Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Víða hálka Á Norður- og Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Þæfingsfærð er á Þverárfjalli en verið er að moka. Hálka og skafrenningur er við ströndina, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. 6.11.2010 09:36
Stútar stöðvaðir Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði fjóra ökumenn í nótt vegna gruns um að aka undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Ökumennirnir voru allt ungir karlmenn. 6.11.2010 09:23
Mikið tjón vegna vatnsleka á Akureyri Mikill vatnsleki varð í Slippnum á Akureyri í morgun þegar að heitavatnsrör fór í sundur. Þegar slökkviliðs- og lögreglumenn komu á staðinn á sjöunda tímanum var ökkladjúpt vatn yfir stóru rými á tveimur hæðum og töluverð gufa. Að sögn lögreglu er um mikið tjón að ræða en skemmdir urðu meðal annars á trésmíðaverkstæði, skrifstofu og kaffistofu. Samkvæmt upplýsingum lögreglu gekk hreinsunarstarf vel. 6.11.2010 09:13
Vænir geithafrar saman í sæðistöku Átta myndarlegir geithafrar eru nú á Hvanneyri, þar sem verið er að taka úr þeim sæði og frysta. 6.11.2010 06:00
Norðurlandaráð bað barþjón afsökunar Frétt af árás ungliðaforingja Svíþjóðardemókrata á barþjón í Reykjavík var meðal mest lesnu frétta sænskra vefmiðla í gær. Norðurlandaráð æskunnar bað barþjóninn afsökunar eftir fund forseta þess með forseta Norðurlandaráðs. 6.11.2010 06:00
Norska stjórnin vill öll spil upp á borðið Bandaríska sendiráðið í Osló hefur starfrækt leyniþjónustudeild, sem hefur safnað upplýsingum um hundruð norskra ríkisborgara. Meðal þeirra sem starfað hafa fyrir deildina eru fimmtán til tuttugu Norðmenn, þar á meðal fyrrverandi norskir lögreglumenn á eftirlaunum. 6.11.2010 05:00
Vilja tilraunaveiðar á gulldeplu HB Grandi hefur óskað eftir leyfi frá sjávarútvegsráðuneytinu til að hefja tilraunaveiðar á gulldeplu. Ef leyfið fæst gætu uppsjávarveiðiskip félagsins farið til veiða strax í næstu viku. 6.11.2010 04:30
Hnetulaga halastjarna skoðuð Deep Impact geimfarið flaug framhjá halastjörnunni Hartley 2 í aðeins 700 kílómetra fjarlægð í gær. Halastjarnan er ólík öllum halastjörnum sem skoðaðar hafa verið úr návígi til þessa. 6.11.2010 03:15
Skjálfti í Grímsey Jarðskjálfti upp á 3,0 á Richter mældist í Grímsey um hálfátta leytið í kvöld. Að minnsta kosti tveir aðrir skjálfta hafa mælsti í kvöld en þeir eru minni. 5.11.2010 20:52
Rafmagnslaust á Selfossi Rafmagnslaust hefur verið á Selfossi í kvöld. Lögreglumaður sem Vísir talaði við segir að rafmagni hafi slegið út öðru hvoru og telur hann að þetta sé bundið við hluta af Selfossi en ekki allt hverfið. 5.11.2010 20:02
Slökkti á Ísafirði í eina mínútu Það slokknaði á Ísafirði í eina mínútu á slaginu sjö í kvöld. Ástæðan var átak sem Guðjón Þorsteinsson stóð fyrir til að mótmæla ástandinu í þjóðfélaginu. 5.11.2010 20:30
Aukinn afli fyrir minni byggðir Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra undirritaði í dag tvær reglugerðir sem fela í sér aukningu aflamarks til stuðnings minni byggðarlögum á fiskveiðiárinu 2010/2011. Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu að aukningin sé innan heimildar 10. grein laga um stjórn fiskveiða en þar er tiltekið að ráðherra geti úthlutað allt að 12 þúsund tonnum af óslægðum botnfisk vegna stuðnings við byggðarlög. 5.11.2010 17:15
Nýr eigandi Já: Eitt sterkasta vörumerki á Íslandi „Allir Íslendingar þekkja Já og fyrirtækið nýtur mikils trausts og tryggðar viðskiptavina sinna. Já er jafnframt eitt sterkasta vörumerki á Íslandi. Þetta teljum við að geri fyrirtækið að góðum fjárfestingarkosti. Okkur finnst það spennandi verkefni að vinna með starfsmönnum að því á næstu árum að veita sífellt betri þjónustu og ná enn meiri árangri í að veita fólki og fyrirtækjum áreiðanlegar og aðgengilegar upplýsingar með fjölbreyttum leiðum," segir Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Auðar 1 fjárfestingasjóðs. Vísir greindi frá því fyrr í dag að Auður 1 hefði keypt Já af Skiptum. 5.11.2010 16:15
