Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hreiðar Már kominn niður í Héraðsdóm Reykjavíkur Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings, hefur verið færður fyrir dómara vegna gæsluvarðhaldsúrskurðar. Dómarinn tók sólarhringsfrest til þess að ákveða hvort fallist yrði á kröfu sérstaks saksóknara um tveggja vikna gæsluvarðhald yfir Hreiðari Má. 7.5.2010 11:42
Magnús færður fyrir héraðsdómara Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Luxemburg, var færður niður í Héraðsdóm Reykjavíkur fyrir fáeinum mínútum síðan. 7.5.2010 11:13
Hæstaréttarlögmaður: Gæsluvarðhald tveimur árum of seint Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segir í pistli á Pressunni.is að það séu ekki skilyrði fyrir gæsluvarðhaldi yfir Hreiðar Má Sigurðssyni í lögum að hans mati. Eins og kunnug er þá tók héraðsdómi sólarhringsfrest til þess að kveða upp um gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Hreiðari. Úrskurðurinn ætti að liggja fyrir í hádeginu í dag. 7.5.2010 11:12
Varast að aka í Vík Þar sem mikil aska liggur yfir í Vík í Mýrdal og undir Eyjafjöllum eru tilmæli frá lögreglunni á Holsvelli til vegfarenda að sýna varúð í akstri á svæðinu. 7.5.2010 10:41
Sömu brot liggja til grundvallar handtökunum Ólafur Hauksson, sérstakur saksóknari, segir það enn ekki vera ákveðið hvort farið verði framá gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Luxemburg. 7.5.2010 10:27
Ekki talið að andlát Eric hafi borið að með saknæmum hætti Lögreglan telur ekki að andlát Englendingsins, Eric John Burton, hafi borið að með óeðlilegum hætti að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 7.5.2010 10:21
Mikið öskufall undir Eyjafjöllum- fólki ráðlagt að halda sig innandyra Tilkynningar hafa borist um mikið öskufall undir Eyjafjöllum, í Vík í Mýrdal og í Álftaveri samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum. 7.5.2010 09:21
Guðmundur í Byrginu dæmdur fyrir fjárdrátt Guðmundur Jónsson, kenndur við Byrgið, var dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt og umboðssvik í Héraðsdómi Suðurlands í gær. 7.5.2010 09:17
Hreiðar kominn til yfirheyrslu Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, er kominn til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara. 7.5.2010 08:59
Kynna 800 ný störf Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar kynna í dag 800 ný störf, sem spanna allt frá þáttagerð hjá Ríkisútvarpinu til rannsókna á áhrifum eldfjallaösku á flugvélahreyfla. 7.5.2010 08:56
Brotist inn í apótek í Keflavík Brotist var inn í apótek við Suðurgötu í Keflavík í morgun og var þjófurinn á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang. Hann fannst hinsvegar skömmu síðar, drukkinn og dópaður, á bekk í skrúðgarðinum og naut þar morgunblíðunnar. Engin lyf fundust á honum og ekki er ljóst hvort hann hefur stolið einhverju og falið það, áður en lögregla skarst í leikinn, - 7.5.2010 08:52
Björgunarsveitamenn í Grindavík leita að litlum fiskibáti Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Grindavík var kallað út í nótt, til að leita að litlum fiskibáti, sem hafði dottið út af sjálfvirku kerfi tilkynningaskyldunnar. Skipstjórinn, sem var einn um borð, svaraði heldur ekki í talstöð og var því farið að óttast um afdrif bátsins. 7.5.2010 08:25
Leita skýringa á andláti Erics Rannsóknadeild lögreglunnar leitar nú skýringa á því að Englendingurinn Eric John Burton, sem brá sér út úr húsbíl sínum við Háaleitisbraut og ætlaði í stutta gönguför á miðvikudagskvöld, skyldi finnast látinn í 7.5.2010 07:56
Stálu erótískum einkennisbúningum Brotist var inn í verslun við Kleppsveg í nótt og þaðan stolið eggjandi undirfatnaði á konur, sem þar er á boðstólnum, ásamt hjálpartækjum ástarlífsins. 7.5.2010 07:26
Ákvörðun um gæsluvarðhald i dag Hreiðar Már Sigurðssson fyrrverandi forstjóri Kaupþings, sem var handtekinn í gærdag eftir yfirheyrslur hjá sérstökum saksóknara, var aftur kallaður til yfirheyrslu í gærkvöldi, sem lauk á ellefta tímanum. 7.5.2010 07:16
Ölvuð kona handtekin á þaki Konukots Ölvuð kona var handtekin upp á þaki Konukots við Eskihlíð í nótt. Hún reyndist hafa stolið þaðan matarkortum og var auk þess með hassmola í fórum sínum. Hún var flutt í fangageymslur lögreglunnar við Hverfisgötu og bættist þar í hóp þónokkurra, sem teknir voru úr umferð í gærkvöldi og nótt fyrir ýmiskonar misgjörðir. 7.5.2010 07:12
