Fleiri fréttir

Vill ekki útiloka Hreyfinguna

Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, segir „algjörlega ótímabært“ að tala um hvort hún sameinist að einhverju leyti Hreyfingunni. Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, bauð þá flokksmenn VG sem vildu velkomna í sinn flokk í blaðinu í gær. Lilja segist finna fyrir miklum stuðningi almennra kjósenda VG og vilji ekki bregðast þeim nema nauðbeygð.

Afþakkar laun eftir uppsögn

Runólfur Ágústsson afþakkaði laun á uppsagnarfresti í bréfi til félagsmálaráðuneytisins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Runólfur sendi frá sér í gær.

Festir í sessi fákeppni á mjólkurmarkaði

Samkeppniseftirlitið gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarp um breytingar á búvörulögum sem lagt hefur verið fram. Í fréttatilkynningu um málið segir að með frumvarpinu sé fyrirhugað að lögfesta refsifyrirkomulag gagnvart tilteknum rekstraraðilum sem hafi hug á að framleiða mjólkurvörur fyrir íslenska neytendur.

Ekki hægt að útiloka neinar tillögur

Huginn Freyr Þorsteinsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, segir að fyrirfram sé ekki hægt að útiloka neinar tillögur í skattamálum. Í skýrslu um íslenska skattkerfið, sem AGS vann að ósk fjármálaráðuneytisins, var lagt til að lægri skattþrep virðisaukaskattsins yrðu hækkuð upp í 25,5 prósent ef frá væru skildar matvörur sem yrðu með fjórtán prósenta virðisaukaskatt.

Geitungar áberandi þessa dagana

Sá tími ársins þegar geit­ungar eru mest áberandi er nú runninn upp. „Þetta gerist á svipuðum tíma á hverju ári. Þeir verða áberandi á þessum tíma þegar karldýr og nýjar drottningar myndast í búunum. Karldýrin frjóvga drottningarnar sem fljúga svo í burtu og dreifa sér,“ segir Þóra Hrafnsdóttir, sérfræðingur á Náttúrufræðistofu Kópavogs.

Alcoa sagt slegið út af borðinu

Standi yfirlýsingar Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra um að tekin verði ákvörðun um uppbygginu á Bakka fyrir 1. október, er ljóst að Alcoa hefur verið útilokað frá henni. Katrín lýsti þessu yfir í Kastljósi á fimmtudag.

Jón Gnarr í dragi - myndband

Uppátæki Jóns Gnarr, borgarstjóra, að mæta sem klæðskiptingur við setningu Hinsegin daga í gær vakti mikla lukku meðal viðstaddra og hefur einnig vakið athygli út fyrir landsteinana. BBC var meðal annars með frétt um Jón Gnarr á forsíðu bresku fréttastofunnar í dag. Hún var um tíma sjötta mest lesna fréttin.

Bílvelta á sleipum vegi

Bíll valt á Þingvallavegi, rétt hjá þjónustumiðstöðinni á Þingvöllu, um klukkan fimm í dag. Kona á þrítugsaldri var í bílnum og hlúðu vegfarendur að henni þangað til að sjúkra- og lögreglubíll kom á staðinn. Mikil rigning var á svæðinu og samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Selfossi virðist vegurinn hafa verið gífurlega háll enda mikið rignt í dag.

Kanna heimildir um birtingu á lögfræðiáliti

Í tilkynningu sem Seðlabanki Íslands hefur sent fjölmiðlum segir að þegar að álit, um það hvort að gengistryggð lán væru hugsanlega ólögleg vorið 2009, var unnið hafði átt sér stað töluverð umræða á opinberum vettvangi um hugsanlegt ólögmæti gengistryggðra lána.

