Fleiri fréttir

Komin á ról eftir bílveltu

Þýsk hjón sem misstu stjórn á bíl með þeim afleiðingum að hann valt skammt frá bænum Mýri, syðst í Bárðardal, eru komin á ról. Lögregla og sjúkralið komu á vettvang en hjónin reyndust ekki alvarlega slösuð.

Vill sjá örari endurnýjun í Hæstarétti

Það væri heillavænlegra ef endurnýjun í Hæstarétti væri örari. Þetta telur Þorvaldur Gylfason. Hann telur að með þeim hætti mætti komast hjá þeirri stöðu að nær allir dómarar réttarins hefðu verið skipaðir af sömu tveimur stjórnmálaflokkunum.

Benedikt syndir Alcatrazsundið

Benedikt Hjartarson sundkappi ætlar að synda Alcatrazsund með tveimur félögum sínum þann 28. júlí næstkomandi, á milli fangelsisins og San Fransisco í Bandaríkjunum.

Ráðuneytum fækkar í byrjun september

Ráðuneytum verður fækkað formlega í átta þann 4. september næstkomandi. Þá verða nokkur ráðuneyti sameinuð í ný ráðuneyti. Átta ráðuneyti verða starfandi eftir þann tíma.

Búast við þungri umferð um helgina

Búast má við því að mikil umferð verði um allt land um helgina því víða fara fram hátíðarhöld. Þjóðlagahátíð verður á Siglufirði, Vopnaskak á Vopnafirði, Írskir dagar á Akranesi, Besta útihátíðin á Gaddstaðaflötum við Hellu, hjólreiðakeppnin Tour de Hvolsvöllur á Hvolsvelli og Dýrafjarðardagar á Þingeyri.

Töluverð endurnýjun framundan í Hæstarétti

Búast má við töluverðri endurnýjun í Hæstarétt Íslands á næstunni. Af þeim tólf dómurum sem skipaðir eru hefur um þriðjungur áunnið sér rétt til þess að hætta störfum vegna aldurs. Samkvæmt lögum hafa hæstaréttardómarar rétt til þess að hætta störfum 65 ára gamlir án þess að laun skerðist.

Nýr foss orðinn til við Hrauneyjar

Tilkomumikill foss, og einn sá aflmesti á landinu, hefur myndast neðan Hrauneyjafossvirkjunar vegna virkjanaframkvæmda við Búðarháls. Hann verður þó aðeins sýnilegur í eitt ár. Hann er meira en tvöfalt hærri en Urriðafoss, fallhæðin er um fimmtán metrar, og þarna fossa niður yfir 150 rúmmetrar vatns á hverri einustu sekúndu.

Woodgate á leið til Middlesbrough

Enskir fjölmiðlar greina frá því að Jonathan Woodgate sé á leið til síns gamla félags, Middlesbrough, á frjálsri sölu á næstunni.

Átök í lögreglubíl þegar fangi reyndi að yfirgefa bílinn - myndband

Karlmaður missti stjórn á sér í lögreglubíl skömmu fyrir hádegi í dag. Maðurinn reyndi að yfirgefa bílinn og upphófust þá átök á milli lögreglunnar og mannsins þar sem þeir biðu á gatnamótum við Snorrabraut. Tveir lögreglumenn voru í bílnum auk mannsins, sem var verið að flytja frá lögreglustöðinni í Hafnarfirði.

Forvarnarhópur stofnaður fyrir næstu Þjóðhátíð

Íþróttafélagið ÍBV sem stendur fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hefur sett á laggirnar Forvarnahóp sem ætla er að standa fyrir átaksverkefni gegn kynferðisofbeldi. Hópurinn mun starfa allt árið en verður sérstaklega áberandi á Þjóðhátíð í sumar.

Vítisengill tekinn með þýfi

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í miðborginni fyrr í vikunni, en í bíl hans fannst mikið magn af því sem talið er vera þýfi. Aðallega var um að ræða rafmagnsvörur, ljósmyndatæki og tölvubúnað. Í fórum mannsins, sem er meðlimur í Hells Angels, fundust einnig fíkniefni.

