Fleiri fréttir

Vill styðja fjárfestingu og efla tengsl

Kína styður viðleitni Evrópuþjóða til þess að viðhalda fjármálalegum stöðugleika og hagvexti. Fréttavefur Kínverska ríkisútvarpsins (CRI) greinir frá því að Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, hafi látið þessi orð falla á fundi með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í byrjun síðustu viku þegar þeir hittust á heimsþingi hreinnar orku í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Gagnrýnir markaðssetningu á nýjum gosdrykk

Gosdrykkur sem er nýkominn á íslenskan markað er sagður auka brennslu líkamans svo um munar. Fullyrðingin á ekki við rök að styðjast að mati næringarfræðings sem telur slík fyrirheit geta verið neytendum skaðleg.

Eitt tonn af kennslubókum frá Kína

Rúmlega eitt tonn af kennslubókum í kínversku á íslenskri tungu bárust hingað til lands á dögunum. Þær eru gjöf frá Kínverjum en bækurnar eru ætlaðar fyrir allt niður í fimm ára börn.

Leitar stuðnings við vantraust á Ástu Ragnheiði

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, er farin af stað með undirskriftarsöfnun til þess að safna stuðningi við vantrauststillögu á hendur Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis.

Allt tiltækt lið kallað að Já

Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað að höfuðstöðvum Já, sem gefur út Símaskrána, nú rétt fyrir hádegi. Reykur barst úr vararafstöð en slökkvitæki voru notuð til að slökkva þann eld sem var og var flestum slökkviliðsbílum snúið frá. Staðurinn var reykræstur en enn liggur ekki fyrir hvort einhverjar skemmdir hafi orðið.

Flensan að gera vart við sig

Árleg inflúensa virðist vera að ná sér á strik en sóttvarnarlæknir segir sífellt stærra hlutfall þeirra sem leita til læknis hafa fundið fyrir einkennum flensunnar.

Finnst koma til greina að Ögmundur víki úr ríkisstjórn

Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, segir að sér finnist koma til greina að Ögmundur Jónasson láti af embætti ráðherra vegna afstöðu sinnar í atkvæðagreiðslu um frávísunartillögu á tillögu Bjarna Benediktssonar um að láta málshöfðun gegn Geir Haarde forsætisráðherra niður falla. Í Sprengisandi á Bylgjunni í dag sagði Álfheiður að Ögmundur sæti á ráðherrastól í umboði þingflokks VG, að tillögu formanns flokksins. Hún réði því ekki ein hvort hann sæti áfram.

Handtóku skammbyssumann - verður yfirheyrður

Karlmaður var handtekinn grunaður um brot á vopnalögum um miðnættið í gær. Upplýsingar höfðu borist lögreglunni um skammbyssu í hans vörslu. Maðurinn var færður á næstu lögreglustöð og síðan vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður frekar.

Vilja nýja sundlaug í Fossvogi

Borgarráð Reykjavíkur vill tryggja að mögulegt verði að gera sundlaug í Fossvogsdal. Málið var rætt á borgarráðsfundi síðastliðinn fimmtudag. Samkvæmt hugmyndinni er gert ráð fyrir að sundlaugin verði byggð í samvinnu við Kópavogsbæ og sveitarfélögin tvö munu skipta með sér kostnaði ef að verkinu verður.

Tæplega 12 þúsund skora á forsetann til endurkjörs

Nú hafa rúmlega 11600 manns skorað á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa kost á sér til að sitja áfram í forsetaembættinu á næsta kjörtímabili. Undirskriftarsöfnun þess efnis fer fram á vefsíðu sem sett var upp fyrir tæpum tveimur sólarhringum. Kjörtímabili forsetans lýkur í lok júlí næstkomandi. Ólafur Ragnar hefur þá setið í embættinu í sextán ár. Í nýársávarpi sínu gaf hann það sterklega til kynna að hann myndi hverfa af stóli forseta, en útilokaði þó ekki að hann myndi gefa kost á sér áfram.

Fundu fíkniefni á ökumanni

Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann sem grunaður var um að aka undir áhrifum fíkniefna í nágrenni við Selfoss í nótt. Þegar lögreglumenn höfðu afskipti af manninum fannst lítilræði af fíkniefni á honum. Hann hafði aldrei hlotið réttindi til þess að aka bíl. Þá var annar ökumaður stöðvaður í nágrenni við Selfoss nú í morgunsárið. Sá reyndist vera undir áhrifum áfengis og hafði auk þess verið sviptur ökuréttindum.

