Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Meira en helmingur þjóðarinnar vill kosningar í vor Meirihluti landsmanna vill að þing verði leyst upp og boðað til alþingiskosninga í vor. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Um tuttugu prósent þeirra sem styðja ríkisstjórnina vilja kosningar. 10.2.2012 18:42
Myndbandið er ekki gabb - hellti upp á kaffi og tók svo upp "Þetta er alls ekki sviðsett af mér, það er alveg fráleitt. Þetta er ekkert gabb,“ segir Hjörtur E. Kjerúlf, sem tók myndbandið af meintum Lagarfljótsormi á dögunum. Um tvær og hálf milljón notenda á YouTube hefur séð myndbandið. 10.2.2012 17:53
Karl á áttræðisaldri í haldi vegna sprengjumálsins Karlmaður á áttræðisaldri er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, grunaður um aðild að sprengjumálinu svokallaða, á Hverfisgötu um mánaðarmótin. Maðurinn var handtekinn í dag en lögregla hefur jafnframt lagt hald á ýmsan búnað sem tengist áðurnefndu máli. 10.2.2012 18:20
Á skilorð fyrir kynmök við barn Karlmaður hefur verið dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa tvisvar haft kynmök við fjórtán ára gamlan pilt og greitt piltnum fyrir. Héraðsdómur Vesturlands kvað upp dóminn í gær. Maðurinn játaði brot sín. 10.2.2012 17:17
Einstök ákvæði stjórnarskrár borin undir þjóðaratkvæði Stjórnarliðar vilja að þjóðin verði spurð álits á einstökum álitaefnum um stjórnarskrá í sumar. Ekki lögð fram heildstæð tillaga að stjórnarskrá. Þingnefnd vinni úr niðurstöðum. Sérfræðingar telja málið þurfa meiri tíma. 10.2.2012 17:15
Nýr flokkur aldrei fengið meira en 10% "Þetta er vísbending um mikla óánægju með fjórflokkana,“ segir Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði og forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands um nýja könnun Fréttablaðsins á fylgi flokkanna. Könnunin sýnir að Samstaða, nýr flokkur Lilju Mósesdóttur fær yfir 20% fylgi og fengi og 14 þingmenn kjörna. 10.2.2012 16:59
Ögmundur vill sjá hvað hangir á spýtunni í Nubo málinu Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ekki hafa fylgst með þeim samningaviðræðum sem nú eru í gangi á milli sveitarfélagsins Norðurþings og kínverska auðkýfingsins Huang Nubo. Fréttastofa greindi frá því á dögunum að Norðurþing íhugi að kaupa Grímsstaði á fjöllum með láni frá Nubo og leigja honum hana síðan. 10.2.2012 16:55
Tæplega 70% með leka púða Búið er að ómskoða 105 þeirra kvenna sem fengið hafa PIP-brjóstapúða í gegnum árin. Landlæknir hefur eftir Krabbameinsfélagi Íslands, sem annast ómskoðanirnar, að 71 kona hafi greinst með leka púða. Það þýðir að 68 prósent þeirra sem til Krabbameinsfélagsins hafa leitað hafa reynst vera með leka púða. Alls hafa um 400 konur fengið boð frá Krabbameinsfélaginu um að mæta í ómskoðun en ríkið mun sjá um kostnaðinn við brottnám PIP púðanna. 10.2.2012 15:59
Ókeypis í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn um helgina Vetrarhátíð í Reykjavík er gengin í garð og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn tekur þátt um helgina. Gestum er boðið í garðinn sér að kostnaðarlausu á milli klukkan tíu og tólf á laugardag og sunnudag. Eftir hádegi gildir hinsvegar gjaldskrá eins og venjulega. Ýmislegt er í boði í garðinum og geta gestir fengið innsýn inn í hvernig dýr sjá umhverfi sitt í myrkri. 10.2.2012 14:56
Ástæða til að stöðva útflutning á munum Ástæða þykir til að stöðva útflutning á nokkrum munum sem P&H Jewellers hafði keypt af Íslendingum. Þetta var niðurstaða safnaráðs sem hittu fulltrúa fyrirtækisins í dag. Safnaráð kom á fundinum með fyrirtækinu í tilefni af auglýsingu í Fréttablaðinu á laugardaginn þar sem fólk var hvatt til að koma með gull og skartgripi til mats og mögulegrar sölu hjá fyrirtækinu. 10.2.2012 13:36
Fréttaskýring: Ármann valdamestur sjálfstæðismanna Á þriðjudaginn 14. febrúar mun Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi, verða formlega bæjarstjóri í sveitarfélaginu, sem er hið næst stærsta á landinu á eftir Reykjavík með 30.779 íbúa samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Ármann verður með þessu valdamesti kjörni fulltrúi Sjálfstæðisflokksins á landsvísu, þegar mið er tekið af fjölda íbúa sveitarfélaga þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er við stýrið og þeirri staðreynd að flokkurinn er ekki við stjórnartaumana í landsmálunum. 10.2.2012 13:30
Átta mánaða fangelsi fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu Tuttugu og sex ára gamall karlmaður hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að ráðast á fyrrverandi sambýliskonu sína, taka hana hálstaki, skella henni utan í veggi og hrinda henni í gólfið. Árásin mun hafa átt sér stað á heimili mannsins í miðborg Reykjavíkur í október árið 2010. Maðurinn neitaði sök og sagði að konan hefði komið á heimili sitt og dottið þegar hann var að beina henni út og haldið henni á lofti við það. Dómurinn tók þeim skýringum mannsins ekki trúanlega. Maðurinn hefur tvisvar verið dæmdur fyrir líkamsárásir og var á skilorði þegar hann braut gegn fyrrverandi sambýliskonunni. 10.2.2012 13:20
Milljónir hafa séð Lagarfljótsorminn á YouTube Tvær og hálf milljón notenda YouTube hefur nú séð myndbandið sem Hjörtur Kjerúlf tók við Lagarfljót á dögunum. Ríkisútvarpið sýndi myndskeiðið á dögunum en síðan þá hafa margir af stærstu miðlum heims tekið fréttina upp. 10.2.2012 12:42
Segir aðra kosti hafa verið í stöðunni Fullyrðingar Rannveigar Ásgeirsdóttur, oddvita Lista Kópavogsbúa, um að engin kostur annar hafi verið í stöðunni en að mynda meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum eru út í hött. Þetta fullyrðir Hafsteinn Karlsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, í tilkynningu sem hann sendi fyrir hönd bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar og VG. Hafsteinn segir að Samfylkingin, Vinstri græn og Framsóknarflokkur hafi boðið Lista Kópavogsbúa að minnsta kosti tvívegis í samstarf en Rannveig hafi ekki sýnt því neinn áhuga og neitað að taka þátt í slíkum viðræðum. 10.2.2012 12:16
Ólafur Ragnar með opið hús Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ætlar að bjóða almenningi að heimsækja Bessastaði milli klukkan fjögur og átta í dag. Gestum býðst að skoða bæði Bessastaðastofu og Bessastaðakirkju. 10.2.2012 11:50
Tjónum á lögreglubílum hefur fækkað umtalsvert Lögreglubílar á Íslandi lentu 80 sinnum í tjóni á síðasta ári. Kostnaður vegna þessa nam 7,3 milljónum króna. Tjónum hefur fækkað mikið síðustu ár en árið 2007 voru þau 140 talsins og 168 árið 2008. Þetta kemur fram í skýrslu sérstaks starfshóps sem ætlað er að hafa eftirlit með öllu því er varðar ökutæki og tækjabúnað lögreglunnar. Í skýrslu hópsins sem nú er komin út segir að það sé mat manna að þessa fækkun tjóna megi meðal annars rekja til þess að akstur lögreglubíla hefur dregist verulega saman og að námskeið í forgangsakstri hafi skilað árangri. Aðhald frá starfshópnum hefur einnig skilað árangri. 10.2.2012 11:33
Hjallastefna til Vestmannaeyja Hjallastefnan er á leið til Vestmannaeyja. Bætist þá ellefti skólinn við þá tíu leikskóla sem þegar eru reknir undir merkjum Hjallastefnunnar víða um land. Þetta var ljóst þegar bæjarráð Vestmannaeyja ákvað að taka tilboði Hjallastefnunnar í rekstur leikskólans Sóla. Tilboðið var það lægsta sem barst í útboði. 10.2.2012 11:00
Lilja hrærð yfir viðbrögðunum Lilja Mósesdóttir, formaður Samstöðu, nýs stjórnmálaafls sem hyggst bjóða fram í þingkosningum að ári, segir niðurstöður í nýrri könnun koma sér og flokksfélögum á óvart. Flokkurinn mældist með 21,3% fylgi í könnun sem Fréttablaðið birtir í dag og var framkvæmd i gær og í fyrradag. Samkvæmt niðurstöðunum fengi flokkurinn fjórtán þingmenn kjörna. 10.2.2012 10:29