Grænlenski unglingurinn á batavegi

Grænlenska unglingurinn sem var fluttur hingað til landsmeð skotsár í nára er á batavegi. Samkvæmt vakthafandi lækni á Landspítalanum í Fossvogi þá er ástand hans stöðugt. Hann var fluttur í gær með flugvél Norlandair. Drengurinn, sem er þrettán ára gamall, fékk skot í nárann og var fluttur frá Tassilaq til Reykjavíkur. Ekki er ljóst hvernig pilturinn hlaut skotsárið.

Um 1000 gestir á Bestu útihátíðinni

Um 1000 gestir voru á hátíðarsvæðinu að Gaddstaðaflötum í nótt, en þar fer fram Besta útihátíðin. Lögreglan segir að hátíðin hafi að mestu leyti farið rólega fram. Öflug gæsla og löggæsla er á svæðinu og verður henni haldið áfram um alla helgina. Um 10-15 mál komu upp hjá lögreglunni á Hvolsvelli, sem hefur eftirlit með svæðinu, og var lagt hald á nokkuð af fíkniefnum.

Lyfjakostnaður lækkar þrátt fyrri aukna lyfjanotkun

Lyfjakostnaður sjúkratrygginga, að undanskyldum S-merktum lyfjum (sjúkrahúslyf), lækkaði árið 2011 frá fyrra ári þrátt fyrir að lyfjanotkun hafi aukist á sama tíma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjúkratryggingum Íslands.

Myndirnar af ísbirninum ógreinilegar

Hér má finna myndirnar sem ítölsku ferðamennirnir tóku af hvítabirni sem virtist vera á sundi í Húnaflóa nærri landi. Eins og sjá má á myndunum er nær ómögulegt að greina ísbjörn á þeim.

Rannsaka viðskiptakjör birgja til matvöruverslana

Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að hefja rannsókn á viðskiptakjörum nokkurra birgja til matvöruverslana. Þar verður rannsakað hvort mikill verðmunur í viðskiptum einstakra birgja við mismunandi verslanir hindri samkeppni og fari gegn samkeppnislögum. Í skýrslu eftirlitsins um verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði sem kom út í janúar síðastliðnum var sýnt fram á mjög mikinn verðmun hjá einstökum birgjum eftir því hvaða verslanir eða verslanakeðjur áttu í hlut. Í skýrslunni voru leiddar að því lýkur að þessi mikli verðmunur hindraði samkeppni á dagvörumarkaði.

Í sextán ára fangelsi fyrir morð

Hlífar Vatnar Stefánsson var dæmdur í sextán ára fangelsi í morgun fyrir morðið á Þóru Eyjalín Gísladóttur í Hafnarfirði fyrr á árinu. Það var Héraðsdómur Reykjaness sem kvað dóminn upp. Hlífar Vatnar var jafnframt dæmdur til að greiða aðstandendum hennar samtals fjórar milljónir í miskabætur.

Þyrlan fer í hvítabjarnaleit á hádegi

Þyrla Landhelgisgæslunnar mun fara í loftið á hádegi til að leita að hvítabirni sem ítalskir ferðamenn töldu sig sjá í Húnaflóa í fyrradag. Þyrlan leitaði á stóru svæði í gær án árangurs en flogið var með strandlengjunni frá Skaga inn Húnafjörð, yfir Þingeyrarsand og fyrir Vatnsnes. Var síðan haldið áfram alveg vestur um og norður í Bjarnafjörð á Hornströndum.

Selir taldir í Húnaþingi vestra

Selatalning mun fara fram á Vatnsnesi og á Heggstaðarnesi í Húnaþingi vestra þann 22 Júlí næstkomandi og fara talningarnar þannig fram að allir sjáanlegir selir eru taldir samtímis á stórstreymisfjöru á u.þ.b. 100 km strandlengju. Selatalningin hefur farið fram árlega frá árinu 2007. Hún byggir algjörlega á þátttöku sjálfboðaliða sem vilja taka þátt í rannsóknarstörfum, ásamt því að njóta nærveru sela og náttúru. Talningin er skemmtileg upplifun fyrir alla náttúru- og dýraunnendur og þess má geta að samtals 1033 selir voru taldir í fyrra. Hingað til hefur áhuginn verið mikill bæði meðal heimamanna og ferðamanna.

