Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýjar skólabyggingar teknir í notkun í Reykjavík Í haust hefst skólastarf í þremur nýjum skólabyggingum í Reykjavík; Dalskóla, Sæmundarskóla og Norðlingaskóla. Undirbúningsstarf fyrir skólabyrjun er í fullum gangi og verða á fjórða tug skóla settir mánudaginn 23. ágúst. 9.8.2010 10:44
Ásta Sigrún hefur störf sem umboðsmaður skuldara Ásta Sigrún Helgadóttir tekur við starfi umboðsmanns skuldara í dag. Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu, hefur sinnt starfi undanfarna daga eða frá því að Runólfur Ágústsson lét af embætti í síðustu viku eftir að fjölmiðlar fjölluðu fjármál hans og skuldugt einkahlutafélag sem áður var í eigu Runólfs. 9.8.2010 10:07
Hjólar í kringum landið á tíu dögum Læknaneminn Alissa Rannveig Vilmundardóttir lagði í morgun af stað í tíu daga hjólaferð kringum landið þar sem hún hyggst hjóla til styrktar Rannsóknastofu í krabbameinsfræðum. 9.8.2010 09:41
Hvalveiðimenn bjóða upp á hvalaskoðun Hvalveiðimenn í Kópavogi ætla að bjóða upp á hvalaskoðun samhliða veiðum. Þeir ætla að sýna áhugasömum hvernig hrefnuveiðar fara fram en þó án þess að veiða sjálf dýrin. Innyflin í formalíni verða í sýningarsal á dekkinu. 9.8.2010 09:00
Strandveiðum lýkur væntanlega í dag Strandveiðar eru nú aðeins stundaðar austur af landinu þar sem kvótinn á hinum svæðunum er búinn. 9.8.2010 07:53
Þrír karlmenn teknir í innbroti í nótt Lögrelgumenn handtóku þrjá karlmenn, sem voru að brjótast inn í fyrirtæki í Laugadalnum í Reykjavík í nótt. 9.8.2010 07:49
Fugl olli bifhjólaslysi Ökumaður bifhjóls slasaðist alvarlega, en þó ekki lífshættulega, þegar hann kastaðist af hjóli sínu á móts við Golfvöllinn við Grindavík í gærkvöldi. 9.8.2010 07:46
Ökumaður í tómu tjóni á Grensásvegi Ökumaður, sem lögreglan stöðvaði á Grensásvegi í nótt vegna hraðaksturs, reyndist hafa sitthvað fleira á samviskunni, því hann var líka fullur. 9.8.2010 07:40
Yfir 30 þúsund gestir voru í bænum Yfir þrjátíu þúsund manns lögðu leið sína til Dalvíkur um helgina til að taka þátt í fiskideginum mikla. Hátíðin hélt upp á tíu ára afmæli sitt í ár. 9.8.2010 07:15
Eldur gaus upp í bíl eftir útafakstur Lögreglumenn á eftirlitsför sáu í nótt hvar ökumaður missti stjórn á bíl sínum og ók út af Hafnarfjarðarvegi á móts við Fífuhvammsveg. 9.8.2010 07:10
Menntaskólastærðfræði kennd með hjálp tölvuforrita Kennslubókin Stærðfræði í takt við tímann kom nýlega út en um er að ræða kennslubók í stærðfræði sem byggir á kennslu með notkun tölvuforrita. Bókin er ætluð framhaldsskólanemum en með henni skal nota stærðfræðiforritið Maple. 9.8.2010 07:00
Stefnir allt í svarblátt haust Allt virðist benda til þess að berjatíð verði með endemum góð í ár. Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og sérfræðingur í íslenskum berjum, segir berjatíðina vera almennt farna að lengjast. 9.8.2010 06:30
Formaður stjórnarinnar lofaði nafnleynd Árni Geir Pálsson var einn þriggja umsækjenda sem boðaðir voru í viðtal vegna stöðu framkvæmdastjóra Íslandsstofu, ásamt Margréti Jónsdóttur og Jóni Ásbergssyni. Kom það fram í fréttum RÚV í gærmorgun. Árni er mjög ósáttur með nafnbirtinguna og segir Friðrik Pálsson, formann stjórnar Íslandsstofu, hafa lofað sér nafnleynd sem umsækjanda. 9.8.2010 06:00