Barnaheill fá styrk til uppbyggingarstarfs í Norður-Úganda Barnaheill - Save the Children á Íslandi hafa fengið 3,3 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu fyrir menntunar- og uppbyggingastarf sitt í Pader- og Agogo-héruðum í Norður-Úganda. Í tilkynningu frá samtökunum segir að styrkurinn verði nýttur til að bæta næringu þeirra barna sem sækja skóla samtakanna á þessu svæði. 10.2.2012 10:07
Trésmiður fær ekki bætur eftir vinnuslys Pólskur trésmiður sem krafðist tæplega 35 milljóna króna bóta frá Sjóvá - Almennum eftir vinnuslys sem hann varð fyrir í starfi hjá Ístaki á ekki rétt á bótunum. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem kvað upp dóm sinn í morgun. Maðurinn varð óvinnufær í tvö ár og hlaut 25% varanlega örorku eftir að hann féll úr stiga við vinnu sína árið 2008. 10.2.2012 09:59
Skatturinn skoðar fjármál Jens Einn lýtalæknir er nú formlega til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er hér um að ræða Jens Kjartansson. 10.2.2012 09:30
Tónlistarsmekkur ráði ekki úrvalinu í ÁTVR Formaður efnahags- og skattanefndar segir ÁTVR seilast langt eftir rökum fyrir því að banna rauðvín merkt Motörhead og hvetur til hófs. Löggjöf um vöruval hafi ekki haft þennan tilgang. Talsmaður ÁTVR stingur upp á breyttu verklagi. 10.2.2012 09:30
Bíða vitna að utan í máli Egils Lögregla stefnir að því að ljúka í næstu viku rannsókn tveggja nauðgunarmála gegn skemmtikraftinum Agli Einarssyni, að sögn Björgvins Björgvinssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. 10.2.2012 09:00
Fangelsisstjóri kærir stuld á lyftingatólum Geirmundur Vilhjálmsson, sem vikið var úr starfi fangelsisstjóra á Kvíabryggju og ákærður fyrir auðgunarbrot í starfi, hefur kært Pál Winkel fangelsismálastjóra fyrir þjófnað á lyftingatólum sem Geirmundur kveðst hafa átt á Kvíabryggju. 10.2.2012 08:30
Norðlendingar álasa Jóhönnu "Ekki er hægt að una slíkum samskiptum á milli stjórnsýslustiga og ámælisvert að æðstu ráðmenn landsins skuli koma þannig fram við heilu landshlutana,“ segir byggðaráð Skagafjarðar sem kveður stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa undanfarna mánuði árangurslaust reynt að ná fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. 10.2.2012 07:45
Nýtt framboð Lilju Mósesdóttur með ríflega fimmtungs fylgi Kjósendur virðast bíða eftir nýjum framboðum samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Ný framboð mælast með nærri þriðjung atkvæða. Hátt hlutfall tekur ekki afstöðu til flokka. 10.2.2012 07:30
Kveikt í póstkössum í Kópavogi Kveikt var í póstkössum í anddyri fjölbýlishúss við Vallakór í Kópavogi í gærkvöldi. 10.2.2012 07:27
Bíll gjöreyðilagðist í eldi Fólksbíll gjöreyðilagðist í eldi í Hafnarfirði í nótt og nálægur bíll skemmdist talsvert, þegar eldtungurnar náðu til hans. 10.2.2012 07:24
Sjúkraflutningamenn tóku á móti barni Litlum snáða lá svo á að komast í heiminn á heimili sínu við Laugateig í Reykjavík í gærkvöldi, að hann fæddist heima hjá sér um leið og sjúkraflutningamenn voru komnir til að flytja móðurina upp á fæðingadeild. 10.2.2012 07:18
Ummæli Snorra í Betel til skoðunar Akureyrarbær hefur nú ummæli Snorra Óskarssonar, sem oft er kenndur við trúarsöfnuðinn Betel, til skoðunar. Í pistli á bloggsíðu sinni sagði hann samkynhneigð vera synd. Snorri kennir unglingum í Brekkuskóla á Akureyri. 10.2.2012 07:15
Sorp flokkað á herbergjum Grand Hótel Reykjavík hyggst fyrst hótela í borginni taka upp þriggja þátta sorpflokkunarkerfi á herbergjum. 10.2.2012 07:00
Tveir laumufarþegar gripnir í Sundahöfn Tveir erlendir hælisleitendur voru gripnir, þegar þeir voru að reyna að laumast um borð í flutningaskip í Sundahöfn upp úr miðnætti. 10.2.2012 06:47
