Fleiri fréttir

Mun semja frumvarp um staðgöngumæðrun

Alþingi samþykkti í dag að fela velferðarráðherra að skipa starfshóp sem undirbýr frumvarp til laga sem heimilar staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. Það var Ragnheiður Elín Árnadóttir sem var fyrsti flutningsmaður tillögunnar, en samkvæmt henni verður við vinnslu frumvarpsins unnið að því að tryggja í fyrsta lagi hag og réttindi barnsins, að tryggja í öðru lagi rétt, sjálfræði og velferð staðgöngumóðurinnar og fjölskyldu hennar, og að tryggja í þriðja lagi farsæla aðkomu hinna verðandi foreldra. Tillagan var samþykkt með 34 atkvæðum gegn 13. Fjórir sátu hjá.

Gefa kost á sér í embætti 2. varaformanns

Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis 2. varaformanns Sjálfstæðisflokksins en kosið verður í þá stöðu í fyrsta sinn á fundi flokksráðs í lok mars. Aldís hefur verið formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins í nokkur ár. Hún á sæti í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga auk þess að hafa verið bæjarstjóri í Hveragerði í tæp sex ár. Auk þess hefur hún gengt fjölda annarra embætta bæði heima í héraði sem utan. Auk Aldísar hefur Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, gefið kost á sér í embættið.

Hundrað karlmenn spyrjast fyrir um kynferðisofbeldi á Þjóðhátíð

Hundrað karlmenn hafa sent bæjarstjóranum í Vestmannaeyjum, lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum og framkvæmdastjóra ÍBV spurningar um það kynferðisofbeldi sem framið hefur verið á Þjóðhátíð ií Vestmannaeyjum og hvaða áhrif það gæti haft á fyrirkomulag og framtíð hátíðarinnar. Á meðal þeirra sem skrifa undir bréfið eru Halldór Gylfason og Jörundur Ragnarsson leikarar, Ragnar Bragason leikstjóri og Hugleikur Dagsson rithöfundur.

Slæmt veður víðast hvar um landið

Slæmt veður er nú víða um land. Hálka og óveður er á Hellisheiði, hálka og skafrenningur í Þrengslum og snjóþekja víða á Suðurlandi að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Á Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði er skafrenningur og þæfingsfærð og óveður frá Hellu og austur fyrir Vík í Mýrdal. Á Suðurnesjum er snjóþekja á flestum vegum og skafrenningur á Reykjanesbraut.

Leita að Jóhanni Inga Margeirssyni

Lögreglan á Akranesi, leitar að Jóhanni Inga Margeirssyni , 15 ára, sem strauk frá starfsmönnum meðferðarheimilis Barnaverndarstofu. Síðast sást hann við Keiluhöllina í Öskjuhlíð laugardaginn 14. janúar síðastliðinn. Var hann klæddur í skærgræna Adidas peysu og hvítar buxur. Drengurinn er hávaxinn, grannur með ljóst hár. Talið er að hann haldi sig á höfuðborgarsvæðinu.

Söfnuðu fyrir Líknar- og hjálparsjóð lögreglumanna

Rúmlega 150 þúsund krónur söfnuðust í Líknar- og hjálparsjóð Landssambands lögreglumanna þegar starfsmenn á lögreglustöð 5 tóku sig til fyrir jólin og héldu sitt árlega aðventukaffi. Boðið var upp á heitt súkkulaði og smákökur en peningarnir söfnuðust með því að selja svuntur og happdrættismiða en margir góðir vinningar voru í boði.

Sveitarfélögum verði ekki skylt að greiða sumarleyfisferðir húsmæðra

Bæjarráð Hafnarfjarðar telur það ekki vera í verkahring sveitarfélaga að greiða sumarleyfisferðir fyrir heimavinnandi húsmæður, eins og þeim er nú skylt að gera samkvæmt lögum. Umrædd lög um orlof húsmæðra eru frá árinu 1972 og telur bæjarráðið að þau séu úrelt og ekki í samræmi við gildandi lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nútíma jafnréttissjónarmið og jafnréttisáætlun Hafnarfjarðarbæjar. Engu að síður gekk bæjarráð Hafnarfjarðar að kröfu orlofsnefndar húsmæðra í Hafnarfirði sem tekin var til afgreiðslu á fundi bæjarráðsins þann 12. janúar síðastliðinn.

