Fleiri fréttir

Sigríður Dúna hættir sem sendiherra

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir mun láta af störfum sendiherra í Osló um næstu mánaðarmót. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Sigríður Dúna láti af störfum að eigin ósk. Hún mun taka tímabundið launalaust leyfi og hverfa síðan til starfa sinna sem prófessor við Háskóla Íslands.

Jónína Ben aftur komin á topp 10

Almanak Háskóla Íslands 2011 er mest selda bókin í íslenskum bókaverslunum samkvæmt lista sem Rannsóknasetur verslunarinnar hefur tekið saman fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda. Listinn nær yfir fyrstu tvær vikur ársins og þarf því engan að undra að almanaksbók tróni þar á toppnum.

Vestfirðingar buðu lægst í Vestfjarðaveg

Verktakafyrirtækið KNH á Ísafirði átti lægsta boð í gerð nýs vegar um Skálanes á sunnanverðum Vestfjörðum, en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær. KNH býðst til að leggja veginn fyrir 116 milljónir króna, sem er 68 prósent af kostnaðaráætlun, en hún hljóðar upp á 170 milljónir króna.

FME hafði ekki heimild til að rannsaka brotin segir verjandi Sigurjóns

Verjandi Sigurjóns Þ. Árnasonar telur að rannsókn sérstaks saksóknara á meintum brotum Sigurjóns sé ekki lögleg því Fjármálaeftirlitinu hafi ekki verið heimilt að rannsaka málið og vísar hann meðal annars til laga um rannsóknarnefnd Alþingis til að rökstyðja það, en rannsóknin grundvallast á kæru frá Fjármálaeftirlitinu.

Staðgöngumóðir Jóels fékk 300 þúsund

Indverska konan sem gekk með barn fyrir íslenskt par nýlega, vill halda staðgöngumæðrun áfram. Hún fékk um þrjú hundruð þúsund krónur í sinn hlut. Staðgöngumæðrun fer mjög vaxandi á Indlandi og eru dæmi um að greiðsla fyrir meðgöngu nemir margföldum árslaunum indverskrar fjölskyldu.

Opinber tvíræðni í samningaferlinu að ESB

Engin áform eru uppi um stofnun greiðslustofnun í landbúnaði, segir sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytið, þrátt fyrir að sótt hafi verið um sérfræðistyrki til ESB með milligöngu utanríkisráðuneytisins til að undirbúa slíka stofnun hér á landi.

Níumenningar: Össur ber vitni fyrir dómi

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra segist hafa heyrt meiri læti í dómsal en þegar níumenningarnir, ásamt um 30 öðrum, þustu inn í Alþingi þann 8. desember 2008. Össur bar vitni í dag ásamt Einari K. Guðfinnssyni.

Ófært að sinna fíkniefnaeftirliti vegna niðurskurðar

Lögreglan á Akranesi hefur lítil tök á því að sinna markvissu eftirliti á borð við fíkniefnaeftirlit, þar sem ekki er hægt að tryggja öryggi lögreglumanna við slík störf, vegna niðurskurðar. Þetta kemur fram í ályktun sem Lögreglufélag Akraness sendi frá sér í gær. Í ályktuninni mótmælir

Kúabú sektað fyrir brot á dýraverndarlögum

Kúabú á Norðurlandi hefur verið sektað um 50 þúsund krónur að vanrækja að tryggja kúnum á búinu lögbundna átta vikna útiveru yfir árið. Matvælastofnun Íslands kærði níu kúabú til lögreglunnar fyrir brot á reglum um nautgripahald og lög um dýravernd. Kærurnar voru lagðar fram til lögregluembætta víðs vegar um landið í lok nóvember þar sem rökstuddur grunur var um að níu kúabú hefðu vanrækt að tryggja kúnum lögbundna útiveru. Rannsókn stendur enn yfir í sex málanna en rannsókn er ekki hafin í einu þeirra.