Flest tilfelli af HIV í 25 ár Fjöldi tilfella nýrra HIV-greininga hefur ekki verið meiri hér á landi síðan 1985. Á síðasta ári greindust þrettán tilfelli, en árið 1985 voru þau sextán. Mælingar hófust fyrst árið 1983 og var þá einn einstaklingur sem greindist með HIV-veiruna. Kemur þetta fram í skýrslu Landlæknisembættisins. 9.8.2010 05:00
Bændur nýti sitt eigið landsvæði Landgræðslustjóri segir skaðann af lausagöngu sauðfjár á gróður landsins hafa snarminnkað síðustu áratugi. Hross séu höfð innan girðingar að mestu leyti. 9.8.2010 03:00
Óð út í beljandi Krossá og bjargaði ferðamönnum Björgunarsveitarmaðurinn Ásmundur Þór Kristmundsson bjargaði tveimur frönskum ferðamönnum úr sjálfheldu þegar hann óð út í Krossá, tók á móti Frökkunum úr bíl sem þeir voru fastir í og hjálpaði þeim í land. 9.8.2010 00:01
Verðlaus kvótaveð Einu veð Byggðastofnunar fyrir 1,3 milljarða króna lánum sem stofnunin hefur veitt eru í verðlausum rækjukvóta, þrátt fyrir að slíkt stríði gegn lögum. Útlit er fyrir að afskrifa þurfi stóran hluta lánanna og því mun Ríkissjóður enn á ný þurfa að leggja stofnunni til meira fé. Forstjóri Byggðastofnunar segir eðlilegar skýringar á málinu. 8.8.2010 18:43
Ganga 130 kílómetra svo að sumarbúðirnar loki ekki Ég hlakka til þess að komast þangað allt árið. Svona svaraði drengur spurningu fréttamanns um hvernig honum þætti vistin í sumarbúðum sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra rekur í Reykjadal fyrir börn. Búðirnar hafa verið starfræktar í rúm fjörtíu ár en nú blasir við að þeim þurfi að loka vegna fjárskorts. 8.8.2010 20:00
Þeir sem beita heimilisofbeldi dæmdir í sálfræðimeðferð Til greina kemur að dæma menn sem beita maka sína heimilisofbeldi til sálfræðimeðferðar og skylda þá til að yfirgefa heimilið. Meðferð sem þessi hefur staðið til boða hér á landi í nokkur ár og hefur skilað árangri í tæplega 90% tilvika. 8.8.2010 19:20
Vantraustyfirlýsing á lögfræðing Seðlabanka Íslands Seðlabankastjóri gerir lítið úr aðallögfræðingi bankans, sem var sammála niðurstöðu lögfræðiálits um sennilegt ólögmæti gengislánanna, en bankinn þagði þunnu hljóði um niðurstöðuna. Þetta segir stjórnarmaður í hagsmunasamtökum heimilanna sem telur framferðið í raun vantraustsyfirlýsingu á lögfræðinginn. 8.8.2010 18:53
Búið að opna Norðurlandsveg Búið er að opna Norðurlandsveg eftir að minnsta kosti fimm bílar lentu í árekstri á Þjóðvegi 1 um Blönduhlíð, við Bólu, rétt við Öxnadalsheiði eftir hádegi í dag. 8.8.2010 16:37
Þyrlan sótti konu sem datt af hestbaki í Þjórsárdal Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, sótti slasaða konu sem datt af hestbaki innst í Þjórsárdalnum um þrjúleytið í dag. Þyrlan fór í loftið klukkan 15:22 og var lent á slysstað 15:50. Ekki liggur fyrir hversu alvarlega konan er slösuð en þyrlan var sett í forgang. 8.8.2010 15:58
Allt undir við fjárlagagerðina Það er allt undir núna þegar verið er að skoða fjárlögin, segir Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, aðspurður út í afstöðu Kirkjuþings til 9% niðurskurðarkröfu á Þjóðkirkjuna. Kirkjuþing samþykkir ekki 8.8.2010 13:30
