Fréttaskýring: Makríllinn þyngist um 650 þúsund tonn í lögsögunni 7. júlí 2012 06:00 Makríll skipar æ stærri sess í íslenskum sjávarútvegi. Árið 2011 veiddu Íslendingar tæp 160 þúsund tonn af makríl. Hér er unnið að makríl í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. mynd/Óskar P. friðriksson
Um hvað snýst makríldeilan? Stál er í stál í makríldeilunni og hvorugur aðilinn virðist ætla að gefa eftir. Íslendingar hafa sett sér kvóta fyrir makríl og telja það vera verndaraðgerð af sinni hálfu. Evrópusambandið (ESB) og Noregur telja hins vegar að með því séu Íslendingar að skammta sér einhliða kvóta úr sameiginlegum stofni. Makríll barst helst á land hér á landi sem meðafli síldarinnar. Árið 2006 komu um 4.200 tonn hér á land sem fóru að mestu í bræðslu. Árið 2008 fór makríllinn að ganga í auknum mæli inn í íslenska lögsögu og sprenging varð í makrílveiðunum. Aflinn fór úr 36 þúsund tonnum árið áður í 116 þúsund tonn. Síðan hefur hann aukist jafnt og þétt. ESB og Noregur veiða um 90% af öllum makríl í Norðaustur-Atlantshafinu og hafa gert lengi. Þau mótmæltu því harðlega þegar Íslendingar juku veiðarnar og töldu um rányrkju að ræða. Íslendingar héldu því hins vegar fram að þeir væru strandríki að makrílnum, þar sem hann gengi inn i íslensku lögsöguna. Mótaðilarnir viðurkenndu ekki fyrr en árið 2010 að svo væri og fram að því var Íslendingum ekki hleypt að samningaborðinu um makrílkvótann. Þar erum við nú sest, en samningar eru enn víðs fjarri. Framan af voru makrílveiðar utan kvóta, en árið 2009 settu stjórnvöld kvóta á makríl. „Það var í raun verndaraðgerð af okkar hálfu að hverfa frá óheftum veiðum og setja á þær þak,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra sjávarútvegsmála. ESB og Noregur brugðust hins vegar ókvæða við og töldu að Íslendingar væru að úthluta sér einhliða kvóta. „Það hefði vissulega mátt gagnrýna okkur ef við hefðum haft veiðarnar áfram óheftar. Það höfum við ekki gert heldur sett okkur einhliða mörk, sem er það eina sem hægt er að gera ef ekki næst saman og menn vilja samt vera ábyrgir,“ segir Steingrímur. Alþjóðahafrannsóknaráðið lagði til 640 þúsund tonna kvóta á makríl árið 2011. Íslendingar lögðu til að allir drægju úr sínum veiðum um 30% og héldu sig innan marka ráðsins. Því höfnuðu ESB og Noregur og tóku sér 90% af kvótanum. Íslendingar, Rússar og Færeyingar héldu sig þá við sinn kvóta og því var veitt langt umfram ráðlagt magn, eða 930 þúsund tonn. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira