Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sló út rafmagni á Litla-Hrauni Óheppin álft flaug á rafmagnsstreng skammt frá fangelsinu á Litla-Hrauni um klukkan 13.30 í gær með þeim afleiðingum að rafmagni sló út víða á Suðurlandi. 19.4.2010 06:30
Vill flýta landsfundi eftir afsögn Þorgerðar Óvenjuleg staða er komin upp í Sjálfstæðisflokknum eftir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði af sér varaformennsku í flokknum, og tilkynnti að hún hygðist víkja tímabundið af þingi. Þorgerður tilkynnti afsögn sína á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem fram fór í Stapa í Reykjanesbæ á laugardag. 19.4.2010 06:15
Framkvæmdin önnur en í Noregi Álitaefni er hvort bankarnir hefðu ekki betur dregið frá skráðu eiginfé lán sem veitt voru með veði í hlutabréfum þeirra sjálfra. Rannsóknarnefnd Alþingis bendir á að skort hafi á umræðu um þetta mál í tengslum við endurskoðun reikninga fjármálafyrirtækja. 19.4.2010 06:00
Allt á kafi í grárri drullu „Það er leiðindalykt og allt á kafi í grári drullu,“ segir Berglind Hilmarsdóttir, ábúandi á Núpi undir Eyjafjöllum. Í gær birti til eftir að öskunni hafði kyngt niður og skildi eftir sig svart teppi yfir sveitinni. Berglind finnur til í öndunarfærunu og segir þungt að anda. „Eins og maður sé alltaf með ryk í nefinu. Fólk er eflaust misviðkvæmt fyrir þessu, ég get ekki ímyndað mér að þetta sér gott fyrir viðkvæma og börn.“ 19.4.2010 06:00
Ferðalangar fengu ekki að fara inn í Fljótshlíð Mikill fjöldi lagði leið sína austur á Hvolsvöll á laugardag til að berja gosstrókinn úr Eyjafjallajökli augum. Ökumenn fengu ekki að fara inn í Fljótshlíð eða að Markarfljóti samkvæmt fyrirmælum frá Almannavörnum. „Ég held að fólk hafi almennt sýnt því skilning,“ segir Smári Sigurbjörnsson, formaður björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hvolsvelli. 19.4.2010 06:00
Flugvélin er bylting í gosrannsóknum Ný eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar hefur leikið aðalhlutverk við gagnaöflun við gosstöðvarnar á Suðurlandi. Upplýsingarnar hafa gagnast við hættumat og veitt jarðvísindamönnum ómetanleg tækifæri til rannsókna. 19.4.2010 06:00
Spá Veðurstofu Íslands um öskufall Sunnudagur: Vestanátt beinir gosmekki yfir Mýrdalsjökul. Búast má við öskufalli í Meðallandi og á Mýrdalssandi. Snýst í norðanátt í nótt, með öskufalli suður af Mýrdalsjökli. 19.4.2010 05:00
Geta náð í eignir fram til 2012 Hægt verður að rifta færslu eigna til skyldmenna í kringum bankahrunið allt að fjögur ár aftur í tímann í stað tveggja að hámarki gangi frumvarp um breytingar á lögum um gjaldþrotaskipti eftir. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, mælti fyrir málinu í nóvember í fyrra og var það afgreitt úr allsherjarnefnd Alþingis á föstudag. 19.4.2010 05:00
Vongóðir um flug til Norðurlandanna í dag Milljónir flugfarþega eru enn strandaglópar vegna ösku frá eldstöðinni í Eyjafjallajökli. Askan hafði engin áhrif á þotur sem flugu tilraunaflug yfir meginlandi Evrópu í gær. Mikill þrýstingur er á flugmálayfirvöld að aflétta flugbanni. 19.4.2010 04:00
Skuldaði 18% af eiginfé Kaupþings Ólafur Ólafsson var með stærstu hluthöfum Kaupþings allt frá einkavæðingu Búnaðarbankans árið 2003. Bankinn lánaði honum háar fjárhæðir þegar hlutabréfaverð hrundi. 19.4.2010 04:00
Staða Íbúðalánasjóðs verri en búist var við Íbúðalánasjóður tapaði 3,2 milljörðum króna í fyrra og stendur eiginfjárhlutfall hans í þremur prósentum. Þetta er verri niðurstaða en búist var við, að sögn Guðmundar Bjarnasonar, forstjóra sjóðsins. Heildarútlán sjóðsins námu 757 milljörðum í lok árs. 19.4.2010 04:00
Gosstrókurinn er lægri en óróinn eykst Gosvirkni í eldstöðinni á Eyjafjallajökli var minni í gær en áður og fór gosmökkurinn ekki jafn hátt og síðustu daga. Gosóróinn óx hins vegar, og er mjög erfitt að ráða í þýðingu þessara breytinga, segir Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. 19.4.2010 04:00
Icelandair inn fyrir Bakkavör Icelandair Group tekur sæti Bakkavarar Group í Úrvalsvísitölunni í dag. Ákveðið var á hluthafafundi Bakkavarar í marslok að taka félagið af markaði og gera það að einkahlutafélagi. Síðasti dagur félagsins sem skráð hlutafélag var á föstudag. 19.4.2010 03:30
Óvíst hvenær umferð verður hleypt á veginn Verktakar luku í gær við bráðabirgðaviðgerð á þjóðvegi 1, hringveginum, við Markarfljótsbrú en ekki hefur verið ákveðið hvenær vegurinn verður opnaður fyrir almennri umferð. Einnig var gert við varnargarða sem verja veginn og brúna yfir Markarfljót. 19.4.2010 03:15
Icelandair fellir niður flug og breytir áætlun Icelandair hefur ákveðið að fella niður flug til Kaupmannahafnar á morgun, mánudag en hefur sett þess í stað upp aukaflug til Osló þar sem veittar hafa verið flugheimildir. Jafnframt hefur flug til Helskinki verið fellt niður, en þess í stað sett upp aukaflug til Tampere í Finnlandi þar sem opið er fyrir flug, en auk þess verður flogið til Stokkhólms á morgun. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá flugfélaginu. 18.4.2010 20:48
Viðgerð á veginum við Markarfljót lokið Viðgerð á hringveginum við Markarfljót er lokið en vegurinn verður þó ekki opnaður fyrir almenna umferð að svo stöddu. Neyðarflutningur verður því áfram háður leyfi lögreglu og almannavarna. 18.4.2010 19:54
Ótímabært að spá fyrir um endalok gossins Töluvert hefur dregið úr virkni eldstöðvarinnar undir Eyjafjallajökli. Ekki er hins vegar orðið tímabært að spá fyrir um endalok þess. Meira en 700 tonn af gosefni ruddust upp úr gígnum á hverri einustu sekúndu fyrstu þrjá sólarhringana. 18.4.2010 19:06
Átta íbúafundir haldnir í vikunni Átta fundir verða haldnir með íbúum í grennd við Eyjafjallajökul næstu daga. Á fundunum verða yfirvöld og almannavarnanefnd í héraði, ásamt dýralækni, veðurfræðingi, jarðvísindamanni og fleiri sérfræðingum og fulltrúum stofnana sem koma að málum. 18.4.2010 19:22
Lausn Icesave deilunnar enn nátengd samstarfinu við AGS Í nýrri viljayfirlýsingu íslenskra stjórnvalda við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn er því heitið að Bretum og Hollendingum verði að fullu endurgreiddur kostnaðurinn vegna Icesave-reikninganna. Lausn á Icesave virðist því enn nátengd áframhaldandi samstarfi við sjóðinn. 18.4.2010 19:12
Er Hrafn lordinn af Laugarnestanga? Reykjavíkurborg hefur gefið Hrafni Gunnlaugssyni frest til morguns til að fjarlægja muni utan lóðarmarka hans við Laugarnestanga. Hrafn segir þetta lögleysu. Hann segist jafnframt hafa álfa- og huldufólk með sér og að hið mjúka muni sigra hið harða. Fréttastofa Stöðvar 2 heimsótti Hrafn í Laugarnestangann í dag. Hægt er að horfa á fréttina hér. 18.4.2010 19:48
Minni gosvirkni Gosvirkni í Eyjafjallajökli hefur verið minni í dag en áður. Gosmökkurinn fer lægra, öskumyndun er minni og litlar fréttir af hafa borist af öskufalli. Mökkur er bæði yfir Mýrdals- og Eyjafjallajökli en aska nær ekki niður í byggð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð. 18.4.2010 17:42
Iceland Express hyggst fljúga til Evrópu á morgun Iceland Express stefnir að flugi til Kaupmannahafnar, Berlínar, Tenerife og Alicante á morgun, mánudag. Stefnt er að því, að Kaupmannahafnarvélin fari í loftið í fyrramálið, og Alicante, Tenerife og Berlín eftir hádegið. Félagið hefur hins vegar aflýst öllu flugi til London á morgun. 18.4.2010 16:53
Fimm handteknir í annarlegu ástandi við Skautahöllina Fimm einstaklingar voru handteknir í annarlegu ástandi við Skautahöllin í Reykjavík í hádeginu í dag. Hópurinn hafði áður ekið utan í bifreið við Bústaðaveg og bensíndælu á bensínstöð í Álfheimum. Í framhaldinu hóf lögregla leit af bifreiðinni en barst skömmu síðar tilkynning um hóp af fólki í annarlegu ástandi og læti fyrir utan Skautahöllina í Laugardal. 18.4.2010 16:39
Hrygningarsvæðum virðist ekki stafa hætta af hlaupvatninu Fyrstu niðurstöður Hafrannsóknarstofnunar benda til þess að hrygningarsvæðum þorsks og annarra mikilvægra fisktegunda stafi ekki hætta af hlaupvatninu við ósa Markarfljóts vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. 18.4.2010 16:19
Reyna að fljúga til og frá Skandinavíu Icelandair stefnir að flugi til og frá Skandinavíu og Bandaríkjunum á morgun, en aflýsir flugi til Bretlands og meginlands Evrópu. 18.4.2010 15:53
Í lagi með neysluvatn Eyjamanna Reglulega eru tekin sýni úr neysluvatni Eyjamanna en vatnsleiðslur til Vestmannaeyja liggja um Landeyjasand skammt frá Markarfljóti. Ekkert athugavert hefur komið fram í vatninu, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá samhæfingarstöð almannavarna. 18.4.2010 15:47
Allt grátt „Það er náttúrulega allt grátt og það var skelfilegt að koma út," segir Heiða Björg Scheving, á bænum Steinum, þegar hún lýsir því hvernig var að koma út í morgun. Frá því að eldgosið hófst í Eyjafjallajökli í síðustu viku hefur mikið öskufall verið á svæðinu. 18.4.2010 15:39
Lýst eftir 13 ára stúlku Lögreglan leitar enn að Emilíönu Andrésardóttur, 13 ára stúlku, sem strauk frá meðferðarheimilinu Stuðlum á fimmtudag. Það eru því komnir fjórir dagar sem hún hefur ekki skilað sér. Það eina sem til hennar hefur spurst er að til hennar sást á Akureyri á föstudagskvöld. 18.4.2010 15:15
Reyna að opna veginn við Markarfljót í kvöld Stefnt er að því að opna Hringveginn við Markarfljót í kvöld. Vinna síðustu daga við viðgerðina á veginum og varnargörðum hefur gengið vel og styttist í að hægt verði að flytja neyðarakstur af gömlu brúnni yfir á þá nýju og þar með um Hringveginn. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. 18.4.2010 14:58
Rafmagn datt út á Litla Hrauni Rafmagn datt út í skamma stund víða Suðurlandi klukkan rúmlega hálf tvö í dag, þar á meðal í fangelsinu á Litla-Hrauni. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni á Selfossi flaug álft á rafmagnsstreng norður af fangelsinu sem varð til þess að strengurinn féll til jarðar. Út frá því komst eldur í sinu sem leiddi síðan til þess að rafmagn sló út á stóru svæði. 18.4.2010 14:42
Telur að Bjarni eigi að segja af sér Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, telur að Bjarni Benediktsson eigi að segja af sér formaður Sjálfstæðisflokksins. 18.4.2010 13:33
Dýrin hafa það gott Dýralæknar hafa í morgun farið á bæi og kanna ástandið á skepnum sem hafa verið úti í öskufallinu vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og segja ástandið ótrúlega gott, samkvæmt samhæfingarmiðstöð almannavarna. 18.4.2010 13:16
Ragna fundar með blaðamönnum um eldgosið Nokkrar breytingar hafa orðið á gjóskufalli, óróa og gosmekki á gossvæðinu á Eyjafjallajökli en ekki sést til gosstöðvanna. Flugvél Landhelgisgæslunnar flýgur nú yfir svæðið og berast upplýsingar frá vísindamönnum síðar í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð. 18.4.2010 13:10
Fimmtu vélinni bætt við Vegna mikillar eftirspurnar hefur Icelandair ákveðið að bæta við fimmtu ferðinni til Þrándheims í Noregi. Félagið tilkynnti í morgun um tvær ferðir til Noregs og fylltust þær strax. Í framhaldinu var ákveðið að fjölga þeim um tvær og nú síðast var fimmtu vélinni bætt við. Fyrsta flugið er klukkan 13. 18.4.2010 12:58
