Fleiri fréttir

Vitnaleiðslum yfir Björgvin lokið

Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, segist ekkert vita hvers vegna honum var haldið frá fundum með fulltrúum ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans þegar ákveðið var að ríkissjóður tæki yfir 75% hlut í Glitni í lok september 2008.

Beiðni um beina útsendingu frá Landsdómi hafnað

Landsdómur hefur hafnað beiðni fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis, um að að koma fyrir myndavél í dómsal þannig að hægt verði að senda réttarhöldin yfir Geir H. Haarde út í beinni útsendingu.

Tóku Icesave-vandann mjög alvarlega

Íslensk stjórnvöld tóku Icesave-vandann mjög alvarlega, af því að hann ógnaði stöðugleika á viðkvæmum tímum,” sagði Björgvin G. Sigurðsson í vitnaleiðslum fyrir Landsdómi nú skömmu fyrir hádegið. Hann sagði að vandinn hefði oft verið ræddur. Í huga Geirs Haarde hafi aldrei komið til greina að Ísland tæki á sig ábyrgð á reikningum sem íslensk yfirvöld tóku engan þátt í að stofna.

Landsdómur: Annar dagur - Fyrsta samantekt

Breki Logason og Þorbjörn Þórðarson fréttamenn fara yfir stöðu mála í Landsdómsmálinu og það sem gerðist milli klukkan 10 og 11 í morgun. Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, er mættur í Þjóðmenningarhúsið en Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, sat fyrir svörum.

Björn Bjarnason dæmdur til að greiða Jóni Ásgeiri miskabætur

Björn Bjarnason fyrrum dómsmálaráðherra var í dag dæmdur í héraðsdómi til að greiða Jóni Ásgeiri Jóhannessyni athafnamanni 200.000 krónur vegna ummæla sinna um Jón Ásgeir í bókinni Rosabaugur yfir Íslandi sem fjallar um Baugsmálið. Þá er honum gert að greiða Jóni Ásgeiri 200 þúsund til þess að standa straum af birtingu dómsins í opinberum fjölmiðli. Hann þarf því að greiða Jóni Ásgeiri alls 400 þúsund krónur fyrir ummælin.

Björgvin segist ekki hafa verið leyndur upplýsingum

Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, segist alls ekki hafa fengið minni upplýsingar en aðrir um starf samráðshóps um fjármálastöðugleika. Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari sagði að upp hefðu komið ásakanir um að hann hefði verið lausmáll og spurði hvort það gæti hafa orsakað að hann hefði fengið minni upplýsingar en aðrir ráðherrar um starf hópsins.

Outlaws málinu frestað - aðalvitnið finnst ekki

Aðalmeðferð hefur verið frestað í skotárásarmálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þrír menn eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps þegar þeir skutu á bifreið karlmanns í Grafarvoginum í nóvember á síðasta ári. Aðalvitnið, maðurinn sem skotið var á í Bryggjuhverfinu í Reykjavík í nóvember í fyrra, finnst ekki þannig það er illmögulegt að framhalda réttarhöldunum.

Eðlilegt að hafa leynd yfir starfi samráðshópsins

Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, segir eðlilegt að starf samráðshóps um fjármálastöðugleika hafi starfað leynt. "Allur kvittur um að stjórnvöld hefðu ekki trú á tilteknum banka gat umsvifalaust haft þau áhrif að áhlaup yrði gert á banka,‟ sagði Björgvin fyrir Landsdómi í morgun. Hann bætti því við að menn hefðu óttast áhlaup sem enginn banki gæti staðist.

Skotárásarmálið heldur áfram í dag

Aðalmeðferð heldur áfram í skotárásarmálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þrír menn eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps þegar þeir skutu á bifreið karlmanns í Grafarvoginum í nóvember á síðasta ári.

Davíð mætir í Landsdóm klukkan 14:15

Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi Seðlabankastjóri gefur skýrslu fyrir Landsdómi í dag. Ráðgert er að skýrslutakan yfir Davíð hefjist klukkan fimmtán mínútur yfir tvö.

Segir starf samráðshópsins hafa verið markvisst

Drög að frumvarpi um neyðarlög voru kynnt í viðskiptaráðuneytinu 9. maí 2008, sagði Björgvin. G. Sigurðsson viðskiptaráðherra fyrir Landsdómi í dag. Frumvarpið var undirbúið fyrir tilstuðlan samráðshóps um fjármálastöðugleika.

Gæslan nýtur mikils trausts

Landhelgisgæslan nýtur trausts 89,8 prósent landsmanna samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Í ár tóku 97 prósent afstöðu í könnuninni og dreifist traustið nokkuð jafnt á milli kynja og aldurs aðspurðra.

Upptökur gætu truflað réttarhöldin

Ríkisútvarpið sóttist eftir því að fá að taka upp landsdómsréttarhöldin og sýna þau í beinni útsendingu. Þeirri beiðni hafnaði dómurinn.

