Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ríkisvaldið stendur í veginum „Vestmannaeyjabær hefur fullan vilja og getu til að reka Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Bærinn veitir nú þegar alla félagslega þjónustu og nánast alla öldrunarþjónustu í bæjarfélaginu. 11.2.2010 05:00
Catalina til ríkissaksóknara Rannsókn lögreglu á máli Catalinu Mikue Ncogo er lokið og hefur það verið sent til ríkissaksóknara. Gæsluvarðhald yfir henni var framlengt til 26. febrúar í fyrradag. Hún situr inni til að koma í veg fyrir áframhaldandi brotastarfsemi hennar. Hún er grunuð um aðild að mansali og að hafa haft milligöngu um vændi. 11.2.2010 04:00
Bensínstöð óafgreidd eftir þrjú ár í kerfinu „Þetta eru alveg ótrúleg vinnubrögð. Ég bara botna ekkert í þessu,“ segir Eyjólfur Vilhelmsson, eigandi jarðarinnar Fögrubrekku í Hrútafirði, um áralangar tafir á að sveitarstjórn Bæjarhrepps afgreiði umsókn um heimild til að reisa bensínstöð á landi hans. 11.2.2010 03:30
Fyrsti vinningur fór til Danmerkur og Finnlands Það voru Dani og Finni sem skiptu með sér 1. vinningi í Víkingalottóinu í kvöld. Hvor um sig fékk að andvirði um 264 milljóna íslenskra króna í sinn hlut. 10.2.2010 20:01
Íslendingar viðurkenndu Icesave skuldbindingar í desember 2008 Í drögum að lánasamningum íslenskra stjórnvalda við Breta og Hollendinga frá því 37 dögum áður en ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sprakk, má skilja að Íslendingar hafi gengist við 10.2.2010 18:18
Erkiengillinn mun kæra til dóms- og mannréttindamálaráðuneytisins Leif Ivar Kristiansen mun kæra ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa honum úr landi í gær til dóms- og mannréttindamálaráðuneytisins, samkvæmt heimildum fréttastofu. 10.2.2010 17:41
Bjartsýni um fjármögnun Búðarhálsvirkjunar Hluti jarðvinnu við Búðarhálsvirkjun fer í útboð strax á morgun og kveðst forstjóri Landsvirkjunar bjartsýnn á að unnt verði að bjóða út aðalverkþættina fyrir mitt ár. Fara þarf nýjar leiðir í fjármögnun sem gætu falið í sér tímabundna eignaraðild annarra fjárfesta í virkjuninni. 10.2.2010 18:56
Icelandair velur milli Airbus A320 og Boeing 737-800 Ákvörðun um kaup á nýrri þotutegund fyrir flugflota Icelandair verður tekin fyrir í stjórn félagsins síðar í mánuðinum. Rætt er um kaup á allt að fimm þotum og stendur valið milli tveggja tegunda. 10.2.2010 18:48
Enn skelfur jörð við Eldey Snarpur skjálfti varð við Eldey um klukkan 17:21 í dag. Hann var 3,8 á Richter. Nokkur skjálftavirkni hefur verið þarna á svæðinu að undanförnu, en á mánudagskvöld mældust að minnsta kosti fjórir skjálftar þar yfir 3 stig á Richter. 10.2.2010 18:30
Innflytjendur almennt með jákvæða upplifun af Íslandsdvöl Innflytjendur á Íslandi virðast almennt hafa jákvæða upplifun af því að búa hér á landi þrátt fyrir sumir þeirra hafi upplifað ákveðna erfiðleika við komuna til landsins. Margir þeirra telja sig þó hafa orðið varir við aukna fordóma í þeirra garð á síðastliðnum árum. Þetta kemur fram í skýrslu sem byggir á viðtalsrannsókn sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst stóð fyrir á sumar og haustmánuðum 2009. 10.2.2010 16:41
Bankster og Jöklar á Íslandi fengu bókmenntaverðlaunin Forseti Íslands afhenti í dag Íslensku bókmenntaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Guðmundur Óskarsson hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir bók sína Bankster og Helgi Björnsson hlaut verðlaunin í flokki fræðibóka og bóka almenns efnis fyrir verkið Jöklar á Íslandi. 10.2.2010 16:28
ASÍ: Aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa verið í skötulíki Miðstjórn ASÍ krefst nú þegar aðgerða af hálfu stjórnvalda til að bregðast við greiðsluvanda þeirra heimila sem verst standa. Í ályktun miðstjórnar sem samþykkt var í dag segir að ríkisstjórnin hafi haft heilt ár til að bregðast við fjárhagslegu hruni þúsunda heimila, en að aðgerðir hennar hafi verið í skötulíki. 10.2.2010 15:47
Lagt til að sr. Óskar verði skipaður á Selfossi Valnefnd Selfossprestakalls ákvað á fundi sínum þann 9. febrúar að leggja til að sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson verði skipaður prestur í Selfossprestakalli. Embættið veitist frá 1. mars næstkomandi. 10.2.2010 15:40
Stoppuðu handboltakappa sem var að missa af leik Lögreglan stöðvaði för nítján ára pilts síðdegis í Reykjavík í gær en hann ók greitt og sveigði ótæpilega á milli annara bifreiða að sögn lögreglu. „Ungi maðurinn sagðist vera að fara að keppa í handbolta og því orðið að gefa í en í bílnum voru líka nokkrir félagar hans á svipuðum aldri sem vafalaust áttu líka að taka þátt í leiknum,“ að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. 10.2.2010 15:34
Össur fundaði aftur með Miliband Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í morgun fund með David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, í London. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að Össur hafi farið yfir stöðuna í Icesave, samráð íslensku stjórnmálaflokkanna og hvaða möguleika íslensk stjórnvöld sæu til lausnar á Icesave deilunni. 10.2.2010 14:19
Stendur ekki til að selja tæki HSS Ekki stendur til að selja tæki í eigu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu. Fram kemur í yfirlýsingu sem stjórn Starfsmannafélags Suðurnesja sendi frá sér í morgun að ráðuneytið hyggist afla sér fjár með því að selja hluta af tækjum stofnunarinnar sem einkaðilar hafa gefið á undanförnum árum. 10.2.2010 13:58
Minnt á markmið um hlut kvenna í stjórnum Jafnréttisráð hefur sent frá sér ályktun um hlutdeild kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs þar sem skorað er á Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskipatráð Íslands og Samtök atvinnulífsins að beita áhrifum sínum til þess að ná sem fyrst fram markmiðum sínum um 40% hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja. 10.2.2010 13:35
Jafnt kynjahlutfall í stjórnum fyrirtækja mikilvægt Það er líklegra til árangurs að hafa jafnt hlutfall kynja í stjórnun fyrirtækja og hefur auk þess jákvæð árangur á skilvirkni og vinnulag. Þetta segir Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjárfestingarfyrirtækisins Auður Capital. 10.2.2010 12:37
Segir löggjöf um spilavíti „forkastanlega hugsun“ Setja þarf sérstaka löggjöf um rekstur spilavíta ef áform Icelandair og Arnars og Bjarka Gunnlaugssona eiga að verða að veruleika. Stjórnarþingmaður segir landið hafa verið eitt stórt spilavíti og segist aldrei ætla að styðja slíka löggjöf. 10.2.2010 12:30
Aðalmeðferð lokið í mansalsmálinu Aðalmeðferð í mansalsmálinu svokallaða lauk í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Vænta má dóms innan fjögurra vikna. Þinghald í málinu er lokað fjölmiðlum og almenningi. Í málinu eru sex menn ákærðir. Fimm Litháar og einn Íslendingur. 10.2.2010 12:07
Nauðsynlegt að breyta reglum hjá VG Formaður kjörstjórnar Vinstri grænna segir nauðsynlegt að breyta kosningareglum flokksins í ljósi þeirrar kvörtunar sem barst eftir forval Vinstri grænna í Reykjavík um síðustu helgi. 10.2.2010 12:04
Indriði svarar fullum hálsi Indriði H. Þorláksson aðstoðarmaður fjármálaráðherra og einn samningamanna í Icesave samninganefnd Svavars Gestssonar, rífur niður grein Kristrúnar Heimisdóttur fyrrverandi aðstoðarmannas utanríkisráðherra um Icesave málið í Fréttablaðinu í dag. Hann segir samninga um Icesave hafa legið fyrir í tíð fyrri ríkisstjórnar, þar sem Ísland hafi gengist við lágmarksskuldbindingum vegna Icesave innistæðna. 10.2.2010 11:57
Sonur Sivjar í framboði Húnbogi Þorsteinsson, 25 ára gamall sonur Sivjar Friðleifsdóttur alþingismanns og fyrrverandi ráðherra, gefur kost á sér í prófkjöri Neslistans vegna komandi bæjarstjórnarkosninga á Seltjarnarnesi. Húnbogi sækist eftir 5. til 6. sæti. Móðir hans var 28 ára gömul þegar hún var fyrst kjörin í bæjarstjórn Seltjarnarness. 10.2.2010 11:37
Íslensku bókmenntaverðlaunin afhent í dag Forseti Íslands mun í dag, 10. febrúar, afhenda Íslensku bókmenntaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Athöfnin hefst klukkan fjögur. 10.2.2010 11:15
Guðrún áfram oddviti VG í Hafnarfirði Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, kennari og bæjarfulltrúi, mun líkt og fyrir fjórum leiða framboðslista Vinstri grænna í Hafnarfirði í komandi kosningum. Félagsfundur VG samþykkti fyrr í vikunni tillögu uppstillingarnefndar um röð ellefu efstu á lista flokksins. 10.2.2010 11:13
Ríkið auki hagkvæmni innkaupa Ríkisendurskoðun telur að ráðuneytin þurfi að gefa innkaupamálum aukið vægi í starfsemi sinni, setja sér tímasett og mælanleg markmið á þessu sviði og fylgjast með árangri undirstofnana sinna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu stofnunarinnar um innkaupastefnu ráðuneytanna. Þá er bent á að brýnt sé að innkaup séu merkt sérstaklega í bókhaldi ríkisins eftir innkaupaaðferð til að hægt sé að meta ávinning mismunandi aðferða. Þá þurfi fjármálaráðherra að setja samræmdar reglur um hvenær stofnunum sé heimilt að sneiða hjá rammasamningum. Í skýrslunni er fjármálaráðherra hvattur til að setja samræmdar siðareglur um opinber innkaup sem nái til allra ráðuneyta og stofnana. 10.2.2010 10:49
Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun boðnar út Landsvirkjun hefur ákveðið að óska eftir tilboðum í nokkra verkhluta vegna upphafsframkvæmda við Búðarhálsvirkjun: vinnu við gröft jarðganga, skurða og vatnsþróar og tilheyrandi styrkingu með sprautusteypu. Takist samningar um orkusölu og fjármögnum virkjunarinnar verða helstu áfangar framkvæmdarinnar boðnir út síðar á þessu ári, að fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun. 10.2.2010 10:44
Einelti í garð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja linni Rekstur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er ríkisvaldinu gjörsamlega ofviða og hringlandaháttur stjórnvalda dragi máttinn úr starfsfólki stofnunarinnar, að mati stjórnar Starfsmannafélags Suðurnesja. Stjórnin telur að tími sé kominn til að eineldi stjórnvalda í garð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja linni. Hátt í 50 félagsmenn félagsins starfa á heilbrigðisstofnunni. 10.2.2010 10:06
Samfylkingin rannsaki þátt flokksins í bankahruninu Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, segir að kannski sé kominn tími til að Samfylkingin rannsaki þátt flokksins í bankahruninu í stað þess að bíða skjálfandi eftir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. 10.2.2010 09:18
InDefence hvetur Íslendinga til að hafna Icesavelögunum InDefence hópurinn hvetur Íslendinga til að hafna Icesavelögunum í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Hópurinn boðar til blaðamannafundar í dag og markar sá fundur upphafið að starfi hanss í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um nýju Icesavelögin sem Alþingi samþykkti í lok síðasta árs og forsetinn hafnaði að staðfesta. 10.2.2010 08:55
Páll Valur efstur í Grindavík Páll Valur Björnsson sigraði í forvali Samfylkingarinnar í Grindavík sem fór fram í gær. Samfylkingin fékk tvo bæjarfulltrúa kjörna í kosningunum fyrir fjórum árum en þeir sóttust ekki eftir endurkjöri. 10.2.2010 08:16
Ólafur vill leiða VG áfram í Kópvogi Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi og öldrunarlæknir, býður sig fram í fyrsta sæti á lista VG í Kópavogi í forvali flokksins þann 27. Febrúar. Ólafur hefur verið bæjarfulltrúi VG í Kópavogi frá kosningunum 2006 og varaþingmaður flokksins í Suðvesturkjördæmi frá 2009. Hann er uppalinn í Kópavogi, og hefur búið þar stærstan hluta ævinnar. Helstu baráttumál Ólafs eru fjölskyldu- og velferðarmál, málefni aldraðra og gegnsæ stjórnsýsla, að fram kemur í tilkynningu. 10.2.2010 07:43
Fluttur á slysadeild með þyrlu Ökumaður bíls slasaðist alvarlega þegar bíllinn valt út af veginum i Refasveit, rétt norðan við Blönduós um miðnætti. Kallað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem flutti manninn á slysadeild Borgarspítalans, þar sem læknar tóku á móti honum. Hann mun ekki vera í lífshættu. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir. 10.2.2010 07:18
Skáli brann til kaldra kola Skáli við Hafravatn, í eigu Skógræktarfélags í Mosfellsbæjar, brann til kaldra kola í nótt og leikur grunur á að kveikt hafi verið í honum. Slökkvililiði barst tilkynning um eldinn um klukkan þrjú í nótt og þegar það kom á vettvang var skálinn alelda og að hruni kominn. Eldsupptök eru ókunn, en þar sem ekkert rafmagn er tengt í skálann leikur grunur á íkveikju. 10.2.2010 07:12
Stöðvuðu 15 ára stúlku með naglamottu Ofsaakstri fimmtán ára stúlku á stolnum bíl lauk í nótt með því að bíllinn nam staðar eftir að það sprakk samstundis á þremur hjólbörðum, þegar stúlkan ók bílnum yfir svonefnda naglamottu, sem lögreglan á Selfossi hafði lagt á þjóðveginn við hringtorgið í Hveragerði. Stúlkuna og vinkonu hennar sakaði ekki. 10.2.2010 07:05
Fjöldi tilkynninga vegna aukaverkana Tilkynningar um aukaverkanir lyfja voru meira en tvöfalt fleiri á árinu 2009 en árið 2008, samkvæmt nýbirtum tölum Lyfjastofnunar. Í fyrra bárust 203 tilkynningar um aukaverkanir en 92 á árinu 2008. 10.2.2010 06:45
Ræddi við erlendu ráðherrana í gær „Ég tel við séum í aðalatriðum búin að ná utan um þetta af okkar hálfu,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um fund forsvarsmanna stjórnar og stjórnarandstöðu um Icesave-málið. 10.2.2010 06:00
Hafa leiðrétt kynjahlutfallið Sjö konur og átta karlar verða í fimmtán manna stjórn VR eftir kosningu trúnaðarráðs og trúnaðarmanna, sem lauk í gær. 10.2.2010 06:00
Fær ekki að gefa einkaskýrslu Heimildarmaður fréttastofu Stöðvar 2 fær ekki að gefa skýrslu einslega fyrir dómara í meiðyrðamáli fjögurra útrásarvíkinga á hendur starfsmönnum fréttastofunnar. Héraðsdómur kvað upp úrskurð þess efnis í gær. 10.2.2010 06:00
Rafræn skráning brýtur blað Evrópusambandið (ESB) hefur tekið gilda rafræna hestapassa sem Bændasamtök Íslands hafa komið á fót í samstarfi við Alþjóðasamtök íslenska hestsins. Skráning gagnabankans er á www.worldfengur.com, eða WF. 10.2.2010 05:00
Trefillinn jafnlangur jarðgöngunum Á Siglufirði er í gangi óvenjulegt prjónaverkefni en listakonan Fríða Björk Gylfadóttir stendur fyrir því að prjónaður sé 17 kílómetra langur trefill, sem ná á frá miðbæ Siglufjarðar yfir í miðbæ Ólafsfjarðar, og er þá jafnlangur jarðgöngum þeim sem þar munu koma á milli. 10.2.2010 05:00
Ekki aukning í fyrsta sinn Starfsemi Landspítala jókst ekki á síðasta ári og er það í fyrsta sinn frá sameiningu árið 2000. Þetta kemur fram í nýjum starfsemisupplýsingum LSH sem birtast í heild á næstu dögum. 10.2.2010 05:00
Sveitarfélögum settar fjármálareglur Unnið er að endurskoðun laga og reglna um fjármál sveitarfélaga í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Stefnt er að því að setja sveitarfélögum fjármálareglur þar sem fram koma viðmiðanir um leyfilega skuldsetningu. 10.2.2010 04:00
Borguðu 894 milljónir fyrir innlenda ráðgjöf árið 2009 Heildarkostnaður skilanefndar Kaupþings vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu á síðasta ári nemur 3.225 milljónum króna. 10.2.2010 04:00
54% hækkun á sorphirðugjaldi í Árborg Árborg, Akranes og Akureyri hækka sorphirðugjald mest allra sveitarfélaga, samkvæmt könnun sem ASÍ gerði. 10.2.2010 03:15