Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
SUF fordæmir framkvæmd kosningar til stjórnlagaþings „Stjórn SUF, Sambands ungra framsóknarmanna, lýsir yfir miklum vonbrigðum með að jafn illa hafi verið staðið að kosningum til Stjórnlagaþings og dómur Hæstaréttar ber vitni um.“ Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórnin sendi frá sér í morgun. Stjórn SUF vill ítreka það að Stjórnlagaþingið er mál sem að Framsókn hefur barist fyrir og telur það ekki koma til greina að hætta við þingið. Stjórn SUF vill brýna fyrir alþingismönnum að leggja ekki stein í götu þessa máls, heldur tryggja að betur verði staðið að framkvæmd nýrra kosninga, svo þjóðin fái tækifæri til að koma að löngu tímabærri endurskoðun stjórnarskrárinnar. 3.2.2011 10:18
Kristinn býður sig aftur fram Formaður VR, Kristinn Örn Jóhannesson, hyggst sækjast eftir endurkjöri sem formaður félagsins. Þetta kemur fram í í yfirlýsingu sem hann sendi á fjölmiðla fyrir stundu. Þar segir hann meðal annars: 3.2.2011 10:06
Stórhríð á Vestfjörðum og varað við hreindýrum á Austurlandi Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er hálka bæði á Hellisheiði og í Þrengslum, líkt og á flestum vegum á Suðurlandi. Þá er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á Vesturlandi og þungfært á Útnesvegi og Skógarströnd. 3.2.2011 09:53
Erfðamál Fischers endurflutt Erfðamál meintrar ekkju skáksnillingssins Bobby Fischer, Miyoko Watai, gegn frændum Fischers, verður endurflutt í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem of langt er liðið síðan málið var flutt í héraðsdómi. Ekki þykir sannað að Miyoko hafi sannarlega verið gift hinum sérvitra Fischer og því var dómsmál höfðað til þess að skera úr um hver eigi rétt á jarðneskum eigum Fischers. 3.2.2011 09:51
Skólinn rýmdur samkvæmt eldvarnaaætlun Jón Páll Haraldsson, aðstoðarskólastjóri í Laugalækjarskóla, segir nemendur hafa staðið sig með prýði þegar skólinn var rýmdur í morgunn. Eldur kom upp í rafmagnsdós, sem bráðnaði og barst reykjalykt um skólann. 3.2.2011 09:31
Eldur í Laugalækjarskóla Eldur kom upp í Laugalækjarskóla í morgun og þurfti að rýma skólann þess vegna. Vakstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að upptök eldsins hafi verið í rafmagnstöflu. Slökkviliðið mætti á vettvang og réð niðurlögum eldsins. Nemendum hefur verið hleypt aftur inn í skólann og verður skólahald með eðlilegum hætti þar í dag. 3.2.2011 08:51
Fyrri ferð Herjólfs fellur niður í dag Fyrri ferð Herjólfs til Þorlákshafnar fellur niður í dag fimmtudag. Athugað verður með seinni ferð um hádegi, en veður- og ölduspá er slæm fyrir daginn. 3.2.2011 08:24
Sautján bæjarstjórar styðja samningaleiðina Sautján bæjarstjórar um allt land, sem starfa fyrir ólíka meirihluta og í ólíkum samfélögum hafa sameinast um yfirlýsingu þar sem þeir lýsa stuðningi við svonefnda samningaleið við stjórnun fiskveiða. 3.2.2011 07:41
Kafarar fundu Skotann í Sandgerði Kafarar úr björgunarsveitum fundu í gær lík af sextugan skota, sem leit hófst að í fyrrakvöld, í og við Sandgerði. 3.2.2011 07:27
Brotist inn í 66°Norður í Hafnarfirði í nótt Brotist var inn í iðnaðarhús 66°Norður í Hraununum í Hafnarfirði í nótt, en þar er meðal annars geymdur dýr útivistarfatnaður. 3.2.2011 07:09
Björgunarsveitir kallaðar út í nótt vegna veðursins Björgunarsveitir voru kallaðar út á Suðurnesjum upp úr klukkan eitt í nótt til að aðstoða ökumenn í föstum bílum, eða bílum sem höfðu runnið útaf í hálku og hvassviðri. 3.2.2011 07:02
