Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Selja flugmiða til Noregs á átta þúsund krónur Lággjaldaflugfélagið Norwegian ætlar að hefja áætlunarflug milli Keflavíkur og Oslóar í sumar. Þetta staðfestir talskona félagsins við heimasíðuna Túrista. Boðið verður upp á þrjár ferðir í viku og til að byrja með aðeins um sumarið en markmiðið sé að fljúga allt árið. 19.11.2011 10:13
Geir H. Haarde ávarpar landsfundinn eftir hádegi Geir H. Haarde, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, ávarpar landsfund Sjálfstæðisflokksins klukkan tvö í dag. 19.11.2011 10:07
Þjóðgarður haldi viðbót Þingvallanefnd vill að forsætisráðuneytið heimili að tekjuaukning vegna aðgangseyris að salernum og hækkun lóðaleigu á sumarhús verði nýtt í þjóðgarðinum en komi ekki til frádráttar framlögum á fjárlögum. 19.11.2011 08:00
Sterkur sjávarútvegur styrkir samningsstöðu Styrkur íslensks sjávarútvegs og mikilvægi greinarinnar fyrir efnahag landsins er einn af helstu styrkleikum Íslands í yfirstandandi aðildarviðræðum við ESB. Þetta kom fram í máli Kolbeins Árnasonar, formanns samningahóps Íslands um sjávarútvegsmál, á morgunfundi Viðskiptaráðs Íslands í gær. 19.11.2011 06:00
Skólum nú skylt að fyrirbyggja einelti Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gefið út að allir grunnskólar skuli hafa heildstæða stefnu til að fyrirbyggja einelti. Sett verður á fót sérstakt fagráð í eineltismálum sem starfa mun á landsvísu og foreldrar eða skólar geta leitað til ef ekki tekst að finna viðunandi lausn innan skóla eða sveitarfélags. 19.11.2011 05:00
Kynjaskipting á landsfundi á huldu Upplýsingar fást ekki úr Valhöll um kynjahlutföll landsfundarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gætir nokkurrar óánægju með skarðan hlut kvenna á fundinum. Í fréttum Stöðvar 2 í fyrrakvöld sagði að konur væru einungis um þrjátíu prósent fundargesta. 19.11.2011 04:00
Handtökur vegna skotárásar í Bryggjuhverfi Lögreglan hefur handtekið menn í tengslum við skotárás í Bryggjuhverfinu í Reykjavík rétt fyrir klukkan átta í kvöld. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni slasaðist enginn í árásinni. Bifreið skotið var á skemmdist. 19.11.2011 03:37
Bernhöftsbakarí er að missa Bergstaðastræti „Mér finnst að fólkið hér í hverfinu eigi það skilið að við gefumst ekki upp svo auðveldlega,“ segir Sigurður Már Guðjónsson, bakarameistari í Bernhöftsbakaríi á Bergstaðastræti 13. Eigandi hússins tilkynnti á þriðjudag að bakaríið yrði að vera á braut í síðasta lagi um áramót. 19.11.2011 03:15
Vopnaðir sérsveitamenn í Bryggjuhverfi Vopnaðir sérsveitarmenn á vegum lögreglunnar hafa gert mikla leit að byssumönnum, sem gætu hafa skotið á bíl við Sævarhöfða, í Bryggjuhverfinu í kvöld. Að sögn sjónarvotts sem fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis talaði við fóru þeir inn í hús í Bryggjuhverfinu fyrr í kvöld en komu aftur út úr húsinu nokkru seinna án þess að hafa handtekið neitt, að því er virtist. Þá lokaði lögreglan öllum leiðum út úr Bryggjuhverfinu um stund. 19.11.2011 00:15
Laxveiðitúr á 2,8 milljónir Þriggja daga veiðitúr á besta tíma í Laxá á Ásum næsta sumar kostar 2,8 milljónir króna. Verðið hefur hækkað um 1,2 milljónir króna milli ára, eða um 75 prósent. Laxá á Ásum er fornfræg lítil á þar sem aðeins er veitt á tvær stangir. Verðið miðar við að báðar stangirnar séu keyptar. 19.11.2011 00:01
Fossvogsskóli rýmdur á fjórum mínútum Það tók ekki nema fjórar mínútur að rýma Fossvogsskóla eftir að brunavarnabjalla fór í gang. Um var að ræða brunavarnaæfingu á vegum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. 18.11.2011 23:20