Brýnt að veita ofbeldismönnum meðferð Félagsmálaráðherra telur brýnt að efla meðferðarúrræði fyrir unga ofbeldismenn og aðra karla sem beita konur og börn ofbeldi. Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu um nýja jafnréttisáætlun til fjögurra ára sem Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra hefur kynnt. 8.8.2010 10:35
Fjórar líkamsárásir í Reykjavík Fjórar líkamsárásir voru kærðar til lögreglu í nótt. Tvær þeirra áttu sér stað í heimahúsum og tvær á miðborgarsvæðinu. Ekki er vitað til þess að neinn hafi meiðst alvarlega í þeim en tveir menn gistu fangageymslur vegna aðildar að þeim. 8.8.2010 09:03
Umferðartafir við Bólu Árekstur á milli að minnsta kosti fimm bíla varð á Þjóðvegi 1 um Blönduhlíð, við Bólu, rétt við Öxnadalsheiði eftir hádegi í dag. 8.8.2010 13:43
Á slysadeild eftir dráttarvélarslys Karlmaður og barn voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild í Reykjavík eftir að dráttarvél sem þau voru í valt á mótum Snæfellsvegar og Vatnaleiðar á sjöunda tímanum í gærkvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítala var maðurinn lagður inn á skurðlækningadeild en barnið fór heim að lokinni skoðun á slysadeild. 8.8.2010 09:31
Maður stunginn á Dalvík Ungur maður var stunginn í bakið á Dalvík í nótt en lögreglan segir að áverkar hans hafi ekki verið alvarlegir. Sá sem grunaður var um verknaðinn var handtekinn. Mennirnir eru báðir um tvítugt. 8.8.2010 09:01
Kirkjan samþykkir ekki niðurskurðarkröfur Kirkjuþing samþykkir ekki 9% niðurskurðarkröfu sem ríkisstjórnin gerir til þjóðkirkjunnar en samþykkir 5% niðurskurð með skilyrðum. 7.8.2010 20:11
Bjóða allri þjóðinni að varðeldi Skátar bjóða allri þjóðinni að skátavarðeldi sem hefst klukkan hálfníu í kvöld. Varðeldurinn markar hápunkt afmælismóts sem stendur núna yfir en íslenskir skátar ásamt gestum frá Bretlandi og Svíþjóð taka þátt í mótinu. 7.8.2010 19:56
Lottópotturinn gekk ekki út Lottópotturinn gekk ekki út að þessu sinni og því er ljóst að hann verður tvöfaldur næst. Þá gekk Jókerpotturinn heldur ekki út. 7.8.2010 19:33
Ritalinneyslan líkist faraldri Landlæknir segir að verið sé leita leiða til að draga úr mikilli misnotkun fullorðinna á lyfinu rítalíni. Yfirlæknir á Vogi líkir þróuninni við faraldur og segir lækna hafa ávísað lyfinu í óhófi. Heilbrigðisráðherra vill taka á málinu hið fyrsta. 7.8.2010 18:30
Þyrlan aðstoðaði Breka Leki kom að bátnum Stormur-Breki, sem er 70 tonna trébátur, laust fyrir klukkan fjögur í dag. Sjór var kominn í lest, vélarrými og framskip bátarins þar sem hann var staddur 8 sjómílur af Herdísarvík og stefndi til Þorlákshafnar. 7.8.2010 18:06
Fjöldinn jafnmikill og í fyrra Þúsundir eru saman komnar í miðbæ Reykjavíkur í tilefni af gleðigöngu Hinsegin daga sem fram fór í dag. Lögreglumaður sem fréttastofa ræddi við sagðist ekki þora að fullyrða nákvæmlega um fjöldann en sagði að minnsta kosti óhætt að fullyrða að fjöldinn væri jafnmikill og í fyrra. 7.8.2010 16:47
Þúsundir á Dalvík Þúsundir manna eru nú á Dalvík enda er fiskidagurinn haldinn hátíðlegur þar í dag. Lögreglumaður á Dalvík sem Vísir talaði við segir að allt gangi samkvæmt áætlun og engin óvænt tilvik komið upp samkvæmt sinni vitund. 7.8.2010 16:02