Grunnskólabygging langt fram úr áætlun Kostnaður við nýja byggingu fyrir grunnskólann á Stokkseyri er nú kominn í um 806 milljónir króna og hefur ekki allur kostnaður verið talinn. Upphafleg kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 477 milljónir króna. Nýja grunnskólabyggingin var boðin út árið 2008. Byggingin er nær tilbúin og hefur þegar verið tekin í notkun, segir Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Árborgar. 3.2.2011 06:30
Nemendur fá að ljúka námi Náðst hefur samkomulag um að hópur nemenda við Iðnskólann í Hafnarfirði fái að ljúka námi í útstillingum með samvinnu við verslunina Ikea. Ákveðið var skömmu fyrir jól að leggja námsbrautina niður án fyrirvara, eins og fjallað hefur verið um í Fréttablaðinu. Fimm nemendur voru langt komnir í náminu og höfðu ætlað að útskrifast í vor. 3.2.2011 06:00
Þrengir að bílstjórum í Ósló Samönguyfirvöld í Noregi ætla að draga úr bílanotkun í Ósló og öðrum helstu borgum og bæjum landsins. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um samgöngumál. 3.2.2011 06:00
Sjoppuræningjar mæta næsta dag og kaupa kók Lögregla leitaði í gær tveggja ungra manna sem frömdu vopnað rán í Bónusvídeói í Lóuhólum í fyrrakvöld. 3.2.2011 05:30
Mikilvæg fyrir blesgæsina Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur undiritað friðlýsingu búsvæðis fyrir fugla í Andakíl í Borgarfirði og Hvanneyrarjörðina alla, sem nú er friðlýst svæði blesgæsar. 3.2.2011 05:00
Vilja sátt um sjávarauðlindina Sautján stjórnendur bæjar- og sveitarfélaga lýsa yfir stuðningi við niðurstöðu starfshóps um endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða. 3.2.2011 05:00
Ræða stöðu stjórnlagaþings Málþing Rætt verður um ákvörðun Hæstaréttar um ógildingu stjórnlagaþings á málþingi á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviða Háskóla Íslands í dag. 3.2.2011 05:00
Borg og eigendur togast á um tíu sentimetra „Ef ég væri ekki ljóshærður þá væri ég löngu orðinn gráhærður,“ segir Marías Sveinsson, einn þriggja eigenda Klapparstígs 17, sem kveðst uppgefinn á samskiptum við byggingarfulltrúa vegna nýbyggingar á lóðinni. 3.2.2011 05:00
Síldin í Breiðafirði mjög sýkt Frumniðurstöður úr rannsóknarleiðangri Hafrannsóknastofnunar í janúar staðfesta fyrri mælingar um mikla sýkingu í íslensku sumargotssíldinni í Breiðafirði. 3.2.2011 04:00
Fengu ferðina bætta að fullu Íslensk hjón hafa fengið bætur frá erlendu flugfélagi eftir að flugferð frá Englandi til Spánar, sem þau áttu pantaða, var aflýst. Á vef Neytendasamtakanna segir að hjónunum hafi næsta dag verið tjáð að flugfélagið myndi ekki fljúga til þessa áfangastaðar næstu tvo daga. 3.2.2011 03:30
Byssumennirnir fjórir verða áfram í haldi Fjórir karlmenn sem tóku þátt í skotárás í Bústaðahverfi á aðfangadag hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 15. febrúar. Einn þeirra kærði úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur Hæstaréttar. Ríkissaksóknari mun á næstu dögum gefa út ákæru á hendur þeim. 3.2.2011 03:15
Segir Iceland Airwaves-stjóra sitja beggja vegna borðs Kári Sturluson telur að Grímur Atlason sé beggja vegna borðs þegar kemur að störfum hans sem framkvæmdastjóri Iceland Airwaves og sjálfstæður tónleikahaldari. 3.2.2011 00:01
Byssur og risastórir vísundar „Þarna verður mikið af rifflum, skammbyssum og haglabyssum," segir veiðimaðurinn Páll Reynisson hjá Veiðisafninu á Stokkseyri. 3.2.2011 00:01
Hæstvirtur forseti! Dragðu frá gluggatjöldin! Hversvegna eru gluggatjöldin alltaf höfð dregin fyrir í þingsalnum? Þessi fyrirspurn var borin upp á Alþingi í dag og var henni fylgt eftir með kveðskap. 2.2.2011 18:49