Vegakerfið verður ekki bætt á einum degi

„Vegakerfið í umsjá Vegagerðarinnar er 13 þúsund kílómetrar og þegar veghönnunarreglum er breytt segir það sig sjálft að þann sama dag verða 13 þúsund kílómetrar ekki aðlagaðir að reglum.“ Þetta segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, um fullyrðingar Ólafs Guðmundssonar, fulltrúa EuroRAP á Íslandi, í Fréttablaðinu í gær.

Taka ákvörðun um frekari leit þegar líða tekur á daginn

Ákvörðun um hvort halda beri áfram leitinni að hvítabirninum sem ítalskir ferðamenn töldu sig sjá í Húnaflóa í fyrradag verður tekin þegar líða tekur á morguninn. Þyrla Landhelgisgæslunnar leitaði á stóru svæði í gær án árangurs en flogið var með strandlengjunni frá Skaga inn Húnafjörð, yfir Þingeyrarsand og fyrir Vatnsnes. Var síðan haldið áfram alveg vestur um og norður í Bjarnafjörð á Hornströndum. Ekkert sást til dýrsins en hinsvegar fundu Gæslumenn öldumælisdufl sem hafði fyrir nokkru slitnað upp. Duflið hafði rekið frá Straumnesi, fyrir Horn og inn á Strandir. Duflið var tekið um borð og síðan flogið til eldsneytistöku á Ísafirði. Þyrlan lenti síðan í Reykjavík um klukkan hálfsex í gær.

Miklar skemmdir í bruna í Kópavogi

Íbúðarhús í Selbrekku skemmdist mikið í bruna í nótt. Tilkynnt var um eldinn um klukkan hálfþrjú og klukkutíma síðar hafði slökkviliðið ráðið niðurlögum hans en á tíma logaði glatt. Húsið er einbýli á tveimur hæðum og kviknaði í á efri hæð. Tveir voru í húsinu og náðu þeir að koma sér út fyrir eigin rammleik. Nágranni sem kom til hjálpar þurfti hinsvegar að leyta sér aðstoðar á slysadeild sökum gruns um reykeitrun. Mikill erill hafði verið í sjúkraflutningum þar til skömmu fyrir útkallið og því voru allar stöðvar sem betur fer fullmannaðar þegar kallið kom, að því er vaktstjóri hjá slökkviliði segir. Ekki er ljóst um eldsupptök.

Alcoa styrkir þjóðgarðsverði til vesturfarar

Alcoa stofnunin, sem er í eigu móðurfélags Fjarðaáls, hefur ákveðið að styrkja íslenska þjóðgarðsverði fjárhagslega svo þeir geti heimsótt þjóðgarða í Bandaríkjunum og kynnt sér starfsemi þeirra og hvernig þeim er stjórnað.

Starfsemin háð nýjum skilyrðum

Samkeppniseftirlitið hefur heimilað samruna Reiknistofu bankanna og Teris og gert samkomulag við eigendur Reiknistofu bankanna um skilyrði til að tryggja virkari samkeppni á fjármálamarkaði.

Stríð stendur um loftslagsmál

Gríðarlegum fjármunum er varið til að berjast gegn vísindum sem sýna fram á hlýnun jarðar af mannavöldum. Bandaríski loftslagsvísindamaðurinn Michael Mann lenti í hringiðu þeirrar baráttu. Til stóð að stefna honum fyrir þingnefnd og hefði hann þá þurft að

Veittist að stúlku á bensínstöð

Ráðist var á starfsstúlku bensínstöðvar N1 á Ártúnsholti rétt fyrir klukkan eitt í nótt. Viðskiptavinur kom stúlkunni til aðstoðar og þá flúði maðurinn af vettvangi. Þegar lögrelan kom á staðinn skoðuðu þeir myndir úr öryggiskerfi stöðvarinnar og þekktu manninn strax, en hann er rúmlega þrítugur. Hann fannst þar sem hann var á gangi á Bíldshöfða skömmu síðar. Stúlkuna mun ekki hafa sakað að því er lögregla segir.

Jón Steinar og Garðar hætta

Jón Steinar Gunnlaugsson og Garðar Gíslason láta báðir af störfum sem dómarar við Hæstarétt Íslands þann 1. október næstkomandi.

