Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ásta Björg ráðin sveitarstjóri Skagafjarðar Ákveðið hefur verið að ráða Ástu Björgu Pálmadóttur, núverandi útibússtjóra Landsbanka Íslands á Sauðárkróki, sem sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Miðað er við að hún hefji störf um miðjan september. 24.8.2010 11:06
Vann ekki á KFC Íslenski karlmaðurinn sem er í haldi lögreglunnar í Litháen eftir að hafa verið tekin með eitt kíló af fíkniefnum vann ekki á KFC-kjúklingastað í Vilníus eins og mishermt var í Fréttablaðinu í dag. 24.8.2010 11:00
Harðari viðurlög við brotum á banni við áfengisauglýsingum Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, segir að þar sem ekki hafi tekist að draga nægjanlega mikið úr áfengisneyslu landsmanna verði að grípa til árangsríkari aðgerða. Hún vill að harðar verði tekið á brotum gegn banni við áfengisauglýsingum. 24.8.2010 11:00
Vill 700 þúsund krónur vegna ólögmætrar handtöku Ungur karlmaður hefur stefnt íslenska ríkinu fyrir ólögmæta handtöku. Maðurinn var handtekinn í júní í hitteðfyrra vegna gruns um aðildar að líkamsárás. Manninum var haldið í tíu klukkustundir á lögreglustöð á meðan yfirheyrslur fóru fram. Honum var síðan sleppt. 24.8.2010 10:45
Viðgerð hafin á anddyri Íslandsbanka Viðgerð er hafin á anddyri Íslandsbanka við Kirkjusand. Um tvöleytið í nótt ók ölvaður maður inn í bygginguna í gegnum glerdyr. Hann sakaði ekki. Lögregla telur að um ásetning hafi verið að ræða þrátt fyrir ölvun mannsins. Ekki liggur fyrir hve mikið tjónið er. 24.8.2010 10:02
Skar á 62 heyrúllur Óprúttinn aðili tók sig til og skar á 62 heyrúllur við bæinn Vatnsleysu í Biskupstungum, annað hvort á síðasta fimmtudagskvöld eða aðfararnótt föstudagsins. Lögreglan á Selfossi segir það vera ljóst að þarna sé um að ræða tjón sem talið er í hundruðum þúsunda en umtalsverður kostnaður felst í því að pakka rúllunum upp og óvíst er hversu mikið tjón verður á heyinu við það að súrefni kemst að því. 24.8.2010 09:46
Þagnarskylda takmarkast við öryggi barna Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélagsins, segir prestum skylt að tilkynna um brot gegn börnum. Að hans mati lýkur þagnarskylda presta þegar kemur að barnaverndarlögum. Þagnarskylda víkur þannig fyrir tilkynningarskyldu. 24.8.2010 09:42
Ökumenn séu varir um sig Umferðarstofa minnir ökumenn á yngstu þátttakendurna í umferðinni, sem eru mörg hver á gangi til og frá skóla þessa dagana. Það er mikilvægt að ökumenn takmarki hraða í íbúðahverfum og við skóla en einnig þarf að taka tillit til þess að börn skynja umhverfi sitt á annan hátt en fullorðinn. 24.8.2010 09:11
Hannes jarðsunginn á fimmtudag Hannes Þór Helgason sem myrtur var á heimili sínu fyrir rúmri viku verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði á fimmtudaginn. 24.8.2010 08:47
Jóhanna meðal mestu kvenleiðtoga heims Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, er í öðru sæti á lista tímaritsins Time yfir tíu mestu kvenleiðtoga heims sem birtur var í gær. Að mati tímaritsins er Julia Gillard, forsætisráðherra Ástralíu, sú áhrifamesta en í þriðja sæti er Cristina Fernández de Kirchner, forseti Argentíu. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er í fimmta sæti og þá er Tarja Halonen, forseti Finnlands, í því áttunda. 24.8.2010 07:09