Tíu sinnum fleiri í tónlistarskóla í Vesturbæ en í Breiðholti Næstum tíu sinnum fleiri börn Vesturbænum ganga í tónlistarskóla, saman borið við börn í Fellunum. Fjárráð foreldra kunna að skýra þetta. 2.2.2011 18:43
Seðlabankastjóri verði settur af Þingflokksformaður Framsóknarflokksins kallaði eftir því á Alþingi í dag að Már Guðmundsson seðlabankastjóri yrði settur af eftir að hann neitaði að veita þingnefnd upplýsingar um söluferlið á tryggingafélaginu Sjóvá. 2.2.2011 18:37
SUS gagnrýnir sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna gagnrýnir harðlega fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd Alþingis, þau Ásbjörn Óttarsson, Kristján Þór Júlíusson og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, fyrir stuðning sinn við nýtt Icesave frumvarp. Þetta kemur fram í ályktun sem SUS sendi frá sér síðdegis. 2.2.2011 17:07
Wikileaks tilnefnd til friðarverðlauna Nóbels Vefsíðan Wikileaks hefur verið tilnefnd til friðarverðlauna Nóbels. Norskur þingmaður sem stendur að baki tilnefningunni segir Wikileaks stóran þátt í baráttunni fyrir málfrelsi og gegnsæi á þessari öld. 2.2.2011 16:43
Gerður Kristný hlýtur íslensku bókmenntaverðlaunin Bókmenntaverðlaun Íslands voru afhent á Bessastöðum í dag. Gerður Kristný hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir ljóðabókina Blóðhófnir. Í flokki fræðirita og bóka almenns efnis hlaut Helgi Hallgrímsson verðlaunin fyrir Sveppabókin - íslenskir sveppir og sveppafræði. 2.2.2011 16:08
Segir sig úr Sjálfstæðisflokknum eftir 30 ára samfylgd Blaðamaðurinn Andrés Magnússon tilkynnti á Facebook fyrir stundu að hann væri búin að segja sig úr Sjálfstæðisflokknum eftir 30 ára samfylgd. Hann segir ástæðuna afstöðu Sjálfstæðismanna í fjárlaganefnd sem sendu frá sér tilkynningu í dag um að þeir myndu styðja nýtt Icesave-frumvarp. 2.2.2011 15:43
Sérsveitin aðstoðaði lögregluna við dópfund Fíkniefni fundust við húsleitir í Kópavogi um síðustu helgi. Um var að ræða talsvert magn af kókaíni, amfetamíni og marijúana en fíkniefnin fundust á tveimur stöðum í bænum. Á öðrum staðnum var jafnframt lagt hald á stera. Karl og kona, sem bæði eru á þrítugsaldri, voru handtekin í þágu rannsóknarinnar. Við aðgerðina, sem er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna, naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. 2.2.2011 15:41
Komið að þolmörkum leikskólakennara „Allir hafa sín þolmörk og nú er komið að þeim hjá leikskólakennurum," segir Marta Dögg Sigurðardóttir, formaður Félags leikskólakennara. Hún segir vinnu í starfshópum sáttasemjara ganga hægar en vonir stóðu til og forsendur kjarasamningagerðar því enn óljósar. Beðið er eftir því hvaða stefnu samningamálin á almennum vinnumarkaði taki en þar er allt í hnút, meðal annars vegna deilu Samtaka atvinnulífsins og ríkisstjórnarinnar um framtíð kvótakerfisins. 2.2.2011 15:25
Epli og appelsínur - bréf Jóhönnu birt í heild sinni Jóhanna Sigurðardóttir segir Ríkisendurskoðun vera að bera saman epli og appelsínur. Þetta kemur fram í bréfi hennar til ríkisendurskoðunar um rannsókn á svörum hennar við fyrirspurn um kostnað ráðuneyta við aðkeypta þjónustu frá félagsvísindasviði Háskóla Íslands. 2.2.2011 15:23