Tvö umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi

Tvö umferðarslys urðu með stuttu millibili í nótt á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi, skammt frá Nýbílavegi, þar sem bílum var í báðum tilfellum ekið á ljósastaura. Í fyrra tilfellinu voru tveir sendir á slysadeild til aðhlynningar, en ekki er vitað hvort fólkið sé alvarlega slasað. Í seinna tilfellinu slasaðist enginn.

Hlaupa maraþon á Gasa fyrir börnin

Eitt þeirra verkefna sem Ísland-Palestína styrkir er Gasamaraþonið sem fram fer 1. mars næstkomandi í annað sinn. Gasasvæðið er mjó strandlengja, 42 kílómetra löng, sem er einmitt vegalengd heils maraþons. Hlaupið verður frá Beit Hanoun í Egyptalandi í norðri, suður til Rafah í suðri. Búist er við að um 1.000 palestínsk börn taki þátt. "Þau fá skó, bol til að hlaupa í og mat yfir daginn. Í einn dag fá þau að upplifa sig sjálf eins og börn sem skipta máli og umheimurinn lætur sig varða,“ segir Lára. Hún segir að börnin hlaupi þær vegalengdir sem þau treysti sér til, en mörg þeirra þjáist af næringarskorti og hafa því ekki fullan þrótt.

Minntust björgun breskra hermanna

Nú um helgina eru liðin 70 ár frá því að heimilisfólkið á Veturhúsum við Eskifjörð bjargaði yfir 40 breskum hermönnum, sem höfðu farið fótgangandi frá Reyðarfirði yfir fjalllendið áleiðis til Eskifjarðar. Þeir lögðu af stað um morguninn hinn 20. janúar í blíðviðri en hrepptu voðaveður, rok og úrhelli þegar leið á daginn. Alls voru 60 breskir hermenn í þessari för og létust 8 þeirra.

Kópavogsbær heiðrar Hallfríði

Hallfríður J. Ragnheiðardóttir hlaut í dag Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt Triptych í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Hallfríður er ellefti handhafi verðlaunanna en tilgangur samkeppninnar er að efla og vekja áhuga á íslenskri ljóðlist.

Ég er frjáls eins og fuglinn

Þegar Lára Jónsdóttir var um fimmtugt seldi hún þakið ofan af höfði sér, sagði upp góðri framkvæmdastjórastöðu og fann til mikils léttis. Síðan hefur hún ferðast vítt og breitt um heimsbyggðina, meðal annars til hins hertekna Gasasvæðis.

Hægt verði að afgreiða málið fyrir aðalmeðferð

Formaður þingnefndar sem á að fjalla um tillögu um að afturkalla ákærur á hendur Geir H. Haarde vonast til að Alþingi verði búið að afgreiða málið áður en aðalmeðferð hefst í málinu í mars. Málið verður líklega tekið fram fyrir önnur mál í nefndinni.

Bílvelta á Vesturlandsvegi

Bílvelta varð á gatnamótum Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar um klukkan sex í dag. Lögreglan og sjúkralið voru kölluð á staðinn, en engin meiðsl urðu á fólki.

Jóhann er bæjarlistamaður Seltjarnarness

Jóhann G. Jóhannsson leikari er bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2012. Þetta er í fimmtánda sinn sem Seltirningar útnefna bæjarlistamann, en það var gert fyrst árið 1996. Þá var það Gunnar Kvaran sellóleikari sem var bæjarlistamaður Seltjarnarness. Jóhann tók við nafnbótinni við hátíðlega athöfn í Bókasafni Seltjarnarness þar sem Katrín Pálsdóttir formaður Menningarnefndar Seltjarnarness afhenti honum heiðursskjal og starfsstyrk.

Össur segir fráleitt að Geirsmálið sprengi stjórnarsamstarfið

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir fráleitt að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í gær á Alþingi muni hafa áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Atkvæðin féllu, eins og greint hefur verið frá, þannig að Alþingi ákvað að efnisleg umræða skyldi fara fram um tillögu Bjarna Benediktssonar um að draga málshöfðun gegn Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, til baka.

