Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bílþjófar handteknir Mercedes Benz-bifreiðið sem lögregla lýsti eftir í dag er fundin. Bílnum var stolið í Kópavogi í nótt og segir lögregla að þrír karlar og ein kona hafi verið handtekin í tengslum við rannsóknina. Þau hafa öll áður komið við sögu hjá lögreglu. 19.1.2012 16:45
Segir tillöguna um að draga ákæru til baka Alþingi til minnkunar Hreyfingin segir tillögu til þingsályktunar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, Alþingi til minnkunar. 19.1.2012 16:13
Hæstiréttur fellir dóm í nauðgunarmáli í dag Hæstiréttur mun í dag kveða upp úrskurð í máli karlmanns frá Vestmannaeyjum sem var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn þremur stúlkum á aldrinum sjö til ellefu ára. Maðurinn tók meðal annars kynferðisbrotin upp á myndband en hann var einnig sakfelldur í héraði fyrir að hafa haft rúmlega átta þúsund barnaklámsmyndir í tölvunni sinni og yfir sex hundruð hreyfimyndaskeið. Mál mannsins komst í fréttirnar á síðasta ári þegar í ljós kom að hann sætti ekki gæsluvarðhaldi en sýslumaðurinn á Selfossi gerði aldrei kröfu um slíkt. Hann var síðar hnepptur í gæsluvarðhald. Dóms Hæstaréttar er að vænta á fimmta tímanum. 19.1.2012 15:35
Bubbi hættur á Facebook "Ég nenni þessu ekki, ég hef allt annað við tímann að gera,“ segir Bubbi Morthens, tónlistarmaður, sem hætti á samskiptasíðunni Facebook á dögunum. Bubbi var vinsæll á síðunni og átti fleiri þúsund vini en nú segir hann að þetta sé komið gott. 19.1.2012 14:55
Dæmdur fyrir þjófnað Héraðsdómur Norðurlands eystri dæmdi karlmann í morgun fyrir þjófnað, umferðalagabrot og fíkniefnalagabrot. 19.1.2012 14:54
Felguþjófur dæmdur Nítján ára gamall karlmaður frá Akureyri var dæmdur í í dag í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela hjólbörðum og felgum undan bifreið að gerðinni Subaru Impreza, sem stóð við bílasölu Toyota á Akureyri. Brotið átti sér stað í nóvember síðastliðnum. 19.1.2012 14:45
Vígslubiskup gefur kost á sér í biskupsembættið Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti biskups Íslands. Hann staðfesti þetta í samtali við Vísi. Kristján segist hafa fengið margar áskoranir um að gefa kost á sér eftir að hann var kjörinn vígslubiskup á síðasta ári. 19.1.2012 14:21
SUF mótmælir aukinni ritskoðun á netinu Stjórn SUF, Sambands ungra framsóknarmanna lýsir sig andsnúna tilfæringum höfundarréttarsamtaka þegar kemur að aukinni ritskoðun og gjaldheimtu á Internetinu. Þetta kemur fram í ályktun sem félagið sendi fjölmiðlum í dag. Þar segir að ef þörf er á endurskoðun á höfundarréttarlögum "er nauðsynlegt að hlustað sé á allar raddir samfélagsins án þess að ganga á rétt einstaklinga til tjáningar, einkalífs og fræðslu.“ 19.1.2012 14:15
Hjálmar: Þurfum að skoða hvernig vinnubrögðin eru hjá okkur "Ég er bara opinn fyrir því að eiga gott samstarf," segir Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næst besta flokksins í Kópavogi. Hjálmar sleit meirihlutasamstarfinu á þriðjudaginn en hann var ósáttur við hvernig staðið var að uppsögn Guðrúnar Pálsdóttur bæjarstjóra. 19.1.2012 13:43
Tvöfalt fleiri umsóknir um greiðsluaðlögun Talið er að tvöfalt fleiri sæki um greiðsluaðlögun hjá Umboðsmanni skuldara núna í janúar heldur en í jólamánuðinum. Rösklega 3800 heimili hafa nú sótt um þetta úrræði. Upplýsingafulltrúi segir lagaleg álitamál tefja úrvinnslu mála. 19.1.2012 12:19