Lýsa áhyggjum af skipan Ástu Sigrúnar

Nokkur fjöldi fólks hefur haft samband við Hagsmunasamtök heimilanna og lýst yfir áhyggjum sínum vegna ráðningar Ástu Sigrúnar Helgadóttur í embætti umboðsmanns skuldara. Hún er gagnrýnd fyrir að hafa ekki tekið nægilega afgerandi afstöðu með skuldurum í störfum sínum sem forstjóri Ráðgjafastofu heimilanna.

Gagnrýnir framkomu stjórnvalda gagnvart erlendum fjárfestum

Framkoma íslenskra stjórnvalda við þau fáu erlendu fyrirtæki sem vilja fjárfesta hér á landi er algerlega óviðunandi að mati Samtaka iðnaðarins. Helgi Magnússon, formaður samtakanna, segir að framkoma stjórnvalda við fyrirtæki eins og Magma Energy og Alcoa á Íslandi sé með þeim hætti að orðspor þjóðarinnar út á við skaðist og líkur á samstarfi við erlenda fjárfesta minnki til mikilla muna einmitt á þeim tíma þegar við þurfum mest á öflugu og farsælu samstarfi við erlenda fjárfesta að halda.

Runólfur átti ekki frumkvæði að kaupum og er sagður „fórnarlamb“

Menn sem áttu frumkvæði að því að kaupa hluti Byrs og Spron í Sparisjóðabankanum höfðu samband við Runólf Ágústsson að fyrra bragði til að bjóða honum að fjárfesta, án nokkurrar áhættu. Einn þeirra segir Runólf „fórnarlamb." Runólfur hefur ákveðið að þiggja ekki laun fyrir hálfan dag í embætti umboðsmanns skuldara.

Lítið eftirlit með utangarðsfólkinu úti á Granda

Lítið sem ekkert eftirlit er með heimilislausum sem dveljast í smáhýsum á Granda. Unnin var skýrsla fyrir velferðarsvið borgarinnar á síðasta ári og var það niðurstaða hennar að efla þyrfti eftirlit, en það var ekki gert. Heimilislaus maður sem þar dvelst segir að reglulega brjótist út slagsmál meðal vistmanna.

Flutt á sjúkrahús eftir bílveltu

Fólksbíll valt við Öxará um fimmleytið í dag. Bíllinn endaði á hvolfi og skemmdist hann eitthvað að sögn lögreglu. Ein kona var í bílnum. Að sögn lögreglunnar kenndi hún sér ekki meins en var engu að síður flutt með hraði til skoðunar á sjúkrahús í Reykjavík.

Forsetinn sendi Medvedev samúðarkveðju

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í dag Dmitry Medvedev, forseta Rússlands, samúðarkveðju vegna hörmunganna sem orðið hafa í Rússlandi. Fjöldi landsmanna, bæði almennir borgarar og björgunarfólk, hefur látið lífið vegna hörmulegra elda sem herjað hafa á landið.

Grilluðu 300 pylsur

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn grilluðu um 300 pylsur í miðbænum í hádeginu. Bjarni Ingimarsson, sem er einn þeirra, segir að þeir hafi komið saman til þess að stytta sér stundir í verkfallinu sem hófst í dag. „Það kom mikið af fólki sem átti leið þarna framhjá, túristar og fólk sem býr í nágrenninu,“ segir Bjarni.

Vélhjólamenn söfnuðu fyrir Aflið

Mótorhjólafólk hvaðanæva af landinu hittist í Súpupartýi um verslunarmannahelgina á Akureyri. Þetta er í annað sinn sem Súpupartý Mótórhjólafólks er haldið í bakgarði einum á Akureyri. Elduð var súpa, sungið og spilað fram eftir kvöldi og peningar settir í bauk. Forsvarsmenns Aflsins, samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi segjast vera afskaplega þakklátir fyrir þetta framtak því hver króna telji.