Strætó hagnast um 184 milljónir

Strætó bs. hagnaðist um 184 milljónir króna í fyrra. Eigið fé jókst úr 188 milljónum í 522 milljónir milli ára.

Flutt á slysadeild eftir að hafa ekið á ljósastaur

Ökumaður og farþegi hans voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir að bíll þeirra lenti á ljósastaur við Strandveg í Hafnarfilrði í gær. Þeir munu ekki hafa slasast alvarlega, en bíllinn er stórskemmdur.

Einkalífeyrissjóðurinn var ólöglegur

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, fær ekki afhentan viðbótarlífeyrissparnað sinn og skuldabréf sem hann keypti fyrir andvirði hans. Hann tapaði dómsmáli um sparnaðinn í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Eldur í litlu timburhúsi á Ísafirði

Eldur kviknaði út frá eldamennsku í litlu timburhúsi á Ísafirði í gærkvöldi. Húsráðandi hafði náð að slökkva eldinn með handslökkvitæki áður en slökkviliðið kom á vettvang, en þá var orðinn talsverður reykur i húsinu, sem liðið ræsti út. Húsráðanda sakaði ekki.

Flestir vilja Þóru Arnórs á Bessastaði

Flestir notendur á Facebook-síðunni "Betri valkost á Bessastaði“ vilja að Þóra Arnórsdóttir, sjónvarpskona á Ríkisútvarpinu, verði næsti forseti Íslands.

Óveðrið gengur yfir á næstu klukkutímum

Óveðrið sem nú er á Suðuvesturlandinu mun ganga yfir á milli klukkan 22 og 23 í kvöld en mjög hvasst er til dæmis á höfuðborgarsvæðinu. Það mun þó halda áfram að rigna í kvöld og nótt. Á austurlandi er búist við miklu hvassvirðri í nótt og á morgun. Samkvæmt veðurfræðingi á Veðurstofunni má búast við miklum vindhviðum um allt land í nótt. Fólk er hvatt til að fylgjast með hlutum sem gætu fokið til í vindinum og festa þá vel niður. Þá skal fólk passa að niðurföll séu ekki stífluð í og við gangstéttir.

Íslandsmet í blóðsöfnun í dag

Um 200 blóðgjafar komu í heimsókn í Blóðbankann að Snorrabraut í Reykjavík í dag sem er Íslandsmet í blóðsöfnun á einum degi, samkvæmt upplýsingum frá Blóðbankanum.

Fólk þarf ekki að vera hrætt við að mæta í vinnuna á morgun

"Ég vil benda fólki á að líkurnar á svona árásum eru litlar og það þarf ekki að vera hrætt við að mæta í vinnuna á morgun. En það sem fyrirtæki þurfa nauðsynlega að gera núna, er að gera sig tilbúin fyrir þennan möguleika,“ segir Eyþór Víðisson öryggisfræðingur hjá VSI, öryggishönnun og ráðgjöf.

Mjólkin fram og til baka milli landshluta - arfavitlaust segir bóndi

Kúabændur á norðanverðum Vestfjörðum standa í stríði við Mjólkursamsöluna um lokun mjólkurstöðvarinnar á Ísafirði og segja arfavitlaust að aka mjólkinni í aðra landshluta og síðan aftur að sunnan til neytenda fyrir vestan. Fyrir fjörutíu árum voru níutíu kúabændur á norðanverðum Vestfjörðum en nú eru aðeins níu eftir. Bændurnir fáu sem eftir eru framleiða þó samtals meiri mjólk en allur fjöldinn gerði áður.

Rólegur í yfirheyrslum hjá lögreglu - tilbúinn að mæta örlögum sínum

Árásarmaðurinn er þrjátíu og fjögurra ára gamall Reykvíkingur en hann átti í vanskilum og sá lögmannsstofan um að innheimta eitt af lánum hans. Maðurinn virkar rólegur og yfirvegaður í yfirheyrslum hjá lögreglu. Ekkert bendir til þess að hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna eða lyfja.

FME vill að íslensku bankarnir stilli innheimtuaðgerðum í hóf

Fjármálaeftirlitið hefur beint tilmælum til íslensku bankanna um að stilla innheimtuaðgerðum í hóf meðal þeirra sem réttaróvissa ríkir um í kjölfar gengislánadóms Hæstaréttar um miðjan Febrúar. Fulltrúar bankanna verða kallaðir á fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis á morgun til að kanna viðbrögð þeirra við tilmælum FME. Á heimasíðu stjórnarráðsins segir að skuldastaða heimilanna var á meðal mála sem fjallað var um á fundi ráðherranefndar um efnahagsmál í dag. Að loknum fundinum á morgun er ætlunin að ræða nánar hvort þörf sé á auknum lagaheimildun, svo sem til að samræma aðgerðir sýslumanna, tryggja flýtimeðferð, endurupptöku mála sem reist voru á ólögmætum forsendum og til að tryggja gjafsókn eða skaðleysi neytenda í afdrifaríkum prófmálum. Nánar á heimasíðu stjórnarráðsins.