Lýst eftir Daníel Evert Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Daníel Evert Árnasyni. Talið er að hann sé klæddur í dökkar íþróttabuxur, fjólubláa og appelsínugula peysu og svarta úlpu og svarta uppháa strigaskó. Daníel er 175 sentimetrar hæð, grannvaxinn og um 60 kíló að þyngd. Hann er með brún augu og dökk snoðklippt hár. Síðast er vitað um ferðir hans í Reykjavík þann níunda nóvember síðastliðinn. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. 18.11.2011 23:07
Sumarbústaðir miklu eftirsóttari en áður Spurn eftir sumarbústöðum hjá stéttarfélögum er orðin svo mikil að stéttarfélögin anna þeim engan veginn. Sum þeirra eru þess vegna farin að bregða á það ráð að óska eftir sumarbústöðum á leigu sem stéttarfélögin geta svo framleigt til félagsmanna sinna. Bandalag háskólamanna auglýsti til að mynda eftir bústöðum í þessari viku. 18.11.2011 21:15
Bílbeltin hefðu bjargað lífi Óla Ólafur Oddur Marteinsson var aðeins 17 ára þegar hann lést í bílslysi í vor, aðeins tveimur dögum eftir fæðingu bróður síns. Móðir Ólafs segist vilja gera allt til að brýna það fyrir ökumönnum að spenna beltin enda væri sonur hennar líklega enn á lífi hefði hann gert það. 18.11.2011 21:13
Sífellt fleiri þurfa nýrnaaðgerðir Sautján Íslendingar hafa gengist undir nýrnaígræðslu í ár sem er metfjöldi. Ríflega helmingi fleiri hafa greinst með nýrnabilun það sem af er árinu en síðustu ár. 18.11.2011 18:46
Helmingur landsfundarfulltrúa styður Bjarna Helmingur kjörinna landsfundarfulltrúa í skoðanakönnun Stöðvar 2 ætlar að kjósa Bjarna Benediktsson í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins á sunnudaginn. Tæplega þrjátíu og sjö prósent ætla að styðja Hönnu Birnu en aðrir hafa ekki gert upp hug sinn eða neita að svara. 18.11.2011 18:45
Kirkjan saknar fyrrum félaga Þjóðkirkjan saknar þeirra sem hafa sagt sig úr þjóðkirkjunni og þar með yfirgefið söfnuði sína, segir í ályktun sem var samþykkt á Kirkjuþingi 2011 í dag. Þar segir jafnframt að þjóðkirkjan vilji vinna að því að fólk finni sig ávallt velkomið í kirkjuna og starf safnaðanna. 18.11.2011 22:43
Tveir á slysadeild eftir árekstur Tveir voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur á Reykjanesbraut, við Sprengisand, nú í kvöld. Ekki er vitað hversu alvarlega þeir slösuðust. Bílarnir skemmdust nokkuð og var dælubíll frá slökkviliðinu notaður til að hreinsa upp olíu og glerbrot af götunni. 18.11.2011 21:30
Svona gætu íslenskir olíubæir litið út Norska olíuævintýrið dreifist nú út í byggðir Norður-Noregs eftir því sem olíu- og gasvinnslan færist norðar á bóginn. Dæmi eru um að húsnæðisverð tvöfaldist í bæjum þar sem aðstæðum svipar mjög til Íslands. 18.11.2011 20:34
Dikta tók á móti platínudiski Hljómsveitin Dikta fékk í dag platínudisk fyrir diskinn Get It Together sem kom út í lok árs 2009. Þetta er fyrsti platínudiskur hljómsveitarinnar, segir Haukur Heiðar Hauksson, læknir og forsprakki hljómsveitarinnar. 18.11.2011 20:06
Nagladekkjum fækkar á götunni Hlutfall bíla á nagladekkjum í Reykjavík reyndist vera 17% á miðvikudaginn. Á sama tíma í fyrra voru tæplega 32% á negldum dekkjum og árið 2009 voru það 24%. Í marsmánuði 2002 voru 67% bifreiða á nagladekkjum en á sama tíma árið 2011 voru aðeins 34% á nöglum, eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. Notkun nagladekkja í borgum veldur hljóð- og svifryksmengun sem ástæðulaust er að skapa á snjóléttum svæðum eins og í Reykjavík þar sem vetrarþjónusta gatna er góð. 18.11.2011 18:05
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar fram til miðvikudagsins 23. nóvember næstkomandi. Ástæðan er ónógt dýpi í Landeyjahöfn og óhagstæð ölduspá næstu viku, samkvæmt upplýsingum frá rekstrarstjóra Herjólfs. 18.11.2011 17:17
Ráðist á netþjóna íslensks tölvufyrirtækis Í gækvöldi gerðu tölvuþrjótar árás á netþjóna borðamiðlunarinnar Augsýnar, en fyrirtækið er í eigu íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins Transmit. 18.11.2011 16:18
