Fleiri fréttir

Google hannar sjálfakandi bíl

Verkfræðingar Google fyrirtækisins hafa hannað sjálfkeyrandi bíl, og ekið honum þúsndir kílómetra án óhappa.

Einn handtekinn fyrir líkamsárás

Einn karlmaður var handtekinn á Akureyri í nótt fyrir líkamsárás. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni náðist árásarmaðurinn og er hann í haldi. Hann verður yfirheyrður þegar hann vaknar.

John Lennon hefði orðið framúrstefnurokkari og aðgerðarsinni

Yoko Ono segir tímann líða undarlega hratt og þykir ótrúlegt að John Lennon hefði orðið sjötugur í dag. Hefði hann lifað, væri hann aðgerðarsinni og framúrstefnurokkari, segir ekkjan. Ringo Starr, annar tveggja eftirlifandi Bítla, er á landinu og verður á tónleikum Plastic Ono Band í kvöld.

Segir sök klínt á Þorstein Kragh

Hollenskur maður, sem var dæmdur í fangelsi hér á landi fyrir fíkniefnainnflutning, fullyrðir í bréfi sem hann sendi nýverið frá sér að Þorsteinn Kragh sé fórnarlamb glæpagengis og sitji saklaus í fangelsi. ,,Ótrúverðugt", segir lögreglan.

Ringo Starr verður á tónleikunum í kvöld

Bítillinn Ringo Starr verður viðstaddur tónleikana til heiðurs John Lennon í kvöld. Að sögn Sif Gunnarsdóttur hjá Höfuðborgarstofu á bítillinn miða á tónleikana. Ekki er ljóst hvenær hann kemur til landsins en tónleikarnir hefjast um níu í kvöld.

Foreldrar uggandi yfir Bjarnarbolta - kennari segir gæsluna öfluga

„Þetta er nú búið að stórlagast. Einu sinni var það þannig að eina reglan væri sú að það mátti ekki koma við boltann með höndunum," segir Íþróttakennarinn Gunnar Magnús Jónsson um frekar umdeilt fótboltamót fjölbrautaskólans á Suðurnesjum. Mótið kallast Bjarnarbolti eða Bear Cup og hefur verið haldið árlega í um tíu ár.

Róttæk öfl sögð á bak við menningarsetur múslima

Einn þeirra sem fjármagnaði kaup á húsi undir menningarmiðstöð múslima hér á landi tengist róttækum öflum í Sádí Arabíu. Talsmaður menningarmiðstöðvarinnar, sem verður opnuð eftir áramót, segir manninn eingöngu leggja til fjármagn og muni ekki koma að starfseminni að öðru leyti.

Eldur í rútu

Eldur kviknaði í rútu fyrir stundu í Hafnarfirði. Eldurinn blossaði upp undir rútunni en enginn farþegi var í bifreiðinni þegar eldurinn kviknaði.

Viðbragðsáætlun sett fram vegna niðurskurðar

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sett fram viðbragðsáætlun vegna þess mikla niðurskurðar sem boðaður hefur verið á heilbrigðisstofnunum landsins og fjöldauppsagna sem reikna má með að gripið verði til, ef fjárlagafrumvarpið verður að lögum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Útflutningur á hrossum hafinn á nýjan leik

Útflutningur á hrossum er hafinn að nýju eftir langt hlé vegna hrossapestarinnar. Hrossaræktendur segjast bjartsýnir, en brýnt er að engin sýkt hross fari úr landi, það gæti haft alvarlegar afleiðingar.

Spáð bongóblíðu um helgina

Ekkert lát virðist vera á einhverju lengsta og hlýjasta sumri hérlendis í manna minnum og lofar veðurspá helgarinnar góðu. Þannig spáir Veðurstofan allt að 13-14 stiga hita í dag, bæði sunnan- og vestanlands, og einnig á Mið-Norðurlandi.

Yrsa og Nóbelskáld hjá sama risaforlaginu

Bandaríska risaforlagið Macmillan tryggði sér í gær á bókamessunni í Frankfurt útgáfuréttinn á Ösku eftir Yrsu Sigurðardóttur. Á sýningunni náðust einnig samningar við Quetzal Editores um útgáfu á bókinni í Portúgal.

John Lennon sjötugur í dag

Tónlistarmaðurinn John Winston Lennon, sem seinna kastaði millinafninu og tók upp nafnið John Ono Lennon, hefði orðið sjötugur í dag hefði hann lifað.