Fullir menn festu bílana sína

Lögreglan hafði afskipti af ökumönnum sem voru á mótorhjólum á Hvaleyrarvatni laust fyrir klukkan tvö i dag. Búið er að banna akstur mótorhjóla á ísnum og skilti þar að lútandi komin upp. Lögregla fór á vettvang og benti ökumönnum hjólanna á þetta og yfirgáfu þeir svæðið.

Greiddu atkvæði um allt annað en Geir Haarde

Það eru sterkar tilfinningar sem berast í brjósti þeirra sem sæti eiga á Alþingi Íslendinga eftir atburði gærdagsins. Þá felldi Alþingi frávísunartillögu sem lögð hafi verið fram á tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að fella niður málshöfðun gegn Geir Haarde niður.

Vilja stækka griðasvæði hvala

Þrír þingmenn hafa lagt til að griðasvæði hvala í Faxaflóa verði stækkað frá Eldey að ysta odda Snæfellsness. Þá verði jafnframt tryggt griðasvæði hvala fyrir Norðurlandi þar sem hvalaskoðun sé vaxandi atvinnugrein. Þá vilja þingmennirnir jafnframt að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setji heildstæðar reglur um framkvæmd og skipulag hvalaskoðunar.

Guðfríður sakar forsætisráðherra um hótanir

Svo virðist sem lærdómurinn sem margir hafa kosið að draga af hruninu sé í besta falli að skapa ný formerki fyrir sömu vinnubörgðin,“ sagði Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, þegar hún rökstuddi þá ákvörðun sína í gær að greiða atkvæði gegn tillögu um að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar um að fella málshöfðun Alþingis gegn Geir Haarde niður.

Skrif Hallgríms ollu þungu áfalli

Dóttir Brynhildar Georgíu Björnsson, sem Hallgrímur Helgason byggir aðalpersónuna í nýjustu skáldsögu sinni á, segist hafa orðið fyrir þungu áfalli þegar hún las bókina í september á síðasta ári. Brynhildur var barnabarn Sveins Björnssonar, fyrsta forseta íslenska lýðveldisins, en hún mun hafa sagt Hallgrími sögur af sér og fjölskyldu sinni áður en hún lést árið 2008. Í bókinni, sem ber titilinn Konan við 1000° byggir Hallgrímur söguna að einhverju leyti á frásögnum hennar en skáldar jafnframt í eyðurnar.

Evrópustofa tekur til starfa

Evrópustofa - upplýsingamiðstöð ESB á Íslandi hefur tekið til starfa að Suðurgötu 10 í Reykjavík. Af því tilefni verður opið hús á Suðurgötunni, laugardaginn 21. janúar, frá kl. 11-16 og eru allir velkomnir. Upplýsingamiðstöðin verður opin sex daga vikunnar en markmiðið með starfsemi hennar er að auka skilning og þekkingu á ESB og hvetja til virkrar umræðu um kosti og galla mögulegrar aðildar Íslands að sambandinu. Timo Summa, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, og Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra verða viðstödd opnun Evrópustofu í dag.

Birgitta: Svartur dagur í sögu lýðræðisins

"Svartur dagur í sögu lýðræðis okkar,“ sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, á fésbókarsíðu sinni strax að lokinni atkvæðagreiðslu á Alþingi í gær. Þar var felld tillaga um að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar um að draga málshöfðun gegn Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, til baka.

Hnífamaður á Barónsstíg og flöskuárás í Austurstræti

Maður var handtekinn eftir að hann hafði verið að þvælast með hníf í 10/11 á Barónsstíg, sem hann var að sýna starfsmönnum. Hann ógnaði engum með hnífnum. Aftur á móti yfirgaf hann verslunina með vörur í vösunum sem hann hafði ekki greitt fyrir. . Maðurinn mun hafa verið ölvaður en hann gistir nú fangageymslur og verður yfirheyrður þegar af honum rennur áfengisvíman.

Norræn bros í þrot með tannígræðslur

Tannlæknastofunni Nordic Smile var lokað eftir fárra mánaða rekstur. Leita fjárfesta og stefna að því að opna á ný. Samningaviðræður standa yfir við Höfðatorg vegna ógreiddrar leigu. Seljandi tannlæknastóla bjargaði sér fyrir horn.

Nauðgunarmál sjaldan fyrir dóm

Líklegra er að menn séu dæmdir fyrir nauðgun ef þeir eru útlendir og ókunnugir. Sakfellingar ýta undir staðalímyndir sem reynt hefur verið að útrýma. Fjögur prósent kæra eru talin fölsk.

