Fleiri fréttir

Flughált og slæm færð víða

Það er hálka á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er víðast hálka, snjóþekja eða jafnvel þæfingur. Flughált er austan Hvolsvallar.

Flugfélag Íslands frestar fyrstu ferðum í dag

Flugfélag Íslands hefur frestað fyrstu ferðum sínum innnlands fram á níunda tímann vegna ófærðar og skólaakstur hefur verið felldur niður á Hvammstanga, þar sem ekkert ferðaveður er þar um slóðir.

Vindhviðurnar náðu fellibylsstyrk

Vindur fór upp í 47 metra á sekúndu í vindhviðu að Hvammi, austan við Markarfljót í nótt, en það er aftakaveður eða fellibylsstyrkur.

550 sílíkonaðgerðir á ári

Árlega láta að minnsta kosti 550 konur hér á landi stækka á sér brjóstin eða endurnýja gamlar sílíkonfyllingar. Er þessi fjöldi miðaður við síðustu þrjú ár. Hlutfall endurnýjana getur verið allt að fjórðungur af heildartölunni, en oftast er mælst til þess að púðar séu endurnýjaðir á fimm til tíu ára fresti. Brjóstastækkun kostar á bilinu 400 til rúmlega 520 þúsund krónur.

Helmingur erlendra fanga búsettur hér

Hlutfall erlendra fanga sem búsettir eru hér á landi hefur aukist mikið síðan árið 2000. Í dag býr um helmingur fanga hér, en árið 2000 sátu sjö erlendir einstaklingar í fangelsi á Íslandi og af þeim var einungis einn búsettur hér.

Stundum er sígandi lukka best

Íslendingar borða aðeins heilsusamlegri mat en síðast þegar mataræði þeirra var kannað árið 2002. Ný könnun sýnir að sykrað gos hefur látið undan síga en sykurlaust gos sækir á. Skortur á D-vítamíni er eitt alvarlegasta vandamálið sem taka þarf á. Ný skýrsla Landlæknis, Matvælastofnunar og Rannsóknastofu í næringarfræði sýnir stöðuna 2010-2011.

Safna svo fáist augnlæknir

Augnlæknir fæst ekki lengur til starfa á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi vegna tækjaskorts. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hollvinasamtökum HSB um söfnunarátak fyrir nýjum búnaði fyrir HSB.

Bestu opinberu vefirnir valdir

Tryggingastofnun er með besta opinbera vefinn og Akureyrarbær með besta sveitarfélagsvefinn. Þetta er mat dómnefndar sem var fengin til að meta 267 opinbera vefi.

Vill selja hlut í Faxaflóahöfnum

Byggðaráð Borgarbyggðar ákvað á aukafundi á sunnudagskvöld að reyna að selja hlut sveitarfélagsins í Faxaflóahöfnum. Tilgangurinn er að fjármagna hluta Borgarbyggðar í átta milljarða króna lánveitingu eigenda til Orkuveitu Reykjavíkur.

Málum fjölgaði um 40 prósent milli ára

Á árinu 2011 bárust umboðsmanni Alþingis alls 519 kvartanir. Á sama tíma tók hann til athugunar níu mál að eigin frumkvæði. Skráð mál á árinu voru því alls 528 talsins, en það er 40 prósenta fjölgun frá árinu áður.

Hækkanir verði dregnar til baka

Hækkanir á þjónustu Reykjavíkurborgar við aldraða koma mjög illa við eldri borgara. Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni mótmælir hækkununum í ályktun og skorar á borgina að draga þær til baka.

Enn ein stormviðvörunin: Veður fer mjög versnandi suðvestanlands í kvöld

Ábending veðurfræðings fyrir kvöldið og nóttina: Veður fer mjög versnandi suðvestanlands í kvöld. Skafrenningur og takmarkað skyggni á veginum austur fyrir fjall strax um kvöldmatarleytið og hríðarveður um mest allt suðvestan og sunnanvert landið frá því seint í kvöld eða snemma í nótt.

Lítil stemning innan þingflokks VG

Stemningin var lítil innan þingflokks vinstri grænna sem fundaði í Borgarnesi í dag eftir átök helgarinnar. Steingrímur J. Sigfússon segir það þó hljóta að vega þungt meðal þingmanna flokksins að glutra ekki árangri ríkisstjórnarsamstarfsins niður eftir allar fórnirnar sem hafi verið færðar.

Segir gagnrýni byggða á misskilningi

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segir að gagnrýni flokkssystkina á ákvarðanir hennar í Landsdómsmálinu byggi á misskilningi. Að minnsta kosti fimm stjórnarþingmenn vilja að hún víki sæti sem forseti Alþingis.

