Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bílvelta á Þingvallavegi Toyotabifreið valt á Þingvallavegi við Lyngdalsheiðaafleggjarann rúmlega átta í kvöld. Ökumaðurinn, ung stúlka, var ein í bílnum og eftir því sem sjónarvottur sagði við Vísi slapp hún ómeidd. Þó var sjúkrabíll sendur á staðinn til að veita aðhlynningu. 3.2.2011 20:49
Nefnd um stjórnlagaþing kemur saman á morgun Stefnt verður að því að nefnd um stjórnlagaþing komi fram til fyrsta fundar á morgun. Samkvæmt upplýsingum úr forsætisráðuneytinu hafa allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkurinn tilnefnt fulltrúa en búist er við því að sjálfstæðismenn tilnefni mann fyrir fyrsta fund. Formaður nefndarinnar er svo skipaður úr forsætisráðuneytinu. 3.2.2011 20:35
Fyrst og fremst ánægjulegt fyrir ljóðið Blóðhófnir eftir Gerði Kristnýju og Sveppabókin eftir Helga Hallgrímsson hlutu Íslensku bókmenntaverðlaunin sem afhent voru í gær. Gerður er glöð fyrir hönd ljóðsins en Helgi segir mikið verk enn óunnið í ritun náttúrufræðirita á Íslandi. 3.2.2011 20:30
Fréttaskýring: Náttúruperlur eða hentugar námur? Lausleg könnun Veiðimálastofnunar árið 2008 leiddi í ljós að möl var tekin úr yfir 80 vatnsföllum á fimm ára tímabili. Malartekjan var mismikil eftir stöðum en mest nærri stærri þéttbýlisstöðum og stórum framkvæmdum. Mikið er um að framkvæmt sé án lögboðinna leyfa en Fiskistofa hyggst taka harðar á slíkum brotum með tilurð refsiheimilda í lögum. 3.2.2011 20:00
Formaður Sjálfstæðisflokksins segist finna fyrir stuðningi Flestir þingmenn Sjálfstæðisflokksins styðja Icesave-samningana. Þá hefur óánægja meðal flokksmanna ekki birst í mörgum úrsögnum úr flokknum þótt andstaðan sé hörð á veraldarvefnum. Formaður flokksins segist finna fyrir miklum stuðningi. 3.2.2011 19:17
Fjölskyldan í Aratúni hótar sjö einstaklingum lögsókn Fjölskylda sem átti í harðvítugum nágrannadeilum í Aratúni í Garðabæ hefur hótað sjö einstaklingum lögsókn og krefst hundruð þúsunda króna í skaðabætur ef þeir biðjast ekki afsökunar á ummælum sem þeir létu falla um fjölskylduna á netinu. 3.2.2011 18:54
Fjármálafyrirtækin fjármagni eftirstöðvar Icesave Ef allt gengur að óskum má búast við því að Icesave frumvarpið geti komið til þriðju umræðu á Alþingi þann fimmtánda eða sextánda febrúar, samkvæmt upplýsingum frá Oddnýju Harðardóttur, formanni fjárlaganefndar. Nú fer í hönd svokölluð kjördæmavika þannig að ekkert verður unnið í málinu í næstu viku. 3.2.2011 17:59
Spjöldin hjálpa til við lestur Daníel Þór Ingvarsson, 15 ára, notar pappaspjöld til þess að ná betri árangri í lestri. Daníel hannaði sjálfur spjöldin og segir þau afar gagnleg við lærdóminn. 3.2.2011 17:00
Hæstiréttur felldi úr gildi Netsmellsdóm Hæstiréttur hefur í dag fellt úr gildi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Samkeppniseftirlitsins gegn Icelandair. 3.2.2011 16:52
Icesave frumvarpið samþykkt til þriðju umræðu Alþingi greiddi nú fyrir skömmu atkvæði um Icesave frumvarpið. Samþykkt var að beina frumvarpinu til þriðju og lokaumræðu á Alþingi sem fram fer nú síðar í mánuðinum. Frumvarpið var samþykkt með 40 atkvæðum gegn ellefu, sex greiddu ekki atkvæði. 3.2.2011 16:51
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir skotárásarmanni Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð yfir einum af fjórum mönnum sem eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um skotárás á aðfangadegi. 3.2.2011 16:46