Lestarsamgöngur verði ekki útilokaðar

Borgarráð Reykjavíkur lagði til á fundi sínum á fimmtudag að möguleikar á lestartengingu milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins verði tryggðir í aðalskipulagi Reykjavíkur og svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.

Bjóða Oddnýju til opins fundar á ný

Foreldrar barna í Hamraskóla í Grafarvogi hafa ítrekað boð til Oddnýjar Sturludóttur, formanns skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, um að mæta á opinn fund í skólanum og ræða fyrirhugaðar breytingar á skólastarfi. Fundurinn er áætlaður á fimmtudaginn eftir viku.

Bankar ættu að fá mismunandi leyfi

Á meðan sum ríki Evrópu standa fyrir utan evrusamstarfið ganga markmið Evrópusambandsins (ESB) um sömu leikreglur fyrir öll fjármálafyrirtæki ekki upp. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á fyrsta fundi ársins í Evrópufundaröð Alþjóðamálastofnunar HÍ í gær.

Flestir fengu inni í skóla að eigin vali

Samkvæmt nýaflögðu innritunarkerfi framhaldsskóla fengu 98 prósent nemenda inni í öðrum hvorum þeirra skóla sem þeir völdu. Stefnt er að því að kynna nýtt bráðabirgðafyrirkomulag í næsta mánuði.

Frávísun felld eftir langar umræður

Þingmenn ræddu tillögu um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde fram á kvöld í gær. Lagt var til að henni yrði vísað frá og niðurstaða lá ekki ljós fyrr en í gærkvöldi. Frávísunartillagan var felld með 31 atkvæði gegn 29. Tekist var á um lagatúlkanir og hvort ný efnisleg rök hefðu komið fram.

Heiðraður 70 árum eftir björgunarafrek

Magnús Pálsson frá Veturhúsum í Eskifirði tók við viðurkenningu frá bresku ríkisstjórninni í gær fyrir einstakt björgunarafrek. Hann og nánasta fjölskylda bjargaði 48 breskum hermönnum frá bráðum bana í aftakaveðri í janúar 1942.

Atkvæðagreiðslan á Alþingi: Svona greiddu þingmenn atkvæði

Atkvæðagreiðslan á Alþingi í kvöld, um þá tillögu fjögurra þingmanna að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að ákæran á hendur Geir H. Haarde verði felld niður, fór þannig að 31 þingmaður sagði nei, 29 já og þrír voru fjarverandi.

Tillagan um frávísun felld: 31 - 29

Alþingi felldi nú rétt í þessu tillögu um að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og Landsdómsmálið þar með. Atkvæðagreiðslan fór þannig að 31 þingmaður greiddi atkvæði gegn henni en 29 voru henni fylgjandi. Þrír voru fjarverandi.

Skrökva nær sínu fram og ákveður að hætta

Skrökva, félag flokksbundinna framapotara, var lögð niður við hátíðlega athöfn fylkingarinnar í dag. Fylkingin telur sig hafa náð fram helstu markmiðum sínum í stúdentapólitíkinni og sér því grundvöll fyrir áframhaldandi starfsemi á því sviði.

Geðheilsa Hallgerðar og Bergþóru rannsökuð

Brennu-Njáls saga væri ekki næstum því jafn skemmtileg ef aðalsöguhetjurnar hefðu fengið viðeigandi meðferð við geðveilu sinni að mati læknis sem hefur greint flestar söguhetjur Íslendingasagnanna með persónuleikaraskanir af einhverju tagi.

Aðilar vinnumarkaðarins staðfesta kjarasamninga

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur að mörg fyrirtæki þurfi að beita verðhækkunum og hagræðingu til að eiga fyrir launahækkunum um næstu mánaðamót. Aðilar vinnumarkaðarins staðfestu kjarasamninga í dag þrátt fyrir bullandi óánægju með frammistöðu ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum.

Skora á Ólaf Ragnar að bjóða sig fram aftur

Vefsíða þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson að bjóða sig fram aftur til embættis forseta Íslands var opnuð formlega í dag. Forsvarsmenn síðunnar gera sér vonir um að safna hátt í fimmtíu þúsund undirskriftum.

Sjá næstu 50 fréttir