Lögreglan varar við netfangaþjófum Ríkislögreglustjóri vill aðvara almenning en vart hefur orðið við það að netföngum fólks hjá þjónustuaðilum á borð við Hotmail, G-mail o.fl. er stolið og síðan er sendur út fjöldapóstur á öll netföng í netfangaskrá viðkomandi. 5.11.2010 15:53
Tíkin Flækja hitti fálka í Laugardalnum Tíkin Flækja er aðeins sex mánaða gömul og fer daglega í göngutúr um Laugardalinn með eiganda sínum, Ásrúnu E. Magnúsdóttur. Þar hitta þær gjarnan hrafna og jafnvel gæsir en í gærmorgun blasti við þeim ný sjón þegar þær rákust á tignarlegan fálka með blóðuga bráð í klónum. 5.11.2010 15:23
Meintir fjársvikarar látnir lausir í dag Mennirnir tveir sem setið hafa í gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að umfangsmiklu fjársvikamáli verða látnir lausir síðar í dag. Mennirnir voru þann 22. október úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald og rennur það út í dag. 5.11.2010 14:51
Vill vita hversu margir ráðherrar fengu meðmælabréf Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn til utanríkisráðherra um meðmælabréf vegna atvinnuumsókna. „Hvað hefur ráðherra og/eða ráðuneytið skrifað mörg meðmælabréf vegna atvinnuumsókna fyrrum ráðherra á árunum 2000-2010? Fyrir hvern voru bréfin skrifuð, hvert voru þau send og hvenær?“ segir í fyrirspurninni sem var lögð fram á Alþingi í dag. 5.11.2010 14:44
Jóhanna fundaði með yfirmanni herafla Nató Forsætisráðherra fundaði í dag með yfirmanni herafla Atlantshafsbandalagsins, NATO, í Evrópu, James G. Stavridis. Rætt var um leiðtogafund NATO sem forsætisráðherra mun sækja og haldinn verður í Lissabon 19. til 20. nóvember næstkomandi. Á fundinum í Lissabon mun framkvæmdastjóri NATO meðal annars kynna tillögur að nýrri grundvallarstefnu bandalagsins. 5.11.2010 14:24
Innbrotaalda á Suðurnesjum Lögreglunni á Suðurnesjum hefur að undanförnu borist nokkur fjöldi tilkynninga um innbrot og tilraunir til innbrots. Að sögn lögreglu hafa innbrotin átt sér stað bæði að nóttu og degi og hafa heimili, bifreiðar og fyrirtæki orðið fyrir barðinu á innbrotsþjófum. 5.11.2010 14:14
Lög um landslén til að vernda ímynd Íslands Drög að frumvarpi til laga um landslénið .is og önnur höfuðlén sem sérstaka skírskotun hafa til Íslands er nú til umsagnar hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Meginmarkmiðið með frumvarpsdrögunum er að stuðla að gæðum, hagkvæmni og framþróun á sviði lénaumsýslu með því að setja lagaramma um lénaskráningar á Íslandi sem tryggir öryggi, skilvirkni og gagnsæi varðandi umsýslu með lén sem tilheyra landsléninu .is. Markmið þess eru aukinheldur að tryggja að um skráningu léna gildi skýrar reglur þar sem gætt er að hagsmunum almennings og að jafnræði aðila um aðgang sé tryggt. Auk þess má segja að tilgangur laga um landslénið .is sé að vernda ímynd Íslands, það er að tryggja að .is sé gæðamerki. Þetta kemur fram á vef samgönguráðuneytisins. 5.11.2010 14:09
Efast um sparnað vegna niðurskurðar í heilbrigðismálum Aðgerðahópar vegna niðurskurðar í heilbrigðismálum mótmæla harðlega þeirri skerðingu sem kynnt hefur verið í tillögum til fjárlaga næsta ársin. Aðgerðahópar frá flestum landshlutum héldu fjarfund á þriðjudag þar sem rætt var um alvarlega stöðu heilbrigðismála. Tillögur til fjárlaga ger ráð fyrir 4,7 milljarða króna niðurskurði og umtalsverðum skipulagsbreytingum með tilflutningi á þjónustu frá landsbyggðinni til Reykjavíkur og Akureyrar. Um 84% fyrirhugaðs niðurskurðar beinast að heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. 5.11.2010 13:52