Ríkisstarfsmenn sjaldan áminntir í starfi

Það er afar fátítt að ríkisstarfsmenn séu áminntir í starfi, samkvæmt nýrri könnun Ríkisendurskoðunar. Slík áminning er þó forsenda þess að hægt sé að segja starfsmanni upp.

Níumenningarnir: Lögga kölluð fífl í réttarsal

Gert var hróp að lögreglumanni sem bar vitni fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í dag. "Þið munið aldrei neitt. Andskotans fífl," kallaði einn af áhorfendum í salnum en vitnisburður lögreglunnar hefur síst varpað skýrara ljósi á hvað átti sér stað þegar hin meinta árás á Alþingi var gerð.

Árangurslaus leit að Matthíasi

Eftirgrennslan eftir Matthíasi Þórarinssyni hefur enn engan árangur borið og fáar vísbendingar hafa borist um hvar hann gæti verið niðurkominn. „Við erum búnir að vera að púsla og fylla inn í púsluspilið, en raunverulega hefur það ekki borið neinn árangur. Við höfum fengið fáar vísbendingar um ferðir hans,“ segir Ágúst Svansson

Reykjanesbær vill undirbúa flutning Gæslunnar

Reykjanesbær er reiðubúinn til samstarfs við innanríkisráðuneytið um hagkvæmniathugun og undirbúning þess að flytja Landhelgisgæsluna til Suðurnesja í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands. Þetta kemur fram í bókun sem samþykkt var á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ í gær.

Áhugaverð umfjöllun um heilsu kvenna

Á næstunni stendur Líf, styrktarfélag kvennadeildar Landspítala háskólasjúkrahúss, fyrir röð hádegisfyrirlestra i Háskólanum í Reykjavík, um málefni tengd heilsu kvenna. Fyrsti fundurinn verður í hádeginu í dag

Aðalmeðferð í máli níumenningana hafin að nýju

Réttarhöldin yfir níumenningunum hófust aftur nú laust eftir klukkan níu. Í gær báru sakborningar og þingverðir vitni en í dag mun rétturinn hlýða á vitnisburð lögreglumanna og þingmanna. Dómsalur 101 í héraðsdómi er þéttskipaður.

Gæsluvarðhald yfir Sigurjóni - Jón Steinar á móti

Jón Steinar Gunnlaugsson Hæstaréttardómari skilaði séráliti og lagðist gegn gæsluvarðhaldi yfir Sigurjoni Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, þegar Hæstiréttur tók í gær fyrir kæru vegna gæsluvarðhaldsúrskurðar Héraðsdóms. Þetta kemur fram á heimasíðu Viðskiptablaðsins en úrskurðurinn hefur ekki verið birtur.

Rammi kærir rækjumálið til Hæstaréttar

Útgerðarfyrirtækið Rammi á Siglufirði hefur ákveðið að kæra niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í gær til Hæstaréttar, að því er fram kemur á heimasíðu Landssambands íslenskra útvegsmanna.

Vilja selja ríkinu land og auðlindir á Reykjanesi

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Reykjanesbæ vilja selja ríkinu land og jarðauðlindir, sem Reykjanesbær keypti af HS orku á sínum tíma, og yrði auðlindin þar með þjóðareign, segir í yfirlýsingu bæjarfulltrúanna um málið.

Tilkynnt um tvö innbrot

Brotist var inn í verslun við Laugaveg í Reykjavík eftir miðnætti. Ekki liggur fyrir hverju var stolið, en þjófurinn komst undan.

Toppar í jólaveislu en tölvuskeyti á óbreytta

Kostnaður vegna veislu sem bæjarstjórn Kópavogs hélt á Þorláksmessu fæst ekki uppgefinn á bæjarskrifstofnum. Að sögn Örnu Schram upplýsingafulltrúa liggja þessar upplýsingar enn ekki fyrir.