Lestri skýrslunnar lokið Lestri starfsfólks Borgarleikhússins á skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis lauk nú klukkan 12:30 eftir 145 klukkustunda samfelldan lestur. Lesturinn hófst um leið og skýrslan kom út og stóð samfellt, dag og nótt, þar til yfir lauk. Leikarinn Guðjón Davíð Karlsson las lokaorð skýrslunnar. 18.4.2010 12:51
Magnús Tumi: Ekkert hægt að fullyrða um Kötlugos Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, segir vissulega líkur á því að gos hefjist í Kötlu í kjölfarið á gosinu í Eyjafjallajökli en ekkert sé hægt að fullyrða í þeim efnum. 18.4.2010 12:28
Funda með íbúum undir Eyjafjöllum Fundur með íbúum undir Eyjarfjöllum verður haldinn í dag á Heimalandi klukkan 13. Á fundinum verða fulltrúar almannavarnarnefndar og sveitarstjórnar. Farið verður yfir ástand og horfur á svæðinu. Íbúar eru hvattir til að mæta. 18.4.2010 12:03
Umbótanefnd Samfylkingarinnar skipuð Á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær var samþykkt skipan umbótarnefndar sem hefur það verkefni að leiða skoðun og umræðu um störf, stefnu, innri starfshætti og ábyrgð Samfylkingarinnar í aðdraganda bankahrunsins og gera að því loknu tillögur til umbóta. Þær skulu liggja fyrir ekki síðar en á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar haustið 2010. 18.4.2010 11:58
„Þetta er samstillt átak“ „Það standa sig allir mjög vel,“ segir Berglind Hilmarsdóttir, á bænum Núpi undir Eyjafjöllum, og vísar til aðgerða björgunarsveitarmanna, Rauða krossins og sveitunga hennar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Hún tekur sem dæmi að björgunarsveitarmenn séu vel skipulagðir og fari á milli bæja og gangi þar í öll verk. „Þetta er samstillt átak.“ 18.4.2010 11:34
Icelandair fjölgar flugum til Þrándheims Vegna mikillar eftirspurnar hefur Icelandair ákveðið að efna til fjögurra aukafluga í dag til Þrándheims í Noregi. Áður hafði verið tilkynnt að farin yrðu tvö flug. Fyrsta flugið er klukkan 13, tvær flugvélar fara klukkan 14 og fjórða flugið er klukkan 15. 18.4.2010 10:51
Vegir greiðfærir Frá Vegagerðinni koma þær upplýsingar að óvíst sé hvenær hringvegurinn við Markarfljót opnast fyrir almenna umferð. Ef frá eru talin vandamálin á gossvæðinu er greiðfært um allt sunnanvert landið. Annars eru hálkublettir sum staðar á heiðum, og með norðausturströndinni, á Möðrudalsöræfum og fjallvegum á Austurlandi. 18.4.2010 10:29
Talsverður órói mældist á miðnætti Talsverður órói mældist við eldgosið í Eyjafjallajökli á miðnætti, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Auk þess voru miklar drunur og aukinn kraftur. 18.4.2010 10:22
Iceland Express flýgur einnig til Þrándheims Iceland Epress flýgur til Þrándheims klukkan 15:30 í dag. Þetta flug hentar einkum þeim, sem áttu bókað með félaginu til Kaupmannahafnar, en tvær vélar áttu að fara þangað í dag. Þá hefur tveimur flugum til London verið aflýst. Fyrr í morgun var greint frá því að Icelandair hyggst einnig fljúga til Þrándheims. 18.4.2010 10:20
Handtekinn eftir líkamsárás Karlmaður á miðjum aldri var handtekinn í nótt vegna líkamsárásar í heimahúsi í Hafnarfirði. Sá sem varð fyrir árásinni slasaðist lítilsháttar en árásarmaðurinn lét ófriðlega þegar lögreglan kom á staðinn. Hann var í framhaldinu fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem hann sefur úr sér áfengisvímu. 18.4.2010 10:13
Eldgosið á Eyjafjallajökli - myndir Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, var á slóðum eldgossins á Eyjafjallajökli í gærkvöld og myndaði það sem fyrir augun bar. Nokkrar myndanna má sjá í myndasafni hér fyrir neðan. 18.4.2010 10:01