Gistu í fangageymslum - á sitthvorum forsendunum þó

Þrír ungir menn fengu að gista fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt. Mennirnir voru mjög ölvaðir og tóku ekki tiltali lögreglunnar að sögn varðstjóra lögreglunnar á Akureyri. Þar að auki höfðu þeir lent í stympingum fyrr um kvöldið.

Læknar sprengdu fjárlögin

Kostnaður Sjúkratrygginga Íslands vegna sérfræðilækna stefnir í að vera 37 prósentum hærri í ár en fjárlög gera ráð fyrir. Munurinn er 1.600 milljónir króna.

Segir Evu Joly hafa spillt Exeter-málinu

Lögmaður fyrrverandi forstjóra MP banka segir Evu Joly hafa mælt fyrir um óhefðbundnar rannsóknaraðgerðir í svokölluðu Exeter-máli og þær hafi í ýmsum tilvikum leitt til ólögmætra aðgerða við rannsóknina. Vísa beri málinu frá vegna þess að sérstakur saksóknari hafi ekki haft lögbundið sjálfstæði í störfum sínum. Hann hefur sent ráðherrum bréf vegna málsins.

Ómar gæti verið á leið í dýrlingatölu

Það að fæðingardagur Ómars Ragnarssonar hafi verið valinn sem Dagur íslenskrar náttúru er gott dæmi um að það er að mörgu leyti pólitískt fremur en náttúrulegt fyrirbrigði þegar einstaklingar eru gerðir að þjóðardýrlingum, segir Jón Karl Helgason, bókmenntafræðingur og dósent við Háskóla Íslands.

Innleiðingu þriðja dómstigsins flýtt

Eining var meðal dómara og lögmanna á málþingi í gær um að koma beri á þriðja dómstiginu hið fyrsta. Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra segir málið komið á ákvörðunarstig.

Óvissa ríkir um störf hjá E.C.A

Óvissa er um hversu mörg störf myndu skapast ef hollenska hernaðarfyrirtækið E.C.A fengi að flytja hingað óvopnaðar herþotur til útleigu. Þetta kemur fram í bréfi sem Flugmálastjórn hefur sent samgönguráðherra um málið.

Starfsfólk hannaði brospinna

Starfsfólk á geðsviði Landspítala hefur hannað brospinna sem seldir verða í þágu geðdeilda spítalans. Fyrstu pinnarnir voru afhentir Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur forseta Alþingis og Jóni Gnarr borgar­stjóra í gær.

Svínaflensan kemur þegar líður á vetur

„Það má heita nokkuð víst að svínaflensan sé að taka völdin og að það verði hún sem kemur í vetur.“ Þetta segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir. Senn verður boðið upp á hefðbundna flensusprautu fyrir veturinn.

Bréf til bænda frá gömlum Mýramanni

Gott og náið samstarf við bændur og forystu þeirra telur Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra forsendu þess að hagur þeirra verði sem tryggastur gegnum viðræðurnar um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB). „Staðreyndin er einfaldlega sú, að samningsstaða íslensks landbúnaðar er betri en þeir telja, sem ekki vilja láta á hana reyna,“ segir í bréfi Össurar í Bændablaðinu á fimmtudag, svari við bréfi Bændasamtakanna til hans.

17 ára á ofsahraða án réttinda og undir áhrifum fíkniefna

Sautján ára piltur var handtekinn um klukkan átta í kvöld fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna á ofsahraða á Reykjanesbraut við Molduhraun. Pilturinn sinnti í fyrstu ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og ók yfir á rauðu ljósi, en eftir skamma eftirför nam hann staðar við Vífilsstaðaveg. Lögreglumenn á tveimur bifreiðum tóku þátt í eftirförinni.

Bubbi: Óli Björn var sauðdrukkinn á mótmælunum

Bubbi Morthens segir að varaþingmaðurinn Óli Björn Kárason hafi verið sauðdrukkinn á mótmælunum á Austurvelli í byrjun vikunnar. Hann segir að varaþingmaðurinn hafi átt erfitt með að tala sökum mikillar drykkju. Þetta er meðal þess sem kemur fram í pistli Bubba á Pressan.is

Ræddu um friðarverðlaunhafa Nóbels

Jón Gnarr, borgarstjóri, fundaði í dag með Sir. John Ralston Saul, forseta alþjóðlega rithöfundasambandsins PEN. Tilefni fundarins var áskorun Jón til kínverskra stjórnvalda vegna Liu Xiaobo sem hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár. Þetta var tilkynnt í Osló í morgun. Liu situr nú í fangelsi í heimalandi sínu fyrir að hvetja til pólitískra umbóta og aukins tjáningar- og trúfrelsis.

