Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Icelandair greiði áttatíu milljónir í sekt Hæstiréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms í máli Icelandair gegn Samkeppniseftirlitinu og þarf flugfélagið að greiða áttatíu milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu sinni. 9.2.2012 17:21
Listamannalaunin - 217 af 639 fengu úthlutað Úthlutunarnefndir listamannalauna hafa lokið störfum vegna úthlutunar fyrir árið 2012. Alls bárust 639 umsóknir frá einstaklingum og hópum. Af þeim fengu 217 úthlutað úr launsjóðum. 9.2.2012 17:01
Ármann nýr bæjarstjóri í Kópavogi Ármann Kr. Ólafsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi verður næsti bæjarstjóri í sveitarfélaginu en nýr meirihluti í Kópavogi var kynntur á blaðamannafundi sem hófst klukkan hálf fimm í dag. Núverandi bæjarstjóri, Guðrún Pálsdóttir, mun hverfa aftur til fyrri starfa sinna sem sviðstjóri hjá Kópavogsbæ. 9.2.2012 16:44
"Okkar prinsipp fóru til helvítis“ "Það er búið að heilaþvo sumt lið, okkar prinsipp fóru til helvítis,“ segir Ásdís Ólafsdóttir, ein af stofnendum Lista Kópavogsbúa sem hafa myndað meirihluta með Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum. 9.2.2012 16:14
Safnaráð fundar með breska gullkaupmanninum Í tilefni af auglýsingu breska fyrirtækisins P&H Jewellers í Fréttablaðinu laugardaginn 4. febrúar sl. þar sem fólk er hvatt til að koma með gull og skartgripi til mats og mögulegrar sölu, hefur safnaráð komið á fundi með fulltrúa fyrirtækisins þar sem sérfræðingar á vegum ráðsins munu skoða þá skartgripi sem fyrirtækið hyggst flytja úr landi. 9.2.2012 16:10
Klettaskóli endurbættur fyrir 2 milljarða króna Borgarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í dag að ráðast í nýja viðbyggingu og stórfelldar endurbætur á Klettaskóla, nýjum sameinuðum sérskóla í Reykjavík. Til stendur að koma þar upp 3.400 fermetra viðbyggingu með íþróttaaðstöðu og sundlaug sem þjóna mun skólanum. Þá er gert ráð fyrir að íþróttafélög fatlaðra geti nýtt íþróttasal og sundlaugina. 9.2.2012 15:41
Rauðir hundar greinast hér á landi Á síðustu 1-2 vikum hafa tveir fullorðnir einstaklingar greinst með rauða hunda hér á landi. Í tilkynningu frá Landlækni segir að báðir hafi þeir verið með einkennandi sjúkdóm og höfðu ekki verið bólusettir sem börn eða unglingar. Annar einstaklinganna hafði líklega smitast erlendis. Landlæknir segir þó ekki ástæðu til þess að hefja fjöldabólusetningu unglinga eða fullorðinna gegn sjúkdómnum að svo stöddu. Sjúkdómurinn greindist síðast hér á landi árið 1992. 9.2.2012 15:36
Sló heimsmet á Grænlandsjökli - Vatnajökull stoppaði hann Fjallgöngumaðurinn Alex Hibbert hringdi í föður sinn þegar hann og félagi hans, Finn McCann lentu í hrakningum uppi á Vatnajökli fyrr í vikunni. Fram kemur á vefsíðu Daily Mail að faðir Hibberts hringdi því næst í strandgæsluna í Bretlandi sem kom skilaboðum áleiðis til íslensku björgunarsveitanna. 9.2.2012 14:55
Kvörtunum vegna klámfenginna auglýsinga rignir inn "Þetta hefur verið mjög áberandi núna í haust og eftir áramót," segir jafnréttisstýra Jafnréttisstofu, Kristín Ástgeirsdóttir, en kvörtunum vegna klámfenginna auglýsinga hefur rignt yfir jafnréttisstofu að undanförnu. 9.2.2012 14:10
Engin ákvörðun verið tekin um mál frjálslyndra Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um það hvernig bregðast skuli við Héraðsdómi Reykjavíkur frá því í gær. 9.2.2012 13:33
Biðja verktaka að framlengja tilboð í Vaðlaheiðargöng Lægsta tilboð í Vaðlaheiðargöng rennur út eftir fimm daga. Formleg ósk um að það verði framlengt um fjóra mánuði verður lögð fram í dag. Fjórir mánuðir eru liðnir frá því tilboð voru opnuð í gerð Vaðlaheiðarganga en lægsta boð kom frá ÍAV og Marti og var upp á tæpa níu milljarða króna, um hálfum milljarði króna undir kostnaðaráætlun. 9.2.2012 11:53
