Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Steingrímur: Nefndin vann mikið og vandað starf Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, segir að það hafi hafi verið óskandi að þingmannanefndin hefði komist að sameiginlegri niðurstöðu. Meirihluti nefndarinnar vill að fjórir fyrrverandi ráðherrar verði dregnir fyrir landsdóm vegna refsiverðrar háttsemi. 11.9.2010 18:53
Líðan eftir atvikum góð Líðan mannsins sem brenndist eftir að vatn úr djúpsteikingarpotti skvettist á hann á skyndibitastaðnum KFC er eftir atvikum góð, að sögn vakthafandi læknis á Lýtalækningadeild Landspítalans. Ekki liggur fyrir hvort maðurinn, sem er rúmlega tvítugur Ungverji og starfaði á KFC, þarf lýtaaðgerð. Líklegt er að hann dvelji á spítala í að minnsta kosti tvær vikur til viðbótar, en hann brenndist illa á höndum og brjósti. 11.9.2010 18:40
Merkilegar tillögur Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að skýrsla þingmannanefndarinnar sem birt var í dag afar merkileg. Að hans mati er um umbótatillögur að ræða. 11.9.2010 18:30
Bilun í háspennubúnaði olli skammhlaupi „Varnarbúnaðuar brást við með eðlilegum hætti og aftengdi álver Norðuráls frá raforkukerfinu þegar bilun varð í háspennubúnaði álverssins fimmtudaginn 9. september,“ segir í tilkynningu frá Landsneti vegna bilunar sem olli skammhlaupi um mest allt land. Landsnet hefur að því er fram kemur í tilkynningunni þegar gert ráðstafanir til að reyna að koma í veg fyrir að slíkar truflanir valdi almennum notendum vandræðum í framtíðinni. 11.9.2010 18:05
Ferðamenn fari gætilega umhverfis Eyjafjallajökul Veðurstofa Íslands spáir mikilli rigningu á Eyjafjallajökli á morgun. Spáin hljóðar uppá að rigni frá klukkan 9 í fyrramálið og alveg fram til klukkan 17. Á tímabilinu milli klukkan 11 og 15 er spáð allt að 10 millimetra úrkomu á klukkustund. Reiknað er með að skilin fari yfir jökulinn á tímabilinu milli klukkan 10 og 12 en þá má reikna með að vindhraði verði allt að 20 metrar á sekúndu á fjallinu og að úrkoma verði áköfust þegar skilin fara yfir. 11.9.2010 18:00
Geir og Ingibjörg útilokuðu Björgvin Fulltrúar Samfylkingarinnar í þingmannanefndinni sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis fallast ekki á rökstuðning og niðurstöður meirihluta nefndarinnar sem vill að Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, verði dreginn fyrir landsdóm. Þeir segja að Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar hafi útilokað Björgvin frá ákvarðunum er vörðuðu ráðuneyti hans. 11.9.2010 17:48
Brutu af ásetningi eða sýndu stórkostlegt hirðuleysi Geir H. Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Árni Mathiesen og Björgvin G. Sigurðsson brutu á tímabilinu frá febrúar 2008 og fram í októberbyrjun sama ár af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi gegn lögum um ráðherraábyrgð. Þetta er mat fulltrúar Framsóknarflokks, VG og Hreyfingarinnar í þingmannanefnd sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Fulltrúar Samfylkingarinnar eru sammála meirihluta nefndarinnar nema þegar kemur að Björgvini. 11.9.2010 17:26
Skýrslunni útbýtt á Alþingi Skýrslu þingmannanefndar sem skipuð var til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar hefur verið útbýtt á Alþingi. Hún er aðgengileg á vef Alþingis. Þá hefur verið útbýtt niðurstöðum þingmannanefndar um ábyrgð ráðherra samkvæmt ráðherraábyrgðarlögum. Umræður um skýrslu þingmannanefndarinnar munu hefjast í þinginu næstkomandi mánudag klukkan 10:30. Ræðutími þingmanna verður rýmri en þingsköp ákveða. 11.9.2010 17:13
Fjórir ráðherrar verði dregnir fyrir landsdóm Þingmannanefnd undir forystu Atla Gíslasonar sem fór yfir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort og þá hvaða fyrrverandi ráðherra eigi að draga fyrir landsdóm. Fimm nefndarmenn af níu vilja að fjórir ráðherrar verði kærðir fyrir landsdóm. 11.9.2010 17:00
