Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verulega hefur dregið úr gosóróa - einstaka kviður í nótt Áfram hefur dregið verulega úr gosóróanum í Grímsvötnum síðan í gær að sögn Veðurstofunnar. Það hefur orðið vart við einstaka kviður eða gufusprengingar í gígnum í nótt, en það líður lengri tími á milli þeirra en áður. Engir jarðskjálftar hafa mælst, og gosið er hægt og bítandi að fjara út. 27.5.2011 13:32
Fékk gosið í afmælisgjöf Gestir í fimmtugsafmæli Magnúsar Tuma Guðmundssonar, jarðeðlisfræðings, þurftu margir að yfirgefa veisluna snemma þegar gos hófst í Grímsvötnum á laugardag. Þetta hafi hins vegar ekki verið afmælisgjöfin sem hann óskaði sér. Rætt er við Magnús í föstudagsviðtali Fréttablaðsins. 27.5.2011 13:30
Framsýn samþykkir kjarasamning Félagsmenn Framsýnar stéttarfélags hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Kjarasamningurinn tekur nú gildi enda hafa SA einnig samþykkt hann. Hann gildir fyrir félagsmenn á almennum vinnumarkaði. Kjörsókn var tæp átján prósent á meðal félagsmanna og sögðu 87 prósent já við samningnum. Tólf prósent vildu hinsvegar fella hann. 27.5.2011 13:03
Karlailmur úr Vatnajökli „Herrailmurinn gefur íslensku körlunum okkar sem og þeim erlendu kost á því að njóta þessarar karlmannlegu orku sem Vatnajökull gefur frá sér," segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Gyðju Collection. 27.5.2011 13:00
Efling og Reykjavíkurborg undirrituðu kjarasamning Samninganefnd stéttarfélagsins Eflingar skrifaði undir nýjan kjarasamning við Reykjavíkurborg í gær. Hann er í meginatriðum eins og sá samningur sem Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands undirrituðu á dögunum. Laun munu því hækka um 4,25% þann 1. júní næstkomandi. Samningurinn fer nú í atkvæðagreiðslu og verða kjörgögn send í póst eftir helgi, en niðurstaða mun liggja fyrir 15. júní næstkomandi. 27.5.2011 11:53
Laugavegurinn heitir nú Mannréttindavegur Nafni Laugavegar hefur verið breytt og næstu þrjá daga mun gatan heita Mannréttindavegur. Jón Gnarr borgarstjóri afhjúpaði nýtt götuskilti í dag við hátíðlega athöfn en nafnabreytingin er gerð til þess að minnast 50 ára afmælis Amnesty International og baráttu samtakanna í þágu mannréttinda um allan heim. 27.5.2011 11:37
Heyrnarlausir ætla að fjölmenna á þingpalla Heyrnarlausir ætla að fjölmenna á þingpalla í dag þegar Alþingi tekur fyrir í þriðju umræðu frumvarp til laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls. Búist er við atkvæðagreiðslu um málið um klukkan þrjú í dag en þá verður táknmál viðurkennt sem fyrsta mál heyrnarlausra. 27.5.2011 10:21
Lúxusskip á leið til Akureyrar Skemmtiferðarskipið MSC Poesia kemur til Akureyrar á morgun og mun vera við Íslandsstrendur næstu daga. Frá Akureyri siglir skipið til Ísafjarðar og heimsækir Reykjavík á mánudag. 27.5.2011 10:17
Beina línan á Bessastaði drífur ansi stutt Vonlaust er að ná í forseta Íslands í síma sem merktur er Bessastöðum í farþegarými flugvélar Landhelgisgæslunnar. 27.5.2011 10:00