TR og Akureyri með bestu vefina

Vefur Tryggingastofnunar ríkisins var kjörinn besti ríkisvefurinn og vefur Akureyrarbæjar var valinn besti sveitarfélagavefurinn þegar viðurkenningar fyrir bestu opinberu vefina voru veittar í dag.

Hvar er þessi Citroen niðurkominn?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir dökkbláum Citroen með skráningarnúmerið UI-969 en honum var stolið frá Bílalandi á Kletthálsi í Reykjavík í síðasta mánuði. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1180 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is

Fortíðin var bæjarstjóra fjötur um fót

Nauðsyn var á umbótum í stjórnsýslu og stjórnun Kópavogsbæjar eftir margra ára valdatíð Sjálfstæðisflokks. Áralöng störf Guðrúnar Pálsdóttur bæjarstjóra hjá Kópavogsbæ gerðu henni erfitt fyrir að fylgja eftir þeim breytingum innan stjórnsýslunnar sem nauðsynlegt var. Varð þá einsýnt að skipta yrið um bæjarstjóra, segir í ályktun sem Samfylkingarfélagið í Kópavogi sendi frá sér í dag.

Guðríður vill reyna að jafna ágreininginn við Næstbesta flokkinn

Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi og formaður bæjarráðs, segir að grundvallar ágreiningur sé við Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn um stefnumál og því liggi beinast við að jafna ágreining við Næst besta flokkinn, en hún útilokar þó ekkert. Viðræður standa nú yfir um myndun nýs meirihluta í bænum.

Kærðu nágranna fyrir kívíárás

Ellen Kristjánsdóttir hefur kært nágranna sína fyrir að ógna fjórtán ára syni hennar með kíví-ávexti, sem sonur hennar er með lífshættulegt ofnæmi fyrir. Hún segir þessa ógn vera dropann sem fylli mælinn.

Annar höfuðpauranna neitar sök

Ákæra í einu stærsta fíkniefnamáli síðasta árs var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Annar höfuðpauranna neitar sök í stærsta ákæruliðnum.

Vegriðið stakkst í gegnum bílinn

Litlu munaði að illa færi þegar ökumaður jeppa missti stjórn á honum í morgun á Goðatorgi í Hafnarfirði. Bifreiðin hafnaði á vegriði sem stakkst inn í bílinn og fór í gegnum framenda bílsins og alla leið inn í farþegarýmið eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Að sögn lögreglu virðist ökumaðurinn hafa sloppið ómeiddur úr árekstrinum.

Mál Egils komið til ríkissaksóknara

Mál Egils Einarssonar sem sakaður er um að hafa nauðgað ungri stúlku síðla á síðasta ári er komið á borð Ríkissaksóknara. Greint var frá því 2. desember síðastliðinn að Egill og unnusta hans hefðu verið kærð fyrir brot gegn stúlkunni. Sama dag neitaði hann sök í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum. Í sömu yfirlýsingu sagðist hann ætla að kæra stúlkuna fyrir rangar sakargiftir. Frá þeim tíma hefur málið verið í rannsókn og á borði ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkissaksóknara mun málið hafa borist embættinu í morgun.

Straumsvíkurmálið þingfest

Þingfesting fór fram í morgun í Straumsvíkurmálinu svokallaða gegn sjö einstaklingum. Stærsti hluti málsins snýst um stórfellt smygl á fíkniefnum frá Rotterdam til Straumsvíkur. Lagði lögreglan hald á tæp tíu kíló af amfetamíni, rúmlega átta þúsund töflur af MDMA og mikið magn stera.

Neftóbak kann að heyra sögunni til

ÁTVR hættir innkaupum á dönsku neftóbaki meðan beðið er niðurstöðu um hvernig beri að aðgreina munn- og neftóbak. Fjöldi fólks tekur neftóbak í vörina. Mögulega þarf að heimila munntóbak eða banna neftóbak með öllu.

Segir útilokað að ljúka störfum í júní

Útilokað er að nefnd sem móta á þjóðaröryggisstefnu Íslands ljúki störfum í júní eins og Alþingi samþykkti í september síðastliðnum þar sem enn er ekki búið að skipa nefndina. Þetta segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, tilvonandi fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni.

Ósætti um vinnubrögð ollu falli

„Þetta kom okkur mjög á óvart,“ segir Guðríður Arnardóttir, oddviti bæjarstjórnarflokks Samfylkingarinnar í Kópavogi, aðspurð um ákvörðun Hjálmars Hjálmarssonar, fulltrúa Næstbesta flokksins, að slíta meirihlutasamstarfi í bæjarstjórn í gær.