Segist ekki vera rasisti - bara hrokafullur „Ég hef aldrei hent neinu í neinn,” segir upplýsingafulltrúi ungliðahreyfingar Svíþjóðardemókrata, William Hahne, en hann var sakaður um rasíska tilburði á Ölstofunni fyrr í vikunni sem endaði á því að hann hellti vatni á barþjón sem er af palenstínsku uppruna. 5.11.2010 13:41
Ljótupeysudagur hjá STALÍN Starfsfólk Lánasjóðs íslenskra námsmanna heldur í dag svokallaðan ljótupeysudag þar sem starfsfólk mætti til vinnu í ljótustu peysunni sem það fann. Starfsmannafélag LÍN skipulagði daginn en félagið ber nafnið STALÍN. 5.11.2010 13:33
Nýi vegurinn kostaði 2,7 milljarða króna Þjóðvegurinn milli Húsavíkur og Þórshafnar styttist um 53 kílómetra á morgun, með formlegri opnun Hófaskarðsleiðar þvert yfir Melrakkasléttu. Núverandi vegur milli byggðanna norður um Sléttu er 212 kílómetra langur en með nýja veginum styttist leiðin niður í 159 kílómetra. Þá leysir vegurinn af Öxarfjarðarheiði, sem hefur aðeins verið fær á sumrin. 5.11.2010 13:01
Íslenski fjárhundurinn á risasýningu í Bandaríkjunum „Þetta er mjög mikilvæg sýning fyrir framtíðarvinsældir íslenska fjárhundsins í Bandaríkjunum,“ segir Kristina Moore, fjölmiðlafulltrúi hundasýningar Kennel-klúbbsins. 5.11.2010 13:00
Sjálfstætt starfandi skólar eru ódýrari fyrir sveitarfélögin Sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólar eru ódýrari í rekstri fyrir sveitarfélögin en þeir opinberu. Að meðaltali fá sjálfstætt starfandi leikskólar aðeins 86% af þeim kostnaði sem sveitarfélögin leggja til eigin leikskóla. Í flestum tilvikum innheimta leikskólarnir ekki hærri skólagjöld en sveitarfélagaskólarnir og eru þannig reknir fyrir umtalsvert lægri fjárhæðir. 5.11.2010 12:45
Sigmundur Davíð: Sérkennilegt hjá Jóhönnu Formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks útiloka ekki að þeir taki forsætisráðherra á orðinu og leggi fram vantrauststilllögu á ríkisstjórnina á Alþingi. 5.11.2010 12:11
Guðbjartur situr enn á skipulagi Ölfuss Guðbjartur Hannesson, sem var settur umhverfisráðherra um skipulagsmál Ölfuss, eftir að Svandís Svavarsdóttir lýsti sig vanhæfa, hefur ekki enn staðfest aðalskipulag sveitarfélagsins. Ein vika er komin fram yfir þann tíma sem ráðamenn sveitarfélagsins telja stjórnsýslulög veita honum til að afgreiða málið. 5.11.2010 11:37
Lögreglan lærir um peningaþvætti Fjármunabrot og peningaþvætti tengt skipulagðri brotastarfsemi voru í brennidepli á tveggja daga námskeiði, sem haldið var í Lögregluskólanum nýverið. Rannsóknir slíkra mála eru oft mjög umfangsmiklar en á námskeiðinu var farið yfir fjölmörg atriði sem að þessu snúa. 5.11.2010 10:34
Kexinu lokað: Þetta er bara eins og golfklúbbur „Þetta er bara klúbbur, eins og golfklúbbur,“ sagði Arnar Már Þórisson, einn af eigendum klúbbsins Kex á Barónstíg en lögreglan lokaði staðnum á þriðjudagskvöldinu. 5.11.2010 10:32
Jenis og Jóhanna í kokteilboði - Ræddu ekkert saman Færeyski þingmaðurinn Jenis av Rana og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mættu bæði í kokteilboð sem íslenska ríkisstjórnin hélt fyrir þá þingmenn sem sóttu þing Norðurlandaráðs. Jenis er Íslendingum helst kunnur fyrir að hafa neitað að sitja til borðs með Jóhönnu og eiginkonu hennar, Jónínu Leósdóttur, þegar þær sóttu Færeyjar heim fyrir skömmu. 5.11.2010 09:18
Rasismi ungliða skók sendinefnd Svíþjóðar Ungliði úr röðum Svíþjóðardemókrata veittist að barþjóni af erlendum uppruna á Ölstofu Kormáks og Skjaldar í fyrrakvöld og kastaði í hann bjórglasi. Sendinefnd Svíþjóðar á Norðurlandaráðsþinginu hafði samband við barþjóninn í gær og óskaði eftir að fá að hitta hann svo ungliðinn gæti beðist afsökunar. 5.11.2010 08:00