Dæmdur fyrir að neyða mann til þess að millifæra af heimabanka sínum Karlmaður var dæmdur í átján mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa, ásamt tveimur öðrum karlmönnum, svipt mann á sextugsaldri frelsi sínu og neyða hann til þess að millifæra rúmlega hundrað þúsund krónur yfir í heimabanka eins af mönnunum. 27.5.2011 09:45
Þeim sem þáðu fjárhagsaðstoð fjölgaði um 37% Heimilum sem þáðu fjárhagsaðstoð sveitarfélaga fjölgaði um 15,3% í fyrra frá árinu á undan. Þau voru 6910 í fyrra. - Árið 2008 þáðu 5029 heimili fjárhagsaðstoð og hafði þeim því fjölgað um 37,4% frá þeim tíma. Frá árinu 2008 - 2010 jukust útgjöld sveitarfélaganna vegna fjárhagsaðstoðar um tæpar 1302 milljónir eða rúmlega 77%, en á föstu verðlagi jukust þau um rúm 50%. 27.5.2011 09:24
Forsætisráðherra sitji ekki lengur en í tíu ár Stjórnlagaráð hefur lagt til róttækar breytingar á stjórnarskrárákvæðum um ríkisstjórnina og ekki síst starf og skipan forsætisráðherra. Ef breytingarnar verða að veruleika getur forsætisráðherra ekki setið lengur en í tíu ár, eða tvö og hálft kjörtímabil. Það er B-nefnd ráðsins sem lagði tillögurnar fram til kynningar á tíunda fundi ráðsins í gær. 27.5.2011 09:00
Sjúklingar teknir frá mér "Þetta svokallaða átaksverkefni er auglýst sem ókeypis tannlækningar í bréfi sem borið er til allra foreldra hér á Húsavík. Í fyrsta lagi eru ókeypis tannlækningar ekki til og í öðru lagi er þetta í beinni samkeppni við mig,“ segir Sigurjón Benediktsson, sem kært hefur til Samkeppniseftirlitsins átaksverkið um gjaldfrjálsar tannviðgerðir fyrir börn tekjulágra foreldra. 27.5.2011 08:30
Fara á svig við kjarasamninga Vísbendingar eru til staðar um að útgerðin hafi selt afla til tengdra aðila á undirverði, þegar fiskverð hefur verið hátt, til að komast hjá því að greiða sjómönnum fullan hlut. Þetta segir Jón Steinsson, hagfræðingur. 27.5.2011 08:00
Bann við áfengisauglýsingum óframkvæmanlegt Bann við áfengisauglýsingum er ekki framkvæmanlegt, segir Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. 27.5.2011 07:30
Stúlkan sem lést í Árbæ neytti eiturefnis Bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar hafa leitt í ljós að kona um tvítugt sem fannst látin í íbúð í Árbæjarhverfi í Reykjavík hafði neytt fíkniefna sem innihéldu eiturefnið PMMA. Lögregla undirstrikar að endanleg niðurstaða varðandi dánarorsök konunnar liggur ekki fyrir. Vitneskja er að fíkniefna var neytt innandyra þar sem konan lést. 27.5.2011 07:30
Framsóknarmenn í Kópavogi vara við að alið sé á úlfúð í garð útlendinga Framsóknarmenn í Kópavogi sendu í gærkvöldi frá sér ályktun þar sem varað er við því að alið sé á umræðu á þjóðernislegum nótum og úlfúð í garð útlendinga og þess sem erlent er. 27.5.2011 07:25
Túnin verr farin en menn bjuggust við "Það má segja að það sé krítískt ástand á túnunum. Þetta er þétt og mikil aska og ástandið verra en við vonuðum,“ segir Grétar Már Þorkelsson, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands, sem fór í gær á milli bæja í Hlíða- og Fljótshverfi austan Kirkjubæjarklausturs og kannaði stöðuna í kjölfar gossins í Grímsvötnum. Grétar segir að fylgjast þurfi með áhrifum úrkomu og veðrunar á túnin næstu vikur og meta svo í kjölfarið hvort tilefni sé til að snúa túnunum við og plægja. "En við fyrstu sýn er útlitið svartara en við bjuggumst við varðandi heyskap.“ 27.5.2011 07:00