Ellefu manns fluttir með reykeitrun á slysadeild Ellefu manns voru fluttir á slysadeild Landspítalans með aðkenningu að reykeitrun, eftir að eldur kviknaði í íbúð í gömlu sambýlishúsi í vesturborginni upp úr miðnætti. Hann kviknaði fyrst í potti á eldavél á neðri hæð hússins og barst þaðan upp í háf. 7.5.2010 07:07
Þrír menn réðust á karlmann í Bankastræti Karlmaður var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans eftir að hafa orðið fyrir fólskulegri líkamsárás þriggja manna í Bankastræti um þrjúleitið í nótt. 7.5.2010 07:00
Ekkert bendir til að gosinu sé að ljúka Töluverðar breytingar hafa orðið á gosinu í Eyjafjallajökli á síðustu dögum. Hraunrennsli hefur minnkað verulega og sprengivirkni aukist til muna. Svartur gosmökkur steig upp beint frá gosstöðvunum í gær. 7.5.2010 06:15
420 milljarða vantar upp á skuldbindingar 420 milljarða króna vantar upp á að ríkissjóður hafi fjármagnað áfallnar framtíðarskuldbindingar vegna eftirlauna opinberra starfsmanna. Þar af vantar um 350 milljarða inn í svokallaða B-deild Lífeyrissjóðs ríkisstarfsmanna (LSR) og um 40 milljónir inn í Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga en einnig vantar nokkuð upp á að A-deild LSR standist tryggingafræðilegar kröfur. 7.5.2010 06:00
Tækjaskortur helsti veikleiki Landspítala „Tækjamálin eru í dag helsti veikleiki Landspítalans. Árum saman hefur smámunum verið ætlað til tækjakaupa og endurnýjunar miðað við umfang starfseminnar. Ég tel að innan spítalans sé samstaða um þetta sjónarmið,“ segir Guðmundur Þorgeirsson, prófessor í lyflækningum við Háskóla Íslands og fyrrverandi yfirlæknir á hjartadeild LSH. 7.5.2010 05:45
Tóbaksfræ til heimabrúks Í verslun Garðheima í Reykjavík eru til sölu tóbaksfræ undir heitinu Wild tobacco. Fræðiheiti plöntunnar er nicotiana rustica og er annarar tegundar en almennt er notuð í tóbaksframleiðslu (nicotiana tabacum). Hún ber þó í sér töluvert meira magn nikótíns. 7.5.2010 05:30
Minni bílaumferð nú en í fyrra Umferð um hringveginn dróst verulega saman fyrstu fjóra mánuði ársins, á 16 völdum talningarstöðum. Þetta jafngildir 3,2 prósentum og er mesti samdráttur í langan tíma. 7.5.2010 05:15
Villtir laxastofnar njóti fjármálagróða Paul Volcker, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, hefur gengið til liðs við Norður-Atlantshafslaxasjóðinn (NASF) undir formennsku Orra Vigfússonar. 7.5.2010 04:30
Skýrslutöku af Magnúsi lokið Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, var færður á lögreglustöðina við Hverfisgötu eftir að skýrslutöku lauk rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Magnús og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, voru handteknir í dag í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum tengdum Kaupþingi. 6.5.2010 22:36
Hreiðar fluttur í fangaklefa Yfirheyrslum yfir Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings er lokið í bili en hann var á níunda tímanum í kvöld fluttur í fangaklefa í lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Eftir að Hreiðar var handtekinn í hádeginu var hann yfirheyrður í húsnæði embættis sérstaks saksóknara við Laugaveg 166. 6.5.2010 20:48
Gandi kominn til Eyja Gandi VE 171 sigldi í fyrsta sinn til hafnar í Vestmannaeyjum undir merkjum Vinnslustöðvarinnar h.f. á tíunda tímanum í kvöld. Skipið er hvortveggja í senn uppsjávar- og bolfisksskip. Markmiðið með kaupum Vinnslustöðvarinnar á þessu skipi er fyrst og fremst að auka fjölbreytni hjá fyrirtækinu í veiðum og vinnslu sjávarafla. 6.5.2010 22:53
Launakostnaður vegna nefnda tæpur hálfur milljarður Launakostaður vegna nefnda og ráða sem störfuðu á vegum ríkisins í fyrra var rúmar 461 milljón króna. Annar kostnaður vegna þeirra var um 428 milljónir. Þetta kemur fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar, varaformanns Framsóknarflokksins, sem lagt var fram á Alþingi í dag. Til samanburðar var launakostnaður ríkisins fyrir tveimur árum 502 milljónir. 6.5.2010 22:15
Fannst látinn í Hafnarfjarðarhöfn Leit af breskum ríkisborgara, Eric John Burton, sem leitað hefur verið af frá því í morgun hefur verið hætt. Hann fannst látinn í Hafnarfjarðarhöfn seinnipartinn í dag. Fjölmennt lið lögreglu og björgunarsveitarmanna tók þátt í leitinni. 6.5.2010 20:55
Hald lagt á kannabisplöntur og lampa Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í austurborginni í gærmorgun. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 40 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á fjölda gróðurhúsalampa og ýmsan búnað sem tengist starfsemi sem þessari. 6.5.2010 20:00
