráðherra fyrir Katrínu Júlíusdóttur, sem er í fæðingarorlofi. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur undirritað forsetaúrskurði um breytingar á ráðuneytum, en þær taka gildi 4. september.

90 ár síðan fyrsta kona tók sæti

Haldið verður upp á það á morgun að níutíu ár verða liðin frá því að Ingibjörg H. Bjarnason tók sæti á Alþingi, fyrst kvenna.

Stendur öðrum að baki en tækifæri bíða

Þrátt fyrir að Reykjavík standi öðrum höfuðborgum á Norðurlöndum að baki á flestum sviðum sem hafa áhrif á samkeppnishæfni borga eru fjölmörg tækifæri fyrir hendi.

Ferðamenn flykkjast í selaskoðun til að sjá ísbjörn

Nóg hefur verið að gera í selaskoðun við Hvammstanga frá því að fregnir bárust af því að hvítabjörn væri á svæðinu. Ferðamennirnir vilja ólmir fá að kanna hvort björninn sé í leit að æti á þessu selsælasta svæði landsins.

Ísbjarnarleitin kemur í staðinn fyrir æfingaflug gæslunnar

Leitin að ísbirninum kemur í staðinn fyrir æfingaflug hjá þyrlu Landhelgisgæslunnar. Því bætist í raun ekkert við kostnað gæslunnar þó þyrlan hafi flogið í um 13 klukkustundir allt í allt í leit að birninum. Þetta segir Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.

Sjá næstu 50 fréttir