Fleiri fréttir

Fórnarlambið í mansalsmálinu með Stokkhólmsheilkenni

„Ég hefði persónulega viljað sjá þyngri dóma," segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, staðgengill lögreglustjórans á Suðurnesjum, um refsidóma í mansalsmálinu svokallaða þar sem fimm litháar voru dæmdir fyrir mansal. Einn mannanna fékk fimm ára fangelsisdóm en hinir fjórir fengu fjögurra ára dóm hver.

Mislingum og rauðum hundum verði útrýmt

Til stendur að útrýma mislingum og rauðum hundum í Evrópu í síðasta lagi árið 2015, samkvæmt áætlunum sem ræddar voru á svæðisfundi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Evrópu þessa dagana.

Stjórn BSRB vill rannsókn á einkavæðingunni

Stjórn BSRB kallar eftir því að einkavæðing bankanna verði rannsökuð. Í ályktun frá stjórninni segir að Rannsóknarnefnd Alþingis hafi komist að því í skýrslu sinni að víða hefði pottur verið brotinn hvað hana varðar og hinu sama má finna stað í skýrslu þingmannanefndar.

Ekið á 11 ára stúlku í Hvaleyrarholti

Ekið var á 11 ára stúlku á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði síðdegis í gær. Hún var flutt á slysadeild til skoðunar. Stúlkan reyndist óbrotin en mun hafa fengið heilahristing, samkvæmt upplýsingum á vef lögreglunnar.

Hlutfall frumkvöðla hæst á Íslandi

Um 11,4% Íslendinga á aldrinum 18-64 ára, eða um 22 þúsund manns, taka þátt í frumkvöðlastarfsemi. Þetta eru niðurstöður alþjóðlega rannsóknarsamstarfsins Global Entrepreneurship Monitor (GEM), sem er umfangsmesta samanburðarrannsókn í heimi á frumkvöðlastarfsemi. Þetta er hæsta hlutfall frumkvöðla í þeim hagkerfum sem Íslendingar bera sig saman við.

Lögmaður sagði mansalsbrandara: Þetta átti að stuða

Mikill kliður fór um fyrirlestrarsal í Lögbergi um hádegisbilið þegar lögmaðurinn Bragi Björnsson sagði brandara á málþingi um mansal. Málþingið var á vegum Orators, félags lögfræðinema við Háskóla Íslands, og var Bragi einn framsögumanna.

Samstarfssamningur í þágu barna með fötlun

Háskóli Íslands og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins hafa gert með sér samstarfssamning um kennslu og rannsóknir í þágu barna með fötlun. Samningurinn gildir um samskipti og samvinnu háskólans og

Þingmaður Samfylkingar: Brýtur Jón Bjarnason lög um ráðherraábyrgð?

Anna Margrét Guðjónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar varpaði þeirri spurningu fram í pontu Alþingis í dag hvort Jón Bjarnason landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra sé að brjóta lög um ráðherraábyrgð með því að neita að taka þátt í undirbúningi að mögulegri aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Líklegt að vistmenn í Reykjahlíð hafi sætt kynferðisofbeldi

Líklegt er að sumir vistmenn sem vistaðir voru á vistheimilinu Reykjahlíð á árunum 1961-1962 hafi sætt kynferðislegu ofbeldi af hálfu gestkomandi einstaklings. Þetta kemur fram í skýrslu Vistheimilanefndarinnar sem birt var almenningi í morgun.

DV sýknað af kröfu Viggós

Reynir Traustason, ritstjóri DV, Birtíngur útgáfufélag og Benedikt Bóas Hinriksson, fyrrverandi blaðamaður DV, voru sýknuð í meiðyrðamáli í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Viggó Valdemar Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari í handbolta, höfðaði málið gegn þeim og sömuleiðis hjónunum Unni Valdemarsdóttur og Ragnari Kristni Árnasyni sem í viðtali í DV lýstu viðskiptum sínum við Viggó.

Nær öll heimili landsins með nettengingu

Tölvur eru á 93 prósent íslenskra heimila og 92 prósent heimila eru með nettengingu. Þetta kemur fram í heftinu Upplýsingatækni sem Hagstofan gefur út. Nærri 60 prósent íslenskra heimila eru með tvær eða fleiri tölvur og 54% eru með flatskjá.

ECA svarar ekki spurningum fréttastofu

Forsvarsmenn ECA Program Limited svara því ekki hvort þeir séu þegar farnir að ráða inn fólk til að starfa á fyrirhugaðri starfsstöð hér á landi. Blaðamaður Vísis sendi fyrirspurn til ECA þann 3. september, fyrir tíu dögum síðan, þar sem meðal annars var spurst fyrir um mannaráðningar fyrirtækisins.