Tilraun til að eyða lúpínu mistókst

Tilraun til að eyða lúpínu í Þórsmörk, með illgresiseitrinu Roundup, á árinum 2007-9 mistókst, segir skógrækt ríkisins. Greint er frá því á heimasíðu skógræktarinnar að eitrunin hafi eytt öllum öðrum gróðri en lúpínan hafi

Viðurkennir kunningjatengsl við framkvæmdastjórann

Það er víðs fjarri að ferlið í aðdraganda að ráðningu nýs framkvæmdastjóra Íslandsstofu hafi verið eitthvað leikrit, segir Friðrik Pálsson, formaður stjórnar Íslandsstofu. Tilkynnt var fyrr í vikonnu að Jón Ásbergsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Útflutningsráðs, hefði verið ráðinn í starfið. Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri, var á meðal umsækjanda um starfið en hann segir að umsóknarferlið hafi verið leikrit

Þórólfur Árna: „Ósmekklegt og taktlaust“

Nýráðinn framkvæmdastjóri Íslandsstofu skrifaði blaðagrein og titlaði sig framkvæmdastjóra stofnunarinnar áður en umsóknarfrestur um starfið var runninn út. Þórólfur Árnason, einn umsækjenda, segir umsóknarferlið leikrit og segir að stjórnarformaður Íslandsstofu kunni ekki að fara með opinbert fé.

Breytingar á ferðum vegna gleðigöngunnar

Talsverðar breytingar verða á akstri Strætó laugardaginn 7. ágúst vegna gleðigöngu Hinsegin daga og hátíðahalda í miðborginni. Gleðigangan hefst við Hlemm og endar með hátíðahöldum við Arnarhól og því þarf að breyta akstursleiðum og loka nokkrum stoppistöðvum á meðan á hátíðahöldunum stendur.

Tvennt flutt á slysadeild

Tvennt var flutt á slysadeild eftir harðan árekstur sem varð milli tveggja bíla á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar laust eftir klukkan tíu í morgun. Björgunarfólk beitti klippum til þess að ná öðru þeirra úr bílnum. Tveir dælubílar frá slökkviliðinu og fjórir sjúkrabílar voru sendir á vettvang til aðstoðar við fólkið. Tildrög slyssins eru ókunn.

Krefjast þess að öryggi verði tryggt

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna skorar á sveitarfélög landsins að gera réttmæta leiðréttingu á launum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna til þess að neyðarþjónusta við íbúa landsins verði tryggð. Þetta segja þeir í áskorun sem birt var fulltrúum sveitastjórna á höfuðborgarsvæðinu, í Fjarðarbyggð, á Akureyri og á Suðurnesjum í morgun.

Lömbin þagna

Sauðaþjófur, eða þjófar eru enn á ferð á Vesturlandi því nú hafa fundist leifar af lambi í Noðrurárdal, þar sem búið var að hirða hrygg, læri og frampart, en verðminni hlutar skrokksins skildir eftir.

Harður árekstur við Bústaðarveg

Árekstur var milli tveggja bíla á gatnamótum Reykjanesbrautar laust eftir klukkan tíu í morgun. Björgunarfólk vinnur nú að því að ná einum manni úr öðrum bílnum með klippum. Á staðnum eru tveir dælubílar frá slökkviliðinu og fjórir sjúkrabílar. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hvort fólk hafi slasast alvarlega í árekstrinum.

LÍÚ: Ísland í fullum rétti til að veiða makríl

„Ísland er í í fullum rétti til að veiða makríl innan íslenslu efnahagslögsögunnar, rétt eins og Norðmenn og aðildarríki Evrópusambandsins hafa rétt til makrílveiða innan sinna eigin efnahagslögsagna. Makrílveiðar Íslendinga eru því jafnlögmætar og makrílveiðar Noregs og Evrópusambandsríkjanna."

Slökkviliðsmenn hitta Jón Gnarr

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn koma til fundar við Jón Gnarr, borgarstjóra í Reykjavík, núna klukkan tíu til þess að afhenda honum yfirlýsingu og minna á málstað sinn.