Mikilvægt að kirkjan haldi vel utan um samkynhneigða Séra Sigríður Guðmarsdóttir, sem hefur gefið kost á sér sem næsti biskup Íslands, segist vera umdeild innan Þjóðkirkjunnar. Nái hún kjöri ætlar hún aðeins að sitja í fimm ár. 19.1.2012 12:15
Formenn aðildarfélaga ASÍ funda um framtíð kjarasamninga Það ræðst í dag hvort gildandi kjarasamningum verður sagt upp. Formenn aðildarfélaga Alþýðusambandsins funda um málið eftir hádegi en frestur til að virkja endurskoðunarákvæði samninganna rennur út á morgun. Rætt var um málið á Alþingi í morgun þar sem stjórnarandstaðan sakaði ríkisstjórnin um stefnuleysi í atvinnumálum. 19.1.2012 12:05
Rætt um að Framsókn komi inn í meirihlutasamstarfið Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar vinna nú að myndun nýs meirihluta í bænum. Rætt hefur verið við Framsóknarmenn um að taka sæti Næsta besta flokksins sem sleit meirihlutasamstarfinu. 19.1.2012 12:00
Lögreglan lýsir eftir Benz Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir svörtum Mercedes Benz C230 með skráningarnúmerið SA-162. Honum var stolið frá Hlíðarhjalla í Kópavogi í nótt. Rúður aftur í eru litaðar og þá er sport merki á hliðunum þar sem compressor-merkið er vanalega. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn, og einnig um grunsamlegir mannaferðir við Hlíðarhjalla í nótt, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is 19.1.2012 11:55
Kranabifreið fjarlægði tvær kranabifreiðar Brotist var inn á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu á sjöunda tímanum í morgun. Annarsvegar var brotist inn í fyrirtæki í Þingholtunum en engu sjáanlegu stolið þaðan, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. 19.1.2012 11:22
Jóhanna kallar eftir sanngirni Jóhanna Sigurðardóttir segir aðila vinnumarkaðarins ekki sýna ríkisstjórninni sanngirni í umræðu um framtíð kjarasamninga. Það ræðst á morgun hvort kjarasamningar sem gerðu voru snemma á síðasta ári haldi gildi sínu eða hvort farið verði fram á endurskoðun á þeim. 19.1.2012 11:11
Fæddur er framsóknarmaður - Sigmundur eignaðist dóttur Snemma í morgun bárust þær gleðifregnir að Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni væri fædd dóttir og er hún 14 merkur og 50 cm. Þetta kemur fram á vef Framsóknarflokksins. 19.1.2012 10:58
Frumvarp sem bannar fólki að skoða barnaklám tilbúið Ekki hefur verið bannað með lögum að skoða barnaklám hingað til, einungis að hafa það í vörslu sinni, dreifa því og framleiða. Boðaðar eru breytingar á því í nýju frumvarpi. Fleiri varnir gegn misnotkun í lög. 19.1.2012 10:45
Geir H. Haarde vill endurheimta æru sína "Ég er að verða þekktur af vitlausum ástæðum,“ segir Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í viðtali við bandaríska stórblaðið Washington Post, þar sem fjallað erum dómsmál gegn honum sem er rekið fyrir Landsdómi. 19.1.2012 10:26
Norðmaður fékk vinning á tvo miða - fær 1,3 milljarða "Það er sami einstaklingur sem er alltaf með nokkra miða og hann vann í gær,“ segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskra getspá, en ofurtalan kom upp í Víkingalottóinu í gær. Potturinn, sem var tæplega 4 milljarðar íslenskra króna, skiptist á sex miða og fær hver og einn því um 650 milljónir á mann. 19.1.2012 09:58