Kynferðisofbeldi helsta ógn við velferð barna Unicef á Íslandi hefur tekið saman ítarlega skýrslu um stöðu barna á Íslandi og ógnum sem að þeim steðja. Kallað er eftir opinberum forvörnum gegn kynferðisofbeldi og segja samtökin þörf á heildstæðari rannsóknum. 27.5.2011 05:00
Flestir vilja kvótann í ríkiseigu Litlar breytingar hafa orðið á afstöðu almennings til mögulegra breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu samkvæmt könnun MMR. Ríflega tveir þriðju landsmanna, 67,5 prósent, vilja að kvótinn verði í eigu ríkisins. 27.5.2011 05:00
Óttast drykkjulæti á göngugötu „Íbúar hafa áhyggjur af því að aukið rými fyrir fótgangendur að næturlagi um helgar muni auka á fjölda drukkins skara fólks,“ segir stjórn Íbúasamtaka miðborgar í umsögn um þá tillögu að breyta Laugaveginum í göngugötu. 27.5.2011 05:00
Kannabisræktandi ákærður Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir kannabisræktun. 27.5.2011 05:00
Herjólfur siglir ekki í kvöld Herjólfur fer ekki síðustu ferðina í kvöld vegna vinds og öldugangs. Um er ræða ferðir sem átti að fara kl. 20:30 frá Vestmannaeyjum og 22:00 frá Landeyjahöfn. Búist er við að veðrið gangi niður í nótt, að því er fram kemur í tilkynningu. 26.5.2011 19:39
Ofbeldismálum fjölgar Barnaverndartilkynningum hefur fjölgað úr 900 í 9000 á 14 árum. Þrátt fyrir þetta verja stjórnvöld engu fjármagni í forvarnir. 26.5.2011 19:16
Rafrænt eftirlit til góðs fyrir samfélagið Til stendur að taka upp rafræna vöktun með föngum hér á landi líkt. Allsherjarnefnd Alþingis fjallaði um frumvarp þessa efnis í dag. 26.5.2011 18:58
Framhaldsskólakennarar semja til þriggja ára Félags framhaldsskólakennara og samninganefnd hafa skrifað undir kjarasamning til þriggja ára. Samningurinn byggir á sömu forsendum og kjarasamningar á almennum markaði og undirritaðir voru nýverið. 26.5.2011 17:30
Fjárhagsáætlun verði endurskoðuð Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram tillögu á borgarstjórnarfundi í dag um að núgildandi fjárhagsáætlun verði endurskoðuð með hliðsjón af rekstrarafgangi borgarsjóðs 2010 sem var tæpur 1,5 milljaður. Lagt var til að það yrði gert með því að draga til baka hækkanir á útsvari borgarbúa og hverfa frá áformum um umdeildar skólasameiningar, að því er fram kemur frá Sjálfstæðisflokknum. Tillagan var felld. 26.5.2011 17:19
Enn hætta á öflugum öskustrókum úr gígnum Ekkert hefur sést til gosmakkar úr Grímsvötnum frá því í fyrrinótt. Eftir hádegi í dag sást þó til gufubólstra úr gígnum sem náðu í um 2000 metra hæð og segir í nýrri stöðuskýrslu frá Almannavörnum að ekki sé hægt að útiloka að öflugir öskustrókar geti komið fyrirvaralaust úr gígnum og er því enn varað við því að fólk ferðist að gígnum. 26.5.2011 16:49
Skaftafell opnað klukkan fimm Skaftafelli, suðurhluti Vatnajökulsþjóðgarðs, verður svæðið formlega opnað á ný klukkan fimm í dag. Vaskir vinnumenn hafa unnið sleitulaust að því síðustu daga að hreinsa svæðið eftir öskufall. 26.5.2011 16:06
