Innlent

Hámarkshraði lækkaður vegna hestamóts

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Landsmót hestamanna stendur nú yfir í Víðidal í Reykjavík, en því lýkur sunnudaginn 1. júlí. Búast má við mikilli umferð á og við svæðið, en hámarkshraði á Breiðholtsbraut hefur verið lækkaður vegna þessa og er nú 50 samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Von er á þúsundum gesta á mótið og því gæti orðið þar þröngt á þingi um helgina. Þeir sem ekki eru hestaáhugamenn ættu því að íhuga þann möguleika að sneiða hjá Breiðholtsbraut þessa daga. Ekki síst þeir sem eru á leiðinni úr bænum. Fyrir þá kann að vera skynsamlegra að leggja á sig eilítið lengri leið, sem þó gæti reynst mun fljótfarnari.

Mótsgestir eru að sjálfsögðu minntir á nauðsyn þess að ökutækjum sé lagt löglega. Illa og ólöglega lagðir bílar skapa oft vandræði fyrir gangandi vegfarendur svo ekki sé nú talað um neyðarakstur lögreglu, slökkviliðs og sjúkraliðs þegar hætta er á ferðum. Lögreglan mun fylgjast með að eftir þessu verði farið og einnig halda upp öðru eftirliti, t.d. vegna ölvunaraksturs.

Hún verður því vel sýnileg á og við mótssvæðið en innan þess standa mótshaldarar einnig fyrir öflugri öryggisgæslu. Sem fyrr er þó mikilvægasta af öllu að fólk hafi góða skapið meðferðis, hvort sem það er á Landsmóti hestmanna eða annars staðar. Og verði tafir í umferðinni munum þá að þolinmæði þrautir vinnur allar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×