Meirihlutinn klár í Kópavogi Málefnasamningur um meirihlutasamstarf í Kópavogi er frágenginn. Þetta staðesta oddvitar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Ómar Stefánsson, Framsóknarflokki, segir að búið sé að ákveða skiptingu embætta, svo sem bæjarstjóra og formann bæjarráðs. Hann vill þó ekkert segja nánar frá því fyrr en hann hefur talað við trúnaðarmenn í Framsóknarflokknum og fengið samþykki fyrir aðild flokksins að meirihlutanum. 9.2.2012 11:24
Vilja að allir forsvarsmenn lífeyrissjóðanna segi af sér Stjórn Hagsmunasamtaka Heimilanna hvetur alla stjórnarmenn, forstjóra og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða "sem bera ábyrgð á því hvernig fór“ að segja af sér eins og fram kemur í ályktun sem stjórn félagsins hefur samþykkt. 9.2.2012 11:00
Áfengissala í janúar svipuð og 2006 Sala á áfengi dróst saman um 2,3% í janúar síðastliðnum miðað við sama tímabil í fyrra. Alls seldust 1.074.000 lítrar í mánuðinum og er munurinn 25 þúsund lítrar. Samdráttur í sölu er talsvert meiri í bjór en léttvínum, eftir því sem fram kemur á vef Vínbúðanna. Þannig dróst sala á bjór saman um 3% á meðan sala á rauðvíni og hvítvíni dróst saman minna um minna en 1%. Ef litið er lengra aftur í tímann og salan í janúar í ár borin saman við söluna fyrir tveimur árum, þá seldust tæplega 8% færri lítrar af áfengi í ár. Salan nú er aftur á móti svipuð, í lítrum talið og hún var árið 2006, 9.2.2012 10:55
Foreldrar Brekkuskóla æfir vegna Snorra í Betel Foreldrar Brekkuskóla á Akureyri eru æfir vegna bloggfærslu Snorra Óskarssonar, oft kenndur við Betelsöfnuðinn og kennari við skólann, en þar leggst hann harkalega gegn samkynhneigð og sagði slíkar kenndir synd og að laun syndarinnar væri dauði. 9.2.2012 10:34
Hundur drap hænur á heimili í Breiðholti Skipulagsstjóri vill ekki leyfa hænsnahald í Reykjavík því hænur séu húsdýr en ekki gæludýr. Hundur drap þrjár landnámshænur í Seljahverfi um síðustu helgi. Hesthús er í næstu götu og hænueigendurnir undrast biðina eftir leyfi. 9.2.2012 09:00
Heitavatnslaust í Fossvogi og nágrenni í dag Heitavatnslaust verður frá kl. 9:00 í dag í Fossvogi og nágrenni vegna viðgerðar á heitavatnslögn. Vonast er til að viðgerð verði lokið uppúr kl. 19:00 í kvöld. Dragist viðgerð mun Orkuveitan senda út tilkynningu þar að lútandi og birta á heimasíðu sinni. 9.2.2012 08:58
Ríkið telur rokkvín hvetja til ólifnaðar ÁTVR neitar að taka til sölu rauðvín merkt ensku rokkhljómsveitinni Motörhead. Rökstutt með því að nafnið sé vísun í amfetamínneyslu og sveitin syngi um stríð, óábyrgt kynlíf og fíkniefni. Málið á borði umboðsmanns Alþingis. 9.2.2012 08:30
Nýr Börkur til Neskaupstaðar Síldarvinnslan hf. á Neskaupstað hefur bætt glæsilegu skipi við fiskiskipaflotann með kaupum á fjölveiðiskipinu Torbas frá Noregi. Skipið ber nafnið Börkur NK. 9.2.2012 08:00
Dregur úr skjálftahrinu á Reykjaneshrygg Verulega hefur dregið úr skjálftahrinunni sem hófst á Reykjaneshrygg, norðvestur af Eldeyjarboða í gærmorgun. 9.2.2012 07:22
Strokupiltanir fundust í veiðihúsi í Svartárdal Björgunarsveitarmenn fundu laust fyrir miðnætti tvo unglingspilta, sem strokið höfðu af meðferðarheimili í Skagafirði fyrr um kvöldið, og voru þeir orðnir kaldir og þrekaðir. 9.2.2012 06:55
Fjölskylda slapp ósködduð úr eldsvoða Fjögurra manna fjölskylda slapp ósködduð út, eftir að eldur kviknaði í íbúðarhúsi á Siglufirði um klukkan fjögur í nótt. 9.2.2012 06:51
Akureyringar ósáttir við tillögu Mikil andstaða virðist vera meðal Akureyringa við deiliskipulag sem nú liggur fyrir um Drottningarbrautarreitinn svokallaða. Akureyrarbæ voru í gær afhentar um 2.000 undirskriftir þar sem skipulaginu er mótmælt. 9.2.2012 06:00