Fundu kannabis og kókaín í Kópavogi

Afskipti lögreglu af manni, sem hún kannast við, leiddu til þess að rúmlega hundrað grömm af kannabis fundust við húsleit heima hjá honum í Kópavogi í nótt.

Loðnu landað víða

Nú er verið að landa loðnu á Þórshöfn, í Neskaupstað og á Seyðisfirði, eftir að loðnuskip komu þangað með farma í nótt.

Fyrri ferð Herjólfs fellur niður í dag

Vegna storms sem nú gengur yfir suðurströndina mun fyrri ferð Herjólfs í dag falla niður. Athuga á með seinni ferðina (15:30 og 19:15) kl. 13:00.

Fárviðri spáð suðaustur af landinu

Fárviðri er spáð suðaustur af landinu, og er veðrið þegar farið að versna. Búist er við að ölduhæð fari upp í allt að fjórtán metra , sem jafngildir fjögurra til fimm hæða fjölbýlishúsi og að vindur verði 35 metrar á sekúndu.

Minna hugsað um hagsmuni neytendanna

Stjórnsýslufræðingur segir mistök við opinbert eftirlit sýna fram á alvöruleysi í vinnubrögðum og virðingarleysi gagnvart neytendum.

Jens segist aldrei hafa svikið undan skatti

Jens Kjartansson lýtalæknir segir að hann hafi ekki svikið undan skatti og að allar þær konur sem greiddu fyrir sílikonaðgerðir með reiðufé hafi fengið nótu fyrir aðgerðinni.

Meirihlutinn í Kópavogi fallinn - Hjálmar vill ekki Guðrúnu burt

"Það var þannig að Hjálmar studdi ekki þessa ákvörðun um brottrekstur Guðrúnar," segir Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Kópavogs. Haft er eftir Hjálmari á vef Ríkisútvarpsins að samstarfi hans við meirihlutann í bænum sé lokið. Það þýðir að meirihlutinn er fallinn í Kópavogi, en með Hjálmari hafði hann eins manns meirihluta.

Anna Marsibil leiðir lista Vöku

Anna Marsibil Clausen, bókmenntafræðinemi, leiðir lista Vöku til Stúdentaráðs í ár. Anna Marsibil hefur setið í stjórn Vöku síðastliðið ár og hefur auki ritstýrt helstu helstu útgáfu félagsins. Fyrsta sæti á lista Vöku til Háskólaráðs er María Rut Kristinsdóttir, sálfræðinemi. Hún hefur einnig starfað fyrir félagið síðastliðið ár og er meðal annars fulltrúi stúdenta á Háskólaþingi.

Edda hætt við að kæra Hjört

Samkomulag hefur tekist milli Hjartar Júlíusar Hjartarsonar og Eddu Sifjar Pálsdóttur. Í samkomulaginu felst að Hjörtur hefur viðurkennt fulla ábyrgð í þessu máli og beðið Eddu Sif fyrirgefningar. Í yfirlýsingu sem lögmenn Hjartar og Eddu sendu sameiginlega á fjölmiðla segir að Hjörtur harmi mjög framkomu sína umrætt kvöld sem hafi með öllu verið óafsakanleg. Edda muni afturkalla kæru sína hjá lögreglu í málinu. Aðilar séu sammála um að tjá sig ekki frekar um málið.

Gæsluvarðhald yfir Einari Boom staðfest

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Einari „Boom“ Marteinssyni, leiðtoga Vítisengla á Íslandi, en hann var síðastliðinn föstudag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. janúar. Einar Ingi er grunaður um aðild að alvarlegri líkamsrárás á konu þann 22. desember síðastliðinn og aðra líkamsárás sem gerð var stuttu seinna. Fimm sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna þessa máls.

Húsmóðirin í Breiðagerði: Ég get ekki talað núna

Það varð fátt um svör þegar Vísir reyndi að ná tali af Önnu Lilju Valgeirsdóttur, íbúa í Breiðagerði 7, þar sem lögreglan aðstoðaði fulltrúa sýslumanns við að bera fólk út í morgun. "Ég get eiginlega ekki talað núna. Allt í lagi bless," sagði hún í samtali við blaðamenn.