Dæmdur fyrir að tæla stúlku til kynferðismaka Hæstiréttur Íslands staðfesti árs fangelsi yfir 33 ára gömlu manni í dag sem var dæmdur fyrir að hafa tælt 17 ára gamla stúlku til samræðis og nýtt sér yfirburði sína gagnvart henni sökum aldurs- og þroskamunar. 3.2.2011 16:42
Siv situr hjá í Icesave atkvæðagreiðslu Framsóknarflokkurinn er ekki einhuga í andstöðu sinni við Icesave samkomulagið. Siv Friðleifsdóttir sat hjá við atkvæðagreiðslu um Icesave samkomulagið nú fyrir skömmu. Hún sagði erfitt að benda á betri leið en að samþykkja samninginn og því sæti hún hjá. 3.2.2011 16:26
Vill fund vegna skattahækkana á innanlandsflugi Sigmundur Erni Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur óskað eftir fundi í samgöngunefnd til þess að fjalla um stöðu innanlandsflugs á fundi sínum, eins fljótt og kostur er - en þar verði fyrir svörum gestir sem geta varpað ljósi á auknar álögur á fyrirtæki í flugrekstri, svo og farþega. 3.2.2011 16:24
Bjarni Benediktsson - erfiður samningur en segir já Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í umræðum um atkvæðagreiðsluna um Icesave að ríkisstjórnin hefði gert hrapaleg misstök í Icesave deilunni. Engu að síður segði hann já. 3.2.2011 16:21
Atkvæðagreiðsla um Icesave hafin Atkvæðagreiðsla um hvort afgreiða eigi Icesave-samninginn úr annarri umræðu er hafin og hægt er að fylgjast með beinni útsendingu á vef Alþingis. 3.2.2011 16:16
Una líklega niðurstöðu Hæstaréttar Litlar líkur eru á að látið verði reyna á hvort ákvörðun Hæstaréttar um ógildingu kosningarinnar til stjórnlagaþings sé kæranleg til dómstóla. 3.2.2011 16:00
Fimmföldun á gjaldi fyrir læknisvottorð Gjald fyrir vottorð vegna umsókna um örorkubætur til lífeyrissjóða hækkaði umtalsvert með nýrri gjaldskrá sem tók gildi um síðustu áramót. 3.2.2011 16:00
„Mín fyrstu viðbrögð eru undrun og vonbrigði" „Mín fyrstu viðbrögð eru undrun og vonbrigði," segir Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður Verkalýðsfélagsins Afls á Austurlandi. Félagsdómur hefur úrskurðað að boðuð verkföll starfsmanna verkalýðsfélaganna Afls og Drífanda í fiskimjölsverksmiðjum sé ólögmætt. 3.2.2011 15:44
Fékk hjartaáfall stuttu eftir afbrotahrinu og snéri blaðinu við Karlmaður var dæmdur í sex mánaða fangelsi dag í Héraðsdómi Suðurlands fyrir innbrot, þjófnað, hylmingu og umferðarlagabrot. Maðurinn játaði brot sín skýlaust en þau voru öll framin árið 2009. 3.2.2011 15:31
Upplýsinga- og vefmál sameinuð hjá borginni Borgarráð hefur samþykkt að unnið verði að sameiningu upplýsinga- og vefmála hjá Reykjavíkurborg. 3.2.2011 15:19
Fjölþjóðlegt bókasafn með lifandi bókum Alþjóðatorg ungmenna og Borgarbókasafn Reykjavíkur standa fyrir lifandi bókasafni á laugardag milli klukkan 14.30 og 16.30. Gestir geta fengið að láni lifandi og talandi bók og fræðst og skemmt sér um leið. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. 3.2.2011 15:12
Verkfall úrskurðað ólögmætt Félagsdómur úrskurðaði boðað verkfall starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum, sem átti að hefjast 7. febrúar, ólögmætt í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Dómur var fjölskipaður en einn dómari skilaði séráliti. 3.2.2011 15:07
Edduverðlaunin - tilnefningar í heild sinni Kvikmyndirnar Brim, Órói og The Good Heart eru tilnefndar til flestra verðlauna á Edduhátíðinni. Vísir birtir listann yfir tilnefningar í heild sinni. 3.2.2011 14:55