Fundu þrjá laumufarþega um borð í togara á leið frá Íslandi Kanadíski togarinn Newfoundland Lynx er nú á leið til heimahafnar sinnar á Nýfundnalandi en skipið er að koma frá Íslandi. Nokkru eftir að látið var úr höfn hér á landi uppgötvaðist óvæntur farmur, en þrír laumufarþegar höfðu komið sér fyrir í skipinu. 18.11.2011 15:53
Efnilegasti skákmaður Íslands Hinn 18 ára Hjörvar Stein vantar aðeins einn áfanga til að verða næsti stórmeistari Íslendinga í skák. Hann segir að lífið snúist ekki bara um skákina og stundar félagslífið af krafti. 18.11.2011 15:00
Veittu bílþjófi eftirför - Hafnaði á grindverki á Grensásvegi Lögreglumenn á fjórum bílum og á mótorhjóli veittu manni eftirför í austurbæ Reykjavíkur um tvöleytið í dag. Málið hófst í Hólagarði í Breiðholti þar sem bíl var stolið af stúlku rétt fyrir hádegið í dag. 18.11.2011 14:46
Sagði lögreglu að hann væri bróðir sinn - níu mánaða fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann á fertugsaldri í níu mánaða fangelsi fyrir margvísleg brot. Meðal annars var hann dæmdur fyrir rangar sakargiftir en tvívegis gaf hann upp nafn bróður síns þegar lögregla hafði afskipti af honum vegna umferðarlagabrota. Fyrir vikið var bróðirinn kærður fyrir brotin. 18.11.2011 14:25
Saga af barnaníðingi á Akureyri virðist uppspuni frá rótum Nokkrir vefmiðlar greindu frá því í gær að á Akureyri hefðist nú við þekktur barnaníðingur. Viðvaranir þessa efnis hófust á vefnum og vöktu athygli enda var fullyrt að viðkomandi hefði meðal annars sést við skóla í bænum. Að sögn lögreglunnar á Akureyri virðist sagan hinsvegar vera uppspuni frá rótum. 18.11.2011 13:28
Úrin úr Rolex-ráninu seld í dag Michelsen úrsmiðir á Laugavegi hafa sett úrin sem rænt var úr búðinni á dögunum í almenna sölu. Salan hófst í dag og má gera góð kaup enda um nokkurn afslátt að ræða. Magnús Michelsen sölumaður segir að salan hafi gengið vel það sem af er degi. Úrin sem tekin voru eru seld á niðursettu verði en Magnús vill þó ekki nefna neina sérstaka prósentutölu í því sambandi. Það fer allt eftir því hvernig úrið er farið því nokkur þeirra rispuðust töluvert í hamaganginum. Um 40 Rolex úr var að ræða, sjö úr af Tudor gerð og tvö Michelsen úr. 18.11.2011 13:06
Lögreglan óskar eftir vitnum að slysinu á Kringlumýrarbraut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Kringlumýrarbraut á áttunda tímanum í morgun, sunnan við bensínstöð N1 í Fossvogi. Tilkynnt var um slysið klukkan 7.39. Dökkgrárri Toyotu Aygo var ekið suður Kringlumýrarbraut, á akrein lengst til hægri að talið er, þegar ökumaðurinn missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að ökutækið fór yfir tvær akreinar og hafnaði á vegriði. 18.11.2011 12:50
53 prósent vilja klára samning og kjósa um hann Ný könnun Capacent sem gerð var fyrir Já Ísland sýnir að 53,1 prósent aðpurðra vilja ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslu um samninginn. Fréttatíminn sagði frá könnuninni í morgun. Í tilkynningu frá Já Ísland segir að það sé áhugavert að um þriðjungur kjósenda Sjálfstæðisflokksins styðji áframhaldandi aðildarsamninga. 18.11.2011 12:10
Lík Íslendings sem fórst í Air France slysinu fundið Lík Helge Gustafsson, Íslendingsins sem fórst með Airbus vélinni frá Air France fyrir tveimur og hálfu ári síðan er komið í leitirnar. Þetta kemur fram í norska blaðinu Aftenposten en þar er rætt við bróður Helge, Inge Gustafsson sem á miðvikudag fékk símtal frá íslenska sendiráðinu í Osló þar sem honum var tilkynnt að lík Helge væri fundið. Um 230 manns fórust í slysinu en vélin var á leið frá Brasilíu til Frakklands. Gríðarlegan tíma hefur tekið að bera kennsl á líkamsleifar fórnarlambanna. 18.11.2011 11:51