Jón Ólafsson vill draga ákæru gegn Geir til baka Kaupsýslumaðurinn Jón Ólafsson hvetur þingmenn til þess að samþykkja þingsályktunartillögu Sjálfstæðisflokksins, um að afturkalla ákærur á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Þetta kemur fram í grein sem hann skrifaði í Morgunblaðið í dag. 19.1.2012 09:43
Ætlar ekki að gefa kost á sér til biskups "Ég var að spá í það en ég alveg búinn að gefa það frá mér núna,“ segir séra Þórhallur Heimisson, sóknarprestur við Hafnarfjarðarkirkju, aðspurður hvort að hann ætli að gefa kost á sér til embættis biskups. Nafn hans hefur dúkkað upp í umræðunni um hugsanlega frambjóðendur til embættisins en Karl Sigurbjörnsson, biskup, mun láta af embætti í sumar. 19.1.2012 09:19
Leiða vatn til átöppunar í Kópavogi Fyrirtækið Catco vatn ehf. hefur fengið heimild bæjaryfirvalda í Kópavogi til að leggja vatnslögn frá aðveituæð Orkuveitunnar í Reykjavík að iðnaðarhúsnæði í Kópavogi. 19.1.2012 09:00
Ræða uppsögn kjarasamninga Skiptar skoðanir eru um það innan verkalýðshreyfingarinnar hvort segja skuli upp gildandi kjarasamningum. Endurskoðunarnefnd Alþýðusambandsins þarf að skila ákvörðun í dag um það hvort sambandið hyggst virkja endurskoðunarákvæði kjarasamninganna. 19.1.2012 09:00
Grænt ljós á búfjárrækt í Skutulsfirði Beitartilraun í nágrenni við sorpbrennslustöðina Funa í Skutulsfirði sýnir að svæðið hentar aftur til búfjárhalds. Matvælastofnun ætlar að aflétta banni á nýtingu fóðurs. Bóndinn í Efri-Engidal segir það litlu breyta og leitar réttar síns. 19.1.2012 08:45
Meirihluti vill staðgöngumæðrun Velferðarmál Alþingi samþykkti í gær þingsályktunartillögu um staðgöngumæðrun með 33 atkvæðum gegn þrettán. Fjórir þingmenn sátu hjá og aðrir voru fjarverandi. 19.1.2012 08:30
Unnið að frávísunartillögu Þingflokkar funduðu í gær um tillögu Bjarna Benediktssonar um að draga ákæru á hendur Geir H. Haarde til baka. Tillagan verður til umræðu á morgun og hefur hún valdið miklum titringi innan stjórnarflokkanna. 19.1.2012 08:15
Íbúar við Tjarnargötu andmæla gistiheimili Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafnar ásökunum íbúasamtaka um losaraleg vinnubrögð í framkvæmd reglugerða um gististaði. Eftirlitið er þó samstiga íbúunum í að skora á borgaryfirvöld að koma böndum á gististaði í íbúðabyggð. 19.1.2012 07:45
Helmingur lýtalækna svaraði ekki Helmingur þeirra lýtalækna sem landlæknisembættið krafði upplýsinga um brjóstastækkanir hefur ekki svarað formlega. Frestur til svara rann út 13. janúar síðastliðinn. 19.1.2012 07:30
Skerpa lög um peningaþvætti Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, mælti í gær á Alþingi fyrir frumavarpi um breytingu á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti. Skerpt er á skilgreiningum á persónuskilríkjum og því hver sé raunverulegur eigandi bankareikninga. 19.1.2012 07:30
Vetrarfæri um allt land Vetrarfæri eru um allt land , víða þæfingur og sumstaðar ófært, þannig að mikil vinna bíður Vegagerðarmanna í dag við snjóruðning og hálkuvörn. 19.1.2012 07:14
Dvínandi líkur á uppsögn kjarasamninga Dvínandi líkur eru á því að kjarasamningum verði sagt upp vegna vanefnda stjórnvalda á fyrirheitum, sem gefin voru við undirritun samninganna. 19.1.2012 07:09