Ók inn í bankann Bifreið var ekið inn í Íslandsbanka á Kirkjusandi klukkan rúmlega tvö í nótt. Að sögn lögreglu var ökumaðurinn ölvaður og fór bíllinn í gegnum glerhurð í andyri og hálfur í gegnum vegg þar fyrir innan. Ökumanninn sakaði ekki en lögregla telur að um ásetning hafi verið að ræða þrátt fyrir ölvunina. Ekki mun þó hafa verið um ránstilraun að ræða heldur fremur að maðurinn hafi talið sig eiga óuppgerðar sakir við bankann. Hann gistir nú fangageymslur og bíður þess að komast í yfirheyrslu. 24.8.2010 06:58
Almenningur vill sjá vægari refsingar Almennir borgarar á Norðurlöndunum eru refsimildari en dómstólar þeirra. Þetta sýnir umfangsmikil norræn rannsókn á afstöðu almennra borgara til refsinga. Niðurstöðurnar voru kynntar á norrænu dómstólaþingi í Kaupmannahöfn síðastliðinn fimmtudag. 24.8.2010 06:15
Sá sem talar fyrir fólkið mun sigra Reynsla Norðmanna af tveimur atkvæðagreiðslum um aðild að því sem í dag heitir Evrópusambandið sýnir að það eru ekki endilega efnahagsleg rök eða varðstaða um auðlindir sem ráða mestu um útkomuna, heldur eðli þeirrar orðræðu sem andstæðar fylkingar hafa uppi. 24.8.2010 06:15
Þjóðkirkjan hrökk í vörn Karl Sigurbjörnsson biskup segir kirkjuna hafa brugðist í málefnum kvennanna þriggja sem leituðu hjálpar vegna kynferðislegrar áreitni af hendi Ólafs Skúlasonar biskups. Hann vísar því á bug að hafa reynt að þvinga konurnar til að falla frá ásökununum. Biskup segir málið snúið og auðvelt sé að vera vitur eftir á. Hann segir þjóðkirkjuna hafa brugðist og greinilegt sé að ekki hafi verið komið konunum til hjálpar. 24.8.2010 06:00
Kertum fleytt í minningu Hannesar Þórs Helgasonar Mörg hundruð manns söfnuðust saman við lækinn í Hafnarfirði í kvöld til að minnast Hannesar Þórs Helgasonar sem myrtur var á heimili sínu fyrir um viku. Andrúmsloftið var tilfinningaþrungið. Kertum var fleytt á lækinn og Flensborgarkórinn söng lög. Fjölskylda Hannesar var meðal viðstaddra og einkenndi mikill samhugur og samkennd þessa minningarstund. 23.8.2010 21:22
Biskupinn í Kastljósinu: Ætla ekki að segja af mér Karl Sigurbjörnsson neitar því að hafa hvatt konurnar, sem sökuðu Ólaf Skúlason fyrrverandi biskup um kynferðisofbeldi, að draga ásakanir sínar til baka. Hann segist ekki rengja sögu Guðrúnar Ebbu, dóttir Ólafs Skúlasonar, sem jafnframt sakaði biskupinn um kynferðisofbeldi. Karl sagði í Kastljósviðtalinu ekki telja ástæðu til að hann stigi til hilðar. 23.8.2010 19:52
Slitastjórn í mál við fyrrum bankastjóra Slitastjórn Landsbankans ætlar að krefjast fjögur hundruð milljóna króna af fyrrverandi bankastjórum bankans, Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri J. Kristjánssyni, og millistjórnanda í bankanum, fyrir að hafa innleyst kaupréttasamninga nokkrum dögum fyrir hrun þrátt fyrir að þeir væru ekki innleysanlegir fyrr en um tveimur mánuðum síðar. 23.8.2010 18:16