Vilja sjöfalda fiskeldi sitt í Ísafjarðardjúpi Hraðfrystihúsið Gunnvör hyggst koma á fót samtals sjö þúsund tonna fiskeldi á nokkrum stöðum í Ísafjarðardjúpi. Hingað til hefur Gunnvör mest náð að framleiða eitt þúsund tonn af þorski á ári. Bæta á við laxi og regnbogasilungi. 9.2.2012 05:30
Möguleikar skyndibílakerfis kannaðir hérlendis Hugmyndir eru uppi hér á landi um að koma á laggirnar nýju samgöngukerfi sem miðar að því að fjölga valkostum í samgöngum og draga úr þörf almennings á að eiga marga bíla á hverju heimili. 9.2.2012 05:00
Yfir 200 þúsund tonn á land Víkingur AK, skip HB Granda, er á leið til Akraness eftir vel heppnaða veiðiferð á loðnumiðin á Grímseyjarsundi. Þar fengust um 1300 tonn af góðri loðnu í fjórum köstum yfir daginn. 9.2.2012 04:00
Nota nætursjónauka við leitina - þyrlan gæti verið kölluð út Unglingspiltarnir tveir sem struku af meðferðarheimili í Skagafirði síðdegis í dag eru ófundir en um fimmtíu björgunarsveitarmenn leita þeirra nú í Svartárdal, inn af Húnaveri. Björgunarsveitarmenn eru á fjórhjólum og bílum en ef þeir finnast ekki á næstu klukkutímum gæti þurft að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðstoðar. 8.2.2012 22:37
Um 50 björgunarsveitarmenn leita tveggja strokupilta Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Húnavatnssýslum og Skagafirði leita nú unglingspilta er struku af meðferðarheimili í Skagafirði fyrr í dag. 8.2.2012 21:54
Mögnuð ferð með þyrlu Landhelgisgæslunnar Fjöldi manna á líf sitt að launa nætursjónaukum. Um tíu ár eru liðin frá því Landhelgisgæslan tók sjónaukana til notkunar, og á þeim tíma hafa þeir skipt sköpum í björgun hundraða manna. Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir, í Íslandi í dag, kynnti sér málið og fékk að prófa á eigin skinni hvernig það er, að vera hífð upp úr sjó með aðstoð sjónaukans. 8.2.2012 20:45
Stebbi Hilmars vill sönglagakeppni fyrir Norðurlöndin "Ég hef lengi verið á því að það væri fín hugmynd að halda samnorræna sönglagakeppni, hafa Færeyjar líka með, 2-3 lög frá hverju landi, jafnvel fleiri. Eurovision er orðið of mikið monster," segir Stefán Hilmarsson, tónlistarmaður á Facebook-síðu sinni. 8.2.2012 21:37
Vilja að Ísland dragi sig úr Eurovision Á stjórnarfundi Ungra vinstri grænna í kvöld var samþykkt ályktun þess efnis að Ísland dragi sig úr Söngvakeppni evrópska sjónvarpsstöðva í ár. Í ályktuninni segir að Ísland eigi að nýta þá fjármuni sem annars færu í keppnina til að efla tónlistarkennslu hér heima fyrir. 8.2.2012 20:23
Denzel er svalari í eigin persónu en í bíómyndunum Baltasar Kormákur segir að Denzel Washington sé svalari í eigin persónu en í bíómyndunum. Að loknum tveggja tíma fundi þeirra í Los Angeles ákvað Denzel að leika aðalhlutverk í nýjustu mynd Baltasars. 8.2.2012 19:57
Sextíu og tvær milljónir til Finnlands og Noregs Einn Finni og einn Norðmaður voru með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu í kvöld og fá þeir um 62 milljónir í sinn hlut. Einn Íslendingur var með 2. vinning og fær hann rúmlega 3 milljónir króna en spilarinn keypti miðann sinn í Happahúsinu í Kringlunni. 8.2.2012 19:12
Íhuga að kaupa Grímsstaði með láni frá Nubo og leigja honum Sveitarfélagið Norðurþing íhugar nú að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum með láni frá Huang Nubo og leigja honum hana síðan. Sveitarfélagið myndi þá eiga jörðina gegn 25 prósenta hlut ríkisins. Bæjarstjóri Norðurþings er nú staddur í Peking til að hitta Nubo. 8.2.2012 18:52
"Við viljum ekki meiri stóriðju á Íslandi" Helstu félagasamtök um náttúvernd á Íslandi vilja að stjórnvöld fresti eða falli frá frekari uppbyggingu á vatnsaflsvirkjunum í neðri hluta Þjórsár. 8.2.2012 20:30