Unglingar reyndu að kveikja í fjölbýlishúsi á Keflavíkurflugvelli Nokkrir unglingar gerðu tilraun til að kveikja í á þremur stöðum í fjölbýlishúsi á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli í nótt. 5.11.2010 07:51
Lögreglan í Keflavík aðstoðaði húsvilltan mann Lögreglan í Keflavík var kölluð að húsi í bænum í nótt þar sem talið var að maður væri að brjótast þar inn. 5.11.2010 07:45
Óvissuástand þegar vélarbilun varð í stórum frystitogara Óvissusástand skapaðist þegar skyndilega drapst á aðalvél í stórum frystitogara, með hátt í 30 manna áhöfn, þegar hann var staddur út af Gjögri, nyrst á Vestfjarðakjálkanum í gær. 5.11.2010 07:41
Þrír menn í haldi vegna líkamsárásar í Kópavogi Þrír menn gista nú fangageymslur lögreglunnar eftir að hafa ráðist á fjórða manninn fyrir utan veitingastað í Hamraborg í Kópavogi um miðnætti. Sá var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en er ekki mikið meiddur. 5.11.2010 07:17
Biður fólk að dæma ekki hana Birtu sína „Það er sérstakt að fylgjast með viðbrögðum fólks þegar það sér hana fyrst af því að hún er svona hárlaus,“ segir Belinda Theriault um Sphynx-læðuna sína Birtu. Belinda og tíkin Týra voru óaðskiljanlegar í fimmtán ár þar til Týra dó haustið 2006. 5.11.2010 07:00
Vildi ekki stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum Björgvin G. Sigurðsson vildi ekki að Samfylkingin gengi til stjórnarsamstarfs með Sjálfstæðisflokknum eftir kosningarnar 2007. Hún ætti fremur að vera áfram í stjórnarandstöðu en að mynda stjórn með höfuðandstæðingi sínum. 5.11.2010 06:45
Fréttaskýring: Tugir mála fyrnast vegna niðurskurðar Niðurskurður hjá lögregluembættum hefur hjá sumum embættum haft alvarleg áhrif á afköst að mati ríkissaksóknara. Dómum í sakamálum hefur fækkað verulega milli ára, og umtalsvert færri mál koma til ríkissaksóknara frá lögreglustjórum landsins. 5.11.2010 06:30
Mílu gert að veita Vodafone aðgang Upplýsingatækni Vodafone fær aðgang að ljósleiðara NATO sem er í umsjá og að hluta í eigu Mílu, samkvæmt nýrri ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunarinnar (PFS). Tengingu á helstu staði á að vera lokið fyrir 15. desember, að því er fram kemur í ákvörðuninni. Eftir 5.11.2010 06:00
Rannsókn á morðmálinu lokið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn á manndrápinu í Hafnarfirði í ágúst síðastliðnum. Málið verður sent til ákæruvaldsins í kringum helgina. 5.11.2010 05:00
Jón Atli í viðtali: Tilfinningaklámið er úti um allt Mojito, nýtt leikrit eftir Jón Atla Jónasson, verður frumsýnt í Tjarnarbíói 17. nóvember næstkomandi. Undirliggjandi stef verksins eru afleiðingar efnahagshrunsins. Leikritið fjallar um tvo starfsmenn úr skilanefnd banka sem hittast fyrir tilviljun. Annar þeirra fer að rifja upp heimsókn sína á indversk/pakistanskan veitingastað í Reykjavík, sem endaði með ósköpum. Glös, borð og stólar voru brotin og slagsmál brutust út. 5.11.2010 05:00
Vestfirðingar slökkva ljósin Hátt í sjö hundruð manns á Vestfjörðum hðfðu síðdegis í gær skráð sig í átak á Facebook gegn ríkisstjórninni. Upphafsmaður átaksins, Guðjón M. Þorsteinsson, vill að Vestfirðingar slökkvi ljós á heimilum sínum og fyrirtækjum í eina mínútu klukkan sjö í kvöld. 5.11.2010 04:00
Bónusar verða í boði hjá báðum Icelandair og norræna flugfélagið SAS hafa samið sín á milli um margháttað samstarf, svo sem um tengingar og þjónustu flugfélaganna á milli áfangastaða og gagnkvæm réttindi fyrir vildarklúbbsfélaga. 5.11.2010 03:15
Borgarstjóri bítur frá sér „Eini munurinn á mér og óhæfum borgarstjóra er að ég er ekki óhæfur," segir Jón Gnarr borgarstjóri í viðtali við Fréttatímann sem kemur út á morgun. 4.11.2010 21:44