Edduverðlaunin 2011 - Brim með flestar tilnefningar Kvikmyndin Brim eftir Vesturport og Zik Zak kvikmyndir fær flestar tilnefningar ársins til Edduverðlaunanna. Myndin er tilnefnd sem bíómynd ársins, Árni Ólafur Ásgeirsson sem leikstjóri ársins og hópurinn fyrir handrit ársins. Næst á eftir Brimi kemur kvikmyndin Órói með tíu tilefningar. 3.2.2011 14:41
Vísir, Facebook, Mbl og Google í sérflokki Vísir er annar stærsti vefmiðillinn á Íslandi samkvæmt fjölmiðlakönnun MMR frá í janúar en 53,1 prósent netnotendur nota vefinn einu sinni eða oftar yfir daginn. Rétt rúmlega 80 prósent nota Vísi vikulega eða oftar. 3.2.2011 14:40
Kvartað yfir brúnkuleik til umboðsmanns barna Umboðsmanni barna hefur borist kvörtun vegna gjafaleiks sem Pjattrófurnar á Eyjunni og snyrtistofan Mizu standa fyrir þar sem stúlkum á aldrinum 15 til 18 ára er boðið í brúnkusprey. Leikurinn er auglýstur á vef Pjattrófanna en til að eiga möguleika á vinningi þurfa stúlkurnar að gerast Facebook-vinir þeirra og hvetja vini sína til að gerast einnig Facebook-vinur Pjattrófanna. 3.2.2011 14:37
Styrmir Gunnarsson: Meiriháttar pólitísk mistök þingflokksins „Það eru meiriháttar pólitísk mistök hjá meirihluta þingflokks Sjálfstæðisflokksins og forystu þess flokks að gera sér ekki grein fyrir þessu. Þess vegna er nú að rísa bylgja andstöðu innan flokksins vegna þessarar afstöðu meirihluta þingflokksins,“ skrifar Styrmir Gunnarsson á vef Evrópuvaktarinnar, en hann vill að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins, leggi fram tillögu á Alþingi, þar sem lagt yrði til að almenningur fái að kjósa um Icesave-frumvarpið, sem nefndarmenn fjárlaganefndar hafa mælst til að verði samþykkt. 3.2.2011 14:10
Tugir segja sig úr Sjálfstæðisflokknum Mikil óánægja er meðal sumra sjálfstæðismanna vegna afstöðu flokksins í Icesave málinu. Þrjátíu manns hafa sagt sig úr flokknum í dag. Kristján Þór Júlíusson segir óánægju innan flokksins ekki hafa farið framhjá neinum. 3.2.2011 13:51
Fordæma Þorstein fyrir að sýna Ólínu óvirðingu Sameiginlegur fundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík og Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, samþykkti í gærkvöldi að fordæma Þorstein Má Baldvinsson, forstjóra Samherja, fyrir að sýna Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanni Samfylkingarinnar, óvirðingu á fundi um sjávarútvegsmál á Akureyri á þriðjudagskvöldinu. 3.2.2011 13:43
Sigmundur Davíð bloggar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur opnað nýjan bloggvef þar sem hann stefnir á að birta reglulega greinar, myndbönd. og annað efni. Á síðunni má nálgast rafrænar útgáfur af prentuðum blaðagreinum eftir birtingu, þingræður og fleira. 3.2.2011 13:13
Tilnefnt til Eddunnar í dag Tilkynnt verður hverjir hljóta tilnefningar til Edduverðlaunanna árið 2011 í dag. Athöfnin fer fram í Bíó Paradís klukkan tvö. Tilnefningarnar ná til þeirra verka sem sýnd voru á árinu 2010. 3.2.2011 13:12
Stúdentaráðskosningar - Fleiri framboð en minni þátttaka Svo virðist sem minni þátttaka verði nú í kosningum til Stúdentaráðs en í fyrra þrátt fyrir að framboðin séu nú fleiri. Jens Fjalar Skaptason formaður Stúdentaráðs segir að tæplega 3000 manns séu nú búnir að kjósa en kjörstöðum lokar klukkan sex í dag. 3.2.2011 13:00
Deilt um lögmæti verkfalls fiskvinnslufólks Félagsdómur kemur saman klukkan þrjú í dag og úrskurðar um lögmæti boðaðs verkfalls starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum, sem á að hefjast 7. febrúar. 3.2.2011 12:59