Segir að útrunninn kjúklingur hafi farið á spítala og elliheimili Andri Freyr Viðarsson, sem er annar tveggja þáttastjórnenda útvarpsþáttarins Virkir morgnar á Rás 2, sagði í morgun frá því þegar hann vann hjá ónefndu kjúklingafyrirtæki hér á landi á tíunda áratug síðustu aldar. Hann hafi meðal annars unnið við það að meta það hvort að útrunninn kjúklingur gæti farið í marineringu og þaðan á spítala og elliheimili. 26.5.2011 16:04
Leikskólaplássum fjölgar um 300 í Reykjavík Unnið er að því að fjölga leikskólaplássum í Reykjavík um þrjú hundruð til að mæta mikilli barnafjölgun. Á þessu ári verður leikskólaplássum fjölgað um 250 fyrir börn sem fædd eru á árinu 2009 og í byrjun næsta árs bætast 55 ný leikskólapláss við þegar nýr leikskóli verður tekinn í notkun í Norðlingaholti. Samkvæmt áætlun starfshóps sem settur var á laggirnar til að gera úttekt á leikskólahúsnæði borgarinnar er unnt að fjölga leikskólaplássum um 60 án þess að byggja við leikskólana. Víða um borgina fer fram leikskólastarf í færanlegum húsum sem staðsett eru við eldri leikskóla og stendur til að beita þeim úrræðum víðar. Þannig skapast viðbótarpláss fyrir 226 börn. Í Vesturbæ er unnið að því að fjölga leikskólaplássum um 92. Í Laugardal og Háaleiti er stefnt að því að fjölga leikskólaplássum um 70 og í Miðborg Hlíðum verður leikskólaplássum fjölgað um 30. Þá bætast 15 leikskólapláss við í Norðlingaholti, 16 í Grafarholti og 18 í Úlfarsárdal. 26.5.2011 15:40
Dagforeldrum fjölgað um 30 í Reykjavík - eru nú yfir 200 Dagforeldrum í Reykjavík hefur fjölgað um þrjátíu frá áramótum og eru þeir nú rösklega 200 að störfum. Markvisst átak til að fjölga dagforeldrum hófst í lok síðasta árs og lauk stór hópur réttindanámi í byrjun ársins, eða 35 manns. Tæplega 900 börn dvelja um þessar mundir hjá dagforeldrum í Reykjavík. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 er gert ráð fyrir 180 milljónum króna til að mæta aukinni þörf fyrir dagforeldra vegna stórra fæðingarárganga 2009 og 2010, en fyrirséð er að um 1.000 börn verði að jafnaði hjá dagforeldrum á þessu ári. Verið er að auðvelda dagforeldrum að starfa saman í húsnæði í eigu Reykjavíkurborgar og verður það auglýst til leigu í sumar. Áfram verður unnið að því að fjölga dagforeldrum í Reykjavík með kynningu og námskeiðum til að mæta megi þörfum foreldra með börn sem fædd eru 2010 og 2011. 26.5.2011 15:37
Styðja fatlaða vinkonu til ferðalaga Vinir Guðrúnar Jónu Jónsdóttur eru um þessar mundir að safna fé fyrir hana þannig að henni gefist kostur á því að ferðast til útlanda. Guðrún Jóna, eða Gugga eins og hún er oft kölluð, varð fyrir líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur árið 1993. Þá var hún fimmtán ára gömul. Alla tíð síðan hefur hún verið mikið fötluð og bundin við hjólastól. 26.5.2011 15:25
Fangelsismálastjóri vaktaður í næsta mánuði Fangelsismálastjóri gerir ráð fyrir að hægt sé að hefja notkun á rafrænni vöktun með föngum síðar á þessu ári. Hann ætlar sjálfur, ásamt öðrum starfsmanni Fangelsismálastofnunar, að ganga með slíkan búnað í viku til þess að prófa búnaðinn. 26.5.2011 15:02
Slökkviliðsmenn frá Isavia fóru austur til hreinsunarstarfa Harðsnúið lið slökkviliðsmanna frá Isavia fór í morgun til að aðstoða við hreinsunarstarf vegna öskufalls úr eldgosinu í Grímsvötnum. 26.5.2011 14:45