Segir Landsvirkjun ekki styðjast við rök

Veiðimálastofnun segir fullyrðingar Landsvirkjunar um að aðstæður í Stóru-Laxá og Blöndu séu svipaðar ekki standast rök. Þá hafi rennslisbreytingar af mannavöldum nær undantekningarlaust skaðleg áhrif á lífríki og fiskgengd.

Óþekkt hverjir njóta risnufjár á Akranesi

Endurskoðandi Akranesbæjar gagnrýnir að sjaldan sé skráð hverjir njóta risnu og gjafa úr bæjarsjóði. Útgjöldin hafi farið 87 prósent fram úr áætlun í fyrra. Bæjarritari neitar eyðslu umfram áætlun en segir skráningu þó vera ábótavant.

Óvíst um framsal Sverris

Ekki er í gildi framsalssamningur við Brasilíu og því óvíst að hægt yrði að fá Sverri Þór Gunnarsson framseldan hingað þrátt fyrir að hann sé grunaður um glæpi hér. Ekki borist formleg staðfesting á nafni hans.

Ný vinnsla hefst í Bolungarvík

Vinnsla hefst á ný í fiskvinnsluhúsinu í Bolungarvík í næstu viku. Þetta sögufræga fiskvinnsluhús, sem áður var í eigu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Einar Guðfinnsson hf., hefur staðið tómt frá því að Bakkavík lagði upp laupana á vormánuðum 2010.

Fólkið í Gambíu fær útsæði frá Íslandi

Rauði kross Íslands dreifir nú matvælum, útsæði og áburði í Gambíu. Mikil hungursneyð vofir yfir íbúum landsins þar sem uppskerubrestur og matvælaskortur hefur ekki verið meiri í landinu síðastliðin fimmtán ár.

Enn fleiri vilja selja ofan í Silfru

„Ef þarna verður aftur slys er ekki boðlegt að ég, sem þjóðgarðsvörður, og Þingvallanefndin sem ábyrgðaraðilar fyrir þessum þjóðgarði, segjum við lögregluna að okkur komi ekki við hvað gerist í Silfru og að menn geti bara kafað þar eins og þeir vilja,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum.

Aðbúnaður á Kópavogshæli rannsakaður

Vistheimilisnefnd rannsakar hvort fötluð börn á Kópavogshæli hafi sætt illri meðferð. Þroskahjálp hefur kallað eftir slíkri rannsókn. Nefndin getur gert tillögu um að greiða út sanngirnisbætur.

Eldur í húsi við Selbrekku

Eldur kom upp í íbúðarhúsnæði við Selbrekku 8 nú í nótt. Allir eru komnir út úr húsinu. Allt tiltækt lið slökkviliðsins er á leiðinni.

Lögreglan komin með myndir ferðafólksins

Lögreglan á Stykkishólmi hefur nú rætt við ferðamennina ítölsku sem fyrst tilkynntu um hvítabjörn við Geitafjall. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni þar á bæ var ekki hægt að sjá að um hvítabjörn hafi verið ræða. Lögreglan útilokar þó ekkert.

Ekki í lífshættu eftir slys við heyskap

Stúlkan sem slasaðist alvarlega við heyskap fyrr í dag er ekki talin í lífshættu. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á Landspítala er stúlkan enn í aðgerð.

Besta útihátíðin hefst í kvöld

Besta útihátíðin hefst með pompi og prakt á Gaddstaðaflötum við Hellu í kvöld. Fjöldi manns er nú þegar mættur á svæðið og eru aðstandendur hátíðarinnar að leggja lokahönd á undirbúning.

Fundu öldumælisdufl við leit að hvítabirni

Leit Landhelgisgæslunnar að hvítabirni á norðurlandi hefur skilað óvæntum feng. Við leit á Ströndum fann áhöfn TF-LIF öldumælisdufl sem slitnað hafði upp fyrir nokkru.

Björninn verður felldur nálgist hann byggð

"Það segir sig náttúrulega sjálft að við viljum ekki hafa svona óargardýr við byggð," segir Kristján Þorbjörnsson, yfirlögreglumaður á Blönduósi. Hann telur það vera augljósan kost að fella hvítabjörninn ef hann nálgist byggð.

Barn slasaðist við heyskap

Alvarlegt slys átti sér stað við Sauðárkrók á fimmta tímanum í dag. Þar slasaðist barn við heyskap.

Sjá næstu 50 fréttir