Tekinn fyrir ólöglegar veiðar Baldur, eftirlits- og sjómælingabátur Landhelgisgæslunnar stóð í morgun línubát að meintum ólöglegum veiðum innan bannsvæðis á Fljótagrunni. 7.8.2010 15:46
Jón Gnarr á fyrsta vagni í gleðigöngunni Gleðigangan hófst klukkan tvö en hún er hátindur Hinsegin daga. Gengið er frá Hlemmi niður Laugaveginn og lýkur göngunni við Arnarhól, þar sem ýmsir skemmtikraftar stíga á svið undir stjórn Páls Óskars. 7.8.2010 15:06
„Pabbi, ég sit bara á gólfinu“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af yfirfullri rútu sem var á leið frá Selfossi til Reykjavíkur rétt fyrir hádegi í dag. Tilkynnt var um að minnsta kosti þrír farþegar væru sitjandi á gólfinu. Áhyggjufullur faðir hafði samband við fréttastofu í dag og sagði að strákurinn sinn sem er 11 ára gamall hefði hringt í sig og sagt: „Pabbi, ég sit bara á gólfinu.“ 7.8.2010 14:49
Aðgerðirnar skýrt verkfallsbrot Annar hluti boðaðra verkfallsaðgerða Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fór fram í gær. Verkfallið stóð í sextán klukkutíma. Í þeim fólst meðal annars að varðstöðu á Akureyrarflugvelli var ekki sinnt og hamlaði flugi. Flugfélag Íslands brá þá það ráð að flýta tveimur fyrstu ferðum dagsins og aðrar ferðir voru færðar til Aðaldalsflugvallar á Húsavík. 7.8.2010 14:01
Aurskriða undir Eyjafjöllum: „Auðvitað bregður manni“ „Við sáum þetta bara beint út um gluggann hjá okkur þegar við komum á fætur í morgun,“ segir Heiða Björg Scheving húsfreyja á bænum Krossafell. Aurskriða féll undir Eyjafjöllum í morgun. Heiða varð vör við skriðuna snemma í morgun og lét húsfreyjuna á bænum Steinar 4 vita, en sá bær er aðeins ofar í hlíðinni. 7.8.2010 12:59
Innkoma Delta á flugmarkaðinn jákvæð tíðindi Það eru jákvæð tíðindi fyrir íslenska ferðaþjónustu að bandaríska flugfélagið Delta ætli að hefja flug á milli New York og Íslands á næsta ári, segja forsvarsmenn Icelandair og Iceland Express. Express lítur ekki á Delta sem keppinaut. Aðrir ættu að hafa áhyggjur, segir framkvæmdastjóri Express. 7.8.2010 12:15
Endurskoða verður ávísun lækna á rítalín Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann segja að tölulegar upplýsingar frá Vogi og könnun á örvandi vímuefnaneyslu sjúklinganna sýni að endurskoða verði ávísun lækna á lyfið rítalín. 7.8.2010 11:57
Ísjaki sem er tuttugu sinnum Heimaey brotnaði frá Grænlandi Gríðarlega stór ísjaki hefur brotnað frá Grænlandsjökli. Samkvæmt frétt BBC um málið er jakinn 260 ferkílómetrar að stærð, eða tæplega tuttugu sinnum Heimaey. 7.8.2010 11:10
Gleðigangan hefst klukkan tvö Hinsegin dagar ná hámarki sínu í dag með gleðigöngu hinsegin fólks klukkan tvö síðdegis. Gangan fer frá Hlemmi og niður Laugaveginn og lýkur við Arnarhól, þar sem ýmsir skemmtikraftar stíga á svið á hinsegin hátíð undir stjórn Páls Óskars. Alls taka um 35 atriði þátt í göngunni, en það er svipaður fjöldi og undanfarin ár. 7.8.2010 10:18
Trésmiðja brann í Sandgerði í nótt Eldur kviknaði í Trésmiðjunni Mosfell í Sandgerði í nótt og var húsið alelda þegar boð um brunann barst um klukkan tvö í nótt. Húsið er gerónýtt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum. 7.8.2010 10:00