Staurabani á Selfossi

Óþekktur ökumaður ók niður ljósastaur í útjaðri Selfoss í gærkvöldi og var kona rétt búin að aka á staurinn, sem lá þvert yfir veginn. Ökumaðurinn óþekkti hafði þá stungið af, en grillið og fleira smálegt framan af bílnum, lá eftir á vettvangi þannig að vitað er hvernig bíll þetta er og bíður lögreglan nú þess að staurabaninn gefi sig fram.

Myndbútur að vali þingvarðar í dómi

Yfirþingvörður í Alþingis­húsinu ákvað upp á eigin spýtur að velja og geyma stuttan kafla úr öryggismyndavél, þar sem sjá mátti nímenningana hópast inn í Alþingishúsið 8. desember 2008. Aðrar upptökur, fyrir og eftir atburðinn, voru ekki varðveittar og eyddust sjálfkrafa á viku til tíu dögum.

Karlmenn skrifa um jafnrétti

Karlmenn fá tækifæri til að taka þátt í umræðunni um jafnréttismál bæði í Fréttablaðinu og á Vísi í árveknis­átakinu Öðlingnum 2011. Átakið stendur í einn mánuð, hefst á bóndadaginn, 21. janúar, og lýkur á konudaginn, 20. febrúar.

Lítið að hafa á gulldeplunni

Lítið er að hafa af gulldeplu á miðunum í Grinda­víkur­djúpi. Sex skip stunda veiðarnar um þessar mundir.

Kanna hvort lögregla vissi um flugumann

Innanríkisráðuneytið mun kanna hvort íslensk löggæsluyfirvöld hafi vitað að flugumaður breskra löggæsluyfirvalda hafi komið hingað til lands á fölskum forsendum árið 2005.

Hélt fólki nauðugu með hnífi á Hvanneyri

Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á þrítugsaldri fyrir að halda þremur einstaklingum nauðugum inni á herbergi á Hvanneyri í Borgarbyggð. Atvikið átti sér stað aðfaranótt föstudagsins 24. september 2010.

Bensín- og olíugjöld myndu lækka

Við upptöku veggjalda, til að standa straum af kostnaði af umfangsmiklum vegaframkvæmdum á suðvesturhluta landsins, var ætlunin að lækka olíu- og bensíngjöld.

REI-athugun tafin í tvö ár

Umboðsmaður Alþingis sendi borgarstjórn Reykja­víkur bréf um áramót þar sem hann krefst svara við því „hvort teknar hafi verið einhverjar ákvarðanir eða gripið til einhverra viðbragða sem eru til þess fallin að koma í veg fyrir að sú staða sem kom upp í [REI-málinu] endurtaki sig.“

26 milljarðar koma til greiðslu í ár

Áætlanir um greiðslur til Breta og Hollendinga vegna Icesave-samningsins miða við að 26 milljarðar króna komi til greiðslu úr ríkissjóði í ár.

Beðið viðbragða frá stjórnvöldum

Samtök atvinnulífsins (SA) og Alþýðusamband Íslands (ASÍ) undirrituðu á mánudag viðræðuáætlun um sameiginleg mál, en samkvæmt því skal ríkissáttasemjari taka að sér stjórn viðræðna vísi eitthvert aðildarsamtaka ASÍ kjaradeilu sinni til hans.

Ingó í Veðurguðunum: Einn af þeim sem allir kunnu vel við

„Hann var ótrúlega frábær náungi, rosalega glaðlegur og vinalegur og alltaf í góðu skapi,“ segir Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó í Veðurguðunum, vinur Sigurjóns Brink sem var bráðkvaddur á heimili sínu í gær.

Vilja að ríkið kaupi land HS orku

Reykjanesbær ætlar að bjóða ríkinu að kaupa land bæjarins sem HS orka nýtir fyrir virkjun sína á Reykjanesi. Með því komist landið og þær jarðauðlindir sem því fylgir í ríkiseigu. Tillaga þessa efnis var lögð fram í bæjarstjórn Reykjanesbæjar í dag.