Sparnaði hugsanlega dreift á fleiri stofnanir

Heilbrigðisráðherra útilokar ekki að niðurskurðinum verði dreift á fleiri heilbrigðisstofnanir til að koma í veg fyrir að þjónusta skerðist of mikið í ákveðnum landshlutum.

Niðurfærslur bitna á lífeyrisþegum

Framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða segir útilokað að fara í almennar niðurfærslu lána án þess að skerða greiðslur til ellilífeyrisþega.

Fjörutíu fangar sviku út atvinnuleysisbætur

Fjörutíu fangar hafa þegið atvinnuleysisbætur á þessu ári. Dæmi eru um að einstaklingar hafi setið í fangelsi í nokkra mánuði og svikið út atvinnuleysisbætur um leið. Áætlaður sparnaður vegna eftirlitsstarfsemi Vinnumálastofnunar er um 700 milljónir króna á eins árs tímabili.

Fjárhagsvandanum ekki reddað með tattúi og bleikum jakkafötum

Reykjavíkurborg þarf að greiða tvö hundruð milljónum króna meira á ári í rafmagn og hita vegna gjaldskrárhækkana Orkuveitunnar. Þetta jafngildir rekstri tveggja meðalstórra leikskóla í Reykjavík. Borgarfulltrúi segir að vandi borgarsjóðs verði ekki leystur með bleikum jakkafötum og tattúum.

Tjarnarbíó opnað að nýju

Nærri hundrað ára gamalt hús í hjarta Reykjavíkur, sem til stóð að loka fyrir fimm árum, var í dag opnað með pompi og pragt eftir gagngerar endurbætur. Tjarnarbíó er húsið og það var borgarstjóri Reykjavíkur sem opnaði það formlega í viðeigandi skærbleikum jakkafötum á þessum baráttudegi gegn krabbameini kvenna. Sirkus Íslands og Margrét Eir skemmtu fólki við opnunina.

Söfnunin fyrir Ragnar Emil gengur afar vel

Fjölskylda Ragnars Emilssonar, sem er þriggja ára gamall og á við erfiðan hrörnurnarsjúkdóm að stríða, á ekki orð til að lýsa viðbrögðum við söfnun sem nú stendur yfir í Hafnarfirði. Meira en ein og hálf milljón hefur þegar safnast sem gerir það verkum að lífsgæði Ragnars aukast til muna.

Svæfingalæknir falsaði reikninga

Efnahagsbrotadeild hefur ákært svæfingalækni fyrir að blekkja Tryggingastofnun ríkisins til að ofgreiða sér tæpar fimm milljónir króna á tveggja ára tímabili. Læknirinn framvísaði 265 röngum reikningum til stofnunarinnar. Brotin varða allt að sex ára fangelsi.

Niðurskurði harðlega mótmælt

Mótmælaalda ríður nú yfir vegna boðaðs niðurskurðar í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Mikill uggur er meðal íbúa og óttast fólk um framtíð sveitarfélaganna. Mörg þúsund manns mótmæltu í gær og í dag og hafa fleiri mótmælafundir verið boðaðir á næstu dögum.

Mótmæltu í Eyjum

Fjölmargir Vestmannaeyingar komu saman á útifundi á Stakkagerðistúni seinnipartinn í dag. Þar var niðurskurður í heilbrigðiskerfinu ræddur. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár munu Vestmannaeyingar verða fyrir barðinu á niðurskurði, eins og svo mörg önnur sveitarfélög.

Svandís svarar Samtökum atvinnulífsins fullum hálsi

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, gefur lítið fyrir bréf Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins til forsætisráðherra. Hún segir að Vilmundur verði að sætta sig við að hér sitji lýðræðislega kjörinn þingmeirhluti. Svandís segir þörf á meira skapandi mönnum í forystu Samtaka atvinnulífsins.

Sjá næstu 50 fréttir