Outlaws-maður áfram í gæsluvarðhaldi

Hæstiréttur Íslands staðfesti áframhaldandi gæsluvarðhald yfir einum af meintum skotárásarmönnum sem var handtekinn í nóvember síðastliðnum. Manninum er gefið að sök að hafa skotið á bifreið manns við Sævarhöfða þann 18. nóvember síðastliðinn en talið er að ástæðan sé óuppgerð fíkniefnaskuld. Maðurinn er talinn tengjast vélhjólagenginu Outlaws.

Egill aftur kærður fyrir nauðgun

Önnur kona hefur kært Egil "Gillzenegger" Einarsson fyrir nauðgun, samkvæmt því sem kemur fram á fréttavef Ríkisútvarpsins. Þar segir að konan hafi farið til lögreglu í dag og lagt kæruna fram. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögeglunnar, vildi ekki staðfesta frétt RÚV í samtali við Vísi nú fyrir stundu.

Dæmigerðir ferðamenn: Barnlausir Ameríkanar sem eyða 370 þúsundum

Hinn dæmigerði erlendi sumarferðamaður eru tæplega fertug bandarísk hjón sem koma barnlaus í 10 daga frí, skoða Gullfoss og Geysi og kaupa vöru og þjónustu fyrir 370.000 kr. Og þau ætla að koma aftur, ef marka má niðurstöður könnunar sem Ferðamálastofa lét framkvæma síðasta sumr á meðal erlendra ferðamanna. Sagt er frá könnuninni á vef iðnaðarráðuneytisins í dag um leið og þess er getið að rúmlega 565 þúsund erlendir ferðamenn hafi heimsótt Ísland á síðasta ári. Þar er um að ræða 15,8 prósent fjölgun frá fyrra ári. "Mikilvægi ferðaþjónustunnar fer stöðugt vaxandi fyrir samfélagið og hún er komin á bekk með sjávarútveginum og stóriðjunni þegar kemur að sköpun gjaldeyristekna,“ segir ennfremur.

Framfleytti sér og fjölskyldu sinni með vændi í fimm ár

Í Íslandi í dag í kvöld kemur fram kona sem leiddist út í vændi vegna fátæktar og framfleytti sér og börnum sínum samhliða láglaunaðri vaktavinnu í fimm ár. Hún hélt því leyndu fyrir fjölskyldu sinni og var með 10-15 kúnna.

Sykurminna morgunkorn

Á næstunni munu morgunkornin Cocoa Puffs og Honey Cheerios fara í sölu með nýrri uppskrift í verslunum um land allt. "Þessar tegundir sem auðkenndar eru með bláum topp og íslenskum umbúðum munu leysa eldri tegundir af hólmi á næstu vikum. Þær innihalda mun lægra magn sykurs en forverar þeirra ásamt því að innihalda minni fitu og salt. Þessar breytingar á uppskrift eru gerðar til að koma til móts við auknar kröfur neytenda um minni sykur og salt í matvöru,“ segir í tilkynningu frá Nathan & Olsen.

Þrettán undir áhrifum

Þrettán ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta af þeim voru ölvaðir undir stýri en þetta voru sjö karlar á aldrinum 23 til 70 ára og ein kona, 17 ára. Þá voru fimm sem óku undir áhrifum fíkniefna en um er að ræða fjóra karla á aldrinum 23 til 36 ára og eina konu, 24 ára. Fjórir af ökumönnunum þrettán höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.

PIP-málið: Tveir læknar búnir að svara landlækni

"Við erum líklega komin með svör frá tveimur lýtalæknum og munum funda með læknafélaginu á morgun til þess að athuga hvernig við getum fengið þessar upplýsingar eins hratt og hægt er,“ segir Geir Gunnlaugsson, landlæknir.

Klippt af 160 ökutækjum

Um helgina voru skráningarnúmer fjarlægð af eitt hundrað og sextíu ökutækjum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að þau hafi verið ýmist ótryggð eða óskoðuð og jafnvel hvorutveggja.

Íslendingar taka sig á í mataræðinu

Niðurstöður landskönnunar á mataræði landsmanna 2010-2011 benda til þess að mataræði mataræði Íslendinga hefur þokast nær ráðleggingum um heilsusamlegt mataræði frá árinu 2002.