Bráðsmitandi pest með svæsnum uppköstum og niðurgangi

Heilbrigðsstofnun Suðurnesja, tvö hjúkrunarheimili og Landakot taka ekki lengur á móti sjúklingum vegna bráðsmitandi niðurgangspestar, og nauðsynlegt gæti verið að endurskoða heimsóknartíma á Landspítalanum. Þar er álagið slíkt að gangar og setustofur eru nýttar undir sjúklinga.

Voru viðstödd fæðinguna - bíða viðbragðra indverskra stjórnvalda

Foreldrar Jóels Færseths Einarssonar, sem fæddist af indverskri staðgöngumóður fyrir skömmu, segjast lítil samskipti hafa haft við staðgöngumóðurina, en hafi þó verið viðstödd fæðinguna. Þau eru föst á Indlandi, en beðið er viðbragða indverskra stjórnvalda um forræði yfir drengnum og ríkisfang.

Biðlistar hjá BUGL

Bráðamálum hjá barna- og unglingageðdeild Landspítalans fjölgaði um hundrað milli síðasta árs og 2009. Það eru meðal annars börn sem þjökuð eru af alvarlegu þunglyndi og sjálfsvígshugleiðingum. Biðlistar lengjast og bíða nú 93 börn eftir þjónustu.

Frumvarp um ný kvótalög kemur fram í febrúar

Sjávarútvegsráðherra segir að frumvarp um stjórnun fiskveiða muni að öllum líkindum líta dagsins ljós í næsta mánuði. Máli gegn honum vegna ákvörðun um að gefa úthafsrækjuveiðar frjálsar var vísað frá Héraðsdómi í dag og verður því áfrýjað til Hæstaréttar.

Mistök að innleiða ESB-tilskipun um orkumál

Fjármálaráðherra segir að það hafi verið mistök að skipta upp orkuvinnslu og dreifingu á sínum tíma, sem varð til þess að HS-Orka komst í eigu einkaaðila. Hann segir stjórnvöld vilja ganga til samninga við Magma Energy um eignarhaldið á HS-Orku.

Neyðarkall til ríkisstjórnarinnar

Þriðjungur vinnufærra manna á Flateyri er nú án atvinnu. Fiskvinnslufyrirtækið Eyraroddi var lýst gjaldþrota í gær en þá töpuðust fjörtíu og tvör störf. Þá missa sjö til viðbótar atvinnu þegar öldrunarheimilinu Sólborg verður lokað í apríl.

Staðfesti gæsluvarðhald yfir meintum nauðgara

Hæstiréttur Íslands hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem er grunaður um að hafa nauðgað konu inn á salerni á skemmtistað í Reykjavík um síðustu helgi. Maðurinn sætir gæsluvarðhaldi til 11. febrúar samkvæmt úrskurði Hæstaréttar.

Þyrlan sækir slasaðan vélsleðamann

Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið í Glerárdal, við Kistu, til að sækja vélsleðamann sem ók fram af snjóhengju og slasaðist við fallið. Ekki er vitað hversu mikið maðurinn er slasaður en hann var á ferð með hópi vélsleðamanna.

Staðfesti gæsluvarðhald yfir Sigurjóni

Hæstiréttur Íslands hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans. Sigurjón var á föstudaginn úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. janúar. Sigurjón kærði úrskurðinn til Hæstaréttar sem eins og fyrr segir fellst á gælsuvarðhaldskröfu sérstaks saksóknara.

Úrsögnin ekki áfall

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna segir það ekki áfall fyrir flokkinn að formaður félags Vinstri grænna í Kópavogi hafi sagt sig úr flokknum. Nú sé unnið að sáttum innan þingflokksins og það gangi vel.

Hátt í 90% hlynnt staðgöngumæðrun

Um 87% eru fylgjandi því að staðgöngumæðrun verði gerð lögleg á Íslandi, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar MMR. Einungis 13% eru því andvíg. Könnunin var gerð dagana 11. - 14. janúar í gegnum síma og um 890 manns svöruðu.

Sjá næstu 50 fréttir