Rústaði húsi á Álftanesi - í 18 mánaða fangelsi

Björn Bragi Mikkaelsson hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa lagt hús sitt á Álftanesi í rúst, fyrir að hafa ekki staðið skil á skattgreiðslum, fyrir fjársvik og brot gegn bókhaldslögum. Ákæra gegn Birni Braga var í tveimur ákæruliðum og skiptist fyrri ákæruliðurinn í fjóra töluliði. Björn Bragi vakti töluverða athygli þegar hann lagði húsið sitt í rúst fyrir framan sjónvarpsmyndavélar á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2009.

Skar á átta dekk í afbrýðiskasti

Tilkynnt var um tjón á tveimur bílum á höfuðborgarsvæðinu í gær en stungið hafði verið á öll dekk þeirra. Að sögn lögreglu voru báðir bílarnir á sama stæðinu og tilheyrðu þeir að auki sama manninum.

Eldur á Nonnabita

Eldur kom upp á veitingastaðnum Nonnabita í Bæjarlind í Kópavogi fyrir hádegið. Dælubíll frá slökkviliðinu fór á staðinn og tók skamma stund að slökkva eldinn sem logaði í millivegg á milli salernis og eldhúss staðarins. Að loknu slökkvistarfi var farið í að reykræsta staðinn. Að sögn slökkviliðsins var enginn í hættu.

Mörður ósammála Ögmundi

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segist vera ósammála því að afturkalla ákæruna á hendur Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Hann segist vera hissa á því að ráðherra dómsmála vilji stöðva réttarhald í miðjum klíðum. Ögmundur lýsti því í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að hann hygðist styðja þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar um að leggja málið gegn Geir Haarde niður.

Heimavarnarliðið reyndi að koma í veg fyrir útburð - tveir handteknir

Um 20 manna hópur frá Heimavarnarliðinu kom saman í dag í einbýlishúsi að Breiðagerði 7 þar sem til stóð að bera eigandann út. Fólkið kom sér fyrir inni í stofu og neitaði að yfirgefa húsið þegar fulltrúar sýslumanns mættu á svæðið. Lögregla var kölluð til og bar hún fólkið út úr húsinu. Til nokkurra átaka kom og voru tveir handteknir að sögn heimildarmanna fréttastofu. Sama mál komst í hámæli í ágúst síðastliðnum þegar hópur fólks kom eigandanum til hjálpar og varnaði fulltrúum sýslumanns inngöngu í húsið. Þá náðist sátt í málinu og var því frestað. Nú hefur eigandinn hinsvegar endanlega verið borinn út.

Konur með PIP-púða bíða enn

Konur með PIP-púða geta enn ekki pantað sér tíma í skimun hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins til að láta athuga hvort púðarnir eru rifnir. Ástæðan er að þær hafa ekki fengið formlegt bréf með gögnum frá lýtalækni sínum og velferðarráðuneytinu.

Ólafur Ragnar fundaði með Ban Ki-Moon og bauð honum í heimsókn

Forseti Íslands átti í gær fund í Abu Dhabi með framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, en þeir sækja báðir Heimsþing hreinnar orku sem þar er haldið. "Á fundinum var einkum rætt um aukna nýtingu hreinnar orku til að hamla gegn loftslagsbreytingum. Slíkar aðgerðir eru grundvallarþáttur í stefnumörkun Ban Ki-moon á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Forseti Íslands gerði grein fyrir jarðhitaverkefnum á vegum Íslendinga erlendis, t.d. í Kína, Indlandi, Filippseyjum, Afríku, Suður-Ameríku og Evrópu.“

Flokksfélagar Steingríms segja hann þurfa að íhuga stöðu sína

Félagar í VG í Húnaþingi og Skagafirði telja að Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, þurfi að íhuga stöðu sína sem formaður flokksins alvarlega í ljósi atburða undanfarinna vikna. Á fundi félaganna sem haldinn var í gær segir að stefna og athafnir flokksforystunnar séu að hrekja í burtu stóran hluta þeirra er kusu flokkinn í síðustu alþingiskosningum. Húnaþing og Skagafjörður eru í kjördæmi Jóns Bjarnasonar, en eins og kunnugt er lét hann af embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á ríkisráðsfundi á gamlársdag.

Bæjarráðið fundar um uppsögn

Boðað hefur verið til aukafundar í bæjarráði í Kópavogi í dag klukkan fimm. Fundurinn er haldinn að beiðni sjálfstæðismanna, sem eru í minnihluta bæjarstjórnar.

Sjá næstu 50 fréttir