Ákærður fyrir aðild að úraráni - átti að koma þýfinu úr landi

Ríkissaksóknari hefur ákært mann fyrir aðild sína að ráni í úra- og skartgripaversluninni Michelsen á Laugavegi í október síðastliðnum Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi eftir að þýfið fannst í fórum hans en talið er að hann hafi átt að koma því úr landi.

Heimaeyjargosið hófst fyrir 39 árum

Í dag eru þrjátíu og níu ár liðin síðan að Heimaeyjargosið hófst í Vestmannaeyjum. Gosið var fyrsta eldgos sem hefst í byggð á Íslandi en jörðin austan við Kirkjubæ opnaðist rétt eftir miðnætti 23. janúar 1973. Gosið stóð til 3. júlí sama ár en fjölmörg hús fóru undir hraun. Á vef Eyjafrétta segir að vel hafi tekist að koma Eyjamönnum frá Heimaey þar sem flotinn hafi verið að mestu leyti í landi vegna óveðurs daginn áður en gosið hófst.

Vinstri grænir ánægðastir með Skaupið - sjálfstæðismenn ósáttari

Áramótaskaupið virðist hafa fallið flestum landsmönnum vel í geð, ef marka má nýja könnun MMR. Þar var fólk spurt hvað því fannst um Skaupið og sögðu 64,8 prósent þeirra sem afstöðu tóku að þeim hefði fundist það gott. 18 prósent fannst það bæði gott og slæmt og 17,2 prósent voru á því að það hefði verið slakt.

Fagnar hertum reglum um klámefni

Forstöðumaður Barnahúss fagnar nýju frumvarpi innanríkisráðherra sem flokkar bæði teiknimyndaklám og klám þar sem fullorðnir eru barngerðir sem barnaklám. Hann segir að þannig sé hægt að draga úr líkunum á barnamisnotkun í framtíðinni.

Óánægja með Ástu Ragnheiði - 5 stjórnarþingmenn vilja hana burt

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, telur rétt að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir láti af embætti forseta Alþingis. Hann ætlar að styðja tillögu þessa efnis sem nú er í undirbúningi. Mikil óánægja er með störf Ástu Ragnheiðar meðal þingmanna Samfylkingarinnar eftir atkvæðagreiðsluna um Landsdómsmálið á föstudag.

Sveik út 450 þúsund - sagði tvífara sinn vera þjófinn

Kona á sextugsaldri var dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir fjársvik. Konan notaði tvo greiðslukort sem hún komst yfir í 23 skipti til að kaupa vörur að andvirði 446 þúsund króna. Brotin áttu sér stað í febrúar og nóvember árið 2009.

Helstu átökin nú innan ríkisstjórnarinnar

Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur og kennari í Háskólanum á Bifröst, segir deilurnar innan ríkisstjórnarinnar blasa við öllum, í kjölfar þeirra ákvörðunar þingsins að fella tillögu um að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að draga ákæru á hendur Geir H. Haarde til baka.

Borgarafundur í Háskólabíói í kvöld

Boðað hefur verið til borgarafundar í Háskólabíóí í kvöld þar sem staða lánþega verður í brennidepli. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og stendur í tvo tíma. Auk reynslusagna verður farið í það hvernig verðtryggingin virkar og bent á lausnir. Fundurinn er sjálfstætt framhald fjölmenns fundar sem haldinn var á sama stað síðastliðið haust. Fundarstjórar verða þau Eiríkur S. Svavarsson og Rakel Sigurgeirsdóttir.

Guðrún enn spurningarmerki - viðræðurnar ekki komnar langt

"Það er eitt af þessum málum sem þarf að fara virkilega vel yfir," segir Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næst besta flokksins í Kópavogi, aðspurður hvort að Guðrún Pálsdóttir haldi áfram sem bæjarstjóri. Nú um helgina hófust formlegar viðræður á milil Sjálfstæðisflokksins, Y-Lista Kópavogsbúa og Næst besta flokksins um að mynda nýjan meirihluta í bæjarstjórn.

Samráð við íbúa um Hljómalindarreit

Íbúar, hagsmunaaðilar og Reykjavíkurborg eiga að fá að vera með í ráðum um skipulag á Hljómalindarreitnum svokallaða sem afmarkast af Laugavegi, Hverfisgötu, Klapparstíg og Smiðjustíg.

Þetta voru greinilega mistök hjá okkur

Fyrirtækið Emmess hefur hætt dreifingu á stelpu- og strákaís vegna harðra viðbragða almennings. „Þetta voru greinilega mistök hjá okkur að gera þetta því við höfum fengið mjög hörð viðbrögð,“ segir Leifur Grímsson, markaðsstjóri Emmess.

Sjá næstu 50 fréttir