Hannes Hólmsteinn: Geir og Ingibjörg eru ekki glæpamenn "Þau Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, eru ekki glæpamenn, þótt oft hafi þeim eflaust verið mislagðar hendur í aðdraganda bankahrunsins,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði. Ákveði meirihluti þingmanna að ákæra Geir og Ingibjörg vill Hannes að sömu þingmenn verði gert að sæta ábyrgð fyrir misnotkun valds. 11.9.2010 15:31
Þingflokkar funda um skýrsluna Þingmenn allra flokka eru í þessum töluðu orðum að koma sér fyrir á þingflokksfundum niðrá Alþingi. Þar fá þeir munnlega skýrslu frá nefndarmönnum í þingmannanefnd sem ætlað var að móta viðbrögð Alþingis við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Skýrslan verður ekki gerð opinber fyrr en klukkan fimm. 11.9.2010 15:01
Geir tjáir sig ekki Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst ekki tjá sig í dag um skýrslu þingmannanefndar sem lögð verður fram seinnipartinn. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, ætlar ekki að tjá sig um skýrsluna fyrr en hún hefur séð hvað kemur fram í henni. 11.9.2010 13:33
Líkt og menn hafi borað niður á kókaínæð „Geðveikin er núna augljós í jarðvarmabransanum. Þar hafði þróunin verið jöfn og stöðug frá hitaveituvæðingunni á kreppuárunum. Nú er engu líkara en menn hafi borað niður á kókaínæð og fyllt rækilega á sér nasirnar,“ segir rithöfundurinn Andri Snær Magnason í grein í Fréttablaðinu í dag. 11.9.2010 13:10
Sigurður Líndal: Ég myndi sýkna ráðherrana Erfitt gæti orðið fyrir landsdóm að komast að annarri niðurstöðu en sýknu fari svo að fyrrverandi ráðherrar verði dregnir fyrir dóminn. Þetta er mat Sigurðar Líndal, lagaprófessors, en hann segir að refsiheimildir í lögum séu ekki nægilega skýrar. 11.9.2010 12:22
Telur óskynsamlegt að kaupa Hitaveitu Hveragerðis til baka Meirihluti Bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar hefur óskað eftir að hefja viðræður við Orkuveituna um að kaupa Hitaveitu Hveragerðis til baka á sanngjörnu verði. Minnihluti bæjarstjórnar telur óskynsamlegt að bæjarfélagið skuldsetji sig enn frekar. 11.9.2010 12:07
Samfylkingarfélag hafnar samningaleiðinni Aðalfundur Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ hafnar með öllu svokallaðri samningaleið sem starfshópur um endurskoðun fiskveiðistjórnarkerfisisns lagði nýverið fram. Samfylkingarmenn í Mosfellsbæ vilja að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. 11.9.2010 11:41
Mun leiða til átaka "Sama hvaða niðurstaða kemur út úr vinnu þessara nefndar og Alþingis í kjölfarið mun það leiða til átaka í samfélaginu," segir Baldur Þórhallsson, prófsessor í stjórnmálafræði og varaþingmaður Samfylkingarinnar, um þingmannanefnd sem hefur undanfarna mánuði fjallað um rannsóknarskýrslu Alþingis. Skýrsla nefndarinnar verður gerð opinber síðdegis í dag. 11.9.2010 11:27
Fleiri skurðaðgerðir án innlagna Komum á dagskurðdeildir á Landspítala hefur fjölgað um 170 prósent á fyrstu átta mánuðum ársins 2010 miðað við árið áður. Skurðaðgerðir eru nú í vaxandi mæli gerðar án innlagna. Þetta er með þess sem kemur fram í pistli Björns Zoëga, forstjóra Landspítalans, á heimasíðu spítlans. 11.9.2010 11:00
Niðurstöður kynntar þingflokkum klukkan þrjú Það skýrist í dag hvort einhverjir fyrrverandi ráðherrar verða kærðir til Landsdóms en þingmannanefnd sem fjallað hefur um rannsóknarskýrslu Alþingis lauk störfum í gær. Niðurstöður nefndarinnar verða kynntar þingflokkunum klukkan þrjú í dag og klukkan fimm verður skýrsla nefndarinnar gerð opinber. 11.9.2010 09:54
Á 166 kílómetra hraða við Selfoss Ungur ökumaður var stöðvaður á ofsahraða austan við Selfoss á fjórða tímanum í nótt. Ökumaðurinn, sem fékk bílpróf í vor, mældist á 166 kílómetra hraða.Hann var færður á lögreglustöðina á Selfossi þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Ökumaðurinn ungi á yfir höfði sér háa sekt. 11.9.2010 09:43