Vifta bilaði í járnblendiverksmiðjunni Ástæðan fyrir reyknum úr járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga var bilun í viftu í reykhreinsivirki verksmiðjunnar. Í tíufréttum Rúv var haft eftir Einari Þorsteinssyni, forstjóra Elkem, að enga hættu stafi af reyknum og búið sé að tilkynna atvikið til umhverfisstofnunar líkt og lög og reglur geri ráð fyrir. 23.8.2010 22:34
Tiger Woods skilinn Kylfingurinn Tiger Woods og Elin Nordegren eru skilin. Í yfirlýsingu frá hjónunum sem birt var í dag á heimasíðu Tiger Woods kemur fram að þau muni hafa sameiginlegt forræði yfir börnum sínum. 23.8.2010 20:56
Reykur upp úr járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga Sjónvarvottar segja mikinn reyk stíga upp úr járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga. Lögreglan á Borgarnesi segist ekki hafa fengið tilkynningu um eld í verksmiðjunni. Hins vegar geti hún staðfest að reykur berist frá verksmiðjunni en ekki hafi borist beiðni um hjálp. Starfsmaður járnblendiverksmiðjunnar sem Vísir ræddi við vildi ekki tjá sig um ástæður þess að reykur berst frá verksmiðjunni. 23.8.2010 20:30
Biskup rúinn trausti Staða Karls Sigurbjörnssonar biskups er mjög veik, segir Andrés Jónsson, formaður Almannatengslafélags Íslands. Karl hefur staðið í miklum ólgusjó undanfarna sólarhringa vegna umræðu um kynferðisbrot innan Þjóðkirkjunnar. 23.8.2010 19:45
Vill að leynd yfir skýrslu um útigangsmenn sé aflétt Fulltrúi Vinstri grænna í velferðarráði Reykjavíkur gagnrýnir leynd yfir skýrslu um málefni utangarðsfólks. Hann hefur farið fram á að trúnaði um skýrsluna verði aflétt. 23.8.2010 19:16
Skuldir Orkuveitunnar tífaldast á tíu árum Skuldir Orkuveitu Reykjavíkur hafa tífaldast á innan við áratug. Allir flokkar í borgarstjórn hafa átt fulltrúa í meirihluta stjórnar Orkuveitunnar á þessum tíma, en fimm af sex stjórnarformönnum eru úr sjálfstæðis- og framsóknarflokki. 23.8.2010 18:41
Lögreglan rannsakar saurmengun á Þingvöllum Lögreglurannsókn er hafin á seyrulosunarmálinu á Þingvöllum. Sýnataka úr neysluvatni síðan á miðvikudag bendir ekki til að vatn sé mengað, þó óyggjandi niðurstöður liggi enn ekki fyrir. 23.8.2010 18:30
Pakistanar á Íslandi kalla eftir aðstoð Pakistanar hér á landi kalla eftir aðstoð vegna flóðanna í landinu. Þau færi samfélagið áratugi aftur í tímann og mikið fé þurfi til endurbyggingar. Sameinuðu þjóðirnar ítreka ákall sitt til þjóða heims um aðstoð. 23.8.2010 18:29
Fórnarlamb Ólafs Skúlasonar vill sannleiksnefnd Sigrún Pálína Ingvarsdóttir skorar á þjóðkirkjuna að setja saman sannleiksnefnd til að komast til botns í máli Ólafs Skúlasonar en Sigrún segir Karl Sigurbjörnsson biskup og Hjálmar Jónsson sóknarprest hafa reynt að sannfæra hana um að láta af ásökunum sínum á hendur Ólafi árið 1996. 23.8.2010 18:22
Makrílstríð: Breskur þingmaður vill viðskiptabann á Íslendinga Fyrst hrundu bankarnir, svo gaus Eyjafjallajökull og nú ætla Íslendingar að svipta fiskveiðimenn okkar lífsviðurværinu. Svona hljómar fyrirsögnin á frétt Daily Mail um makrílveiðar Íslendinga. Í greininni rifjar Daily Mail upp þorskastríðið og segir Íslendinga haga sér eins og bandóðir víkingar. 23.8.2010 17:33