Lára hæf sem settur saksóknari

Lára V. Júlíusdóttir settur saksóknari í máli níumenninganna sem réðust á Alþingi er hæf til þess að sækja málið að hálfu ákæruvaldsins. Dómari úrskurðaði þetta í morgun.

Perlan byrjuð að dæla í Landeyjahöfn

Sanddæluskipið Perlan, sem legið hefur í Vestmannaeyjahöfn undanfarna daga, hóf í morgun dælingu úr Landeyjahöfn og er útlit fyrir að verkið geti gengið vel, þar sem spáð er norðlægum áttum næstu daga.

Bálhvasst en lítið tjón

Bálhvasst var víða um land í gærkvöldi og fram á nótt, en fréttastofunni er ekki kunnugt um óhöpp eða teljandi tjón af völdum óveðursins.

Óhappabeygjan enn til vandræða á Miklubraut

Ung kona slapp ómeidd þegar hún missti stjórn á bíl sínum á Miklubraut á móts við Rauðarárstíg í Reykjavík í nótt, ók í gegnum girðingu á milli akbrautanna og nam loks staðar á öfugri akbraut, á móti umferð þaðan.

Líkamsárás í Vestmannaeyjum

Ráðist var á karlmann á veitingahúsi í Vestmannaeyjabæ í nótt, sem lyktaði með því að hann hlaut áverka í andliti og jafnvel skaða á auga. Lögregla var kvödd til og handtók hún árásarmanninn, sem gistir fangageymslur. Gert var að sárum þolandans á sjúrkahúsinu í Eyjum, en i dag verður kannað nánar hvort hann hefur hlotið augnskaða.

Arkitektar móðgast á fundi þingnefndar

„Þetta var argasti dónaskapur,“ segir Sigríður Magnúsdóttir, formaður Arkitektafélags Íslands, um framkomu Marðar Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar, á fundi umhverfisnefndar Alþingis fyrir hálfum mánuði.

Aðeins fyrir boðsgesti á þjóðardaginn

Íslenski skálinn á World Expo sýningunni í Sjanghæ var lokaður öðrum en boðsgestum á þjóðardegi Íslands vegna móttöku með forseta Íslands og viðskiptakynningar. Íslendingur sem býr í borginni sótti sýninguna heim ásamt fjölskyldu sinni en kom að skálanum lokuðum.

Sver af sér kynferðislega áreitni

Karlmaður hefur gefið sig fram við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu eftir að fjölmiðlar fjölluðu um mann sem átti að hafa sýnt börnum ósæmilega kynferðislega hegðun í Laugarneshverfi í Reykjavík síðastliðinn föstudag.

Áætla 768 milljónir í snjóframleiðslutæki

„Skíðaíþróttin er ein besta fjölskylduíþrótt sem völ er á,“ segir stjórn Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins sem vill að aðildarsveitarfélögin verji samtals 768 milljónum í snjóframleiðslutæki í Bláfjöll og Skálafelli.

Alexander og Anna vinsæl

Nafnið Alexander var vinsælasta nafngift íslenskra sveinbarna á síðasta ári en Anna var vinsælasta nafnið sem foreldrar völdu nýfæddum stúlkubörnum. Anna var einnig algengasta nafnið árið áður, en Alexander tók við af Viktori sem algengasta drengjanafnið.

Trúði dagbókinni fyrir brestum sínum

Gunnar Thoroddsen, fyrrverandi forsætisráðherra, skildi eftir sig viðamikil gögn þegar hann féll frá 1983, þar á meðal ítarlegar og persónulegar dagbækur, sem hann byrjaði að skrifa á barnsaldri og hélt áfram fram undir andlátið. Þessar dagbækur eru þungamiðjan í væntanlegri ævisögu Gunnars, sem Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur hefur skráð.

Niðurstaða um Silungapoll

Vistheimilanefnd hefur skilað Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra skýrslu um starfsemi vistheimilisins Silungapolls, vistheimilisins Reykjahlíðar og heimavistarskólans á Jaðri. Niðurstöður skýrslunnar verða kynntar í dag.

Fljótari að taka ákvarðanir

Þeir sem spila tölvuleiki sem reyna á hröð viðbrögð eru fljótari að taka réttar ákvarðanir, en þeir sem ekki spila slíka leiki, samkvæmt niðurstöðum vísindamanna við Rochester-háskóla í Bandaríkjunum.