Fimm staðfest tilvik PMMA hér á landi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur unnið að því að koma í veg fyrir frekari dreifingu á blandaða metamfetamíninu, sem inniheldur svokallað PMMA og er mjög eitrað. Eins og fram hefur komið fannst efnið hér landi í síðasta mánuði. 26.5.2011 14:22
Katrín tekur til hendinni á Klaustri Starfsmenn Iðnaðarráðuneytisins láta hendur standa fram úr ermum í dag með Katrínu Júlíusdóttur ráðherra í broddi fylkingar. Um tuttugu manna hópur úr ráðuneytinu og tveimur undirstofnunum, Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofu fór austur á gossvæðið til þess að hjálpa til við hreinsunarstörfin sem eru að vonum ærin. 26.5.2011 14:17
Taka upp rafræna vöktun með föngum Til stendur að taka upp rafræna vöktun með föngum á Íslandi. Frumvarp þessa efnis hefur verið flutt á Alþingi og er núna í meðferð allsherjarnefndar Alþingis. Rafræn vöktun með föngum er þekkt víða erlendis. Skemmst er að minnast þess að Dominique Strauss-Kahn, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, var látinn laus úr gæsluvarðhaldi gegn því skilyrði að hann gengi með rafrænt ökklaband. 26.5.2011 14:04
Metfjöldi á geðdeildinni - komið að sársaukamörkum Komum á dag- og göngudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri fjölgar ár frá ári og nú svo komið að deildin annar vart fleiri sjúklingum. Metfjöldi kom á deildina árið 2010. "Það er ekki spurning að við erum komin að sársaukamörkum," segir Árni Jóhannesson, yfirlæknir á dag- og göngudeild geðdeildar FSA. Hann fullyrðir að komur hefðu orðið enn fleiri á síðasta ári ef fleira starfsfólk væri til staðar. "Hingað til höfum við getað sinnt nánast öllum sem vísað er til okkar en með þessu áframhaldi þurfum við að fara að forgangsraða," segir hann. 26.5.2011 14:00
Íslenskur sendifulltrúi til Líbíu Áslaug Arnoldsdóttir sendifulltrúi Rauða kross Íslands heldur til Líbýu nú á sunnudag þar sem hún mun starfa sem hjúkrunarfræðingur með Alþjóða Rauða krossinum í borginni Benghazi, en þangað hefur sært fólk verið flutt af átakasvæðunum í Líbýu til að veita þeim læknisaðstoð. Áslaug er einn reyndasti sendifullrúi Rauða kross Íslands og hefur áralanga reynslu af störfum á átakasvæðum. Hún fór fyrst sem sendifulltrúi Rauða krossins árið 1996 þar sem hún starfaði á sjúkrahúsi Alþjóða Rauða krossins í Suður-Súdan og hefur síðan unnið m.a. í Georgíu, Írak, Líbanon, Eþíópíu, Úganda, og nú síðast í Pakistan og á Haítí. 26.5.2011 13:53
Þolendur kynferðisofbeldis sæta árásum í fjölmiðlum Fyrrverandi vistmenn á meðferðarheimilinu Árbót, sem kærðu fyrrverandi starfsmanns heimilisins fyrir kynferðisofbeldi, hafa þolað árásir í fjölmiðlum vegna ákæranna. Barnaverndarstofa og þrjár barnaverndir á landinu hafa nú sent frá sér ályktun þar sem segir að barnaverndaryfirvöld geti ekki orða bundist yfir þessari umfjöllun. Í fyrra var Jón Þór Dagbjartsson, fyrrverandi starfsmaður Árbótar, dæmdur í fangelsi fyrir brot gegn stúlkum sem höfðu verið vistaðar á Árbót. Eiginkona Jóns hefur meðal annars ítrekað rætt mál hans í fjölmiðlum, þar sem hún hefur komið honum til varnar. 26.5.2011 13:49