„Þetta gengur ekki" Annir í Héraðsdómi Reykjavíkur hafa komið í veg fyrir að gögn hafi borist saksóknara til þess að taka fyrir mál tveggja ofbeldismanna í Hæstarétti. Á meðan halda mennirnir áfram að brjóta af sér, en þeir réðust á eldri hjón um helgina. Héraðsdómur bendir á dómsmálaráðuneytið sem bendir til baka á Héraðsdóm. „Þetta gengur ekki" segir dómsmálaráðherra. 6.5.2010 19:56
Fella kaupmálann úr gildi Hjónin Sigrún Björk Jakobsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri, og Jón Björnsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norðlendinga, hafa ákveðið að fella kaupmála sem þau gerðu í haust úr gildi. Sigrún greindi frá þessu á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins á Akureyri seinnipartinn í dag en hún er oddviti flokksins í bæjarfélaginu. Þar fór Sigrún yfir þau mál sem hafa verið gerð að umtalsefni í fjölmiðlum undanfarna daga. 6.5.2010 19:35
Magnús Guðmundsson einnig handtekinn Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings í Lúxemborg og núverandi forstjóri Banque Havilland, var líkt og Hreiðar már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, handtekinn í dag í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á málefnum tengdum Kaupþingi. 6.5.2010 19:25
Uppnám á aðalfundi lífeyrissjóðsins Stapa Uppnám varð á aðalfundi í lífeyrissjóðnum Stapa nú síðdegis þegar andstæðar fylkingar tókust á um hvort segja ætti framkvæmdastjóranum, Kára Arnóri Kárasyni, upp. Anna Einarsdóttir, óbreyttur sjóðsfélagi, vildi að hann yrði látinn taka pokann sinn. 6.5.2010 19:04
Tilkynnt um lík í höfninni í Hafnarfirði Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst á sjötta tímanum í dag tilkynning um að lík væri á floti í höfninni við Hafnarfjörð. Lögreglumenn eru á vettvangi en ekki fengust frekari upplýsingar um málið. 6.5.2010 18:53
Annar maður handtekinn Nú síðdegis handtók sérstakur saksóknari einn mann til viðbótar í tengslum við sömu rannsókn og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings var handtekinn í dag. Hreiðar er grunaður um fjölmörg brot í starfi. 6.5.2010 18:30
Tveggja ára börnum tryggð leikskólavist í Reykjavík Borgarráð ákvað á fundi sínum í dag að fjölga leikskólaplássum í Reykjavík svo hægt sé að bjóða öllum börnum sem verða tveggja ára á árinu leikskólapláss í haust eins og stefna og starfsáætlun Reykjavíkurborgar kveður á um. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, lagði tillöguna fram. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. 6.5.2010 17:33
Þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Karlmaður á sjötugsaldri, Vilhjálmur Kristinn Skaftason, var í Hæstarétti í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa veist að konu á heimili sínu og nauðgað henni í ágúst í hitteðfyrra. 6.5.2010 17:15
Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot Hæstiréttur Íslands staðfestir dóm Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmanni á fertugsaldri sem var dæmdur í fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að misnota stúlku þegar hún var tólf og þrettán ára gömul. 6.5.2010 17:10
Tóku myndir af pyntingum Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald Héraðsdóms Reykjaness yfir karlmanni á þrítugsaldri sem svipti annan mann frelsi og neyddi hann meðal annars til þess að stela verkfæratösku. 6.5.2010 16:59
Benni Ólsari dæmdur í tveggja ára fangelsi Hæstiréttur dæmdi í dag Benjamín Þ. Þorgímsson í tveggja ára fangelsi fyrir þrjár líkamsárásir. 6.5.2010 16:53
Gömlu olíufélögin þurfa að greiða Vestmannaeyjum 14 milljónir Ker hf., Olíuverzlun Íslands hf. og Skeljungur hf. skulu greiða Vestmannaeyjabæ rúmar 14 milljónir króna í skaðabætur vegna ólögmæts samráðs á eldsneyti. 6.5.2010 16:44
Hreiðar gæti átt 8 ára fangelsi yfir höfði sér Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, gæti átt yfir höfði sér allt að átta ára fangelsi veðri hann fundinn sekur um þau brot sem hann er grunaður um. Sérstakur saksóknari handtók Hreiðar Má í dag eftir skýrslutökur. 6.5.2010 16:29
Enn leitað að Eric Ferðamaðurinn Erci John Burton er enn ófundinn en hann snéri ekki til baka eftir að hafa farið í hraðbanka í gærkvöldi. Eric er lungnasjúkur og kemst ekki langt án súrefniskúts. Um það bil 80 björgunarsveitarmenn og lögregluþjónar leita að honum. 6.5.2010 16:14
Hreiðar Már handtekinn vegna gruns um fjölmörg brot Til grundvallar á handtöku sérstaks saksóknara í dag liggur grunur um skjalabrot, auðgunarbrot, brot gegn lögum um verðbréfaviðskipti, þ.m.t. markaðsmisnotkun og loks gegn hlutafélagalögum. 6.5.2010 15:33