Fer fyrir borgarráð í næstu viku Borgarráði verður í næstu viku kynntur dómur Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem borginni er gert að greiða Frjálslynda flokknum tæplega 3,4 milljónir króna með vöxtum. Dómurinn er til kominn vegna framlags sem ranglega rann til Borgarmálafélags F-lista, sem Ólafur F. Magnússon, þáverandi oddviti listans, hafði stofnað. 10.2.2012 06:15
Klapparstígur tekinn í gegn Klapparstígur verður endurnýjaður frá grunni ofan Laugavegar að Skólavörðustíg í sumar. Útlit götunnar að loknum framkvæmdum verður svipað og er á Skólavörðustíg. Allt yfirborð götu og gangstétta verður endurnýjað, ásamt lögnum sem komnar eru á tíma. Þá verður sett snjóbræðsla í götu og gangstéttir. Gönguleiðir verða breikkaðar og akbraut mjókkuð, auk þess sem hún verður upphækkuð á gatnamótum. 10.2.2012 06:00
Tæki til hljóðritunar of dýr Ofurtollar á tæki sem ætluð eru til hljóðritunar mismuna blindum sem hafa ekki efni á tækjum sem sérhönnuð eru til að spila ákveðna tegund hljóðbóka. Þetta segir Arnþór Helgason, fyrrverandi formaður Öryrkjabandalags Íslands. 10.2.2012 05:30
Stórt skref í átt að fullnaðarsigri Alistair Grétarsson hefur undanfarin ár starfað fyrir UNICEF á Indlandi þar sem lyft hefur verið grettistaki í baráttunni gegn lömunarveiki. Rúmt ár er frá síðasta staðfesta tilfelli, en í samtali við Þorgils Jónsson segir Alistair að alls ekki megi slá s 10.2.2012 05:00
Fundar með Huang Nubo í Kína Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, er í Beijing í Kína. Þar mun hann funda með kínverska fjárfestinum Huang Nubo, sem hefur augastað á jörðinni Grímsstöðum á Fjöllum. „Ég er að ræða við Nubo um hvort hægt sé að koma einhverjum hugmyndum hans á skrið aftur,“ segir Bergur. 10.2.2012 05:00
Nú þarf að bíða eftir hlákunni Mokað hefur verið burt snjóhraukum sem talið var að hætta stafaði af í Reykjavík. Hraukarnir hafa hlaðist upp í snjómokstri borgarinnar síðustu vikur. 10.2.2012 03:00
Hafði aldrei tekið bílpróf Ökumaður á sextugsaldri var stöðvaður í reglubundnu eftirliti lögreglunnar á Hvolsvelli um síðustu helgi. Þegar lögreglan óskaði eftir að sjá ökuskírteini mannsins kom í ljós að hann var ekki með skírteini og það sem meira er, hann hafði aldrei á ævinni fengið ökuréttindi. Sunnlenska.is greindi frá þessu. 10.2.2012 03:00
Málefnasamningur nýs meirihluta kynntur Málefnasamningur nýs meirihluta í Kópavogi var opinberaður í kvöld. Áhersla er lögð á niðurgreiðslu skulda. Einnig á að endurskoða fasteignagjöld og önnur gjöld með lækkun í huga. 9.2.2012 21:38
Kveikt í dagblöðum í Kópavogi Kveikt var í dagblöðum sem lágu í póstkössum í fjölbýlishúsi við Vallakór í Kópavogi í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var búið að slökkva eldinn þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang. Þó nokkur reykur var þó í anddyri og á stigagangi fjölbýlishússins og þurfti því að reykræsta og lofta út, að sögn varðstjóra. Ekki er vitað hverjir voru að verki. 9.2.2012 22:05
Spáðu mikið í framtíðina Bræðurnir Bergsveinn og Kristján Guðmundssynir skildu eftir bréf milli þilja í húsi á Ísafirði árið 1927. Bréfið kom syni Bergsveins ekki á mikið óvart. 9.2.2012 20:30
Íslenskir leikstjórar á mála hjá bresku framleiðslufyrirtæki Leikstjórarnir Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson hafa gengið til liðs við framleiðslufyrirtækið Thomas Thomas Films. 9.2.2012 19:49
Framboðsfrestur rennur út eftir þrjá og hálfan mánuð Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur enn ekki tekið af öll tvímæli um hvort hann gefi kost á sér til áframhaldandi starfa næsta kjörtímabil. Framboðsfrestur rennur út eftir þrjá og hálfan mánuð. 9.2.2012 21:56
Fáum einungis 12 prósent af hverri greiðslu í lífeyrissjóð Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að 742 milljarða vanti inn í lífeyrissjóðakerfið. 9.2.2012 20:01