Betur fór en á horfðist þegar bíll valt Betur fór en á horfðist þegar tveir menn sluppu án meiðsla þegar bíl sem þeir voru í valt við gatnamót Hringbrautar og Bústaðavegar í nótt. Að sögn lögreglu var aðkoman afar slæm og þurfti að loka veginum um stund. Ökumaðurinn, karlmaður á miðjum aldri, er ekki grunaður um ölvun en talið er að hraðakstur sé orsök slyssins. Bíllinn er ónýtur. 11.9.2010 09:32
Hillir undir byltingu í endurgreiðslu lyfja Allt bendir til þess að nýtt endurgreiðslukerfi lyfja verði tekið upp um áramótin, að sögn Álfheiðar Ingadóttur, fráfarandi heilbrigðisráðherra, í ítarlegu helgarviðtali. Endurskipulagning, ekki flatur niðurskurður, verður höfð að leiðarljósi til að ná markmiðum fjárlaga innan heilbrigðiskerfisins á næsta ári. 11.9.2010 09:00
Niðurstöðu um ábyrgð ráðherranna vænst í dag Þingnefnd sem Alþingi skipaði til að fjalla um mögulega ábyrgð ráðherra vegna efnahagshrunsins árið 2008 mun skila Alþingi niðurstöðu sinni klukkan 17 í dag. Nefndin getur lagt það til við Alþingi að ákveðnir ráðherrar verði dregnir fyrir landsdóm. 11.9.2010 08:45
Vilja kaupa hitaveitu til baka Bæjarstjórn Hveragerðis vill kaupa til baka hitaveitu bæjarins sem seld var Orkuveitu Reykjavíkur árið 2004. 11.9.2010 08:00
Íslendingur vinnur náið með Angelinu Jón Björvinsson starfar sem kvikmyndatökumaður og ljósmyndari um allan heim meðal annars á vegum Flóttamannastofnunarinnar. Hann starfar náið með leikkonunni Angelinu Jolie eins og sjá má 11.9.2010 07:30
Stofninn minni en áætlað var Rjúpnaveiðimenn veiddu á síðasta ári 94.000 fugla, 23.000 fleiri en Náttúrufræðistofnun Íslands, NÍ, ráðlagði. Rjúpnaveiðimenn veiddu einnig meira en ráðlagt var árin 2005 og 2006. Þessi umframveiði og gallar í útreikningum á hversu mikið má veiða gera það að verkum að hætta er á ofveiði á rjúpum segir Ólafur K. Nielsen vistfræðingur hjá NÍ í tímaritinu Skotvís. 11.9.2010 07:00
Stefnir í að fæðingum fækki aftur í ár Aldrei hafa fæðst fleiri börn á einu ári hér á landi en á síðasta ári, þegar 5.027 börn komu í heiminn. Samkvæmt samantekt Hagstofunnar fæddust alls 2.466 stúlkur og 2.561 drengur árið 2009. Þetta er 111 börnum fleira en fyrra met frá árinu 1960, þegar 4.916 börn fæddust, og 192 fleiri en fæddust árið 2008. 11.9.2010 06:00
Reykvískir skólar endurvinna Leik- og grunnskólar borgarinnar hafa hafið átak til að draga úr magni sorps sem fellur til frá þeim. Þetta verður gert með því að flokka sorp og endurnýta í meiri mæli. 11.9.2010 05:00
Mikilvægt að bændur kynni sér ESB „Sænskir bændur voru mjög fylgjandi aðild Svíþjóðar að Evrópusambandinu. Þegar þeir rákust á vegg skrifræðisins, sem var mun þyngra í vöfum en þeir bjuggust við, urðu þeir neikvæðir í garð sambandsins. Bændurnir hafa jafnað sig síðan þá enda hafa þeir notið góðs af byggðastefnu ESB,“ segir Mats Persson, forstjóri Landbúnaðarstofnunar Svíþjóðar. 11.9.2010 04:00
Gleymdi að spyrja um áverka Mistök voru gerð hjá Neyðarlínunni á fimmtudagskvöld þegar starfskona á KFC í Kópavogi hringdi þangað vegna þriggja starfsbræðra sinna sem brenndust af gufu úr potti. Mennirnir þrír komu sér sjálfir á bráðamóttöku. 11.9.2010 04:00
Bara sumir eigenda fengu tjón sitt bætt Fjölmörg dæmi um meintan galla í spíssum Land Cruiser 120 bifreiða hafa komið inn á borð Fréttablaðsins í kjölfar umfjöllunar blaðsins síðustu tvo daga. 11.9.2010 03:15
Sér aukinn vilja til þess að samningaviðræður klárist Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segist finna aukinn stuðning fyrir því að Ísland ljúki samningarviðræðum við Evrópusambandið og að Íslendingar fái að greiða atkvæði um inngöngu í sambandið. 10.9.2010 22:23