Gæsluvarðhalds krafist yfir árásarmanninum

Lögreglan ætlar að fara fram á gæsluvarðhald á morgun yfir manninum sem rést á karlmann á lögfræðiskrifstofunni Lagastoð í morgun. Lögreglan segir í tilkynningu sem var send fjölmiðlum rétt eftir klukkan fimm að svo virðist sem innheimta minniháttar skuldar hafi verið tilefni líkamsárásarinnar.

Samstaða kaus nýjan varaformann

Á fundi stjórnar Samstöðu, flokks lýðræðis og velferðar, 29. febrúar síðastliðinn var Sigurjón Norberg Kjærnested kjörinn annar varaformaður flokksins eftir að Sigurður Þ. Ragnarsson ákvað að segja skilið við flokkinn.

Geir: Afskipti mín af Icesave hefðu engu breytt

"Afskipti mín af því hvort Icesave ætti að vera í dótturfélagi í Bretlandi eða ekki hefðu engu breytt, og hefðu verið úr takti við málið," sagði Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir Landsdómi í morgun.

Árásarmaðurinn í yfirheyrslu

Maðurinn sem fór inn á lögfræðiskrifstofuna Lagastoð í morgun vopnaður hnífi og stakk Skúla Sigurz, framkvæmdastjóra skrifstofunnar, hefur verið í yfirheyrslum eftir hádegi í dag.

Neyðarástand í Blóðbankanum: "Þurfum að spýta í lófana“

"Við höfum þurft að grípa til neyðarbirgða,“ segir Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir Blóðbankans, en hann hefur lýst yfir neyðarástandi í Blóðbankanum þar sem sárlega vantar blóð. Meðal þess sem helst þarf eru blóðflokkarnir O plús og mínus og A einnig í plús og mínus.

Segir Guðlaug Þór hafa komið gögnum í Kastljós

Gunnar Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins telur alþingismanninn Guðlaug Þór Þórðarson hafa komið gögnum um sig til Kastljóss og að þau gögn hafi verið undirstaðan í umfjöllun þáttarins um hann í nóvember síðastliðnum. Stjórn FME kærði Gunnar til lögreglu fyrir helgi vegna gruns um að hann hafi brotið af sér í starfi með því að hafa, með ólögmætum hætti, aflað sér upplýsinga um Guðlaug Þór.

Landsdómur: Samantekt klukkan fimm

Þorbjörn Þórðarson og Breki Logason fréttamenn fara yfir það sem gerðist í aðalmeðferð Landsdómsmálsins í Þjóðmenningarhúsinu á milli klukkan 16 og 17.

Landsdómur: Sjötta samantekt - myndskeið

Þorbjörn Þórðarson og Breki Logason fréttamenn fara yfir það sem gerðist í aðalmeðferð Landsdómsmálsins í Þjóðmenningarhúsinu á milli klukkan 15 og 16.

Landsdómur: Fimmta samantekt - myndskeið

Þorbjörn Þórðarson og Breki Logason fréttamenn fara yfir það sem gerðist í aðalmeðferð Landsdómsmálsins í Þjóðmenningarhúsinu á milli klukkan 14 og 15.

Landsbankinn átti ekki nægar eignir fyrir dótturfélagið

Landsbankinn þurfti að leggja fram eignir sem ekki voru fyrir hendi, hefði hann ætlað sér að stofna sérstakt dótturfélag um starfsemi sína í Bretland, eða svokallað Icesave reikninga. Þetta sagði Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir Landsdómi í morgun.

Landsdómur: Fjórða samantekt - myndskeið

Þorbjörn Þórðarson fréttamaður fer yfir það sem gerðist í aðalmeðferð Landsdómsmálsins í Þjóðmenningarhúsinu á milli klukkan 13 og 14. Sigríður Friðjónsdóttir hélt þar áfram að taka skýrslu af Geir H. Haarde.

Ummæli í DV dæmd dauð og ómerk: Rannsókn var ekki hafin

Ritstjórar DV, þeir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson, auk fréttastjórans Inga F. Vilhjálmssonar, er gert að greiða Jóni Snorra Snorrasyni 200 þúsund krónur hver fyrir ummæli sem birtust um Jón Snorra í DV í mars á síðasta ári.

Ungmenni á ofsahraða í Bolungarvíkurgöngum

Svo virðist sem fámennur hópur ungra ökumanna stundi hraðakstur í Bolungarvíkurgöngum. Fram kemur á heimasíðu Umferðarstofu að þótt hraðakstur einskorðist síður en svo við bifhjólamenn, þá segja forráðmenn lögreglunnar á Vestfjörðum að algengt sé að einstaka bifhjólamenn fari á ofsahraða um göngin og láti félaga sína vakta ferðir og staðsetningu lögreglu á meðan.

Sjá næstu 50 fréttir