Með þungar áhyggjur af stöðu tónlistarnáms Stjórn Listaháskóla Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu tónlistarnáms í Reykjavík nái boðaður niðurskurður á framlögum borgarinnar til tónlistarskólanna fram að ganga. „Skólarnir hafa nú þegar þurft að draga saman í starfseminni vegna niðurskurðar á síðustu misserum, sem hefur leitt til þess að þeir geta ekki boðið upp á eins öflugt og kröfuhart tónlistarnám og fyrr,“ segir meðal annars. Stjórnin segir að sama eigi við um um niðurskurð á framlagi borgarinnar til Myndlistaskólans í Reykjavík. 2.2.2011 15:14
Opnunarhátíð Lífshlaupsins Lífslaupið hófst formlega í fjórða sinn í Víkurskóla í Grafarvogi í dag. Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að sinni hreyfingu í frítíma, heimilisstöfum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. 2.2.2011 15:05
Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd vilja samþykkja Icesave Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd Alþingis hafa lagt fram nefndarálit sitt vegna Icesave-frumvarpsins. Meginniðurstaða þeirra er að leggja til að frumvarpið verði samþykkt. Umræða um málið er að hefjast á Alþingi. 2.2.2011 14:41
Árni Johnsen styður málstað Priyönku „Ég myndi styðja það að veita henni íslenskan ríkisborgararétt," segir Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um mál Priyönku Thapa, nepalskrar stúlku sem berst fyrir íslenskum ríkisborgararétti. Árni lagði á dögunum fram frumvarp um að veita konu sem var ólöglegur innflytjandi í Noregi íslenskan ríkisborgararétt . 2.2.2011 14:12
Barnæska borgarstjóra ótengd niðurskurði í menntamálum „Hans þrár og langanir sem barn koma niðurskurði í menntakerfinu núna ekki neitt við. Allavega benti hann ekki á nein tengsl þar á milli," segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, um Jón Gnarr borgarstjóra og ræðu hans á fundi borgarstjórnar í gær þar sem niðurskurður í menntamálum var til umræðu. 2.2.2011 13:35
Stúlka með þyrnirósarheilkenni biður samfélagið um skilning Sandra Daðadóttir þjáist af sjaldgæfum taugasjúkdómi sem kallast Þyrnirósarheilkennið. Hún fellur í svefn og sefur í tvær vikur í senn og þegar hún vaknar borðar hún óhollan mat og blótar í sand og ösku. 2.2.2011 13:30
Skógfræðingar segja vistfræðinga á villigötum Stjórn Skógfræðingafélags Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðu um breytingar á náttúruverndarlögum. „Fylgismenn og höfundar frumvarps um breytingar á náttúruverndarlögum koma nú fram og saka „tiltekin félagasamtök" og „talsmenn skógræktar" um hörð og ofsafengin viðbrögð við áðurnefndu lagafrumvarpi,“ segir í yfirlýsingunni. 2.2.2011 13:24
Hvetja Árna Johnsen að styðja Priyönku Au Pair fjölskylda Priyönku Thapa, nepalskrar stúlku sem barist hefur fyrir því að verða ekki send úr landi, undrast það að útlendingum, sem engan áhuga hafa á Íslandi, sé boðinn ríkisborgararéttur en Priyönku ekki. 2.2.2011 13:10
Maðurinn fundinn - nánari upplýsingar ekki gefnar Lögregla og björgunarsveitarmenn hafa fundið Frank Dalgarno Mcgregor. Fjölmenn leit að manninum hófst á Suðurnesjum í nótt og lauk henni nú um kl. 11:30. 2.2.2011 12:58
Sigraðist á svínaflensu - dreymdi geimverur í dáinu „Ég ætlaði að hrista þetta úr mér yfir helgi,“ segir Sigurlína Rósa Kristmundsdóttir, sem lá á milli heims og helju á gjörgæsludeild Landspítalans í tvær vikur og barðist við svínaflensu. 2.2.2011 11:57
Þingmenn gagnrýna leynd - kolniðamyrkur í gagnsæja ferlinu Alþingismenn, jafnt í stjórn og stjórnarandstöðu, gagnrýna að Már Guðmundsson seðlabankastjóri skyldi neita að gefa þingnefnd upplýsingar um söluna á tryggingafélaginu Sjóvá. Þingmaður Hreyfingarinnar segir að hið svokallaða gegnsæja ferli líkist fremur dimmum göngum í kolniðamyrkri. 2.2.2011 11:52
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent