Fleiri
Óvissa um kvótann vegna skötusels 24.3.2010 04:15 Kom úr tjörn við nálægt hús Eigandi styrju, sem fannst spriklandi í móa við Stekkjarhvamm í Hafnarfirði á dögunum og Fréttablaðið sagði frá, hefur gefið sig fram. 24.3.2010 04:15 Ræktun, sverð og haglabyssa Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í Rimahverfi í Grafarvogi undir morgun aðfaranótt laugardagsins. 24.3.2010 04:00 Klám einkennist af ofbeldi Hinir ýmsir þættir klámmenningar og áhrifa þess í samfélaginu verða ræddir á vegum nokkurra sviða innan Háskóla Íslands á opnum umræðufundi í hádeginu í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands í dag. 24.3.2010 03:45 Sjá næstu 50 fréttir
Minna svifryk en áætlað var Styrkur svifryks fór aðeins yfir heilsuverndarmörk við mælistöð umhverfis- og samgöngusviðs við Grensásveg í Reykjavík í um eina og hálfa klukkustund í fyrradag en var undir mörkum í gær. Heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra og hefur styrkurinn farið ellefu sinnum yfir mörkin á árinu. 25.3.2010 04:15
Gos ekki hafið á nýjum stað - mikil gufa orsakar bjarma Fjölmargir hafa haft samband við fréttastofu í kvöld og talið að eldgos væri hafið á nýjum stað í grennd við gossprunguna á Fimmvörðuhálsi. Sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir svo ekki vera. 24.3.2010 22:02
Meirihlutinn í Vesturbyggð sprunginn Meirihlutinn í Vesturbyggð er sprunginn eftir að bæjarfulltrúinn Jón Hákon Ágústsson sagði sig úr úr Bæjarmálafélaginu Samstöðu sem hefur haft meirihluta í bæjarstjórn undanfarin fjögur ár. Samtaða fékk fjóra bæjarfulltrúa kjörna í kosningunum 2006 og Sjálfstæðisflokkurinn þrjá. Þetta gerir Jón Hákon vegna óleysanlegs ágreinings varðandi umsagnir í laxeldismálum í Arnarfirði. 24.3.2010 20:59
Hraunfossinn og gosið á Fimmvörðuhálsi - myndir Í dag voru teknar fyrstur myndirnar úr þyrlu af jarðeldinum á Fimmvörðuhálsi, en það var fyrst í dag sem veður leyfði þyrluflug svo nærri gígunum. Líkt áður hefur komið fram sést nú glóandi hraunfoss á eldsstöðvunum. Fossinn er sennilega hátt í 200 metra hár. Meðfylgjandi myndir tók Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins. Myndskeið frá þyrlufluginu er hægt að sjá með þessari frétt. 24.3.2010 20:30
Hraunfossinn stórkostlegt náttúrufyrirbæri Stórfenglegt náttúrufyrirbæri, glóandi hraunfoss, um tvöhundruð metra hár, sést nú á eldsstöðvunum í Eyjafjallajökli þegar hrauneðjan steypist niður í hið hrikalega Hrunagil við Heljarkamb. 24.3.2010 18:45
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Árborg samþykktur Framboðslisti Samfylkingarinnar í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í voru var samþykktur á aðalfundi félagsins í kvöld. Röð efstu manna er í samræði við niðurstöður í prófkjöri flokksins sem fór fram í febrúar. Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri, leiðir listann. 24.3.2010 22:37
Róbert leiðir A-listann í Hveragerði Róbert Hlöðversson, sviðsstjóri og bæjarfulltrúi, leiðir A-listann í bæjarstjórnarkosningunum í Hveragerði í vor. A-listinn er sameinilegt framboð Framsóknarflokks, Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. VG var ekki hluti af framboðinu fyrir fjórum árum en A-listinn fékk þá þrjá bæjarfulltrúa kjörna og Sjálfstæðisflokkurinn fjóra. 24.3.2010 20:50
Almenningi áfram bannað að nálgast eldstöðina Eyjafjallajökull er enn að þenjast út og meðan svo er verður fólki áfram bannað að nálgast gosstöðvarnar, segir sýslumaður Rangæinga og yfirmaður almannavarna á svæðinu. Yfirvöld eru þó að skoða hvort unnt sé að veita almenningi betri aðgang að svæðinu. 24.3.2010 19:33
Hrauneðjan stefnir hratt niður í Þórsmörk Ein helsta náttúruparadís landsins, Þórsmörk, gæti tekið breytingum á næstu dögum. Hrauneðjan stefnir nú hratt þangað og áætlar Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur að með sama hraða geti hún náð þangað á einum til tveimur dögum. 24.3.2010 19:18
Fáir fá kvótann Ætla má að aðeins um 70 einstaklingar ráði yfir 70 prósentum af heildarkvótanum á Íslandsmiðum. LÍÚ telur að útvegurinn þurfi að fá 100 milljarða afskrifaða til að geta gengið. Einungis þorskkvóti sem fyrirtæki þessa fólks fá úthlutað er yfir 165 milljarða króna virði. 24.3.2010 19:12
Fengu styrk fyrir dugnað og elju í námi Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, úthlutaði níu námsstyrkjum úr Guðrúnarsjóði í Höfða í dag. Sjóðurinn var stofnaður með samþykkt borgarráðs 3. mars 2005 í samstarfi við Eflingu - stéttarfélag. 24.3.2010 18:56
Paul Rames og fjölskylda fengu dvalarleyfi Paul Ramses og hans fjölskylda voru himinlifandi yfir því að fá loks afgreiðslu sinna mála eftir tæplega tveggja ára bið en Útlendingastofnun veitti þeim í dag dvalarleyfi á grundvelli verndar gegn ofsóknum í heimalandi þeirra. Þau segja þungu fargi af sér létt við niðurstöðuna og eru þakklát fyrir að geta nú lifað eðlilegu lífi á Íslandi. 24.3.2010 18:52
Þrýstingurinn hefur ekki minnkað - enn hætta á að gosið fari undir jökul Almannavarnanefnd Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu fundaði í dag með almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og vísindamönnum um eldgosið á Fimmvörðuhálsi. 24.3.2010 18:12
ASÍ: Alþingi verður að ljúka Icesave deilunni Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahags- og atvinnumála. Hún segir brýnt að ljúka Icesave deilunni sem fyrst. Auk þess verði stjórnvöld að gera átak í mannaflsfrekum framkvæmdum. 24.3.2010 17:57
Þarf að borga þrjár milljónir vegna ærumeiðandi ummæla Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í dag Guðríði Haraldsdóttur, ritstjóra Vikunnar, fyrir ærumeiðandi ummæli og brot gegn friðhelgi einkalífs gagnvart feðginum í umfjöllun blaðsins í júlí í síðasta ári. Þá var stúlkan 13 ára gömul. Guðríði var gert að greiða alls 2,8 milljónir auk vaxta og dráttarvaxta. 24.3.2010 17:26
Framsóknarmenn vilja endurskoða samstarfið við AGS Framsóknarflokkurinn vill endurskoða samstarfsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í ljósi atburða og breyttra aðstæðna frá því að upphaflegur samningur var gerður við sjóðinn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tillögu um þjóðarsátt í tíu liðum sem flokkurinn hefur lagt fram. 24.3.2010 17:13
Þeir sem frystu lánin verða af vaxtabótum Þeir einstaklingar sem hafa fryst íbúðalánin hjá Arion banka vegna erfiðrar fjárhagsstöðu fá engar vaxtabætur frá ríkinu í ár þar sem bankinn reiknar ekki og gefur ekki upp áfallna vexti af láninu. Enn er beðið eftir svari frá Landsbankanum hvort slíkt hið sama sé uppi á teningnum. 24.3.2010 16:18
Talsmaður neytenda: Hæpið að niðurfærsla skulda séu skattskyldar Að áliti talsmanns neytenda er hæpið að halda því fram að niðurfærsla skulda neytenda sé skattskyld samkvæmt gildandi lögum. Skattlagning færi því í bága við stjórnarskrá þar sem ekki sé um að ræða ívilnun eða „eignaauka“ - heldur staðfestingu á rétti neytenda." 24.3.2010 16:02
20 kannabisplöntur fundust í fjölbýlishúsi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Grafarholti eftir hádegi í gær. 24.3.2010 15:51
Almannatenglar kaupa Útiveru Almannatengslafyrirtækið Athygli hefur fest kaup á tímaritinu Útiveru en fyrsta blaðið eftir nokkurt hlé kemur út í lok apríl. Samkvæmt tilkynningu er ætlunin að blása nýju lífi í tímaritið og verða fjögur tölublöð gefin út á þessu ári og þeim fjölgað á næsta ári ef vel gengur. 24.3.2010 14:58
Bréfberi tapaði skaðabótamáli eftir hundsbit Tæplega fimmtugur bréfberi, sem var bitinn af hundinum Skugga við skyldustörf, tapaði máli í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem hann krafðist þess að eigendur Skugga væru gerðir skaðabótaskyldir vegna árásar hundsins. Þá stefndi hann einnig tryggingafélagi eigendanna. 24.3.2010 13:58
Þingmenn skoða gosið Þingmenn Suðurkjördæmis eru að fara upp á Fimmvörðuháls að skoða eldgosið í Eyjafjallajökli. Fjölmargir hafa farið þangað í dag en Landsbjörg býst við því að margir muni fara að skoða gosið næstu daga og um helgina. 24.3.2010 13:45
Hrikalegur hraunfoss á Fimmvörðuhálsi Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar Kristján Már Unnarsson fréttamaður Stöðvar 2 og Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins flugu með þyrlu að eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi í morgun. Anton Brink tók myndirnar en á þeim má meðal annars sjá stórfenglegan hraunfoss sem myndast hefur. 24.3.2010 12:32
Kveikt í ferðaklósettum við Esjuna Kveikt var í ferðaklósettum við Esjuna í gærkvöldi en eldurinn var næstum slokknaður þegar slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu kom á vettvang. 24.3.2010 12:19
Óljóst hvort ráðherra sé bundinn af nefndinni Formaður nefndar um erlenda fjárfestingu segir óljóst hvort viðskiptaráðherra sé bundinn af áliti nefndarinnar. Meirihluti nefndarinnar samþykkti á mánudag, eftir margra mánaða yfirlegu, að fallast á lögmæti kaupa kanadíska félagsins Magma Energy á hlutum í HS orku. Minnihluti nefndarinnar vill að dómstólar skeri úr um lögmæti kaupanna. 24.3.2010 11:49
Nox Medical fær Nýsköpunarverðlaunin í ár Nox Medical hlaut Nýsköpunarverðlaun Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs árið 2010 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í morgun. Fyrirtækið var stofnað í júní 2006 með það að markmiði að hanna svefngreiningarbúnað sem hentaði jafnt börnum sem fullorðnum, en á þeim tíma var ekki til búnaður sem sérstaklega hafði verið hannaður með börn í huga. 24.3.2010 11:30
Hvalveiðar í nálægð við hvalaskoðun hafa neikvæð áhrif á ferðaþjónustu Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) hefur falið stjórn SAF að ítreka fyrri ályktanir aðalfunda um skaðsemi hvalveiða. 24.3.2010 11:28
Rúmlega 57 þúsund hafa skilað framtali Ríflega 57 þúsund manns höfðu skilað inn skattframtali sínu í morgun. Langflestir eða um 55 þúsund skiluðu framtalinu rafrænt á vef ríkisskattstjóra. 24.3.2010 10:55
Óvissa um makrílveiðarnar Mikil óvissa ríkir nú um tilhögun makrílveiða í sumar, eftir að skötuselslögin svonefndu voru samþykkt á Alþingi. Veiðiheimildum á makríl hefur ekki verið úthlutað á einstök skip, eins á við um aðrar tegundir, heldur hafa öll skip mátt veiða úr einum potti, eða kvóta, þar til hámarkstölunni er náð. 24.3.2010 08:20
Óvenju mikið um sjúkraflutninga Slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu sinntu rúmlega sjötíu sjúkraflutningum í gær, sem nálgast að vera met á einum degi. Í fyrradag var líka óvenju mikið um flutninga, eða 68, en á meðal degi flytja sjúkraflutningamenn 40 til 45 manns. 24.3.2010 08:05
Kveikt í kömrum við Esjurætur Kveikt var í tveimur útikömrum á bílastæðinu við Esjurætur í gærkvöldi og eyðilögðust þeir. Þegar slökkvilið kom á vettvang voru þeir alelda. Um svipað leyti var tilkynnt um sinueld í Mosfellsbæ, en hann var slökktur á skammri stundu. 24.3.2010 08:00
Þvottavélaþjófar reyndu að stinga lögguna af Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo karlmenn í nótt eftir að þeir höfðu stolið þvottavél úr sameiginlegu vaskahúsi í fjölbýlishúsi í Breiðholti og voru komnir með hana út. 24.3.2010 07:59
Vísindamenn komnir að eldstöðinni Vísindamenn komust fyrir stundu upp að gosinu á Fimmvörðuhálsi og eru nú að taka sýni. Óróinn undir gosstöðvunum var heldur meiri í nótt en í gærdag þannig að gosvirknin er ekki að minnka. 24.3.2010 07:56
Kanna svigrúm til niðurfærslu skulda Efnahags- og skattanefnd mun óska upplýsinga frá bönkum um hvert svigrúm fyrir niðurfærslu skulda almennings sé. Hingað til hafa bankarnir neitað að veita þessar upplýsingar og borið við bankaleynd. Nú á að láta reyna á þetta til fulls. 24.3.2010 06:30
Lýsa vantrausti á yfirstjórn lögreglunnar Formaður Lögreglufélags Reykjavíkur, Arinbjörn Snorrason, hefur lýst því yfir að hann muni ekki sitja fleiri fundi með yfirstjórn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eins og hún er skipuð í dag. Þetta kom fram á fjölmennum félagsfundi LR í fyrradag. 24.3.2010 06:00
Vill Hauk í 4 ára fangelsi Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, krefst fjögurra ára fangelsisdóms yfir Hauki Þór Haraldssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Landsbankans, sem ákærður er fyrir að draga sér 118 milljónir. Sækjandi og verjandi fluttu mál sitt fyrir dómi í gær. 24.3.2010 06:00
Engin loforð verið gefin „Það er mikill misskilningur að gefin hafi verið út loforð um að einhverjir tilteknir lögreglumenn myndu halda störfum sínum,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, um ummæli formanns Lögreglufélags Reykjavíkur þess efnis að yfirstjórn lögreglunnar hafi ekki staðið við orð sín hvað þetta atriði varðar. 24.3.2010 06:00
Hurðum og gluggum stolið í tugatali Hátt í fimmtíu útidyrahurðum og gluggum er talið hafa verið stolið úr sex tveggja hæða íbúðum af níu í raðhúsalengju sem Byggingarfélagið Kjölur hefur verið að reisa með hléum við Elliðavað í Norðlingaholti síðastliðin þrjú ár. 24.3.2010 05:45
Vefmyndavélar vakta eldfjallið Fjarskiptafyrirtækið Míla hefur sett upp tvær myndbandstökuvélar í nánd við gossvæðið á Fimmvörðuhálsi og opnað fyrir beina útsendingu í gegnum vefsíðu fyrirtækisins. 24.3.2010 05:00
Íbúar taka lokun mjög illa Allt stefnir í að áfangaheimilinu EKRON í Reykjavík verði lokað um næstu mánaðamót, að sögn Hjalta Kjartanssonar framkvæmdastjóra. Hvorki hafa náðst samningar við ríki né sveitarfélög um áframhaldandi rekstur. 24.3.2010 04:30
Slá ekki af umhverfiskröfum Könnun sem Fréttablaðið birti í gær gefur til kynna að 58 prósent aðspurðra séu andsnúin tilslökun á umhverfiskröfum til að greiða fyrir stóriðjuframkvæmdum. Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins, segir það undarlegt og gefa til kynna að stóriðjufyrirtækin séu að sækjast eftir slíku. 24.3.2010 04:30
Kom úr tjörn við nálægt hús Eigandi styrju, sem fannst spriklandi í móa við Stekkjarhvamm í Hafnarfirði á dögunum og Fréttablaðið sagði frá, hefur gefið sig fram. 24.3.2010 04:15
Ræktun, sverð og haglabyssa Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í Rimahverfi í Grafarvogi undir morgun aðfaranótt laugardagsins. 24.3.2010 04:00
Klám einkennist af ofbeldi Hinir ýmsir þættir klámmenningar og áhrifa þess í samfélaginu verða ræddir á vegum nokkurra sviða innan Háskóla Íslands á opnum umræðufundi í hádeginu í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands í dag. 24.3.2010 03:45