Heimsmet á sjóstöng

Þýskur sjóstangaveiðimaður veiddi í gær risastóra lúðu á Vestfjarðamiðum og er jafnvel talið að þetta sé stærsta lúða sem veiðst hefur á sjóstöng í heiminum til þessa, að því er segir á vefnum: Vikari.is.

Vilja sama gjaldið áfram

Þorlákshafnarbær krefst þess að fá áfram sömu hafnar- og þjónustugjöld og áður fyrir afnot af höfninni í Þorlákshöfn fyrir Herjólf. Höfnin er nú varahöfn fyrir skipið en var áður aðalhöfn þess. Um er að ræða rúmlega 1,7 milljónir króna á mánuði.

Yfirbugaður af öryggisverði

Öryggisvörður á frívakt yfirbugaði tæplega þrítugan mann í fíkniefnavímu sem gengið hafði berserksgang á Laugavegi og nágrenni í gærmorgun og afhenti hann lögreglu.

Verkfall slökkviliðsmanna hefst klukkan átta

Rúmlega átta klukkustunda samningafundi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við samninganefnd sveitarfélaganna lauk án árangur hjá ríkissáttasemjara um ellefu leitið í gærkvöldi og hefjast verkfallsaðgerðir þeirra fyrrnefndu klukkan átta og standa til miðnættis.

Slysagildrur í nýju hverfi

Það þarf ekki nema örlitla hálku á veginum til þess að steypast ofan í," segir Ástríður Sigvaldadóttir, íbúi í Gerplustræti í Helgafellslandi í Mosfellsbæ, um risastóran húsgrunn í nágrenni heimili hennar.

Kolólöglegur lánasamningur Lýsingar

Neytendastofa telur að Lýsing hafi brotið ýmis ákvæði neytendalaga við gerð samnings um bílalán manns sem kvartaði við Neytendastofu.

Órólega deildin er velkomin

Þingmaður Hreyfingarinnar, Þór Saari, segir að svokölluð óróleg deild í VG sé velkomin yfir í Hreyfinguna. Stefna þess fólks eigi nú meira sameiginlegt með stefnu Hreyfingarinnar en stefnu VG. Þetta þyrfti þó ekki að þýða stjórnarslit.

Harpa verður ekki alveg tilbúin við opnun

Menning Skemmdir sem uppgötvast hafa í stálvirki glerhjúps á suðurhlið tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu valda því að húsið verður ekki að fullu tilbúið við opnun þess næsta vor.

Segja slökkviliðsstjóra fara með ósannindi

Fulltrúar starfsmanna Slökkviliðs Akureyrar segja slökkviliðsstjóra Slökkviliðs Akureyrar fara með ósannindi í viðtali við Fréttablaðið 30. júlí síðastliðinn þegar hann fullyrðir að slökkviliðsmenn nýti sér frítökurétt í formi fría.

Halda sér vakandi á kaffinu

Samninganefndir landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og launanefndar sveitarfélaga eru enn að funda í húsi ríkissáttasemjara. Þeir hafa fundað síðan klukkan 13:30 í dag en hafa þó tekið stutt hlé inn á milli.

Jón Gnarr mætti í dragi á opnunarhátíð Gay Pride

Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík birtist óvænt á opnunarhátíð Hinseigin daga í Íslensku óperunni í kvöld. Jón var ekki klæddur í jakkaföt heldur kom hann fram í kvenmannskjól og með kvenmannstösku.

Útlendingar veiða sér til matar

Fréttavefurinn Skessuhorn segir að í vikunni hafi í tvígang borið á sauðaþjófnaði í Borgarfirði og í Dölum. Í gær hafi fundist leifar af lambi í Norðurárdal í Borgarfirði og hafi kjötið verið hirt. Hræið hafi verið sambærilegt og það sem fannst undir brúnni yfir Miðá í Mið-Dölum á mánudaginn.

Sjá næstu 50 fréttir