Grafarþögn um niðurstöðuna Þingnefnd sem fjallar um rannsóknarskýrslu Alþingis lauk fundi um áttaleytið í kvöld og hafði þá verið að störfum mestan hluta dagsins. Nefndin hefur enn ekki lokið störfum og hefur verið boðað til fundar aftur á morgun. 10.9.2010 21:31
Leit lögreglu bar ekki árangur Leit að karlmanni sem grunaður er um að hafa sýnt barni ósæmilega kynferðislega hegðun í Laugardalshverfinu í Reykjavík var hætt þegar Vísir hafði samband við lögreglu laust eftir klukkan átta í kvöld. Hann hafði þá ekki fundist, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 10.9.2010 21:05
Tíu erlendir ferðamenn hætt komnir Tíu erlendir ferðamenn voru hætt komnir þegar að bíll þeirra festist í Hólmsá á leið þeirra að Axarfossi á Mýrdalssandi í dag. Björgunarsveitirnar Stjarnan úr Skaftártungu og Björgunarsveitin Lífgjöf úr Álftaveri voru kallaðar út til 10.9.2010 18:33
Meints barnaníðings leitað Karlmanns, sem grunaður er um að hafa sýnt barni ósæmilega kynferðislega hegðun, er leitað þessa stundina í Laugardalshverfinu í Reykjavik. 10.9.2010 19:41
Fyrsti réttardagur Sunnlendinga Fyrsti réttardagur Sunnlendinga er í dag, en réttað var í Hrunaréttum, Skaftholtsréttum í Gnúpverjahreppi og Fossrétt á Síðu. 10.9.2010 18:24
Hvatningarverðlaun ÍTR afhent Jón Gnarr borgarstjóri afhenti í dag Hvatningarverðlaun íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar. 10.9.2010 17:48
Norðlingaalda: 80% eru ógrónir melar Áttatíu prósent af því landi sem fer undir Norðlingalón eru ógrónir melar, að mati Landsvirkjunar. Andstæðingar Norðlingaölduveitu segja Landsvirkjun hins vegar þegar búna að taka nóg af vatni Þjórsárvera. 10.9.2010 17:00
Norðlingaalda: Arðbærasta virkjunarkostinum varpað fyrir róða Með stækkun friðlands Þjórsávera, eins og ríkisstjórnin áformar, yrði Landsvirkjun af einum arðbærasta virkjunarkosti sínum, sem gæti skilað á þriðja milljarð króna í árlegar tekjur. 10.9.2010 17:00
Norðlingaalda: Vatn tekið af magnaðri fossaröð Norðlingaölduveita skerðir vatn á einhverri mögnuðustu fossaröð landsins. Landsvirkjunarmenn segja að lítill munur verði á fossunum yfir hásumarið en friðunarsinnar segja þá breytast í vatnslitla klettaveggi. 10.9.2010 17:00
Gísli Tryggvason: Telur ríkið ekki verða skaðabótaskylt Aðspurður segist Gísli Tryggvason talsmaður neytenda ekki vera þeirrar skoðunar að ríkið verði skaðabótaskylt ákveði Landsdómur að sakfella fyrrverandi ráðherra fyrir vanrækslu. Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sagði í gær vandséð hvernig hægt væri að sakfella ráðherrana fyrir vanrækslu án þess að ríkið sjálft verði bótaskylt vegna afleiðinga meintra misgjörða þeirra. 10.9.2010 15:45
Færeysk hómófóbía varpaði ekki skugga á heimsókn Jóhönnu Ég varð vör við að margir Færeyingar sem ég hitti í þessari ferð voru miður sín vegna ummæla þessa manns,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á blaðamannafundi í Stjórnarráðshúsinu í morgun en þar var hún spurð út í opinbera heimsókn sína til Færeyja. 10.9.2010 15:44
Gaskútum stolið í Mosfellsbæ Tveimur gaskútum var stolið í Mosfellsbæ í gær. Að sögn lögreglu hafa allnokkur slík mál verið tilkynnt til lögreglunnar undanfarnar vikur en gaskútum hefur verið stolið á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Eigendur gaskúta ættu því að gera ráðstafanir ef þeir mögulega geta, ekki síst þeir sem eru með fellihýsi úti við og hafa ekki fjarlægt af þeim gaskútana. 10.9.2010 15:33
Ólafur Ragnar hitti Íþróttaálfinn í Kína Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti í gær setningarræðu á orkuráðstefnu sem haldin var í sýningarskála Íslands á heimssýningunni í Shanghai. Ráðstefnuna sóttu forystumenn orkumála víða að úr Kína ásamt stjórnendum orkustofnunar landsins sem og kínverskir sérfræðingar. 10.9.2010 15:27