Hófst með hótunum í síma

Þeir sem stóðu að húsbrotinu í Vesturbænum um síðustu helgi, hjá kúbverskum feðgum og sambýliskonu föðurins, höfðu hótað fólkinu með smáskilaboðum og símtölum áður en þeir létu til skarar skríða.

Ónógt aðhald í ríkisfjármálum

„Það er auðvitað ljóst, þegar við lítum til baka, að aðhald í ríkisfjármálum var langt frá því að vera nægjanlegt,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í þingumræðum í gær. Í því ljósi verði að samþætta aðgerðir hins opinbera og Seðlabankans við að viðhalda efnahagslegum stöðugleika.

Spuni er vandi

Spuni stjórnmálanna er hinn eiginlegi vandi, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á þingi í gær. Var hann að ræða um það sem hann kallaði endalausa umræðu um einkavæðingu bankanna og þá tilhneigingu að kenna henni um hrunið.

Rót hrunsins var sala bankanna og óheftur vöxtur

Meginástæða hrunsins verður fyrst og fremst rakin til framferðis og stjórnarhátta stjórnenda og aðaleigenda bankanna. En rótina að þessum óförum má hins vegar rekja til einkavæðingar bankanna fram til ársins 2003 og þess óhefta vaxtar sem stjórnvöld og eftirlitsstofnanir létu viðgangast og hvöttu í raun til fram undir það síðasta.

Akeem vill kúbversku feðgana aftur heim

„Að flýja land er rosalega mikið,“ segir Akeem Cujo-Oppong, formaður íslensku Panorama Samtakanna, um ofsóknirrnar gagnvart kúbversku feðgunum sem hafa flúið land.

Breski gosflugstjórinn yfir Eyjafjallajökli

Breski flugstjórinn, sem frægastur er fyrir að bjarga risaþotu úr eldfjallaösku, flaug yfir Eyjafjallajökul í dag. Hann telur flugmálayfirvöld hafa gengið allt of langt í vor í að stöðva flug en líst ekki á blikuna ef Katla bærir á sér.

Vill að kjarabætur skili sér til allra

Eiríkur Jónsson, formaður kennarasambandsins, segir einhug ríkja í Kennarasambandinu um áherslur í komandi kjarasamningum: Að verja réttindi félagsmanna, sækja kjarabætur sem skila sér til allra og krefjast þess að sjálfstæður samningsréttur stéttarfélaga verði virtur.

Fjöldi forstöðumanna segist ekki geta skorið niður

Um 44% forstöðumanna hjá stofnunum sem reknar eru af íslenska ríkinu telja ólíklegt að frekari hagræðing náist í rekstri stofnunar. Hins vegar telja 36,1% það vera líklegt, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar sem Capacent Gallup hefur látið gera. Vinna við fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár stendur yfir núna.

Ófagleg ráðgjöf við einkavæðinguna vonbrigði

„Það fyrirkomulag sem haft var við sölu þessara tveggja banka hefði getað verið betra, opnara og gegnsærra en raunin varð á. Ég geri mér betur grein fyrir því nú en á meðan sölunni stóð," segir Valgerður Sverrisdóttir í svari sínu til þingmannanefndar Atla Gíslasonar. Valgerður sat í ríkisstjórn fyrir hönd Framsóknarflokks sem ráðherra bankamála þegar Búnaðarbankinn og Landsbankinn voru einkavæddir.

Íbúar á Grund sakna Leiðarljóss

Aðdáendur sápuóperunnar Leiðarljóss, eða Guiding light, eru ófáir hér á landi. Þættirnir hafa lengi verið í sýningu hjá Ríkissjónvarpinu en þeir voru teknir tímabundið af dagskrá þegar Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu fór fram í sumar.

Varað við stormi

Spáð er stormi á landinu og segir Vegagerðin að víða sé þegar orðið mjög hvasst í vindstrengjum. Það séu því alls ekki aðstæður til að ferðast með hjólhýsi, kerrur eða önnur tæki sem þola lítinn vind.

Þrír ráðherrar svöruðu ekki

Þrír ráðherrar sem sátu í ríkisstjórn í aðdraganda bankahrunsins ákváðu að svara ekki þingmannanefnd sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Níu karlar teknir fyrir ölvunarakstur

Níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fjórir voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði og einn í Kópavogi og Kjósarhreppi. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag, fjórir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir á aldrinum 19-59 ára. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.

Sjá næstu 50 fréttir