Fjórir jarðskjálftar við Hellisheiðarvirkjun Fjórir jarðskjálftar upp á einn komma þrjá til tvo á Richter, urðu norð-norðvestur af Hellisheiðarvirkjun í gær. Sá snarpast um klukkan hálf sjö í gærkvöldi. 19.1.2012 07:02
Gefa lítið fyrir endurskoðunina sjávarútvegurHafrannsóknastofnun telur ekki ástæðu til að endurskoða tillögurnar um aflamark í ýsu fyrir fiskveiðiárið 2011/2012. Landssamband smábátaeigenda (LS) gefur lítið fyrir vinnubrögð Hafrannsóknastofnunar. 19.1.2012 07:00
Útlit fyrir aukinn viðbúnað á Þjóðhátíð Útlit er fyrir að viðbúnaður og gæsla verði aukin fyrir næstu Þjóðhátíð í Eyjum í ljósi þess að að minnsta kosti fimm konur tilkynntu um nauðgun þar á síðasta ári. 19.1.2012 06:45
Norðmenn æfir af reiði út í dönsku dómarana Norðmenn eru æfir af reiði út í dönsku dómarana á leik Íslands og Noregs sem Ísland vann með tveimur mörkum í gærkvöldi. Norðmenn telja að dómararnir hafi haft af þeim víti á lokamínútinni í leiknum. 19.1.2012 06:41
Systurskipin voru aflahæst Einni lengstu humarvertíð hér á landi lauk rétt fyrir jól, að því er aflafrettir.com greina frá. Systurskipin Þórir SF og Skinney SF voru aflahæst; Þórir með tæp 320 tonn og Skinney 318 tonn. 19.1.2012 06:30
Fréttaskýring: Ágreiningur um öll grundvallaratriðin Rökræður forsvarsmanna fjórflokksins um sjávarútvegsmál í gær staðfestu að breytingar á stjórn fiskveiða verður stærsta og erfiðasta mál Alþingis í vetur. 19.1.2012 06:00
Flestir vilja koma aftur Erlendir ferðamenn dvöldu að jafnaði 10,2 nætur á Íslandi sumarið 2011 og ferðuðust langflestir, eða 79,6 prósent, á eigin vegum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í könnun sem Ferðamálastofa fékk MMR til að gera meðal erlendra ferðamanna hér á landi í fyrrasumar. 19.1.2012 05:30
Þvertekur fyrir að skila afturenda Saddam Hussein Yfirvöld í Írak heimta að fyrrverandi hermaður breska hersins skili afturenda Saddam Husseins hið fyrsta. Maðurinn gefur lítið fyrir óskir stjórnvalda í Írak. 18.1.2012 23:08
Borgarfulltrúi vill að ríkissaksóknari gefi út ákæru í Gillz-málinu "Ég vil bara að málið fari þá leið sem það á að fara í réttarkerfinu, það er það sem skiptir öllu máli," segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri Grænna, um mál Egils "Gillzenegger" Einarssonar, sem nú er til umfjöllunar hjá ríkissaksóknara. 18.1.2012 20:42
Ofurtalan kom upp - Sex fá 650 milljónir Ofurtalan kom upp í kvöld í kvöld en í pottinum voru tæpir fjórir milljarðar króna. Það voru fimm Norðmenn og einn Finni sem voru með allar sex tölurnar réttar. Hver og einn fær því tæplega 655 milljónir í sinn hlut. 18.1.2012 19:11
Ritstjóri Eyjunnar hættur Karl Th. Birgisson hefur ákveðið yfirgefa ritstjórastól Eyjunnar. Persónulegar ástæður liggja að baki ákvörðuninni og þakkar hann útgefendum og lesendum síðunnar ánægjulega samfylgd. 18.1.2012 21:57
Nærmynd af Heiðu Kristínu Heiða Kristín Helgadóttir ætlaði að verða annað hvort Bandaríkjaforseti eða forsætisráðherra Íslands. Hún stýrði Besta flokknum til sigurs í borginni en undirbýr nú Bjarta framtíð fyrir Alþingiskosningar árið 2013. 18.1.2012 21:28
Sigríður vill efla lýðræðið innan Þjóðkirkjunnar Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarholti, ætlar að gefa kost á sér til embættis biskups. Hún segir að kirkjan þurfi alltaf á siðbót að halda og framundan sé mikil þörf á miklu umbótartímabili í Þjóðkirkjunni. 18.1.2012 19:30