Ábyrgðin hjá biskupi Þjóðkirkjan verður sjálf að leysa úr þeim málum sem á borði hennar eru núna. Þetta er niðurstaða Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannréttindamálaráðherra. Hún fundaði með Karli Sigurbjörnssyni biskupi Íslands um málefni Þjóðkirkjunnar í dag. „Ég hef skoðað þessi mál því ég vildi fullvissa mig um það hverjar skyldur ráðuneytisins eru í þessu máli. Það er alveg ljóst að þau verða alfarið leyst innan Þjóðkirkjunnar,“ segir Ragna. 23.8.2010 16:30
Hlupu fyrir 30 milljónir króna Áheit sem safnað var í tengslum við Reykjavíkurmaraþonið sem fram fór um helgina nálgast samtals 30 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum sem fram koma á vef Reykjavíkurmaraþonsins. Það voru 98 góðgerðarfélög sem tóku þátt í áheitasöfnun. 23.8.2010 15:41
Geisladiskar lifa góðu lifi á Íslandi Geisladiskar með íslenskri tónlist lifa enn góðu lífi þó að sala á erlendri tónlist hafi dregist saman, segir Ásmundur Jónsson, framkvæmdastjóri Smekkleysu og formaður Félags hljómplötuframleiðenda. Eins og fram kom á Vísi um helgina benda tölur frá Billboard að sala á geisladiskum þar í landi hafi komist í sögulegt lágmark í sumar. 23.8.2010 15:16
Deila um Hof Stefna Kirkjumálasjóðs gegn íslenska ríkinu var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Um er að ræða endurflutning á máli sem höfðað var vegna ágreinings um það hvort jörðin Hof í Vopnafirði sé eign kirkjunnar eða í eigu íslenska ríkisins. Dómur mun verða kveðinn upp í málinu þann 20. september næstkomandi. 23.8.2010 14:22
Gjaldskrárhækkanir OR ná ekki til stóriðjunnar Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur sér fyrir sér verulegar gjaldskrárhækkanir til að mæta erfiðri rekstrarstöðu fyrirtækisins. Hækkunin á ekki að ná til stóriðju, þar sem orkuverð til hennar er bundið samningum 23.8.2010 13:05
Hvetja foreldra til að fylgja börnum sínum í skólann SAMFOK, samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, hvetur foreldra til að ganga með börnum sínum í skólann fyrstu skóladagana. 23.8.2010 12:57
Biskup harmar rangfærslur Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, harmar mistök sem hann gerði í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum í gær. Þar sagði Karl að hafa verði í huga að Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem sakaði Ólaf Skúlason fyrrverandi biskup um kynferðisbrot gegn sér fyrir fjórtán árum, hefði kært Ólaf til ríkissaksóknara sem hafi ekki talið efni til að birta ákæru í málinu. Hið rétta er að Ólafur krafðist að fram færi opinber rannsókn rangs sakburðar og ærumeiðandi aðdróttana Sigrúnar og annarra kvenna. 23.8.2010 12:41
Þúsundir gætu þurft að leita á náðir sveitarfélaganna Þúsundir manna gætu þurft að leita á náðir félagsþjónustu sveitarfélaganna, verði réttur til atvinnuleysisbóta ekki lengdur í fimm ár, segir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Félagsmálaráðherra hefur ekki svarað því af eða á, hvort bótaréttur verði lengdur. 23.8.2010 12:24
Prestur krefst rannsóknar á þöggun kirkjunnar Sigríður Guðmarsdóttir sóknarprestur vill að kirkjan viðurkenni vanmátt sinn í máli Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttir og að óháð sannleiksnefnd verði skipuð til að fara yfir málið í heild sinni. 23.8.2010 12:09