Nafn stúlkunnar sem lést á Siglufirði Stúlkan sem lést í umferðarslysi á Siglufirði í fyrrakvöld hét Elva Ýr Óskarsdóttir og var þrettán ára gömul. Elva Ýr var fædd þann 16.ágúst árið 1998 og bjó að Eyrarflöt 10 á Siglufirði. 18.11.2011 11:15
Höfða til ábyrgðarkenndar ungs fólks NEI hreyfing gegn kynbundnu ofbeldi stendur um þessar mundir fyrir forvarnarátaki sem beinist að ungu fólki. Í tilkynningu frá aðstandendum segir að markmiðið sé að vekja almenning til vitundar um alvarleika kynbundins ofbeldis og höfða til ábyrgðarkenndar hjá ungu fólki. 18.11.2011 10:50
Ætlar að bjóða sig fram í næstu kosningum Andófskonan frá Burma, Aung San Suu Kyi, hefur nú tilkynnt að hún ætli að bjóða sig fram til þings í næstu kosningum. Flokkur hennar ákvað að sniðganga síðustu kosningar sem fram fóru fyrir ári, en það voru fyrstu frjálsu kosningarnar í landinu í 20 ár. 18.11.2011 10:44
Mörg útköll á viku þar sem börn sjá ofbeldi Sérfræðingur á vegum Barnaverndarstofu er kallaður út oft í viku, um kvöld, nætur og helgar til að sinna börnum sem hafa orðið vitni að heimilisofbeldi. Félagsráðgjafi sem sinnir verkefninu segir brýnt að sérfræðingar sinni börnunum sem fyrst eftir að atvikin eigi sér stað. 18.11.2011 10:00
Kringlumýrarbraut opin á ný Kringlumýrarbraut hefur nú verið opnuð á ný en loka þurfti veginum til suðurs vegna óhapps sem varð þegar bifreið var ekið utan í vegrið. Miklar tafir mynduðust á tímabili vegna óhappsins, ekki síst vegna ökumanna á leið til norðurs sem hægðu á sér til þess að virða fyrir sér vettvang þess. 18.11.2011 09:25
Kringlumýrarbraut lokuð til suðurs Kringlumýrarbraut er lokuð til suðurs á móts við N1 í Fossvogi vegna umferðaróhapps og eru vegfarendur sem eru á leið til Reykjavíkur hvattir til að fara Reykjanesbrautina. 18.11.2011 08:10
Dísilolían orðin 15 krónum dýrari en bensínið Eftir að stóru olíufélögin hækkuðu verð á dísillítranum um þrjár krónur í gær, kostar hann tæpar 245 krónur og er orðinn umþaðbil 15 krónum dýrari en bensínlítrinn. 18.11.2011 07:48
Vilja stöðva frekari stækkun á Grundartanga Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð skorar á sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar að falla frá frekari stækkun iðnaðarsvæðisins við Grundartanga og telur að nóg sé komið af mengandi iðnaði þar. 18.11.2011 07:40
Óklárað grunnskólapróf vitjar Katrínar Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur í ráðherratíð sinni glímt við þráláta martröð úr fortíðinni. Þessu greindi Katrín frá á ráðstefnu um kosti og galla sameiningar háskóla á Íslandi. 18.11.2011 07:30
Pörupiltar á ferðinni í Kópavogi í nótt Tveir pörupiltar tóku sig til í nótt og foru að dreifa DV blöðum á nýstárlegan hátt. Þeir stálu blaðabunka, sem beið blaðburðarmanns, og hófu svo blaðadreifingu út um glugga bílsins, sem þeir voru á, á fullri ferð um Kópavog. 18.11.2011 07:29
Fjórir menn sluppu lítt meiddir úr bílveltu Fjórir menn sluppu lítið meiddir þegar bíll þeirra valt út af þjóveginum skammt frá Goðafossi laust fyrir miðnætti. Þeir voru allir fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar en fegnu allir að halda heim að því loknu. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir. 18.11.2011 07:25
Ofurölvi maður gaf lögreglumanni á kjaftinn Ofurölvi maður, sem talinn var nær ósjálfbjarga, barði óvænt lögreglumann í andlitið af þvílíkum krafti að lögreglumaðurinn vankaðist við. 18.11.2011 07:23
Heimili berskjölduð fyrir eldi Slökkviliðsmenn hafa farið í útköll þar sem fólk hefur látist í brunum í heimahúsum af þeirri ástæðu einni að ekki var reykskynjari til staðar. Tveir létust í eldsvoðum í fyrra og eignatjón nam 1,7 milljörðum króna. 18.11.2011 07:00