Mistök að innleiða ESB-tilskipun um orkumál Heimir Már Pétursson skrifar 18. janúar 2011 18:45
Fjármálaráðherra segir að það hafi verið mistök að skipta upp orkuvinnslu og dreifingu á sínum tíma, sem varð til þess að HS-Orka komst í eigu einkaaðila. Hann segir stjórnvöld vilja ganga til samninga við Magma Energy um eignarhaldið á HS-Orku. Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður og fleiri afhentu forystumönnum ríkisstjórnarinnar um 50 þúsund undirskriftir í gær, þar sem þess er krafist að HS-Orka verði færð í almannaeigu og að orkuauðlindir landsins verði almennt í eigu hins opinbera. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að verið sé að fara yfir allt lagaumhverfið í orku- og auðlindamálunum. En árið 2007 voru samþykkt lög sem gerðu orkufyrirtækjum skipta að skipta upp starfsemi sinni í framleiðslu og dreifingu. Stjórnvöld vilji endurheimta forræðið í HS Orku. „Og vinna það til baka. Það eru ýmsar leiðir færar í þeim efnum. Samkomulag við fyrirtækið, að gera það að einhverju leyti í gegnum almenn lög sem menn verða síðan að aðlaga sig að, kaup á fyrirtækinu og eignarnám - það eru ýmsar leiðir sem koma til greina að sjálfsögðu," sagði fjármálaráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Ráðherrann segir að eðlilegt sé að ræða þessi mál við núverandi eigendur fyrirtækisins. Ríkið eigi nú meirihluta allra orkufyrirtækja í landinu og því verði ekki breytt. „Frekar hitt að við munum setja í lög enn sterkari varnir fyrir sameigninni á auðlindinni og við höfum horft dálítið til Noregs í þeim efnum og þeirra lagaákvæða sem þar gilda," sagði Steingrímur. Það hafi verið mistök að fara í uppskiptingu orkufyrirtækjanna árið 2007. Já ég tel það. Ég tel að við hefðum átt að sækja um undanþágu frá raforkutilskipun ESB og fá að hafa okkar orkumarkað sem er algerlega einangraður hér á eyju út í Atlantshafinu þannig uppbyggðan sem okkur hentaði best," sagði Steingrímur. Íslendingar hafi gengið lengra en þurfti við innleiðinguna sem leitt hafi til hækkun orkuverðs. Hann vildi hins vegar ekki fullyrða hvort mögulegt væri að láta málið ganga til baka. Ekki sé víst að það sé eins auðvelt og ef stjórnvöld hefðu strax í byrjun óskað eftir því að vera undanskildir ákvæðinu um uppskiptingu raforkufyrirtækjanna.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Sjá meira