Ísland friðsælasta ríki heims Ísland er friðsælasta ríki heims ef marka má nýjan lista "Institute for Economics and Peace". Stofnunin hefur raðað 153 sjálfstæðum ríkjum eftir því hve friðsæl löndin eru og er notast við 23 mismundandi breytur á borð við útgjöld til hernaðarmála og samskipti við nágrannaþjóðir. Listinn kemur út árlega og lenti Ísland einnig í fyrsta sæti árið 2008. Eftir hrun tók landið hinsvegar dýfu og lenti í fjórða sæti árið 2009 og í öðru sæti í fyrra. 26.5.2011 13:30
Þýski ferðamaðurinn útskrifaður af sjúkrahúsi Þjóðverjinn sem leitað var að norðan Vatnajökuls í gær var útskrifaður af slysadeild Landspítalans eftir skoðun. Hann var í ágætu standi miðað við aðstæður en kaldur og svangur eftir langa veru á jöklinum. 26.5.2011 12:10
Deildarmyrkvi í næstu viku Deildarmyrkvi á sólu verður miðvikudagskvöldið 1. júní. Frá höfuðborgarsvæðinu séð hefst myrkvinn klukkan 21:14 þegar sólin er lágt á himni í vest-norðvestri og byrjar þá tunglið að hylja skífu sólar frá hægri. Myrkvinn nær hámarki klukkan 22:01 og hylur tunglið þá 46% af þvermáli sólar samkvæmt upplýsingum úr Almanaki Háskóla Íslands. 26.5.2011 11:54
Þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun: Stúlkan lagðist á grasblett og grét Þrítugur karlmaður, Grétar Torfi Gunnarsson, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun. Grétar Torfi er fundinn sekur um að hafa nauðgað ungri konu í leggöng og endaþarm, neytt hana til að hafa við sig munnmök, og beitt hana öðru líkamlegu ofbeldi á meðan á nauðgun stóð. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða brotaþola 1,2 milljón króna í miskabætur. Grétar Torfi neitaði alfarið sök. Hann sagðist hafa átt munnmök, samræði og endaþarmsmök við stúlkuna en talið hana verið þessu samþykk. Við skoðun á Neyðarmótttöku fyrir fórnarlömb nauðgana kom í ljós að stúlkan var með sprungu og roða í endaþarmi, marbletti á læri og rasskinn, eymsli yfir nefrót og í hnakka auk þess sem hár losnaði úr hársverði. Fyrir dómi bar maðurinn að harkaleg meðferð hans á konunni hafi verið "hluti af leiknum." Þá segir í lýsingu á málsatvikum: "Ákærði tók fram að stúlkan hefði að vísu ekki samþykkt sérstaklega þegar hann setti getnaðarlim sinn í endaþarm hennar, en hún hefði ekki sett sig upp á móti því." Samkvæmt framburði stúlkunnar kynntust þau á skemmtistað fyrr um nóttina og hafi hún greint frá því strax í upphafi samskipta þeirra að hún væri lesbía. Nauðgunin átti sér stað á heimili mannsins í júní á síðasta ári. Eftir nauðgunina flúði stúlkan. "Hún hefði klætt sig í flýti, en skilið eitthvað af fötum sínum eftir í herberginu. Hún hefði yfirgefið íbúðina og ætlað heim til sín, en fundið fyrir svo miklum sársauka í endaþarmi að hún hefði lagst á grasblett og grátið,“ segir í lýsingu á málsatvikum. Í málinu liggur fyrir vottorð sálfræðings þar sem kemur fram að nauðgunin hafi valdið stúlkunni mikilli vanlíðan, ljóst er að hún þarfnast langvarandi meðferðar vegna áfallastreituröskunar og er óvíst um bata. Grétar Torfi hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Dómararnir Ragnheiður Harðardóttir, Eggert Óskarsson og Sigríður Ólafsdóttir héraðsdómarar kváðu upp dóminn í Héraðsdómi Reykjavíkur 26.5.2011 11:38
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent