Innlent

Alvarlegt slys á Bestu útihátíðinni

Landspítalinn í Fossvogi
Landspítalinn í Fossvogi Mynd/ vilhelm
Alvarlegt vinnuslys átti sér stað á leiksvæði Bestu útihátíðarinnar í nótt. Maðurinn var að setja þrýstiloft á litbolta-byssu er sprengingin varð og fékk maðurinn alvarleg brunasár.

Talið er að gashylki byssunnar hafi sprungið. Maðurinn var fluttur á slysadeild Landspítalans.

Samkvæmt vakthafandi lækni eru áverkar mannsins taldir alvarlegir. Ekki liggur þó fyrir hversu lengi maðurinn verður vistaður á spítalanum.

Upphaflega átti að flytja manninn með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur en sjúkrabifreið var snögg á staðinn og var maðurinn fluttur með henni undir læknishendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×