Stendur öðrum að baki en tækifæri bíða 7. júlí 2012 04:00 Reykjavík vermir neðsta sætið í úttekt PwC á samkeppnishæfni höfuðborga á Norðurlöndum. Þó eru jákvæð teikn á lofti og möguleikar eru til staðar.Fréttablaðið/Ernir
Þrátt fyrir að Reykjavík standi öðrum höfuðborgum á Norðurlöndum að baki á flestum sviðum sem hafa áhrif á samkeppnishæfni borga eru fjölmörg tækifæri fyrir hendi. Þetta segir í nýrri alþjóðlegri úttekt ráðgjafafyrirtækisins PwC sem kom út í gær, en þar var samkeppnishæfni borganna á hinum ýmsum sviðum borin saman og sett í alþjóðlegt samhengi. Í skýrslunni, sem ber yfirskriftina Northern Lights – The Nordic Cities of Opportunity, segir að þó að borgirnar eigi í innbyrðis samkeppni um að laða að sér fjárfestingar, fyrirtæki og ferðamenn, sé engu að síður mikilvægt að þær efli samvinnu sín á milli til að standa betur að vígi á alþjóðlegum vettvangi. Norræna leiðinNiðurstaða PwC er sú að þrátt fyrir að enn sé langt í land með að ná risaborgum heimsins í samkeppnishæfni séu norrænu borgirnar á réttri leið. Allar búi þær að svipaðri grunngerð með miklum lífsgæðum þar sem rík áhersla sé lögð á markaðshagkerfi með félagslegum áherslum. Lykillinn að bættri samkeppnishæfni sé að bæta viðskiptaumhverfi með því að liðka fyrir stofnun nýrra fyrirtækja, bæta vinnulöggjöf og ekki síst endurskoða skattastefnu. Litla systirReykjavík er í síðasta sæti allra þessara systraborga í heildarúttektinni, en engu að síður leiða gögn PwC, sem var aflað í fyrra í söfnum viðurkenndra alþjóðastofnana, það í ljós að margt gefur tilefni til bjartsýni þegar horft er fram á veginn. Hagvöxtur í Reykjavík árið 2011 var 2,1 prósent, sem er meira en var í Ósló og Kaupmannahöfn, og auk þess voru Reykvíkingar í öðru sæti í þremur flokkum á sviði nýsköpunar og menntunar; stærð kennslubekkja, framboði á stærðfræði- og vísindakennslu og hlutfalli íbúa með háskólamenntun. Á tæknisviði voru Reykvíkingar svo í fyrsta sæti hvað varðar netaðgang í skólum og á sviði heilbrigðis- og öryggismála er Reykjavík í öðru sæti í heildina, þökk sé sterkri stöðu heilbrigðismála þar sem Reykjavík er í öðru sæti, og þá er þar enn lægsta glæpatíðnin. Loks er Reykjavík í öðru sæti í skattheimtu, rétt á eftir Kaupmannahöfn sem vermir efsta sætið, og einnig í öðru sæti yfir hversu auðvelt er að stofna fyrirtæki. Þá er sérstaklega tekið fram að eftirtektarverð klasamyndun á sviðum orkunýtingar og umhverfisferðamennsku hafi átt sér stað í Reykjavík að undanförnu. EndurreisninSkýrslan segir að gögnin sýni svo ekki verði um villst að sterkir innviðir íslensks samfélags séu lykillinn að endurreisn. „Það mun ekki gerast tafarlaust,“ segir þar, „en ef til vill skjótar en flestir þorðu að vona fyrir nokkrum árum síðan.“ Í skýrslunni er meðal annars haft eftir Staffan Iversson, einum æðsta embættismanni Stokkhólms, að merkilegt sé „hversu fljótt og ákveðið“ Reykvíkingar hafi brugðist við þeim áskorunum sem blöstu við í kjölfar áfallanna. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Sjá meira