Lífeyrissjóður bankamanna átti engin hlutabréf í íslensku bönkunum Lífeyrissjóður bankamanna átti ekki krónu í hlutabréfum íslensku bankanna þegar þeir hrundu í október 2008. Sjóðurinn kom langtum betur undan hruni en stærstu lífeyrissjóðir landsins. 8.2.2012 20:04
Fundu amfetamín og eina og hálfa milljón í peningum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann 300 grömm af amfetamíni við húsleit í íbúð í Hafnarfirði á föstudag og lagði jafnframt hald á verulega fjármuni, eða um eina og hálfa milljón króna. 8.2.2012 19:16
Tilkynnt um vatnsleka - fundu 80 kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi í gær. Við húsleit fundust tæplega 80 kannabisplöntur, flestar á lokastigi ræktunar, og um 1,4 kg af marijúana. 8.2.2012 19:04
Magni syngur á plötu tileinkaðri Kiss Ég var einmitt að reyna rifja það upp áðan og fór og skoðaði e-mail-ana. Þetta var eiginlega ekki merkilegra en það að minn maður hjá plötufyrirtækinu mínu úti sendi mér: Hæ, viltu vera með á Kiss tribute-i?“ segir tónlistarmaðurinn Magni Ásgeirsson, sem flytur lagið Love It Loud með hljómsveitinni Kiss á tribute plötu sem kemur út í Bandaríkjunum eftir nokkrar vikur. 8.2.2012 17:46
Óvíst að Aserum sé greiði gerður ef Íslendingar sitja heima Það hefur engin ákvörðun verið tekin um það að hætta við þátttöku í Eurovision í Aserbaijan, segir Páll Magnússon útvarpsstjóri. Nafni hans, Páll Óskar Hjálmtýsson, hefur sagt opinberlega að hann vilji að Ísland taki ekki þátt í keppninni vegna mannréttindabrota í landinu. Nýjasta dæmi um þau er að íbúar í Bakú, höfuðborg landsins, hafa verið reknir af heimilum sínum og þau jöfnuð við jörðu. Þetta er gert til þess að hægt sé að byggja tónleikahöll fyrir keppnina. 8.2.2012 17:00
Amnesty minnir á ófremdarástandið í Aserbaídjan Íslandsdeild Amnesty International vekur athygli á skýrslu um ástand mannréttinda í Aserbaídsjan, sem kom út í lok 2011. Landið, sem heldur Eurovision keppnina þetta árið hefur mikið verið í umræðunni í dag sökum þess að Páll Óskar Hjálmtýsson hvetur Íslendinga til þess að sniðganga keppnina í ljósi frétta af mannréttindabrotum gegn íbúm í höfuðborginni Bakú sem hafa verið flæmdir brott af heimilum sínum til þess að hægt sé að byggja Kristalshöllina sem á að hýsa keppnina. 8.2.2012 16:31
Heitavatnslaust í Fossvogi og nágrenni á morgun Heitavatnslaust verður frá kl. 9:00 í fyrramálið í Fossvogi og nágrenni vegna viðgerðar á heitavatnslögn. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að svæðið sem um ræðir afmarkist af byggð neðan Bústaðavegar frá Reykjanesbraut að Borgarspítala og íbúðabyggð neðan Sléttuvegar að Kringlumýrarbraut. Þá verður einni heitavatnslaust í Ásgarði, raðhúsum við Tunguveg, Stjörnu- og Blesugrófinni í Reykjavík sem og húsum sem standa við Fossvogsbrún í Kópavogi og í hverfinu við Lund í Kópavogi. 8.2.2012 15:51
Ólafur átti ekki að ráðstafa peningnum Reykjavíkurborg hefur verið dæmd til að greiða Frjálslynda flokknum tæpar 6,8 milljónir vegna fjárframlaga fyrir árin 2008-2009 sem áttu að fara inn á reikning flokksins eftir að hann fékk einn mann kjörinn í borgarstjórn árið 2006. 8.2.2012 15:45
Björguðu fólki í flotbúningum með hjálp nætursjónaukans Landhelgisgæslan hélt á dögunum æfingu í Patreksfirði um miðja nótt þar sem fólk í flotbúningum kastaði sér útbyrðis úr bátum út í ískaldan sjóinn. Þyrla gæslunnar flaug síðan yfir fjörðinn, fann fólkið með hjálp nætursjónauka og bjargaði því um borð. 8.2.2012 15:45
Mikilvægt að ná samstöðu um nafnið Samstöðu "Grundvallaratriðið er að það er aðeins ein Samstaða," segir Sigurður Þ. Ragnarsson, varaformaður stjórnmálahreyfingarinnar Samstaða, flokkur um lýðræði og velferð. Þarna liggur einmitt kjarni málsins, hreyfingin heitir nefnilega líka flokkur um lýðræði og velferð. 8.2.2012 15:04