Útgerðarkóngur í hart við Sigmund Erni Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, svarar Sigmundi Erni Rúnarssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, harðlega í yfirlýsingu sem hann birtir á vef Samherja. 3.2.2011 12:58
Fjármálaráðuneytið leiðréttir Sigmund Davíð Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fór með rangt mál í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag um Icesave. í greininni gagnrýnir Sigmundur þá ákvörðun að samþykkju Icesave og segir margar fráleitar staðhæfingar hafa fallið um kostnaðinn við að greiða ekki Icesave 3.2.2011 12:41
119 krefjast bóta vegna vistunar í Breiðavík Alls fær sýslumaðurinn á Siglufirði 119 kröfur um sanngirnisbætur frá fyrrum vistmönnum Breiðavíkur og erfingjum látinna vistmanna Breiðavíkur. Vistmenn á Breiðavík voru alls 158 og því koma fram bótakröfur vegna 75% þeirra. Innköllun krafna vegna vistmanna Kumbaravogs og Heyrnleysingjaskólans hefst í dag, 3. febrúar, samkvæmt auglýsingu í blöðum dagsins. 3.2.2011 12:28
Hjartaskurðaðgerðir á börnum frá Boston til Svíþjóðar Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og Háskólasjúkrahúsið í Lundi í Svíþjóð (HLS) undirituðu í morgun að viðstöddum velferðarráðherra, samning um hjartaskurðaðgerðir á börnum. 3.2.2011 12:25
Viðskiptaráð hvetur Alþingi til þess að samþykkja Icesave Viðskiptaráð Íslands hvetur Alþingi til þess að samþykkja nýja Icesave-frumvarpið en áréttar jafnframt að með hvatningunni sé ráðið ekki að taka afstöðu hvort ríkissjóði beri skylda til þess að veita ríkisábyrgð á skuld Tryggingarsjóðs innstæðueigenda. Þetta kemur fram í ályktun framkvæmdastjórnar Viðskiptaráðs Íslands. 3.2.2011 12:22
Bílstjórar mega ekki ofmeta eigin hæfni Umferðin var nokkuð þung í morgun og Einar Magnús Magnússon upplýsingafulltrúi Umferðarstofu brýnir fyrir fólki að ofmeta ekki eigin hæfni við skyndilega snjókomu eins og síðustu daga. 3.2.2011 12:05
Óvissa um stuðning fimm þingmanna Sjálfstæðisflokks Óvissa er um stuðning a.m.k fimm þingmanna Sjálfstæðisflokksins við nýja Icesave-samninginn og því skiptist þingflokkurinn í tvær fylkingar í afstöðu til hans en öll forysta flokksins styður nýjan samning. Tuttugu og níu félagsmenn hafa skráð sig úr Sjálfstæðisflokknum frá því í gær. 3.2.2011 12:00
ECA ekki með herflugvélar - ekki hægt að banna verkefnið Kristján L. Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir ekki hægt að neita hollensku félagi um ECA-verkefnið þar sem Ísland sé hluti af evróspka efnahagssvæðinu. Það snúist um að koma á fót viðhaldsstöð fyrir flugvélar og hafnar því að um herflugvélar sé að ræða. 3.2.2011 11:51
Neytendur óánægðir með óverðmerktar matvörur í Bónus Ekki eru lengur verðmerkingar á kjúklingi í Bónus. Ástæðan er úrskurður Samkeppniseftirlitsins frá í desember á síðasta ári þar sem verslunum Haga var bannað að taka við kjötvörum merktum með smásöluverði. 3.2.2011 11:27
Jóhanna vill skoða reglur um þögn seðlabankastjórans Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag að þingflokksformaður Framsóknarflokksins þyrfti að skoða lög og reglur um það hvort seðlabankastjóri hafi brotið reglur þegar hann neitaði að veita þingnefnd upplýsingar um söluferlið á tryggingafélaginu Sjóvá. 3.2.2011 11:18
Ingi Freyr krefst ómerkingar tíu ummæla Agnesar Ingi Freyr Vilhjálmsson, fréttastjóri á DV, krefst þess að tíu ummæli í fréttum sem Agnes Bragadóttur skrifaði í Morgunblaðið um málefni njósnatölvunnar á Alþingi verði dæmd dauð og ómerk. 3.2.2011 11:00
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent