Fleiri fréttir

Engin ákvörðun um áfrýjun í barnavændismálinu

Ríkissaksóknari kannar nú hvort forsendur séu fyrir því að áfrýja dómi Héraðsdóms Vesturlands í kynferðisbrotamáli til Hæstaréttar. Dómurinn var kveðinn upp á fimmtudaginn, en karlmaður var dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynmök við fjórtán ára gamlan pilt gegn greiðslu.

Frægir deyja þegar fótboltamaður skorar mark

"Þetta er ótrúlegt. Tölurnar geta komið manni á óvart í sambandi við hvað sem er en ég held að þetta geti allt eins verið tilviljun," segir Hermundur Rósinkranz, talnaspekingur og miðill. Stuðningsmenn Arsenal í Bretlandi tengja nú dauða söngdívunnar Whitney Houston við miðjumann liðsins, hinn velska Aaron Ramsey.

Eigandinn veit ekkert hvernig bíllinn endaði í vatninu

Allt er á huldu um það hvernig stendur á því að jeppa var ekið ofan í Vífilsstaðavatn. Jeppinn fannst um níuleytið í morgun. Lögreglan hefur haft samband við eiganda bílsins og gat hann engar skýringar gefið á því hvernig bíllinn endaði ofan í vatninu.

Enginn í bílnum

Enginn var i bílnum sem fannst um klukkan níu í morgun út í Vífilstaðavatni. Slökkviliðið sendi kafara að bílnum um leið og af honum fréttist. Kafarar fóru samstundis að bílnum og þá kom í ljós að hann var mannlaus. Kafararnir eru nú að að kanna vatnið í kringum bílinn og telja þeir sig sjá spor við bílinn. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu munu kafarar leita ofan í vatninu eitthvað fram eftir morgninum til þess að fullvissa sig um að enginn sé í því. Slökkviliðið er einnig farið að huga að því að koma bílnum úr vatninu.

Bíll fannst í Vífilstaðavatni

Slökkviliðið er statt á Vífilsstöðum og hafa kafarar verið sendir ofan í vatnið. Bíll fannst í vatninu nú rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var enginn í bílnum. Við segjum nánar frá þessu í fréttum í dag.

Loðnugangan komin vestur fyrir Höfn í Hornafirði

Aðal loðnugangan er nú komin vestur fyrir Höfn í Hornafirði og nálgast Hrollauglseyjar. Þar eru nú að minnsta kosti tíu loðnuskip og eru að farin að veiða á grunninu og nota nú nætur í stað flottrolla.

Minnihluti fylgjandi Vaðlaheiðargöngum

Um 28 prósent landsmanna vilja að ráðist verði í gerð Vaðlaheiðarganga í ríkistryggðri einkaframkvæmd en 47 prósent eru því andvíg, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Tæplega 44 prósent vilja falla frá ákæru

Þjóðin er klofin í tvær jafnar fylkingar í afstöðu sinni til þess hvort Alþingi eigi að draga til baka ákæru á hendur Geir H. Haarde fyrir Landsdómi, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Rammaáætlun felur ekki í sér endanlega úthlutun

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir ekki rétt að halda því fram að í rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða felist endanleg úthlutun þeirra náttúrusvæða sem þar eru undir. Vinna við áætlunina er á lokaspretti og hún segir hana vera forgangsverkefni hjá sér og Oddnýju G. Harðardóttur, starfandi iðnaðarráðherra.

Minna ofbeldi í miðborginni

Alls urðu 1.578 fyrirtæki gjaldþrota á árinu 2011 og hafa aldrei verið fleiri á einu ári. Til samanburðar urðu 982 fyrirtæki gjaldþrota á árinu 2010. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar um nýskráningar og gjaldþrot sem birtar voru nýlega.

Taldi sig eiga óuppgerð mál

Karlmaðurinn sem varð fyrir hrottalegri árás á heimili sínu á Þórshöfn aðfaranótt sunnudags er ekki í lífshættu, samkvæmt upplýsingum frá Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Tilgangurinn var ekki að valda skaða

Karl á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið fyrir sprengjunni sem sprakk á Hverfisgötu, skammt frá Stjórnarráðinu, snemma að morgni 31. janúar síðastliðinn. Hann mun hafa verið einn að verki og hefur verið sleppt úr haldi.

Vilja skýr svör um bótaskyldu

Þrír bændur telja að Ísafjarðarbær beri ábyrgð á því tjóni sem þeir urðu fyrir af völdum díoxín-mengunar frá sorpbrennslustöðinni Funa í Engidal. Lögmaður bændanna hefur skrifað Ísafjarðarbæ, sem átti og rak Funa, og óskað eftir afstöðu sveitarfélagsins til bótaskyldu.

Sammála um annað en ESB

Stofnfundur nýrrar breiðfylkingar um framboð til næstu alþingiskosninga var haldinn í gær. Að fylkingunni standa auk annarra þingmenn Hreyfingarinnar, Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn og ýmis grasrótarsamtök.

Vill alhliða lög gegn mismunun

Ísland þarf alhliða lög gegn mismunun og óháða jafnréttisnefnd til þess að hrinda ákvæðum laganna í framkvæmd. Þetta sagði mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins, Thomas Hammarberg, að lokinni tveggja daga heimsókn til Íslands.

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslynda flokksins og fleiri aðila standa að. Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segir nú hópinn kanna hvort hægt verði að hefja samstarf undir formerkjum nýs stjórnmálaafls.

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forsetaembættið. Þetta sýnir ný könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins.

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. Upplýsingar um það hvernig atkvæðin féllu eru ekki gefnar upp að svo stöddu, en samkvæmt upplýsingum frá RÚV voru dómnefndin og almenningur nokkuð samhljóma í vali sínu.

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt rúmlega átta í morgun grunaður um ölvunarakstur.

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikarinn og leikstjórinn Bergur Þór Ingólfsson sem leikstýrir leiksýningunni Galdrakarlinn í Oz sem er sýnd í Borgarleikhúsinu.

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að segja af Hlíðarfjalli en þar á að athuga með opnun klukkan tíu. Ef allt gengur að óskum verður upp þar til klukkan fjögur.

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lögreglubifreið samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefánsdóttir sem samdi lagið og texta en hún átti einnig annað lag sem komst í úrslitaþáttinn. Hún flutti lagið einnig ásamt Jóni Jósepi Snæbjörnssyni, eða Jónsa.

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ekki sölu á víni merkt sveitinni, fyrir utan Vínbúðina í Skeifunni í dag.

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarráði Íslands. Óvíst er hvaða refsingu hann á yfir höfði sér en svo gæti farið að hann fái einungis sekt. Innanríkisráðherra segir eftirlit hafa verið aukið við ákveðna staði eftir atvikið.

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er búist við hríðarveðri frá því seint í kvöld og nótt, en slyddu og rigningu í byggð - og eins norðanlands með morgninum. Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð byljóttum vindi í nótt og hviðum allt að 30-35 m/s.

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi á fimmtudaginn. Alls áttu tólf manns sæti á listanum, sem á aðeins einn mann í bæjarstjórn.

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafullir og verið ógnandi við fólk sem gekk um Klambratúnið á milli tvö og þrjú í dag. Meðal annars hrelldu þeir börn sem urðu skelfd og burtu í grát. Mennirnir voru farnir þegar lögreglan kom á vettvang.

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir að sýna hárrétt viðbrögð á neyðarstundu þegar dóttir hans fór í hjartastopp á heimili þeirra þann 29. janúar 2011. Gísli tók við viðurkenningu Rauða krossins í göngugötunni í verslunarmiðstöðinni Smáralind kl. 14:00 í dag á hátíðardagskrá Neyðarlínunnar og samstarfsaðila um 112-daginn.

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði Íslands fyrir tæpum tveimur vikum. Maðurinn var einn að verki. Málið telst upplýst og hefur manninum verið sleppt úr haldi.

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega líkamsárás sem hann varð fyrir á heimili sínu á Þórshöfn í nótt. Karlmaður á þrítugsaldri braust inn til hans og misþyrmdi honum hrottalega samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík.

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Munað getur nokkrum milljónum á einstökum lyfjameðferðum eftir þyngd fólks. Framkvæmdastjóri á spítalanum segir mikilvægt að huga að forvörnum þar sem þær geti sparað mikið.

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins. Hnífaárásin reyndist ekki lífshættuelg. Fíkniefni fundust á einum manninum og voru þeir svo allir færðir í fangageymslur. Þá var fórnarlambið einnig handtekið eftir að búið var að gera að sárum hans á slysadeild.

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir karlmanni á áttræðisaldri sem handtekinn var í gær vegna sprengjumálsins.

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærkvöldi. Grunur vaknaði um kannabisreykingar. Við leit fann lögreglan hassblandað tóbak á einum unglingnum. Málið var afgreitt á vettvangi, en vegna aldurs var haft samband við forráðamenn og barnavernd látin vita um aðstæður.

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að lúta úrskurði yfirfasteignamatsnefndar um álagningu fasteignagjalda á hesthús. Samkvæmt úrskurðinum hafa hesthús í Reykjavík um árabil verið í röngum gjaldaflokki. Fasteignagjöldin hafa nú margfaldast.

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið úr landi. Nú verður metið hvort um dýrmætar menningarsögulegar minjar sé að ræða. Sérfræðingar óttast að slíkir hlutir séu bræddir hérlendis.

Sjá næstu 50 fréttir