Aukinn áhugi á úrsögnum úr kirkjunni Starfsfólk Þjóðskrár Íslands verður vart við stíganda í fyrirspurnum frá fólki um það hvernig eigi að bera sig að við úrsagnir úr Þjóðkirkjunni. Þetta segir Haukur Ingibergsson, forstjóri stofnunarinnar, í samtali við Vísi. 23.8.2010 12:00
Sakar biskup um rangfærslur Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem sakaði Ólaf Skúlason fyrrverandi biskup um kynferðisbrot gegn sér fyrir fjórtán árum, sakar Karl Sigurbjörnsson núverandi biskup um rangfærslur í orðsendingu til fjölmiðla í gær. Þar sagði Karl að hann hefði ekki tekið þátt í því að þagga mál Sigrúnar Pálínu niður. 23.8.2010 11:40
Strætó kominn á vetraráætlun Vetraráætlun Strætó hefur tekið gildi sem þýðir að tíðni ferða eykst á ný og verður svipuð og síðastliðinn vetur. Jafnframt breytist akstur um Grafarvog og Grafarholt nokkuð með nýrri vetraráætlun. 23.8.2010 11:22
Dagsektum beitt vegna slysagildra á Klukkuvöllum Hafnarfjarðarbær hyggst beita verktaka dagsettum vegna slæms frágangs á byggingarlóðum í Vallahverfi í bæjarfélaginu. Íbúar á Klukkuvöllum í Hafnarfirði hafa ítrekað kvartað undan slæmum frágangi á lóðum í götunni. 23.8.2010 10:58
Miðborgin hrein að nýju Miðborgin er orðin hrein og fín að nýju eftir að um 100 þúsund manns komu saman þar þegar að menningarnótt náði hámarki. 23.8.2010 10:42
Vilja eigendafund vegna stöðu Orkuveitunnar Bæjarráð Akraness og byggðarráð Borgarbyggðar samþykktu á fundum sínum síðastliðinn fimmtudag að óska eftir eigendafundi í Orkuveitu Reykjavíkur. Fundurinn yrði haldinn í kjölfar yfirlýsinga stjórnarformanns Orkuveitu Reykjuvíkur um breytta stefnu í rekstri fyrirtækisins vegna atbeina borgarstjóra, brottvikningu forstjóra og ýmissa annarra stjórnarhátta án samráðs við eigendur Orkuveitunnar. 23.8.2010 10:04
Sigrún Pálína: Karl og Hjálmar reyndu að þagga niður í mér Sigrún Pálína Ingvarsdóttir segir að eftir misheppnaðar sáttatilraunir við Ólaf Skúlason, þáverandi biskup, hafi Karl Sigurbjörnsson, núverandi biskup, og Hjálmar Jónsson, núverandi Dómkirkjuprestur, reynt að þagga niður í henni. Karl hafi meðal annars vísað til þess að hún ekki gert sjúkri móður sinni það að halda málinu til streitu. Sjálfur segist Karl ekki hafa tekið þátt í að beita Sigrúnu óeðlilegum þrýstingi til að fá hana til að falla frá ásökunum sínum. 23.8.2010 09:57
Geir Waage: Ríkari trúnaðarskylda gildir um presta Geir Waage, prestur í Reykholti segir að tilkynningaskylda presta hafi litla raunhæfa þýðingu því án trúnaðar verði prestum aldrei trúað fyrir nokkru. Hann segir ríkari trúnaðarskyldu lagða á presta. Þetta kemur fram í grein sem Geir ritar í Morgunblaðið í dag. 23.8.2010 08:37
HS Orka vill hærra verð Bæjaryfirvöld í Grindavík og Hafnarfirði hafa ekki lokið breytingum á aðal- og deiliskipulagi á Reykjanesi og í Krýsuvík. Það tefur fyrir fyrirhuguðum tilraunaborunum og raforkuframleiðslu HS Orku. Hægst hefur á framkvæmdum við byggingu álversins í Helguvík af þessum sökum. 23.8.2010 06:45