Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ljós á mótum Njarðargötu og Hringbrautar endurbætt Í fyrramálið, miðvikudaginn 10. febrúar, verður stýribúnaður umferðarljósa á gatnamótum Njarðargötu og Hringbrautar uppfærður. Vegna tengivinnu verða ljósin gerð óvirk tímabundið frá kl. 09:30, en áætlað er að verkið taki um þrjár klukkustundir. 9.2.2010 15:55
Sjúkrabílstjóri sektaður fyrir brot á umferðarlögum Héraðsdómur sektaði í dag ökumann sjúkrabíls fyrir brot á umferðarlögum þegar hann ók í forgangsakstri gegn rauðu ljósi með þeim afleiðingum að annar bíll ók á sjúkrabílinn sem valt. Áreksturinn varð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu en sjúkrabíllinn var á leið í útkall á Hagamel og var í forgangsakstri vestur Hringbraut. 9.2.2010 15:24
Tveggja ára fangelsi fyrir íkveikju á Leifsgötu Karlmaður var í dag dæmdur í tveggja ára óskilorðisbundið fangelsi fyrir að leggja eld að bíl á Leifsgötu í Reykjavík í október 2008. Eldurinn breiddist út með þeim afleiðingum auk bifreiðin brann og önnur til sem stóð við hlið hennar. Dómarinn kemst að þeirri niðurstöðu að með íkveikjunni hafi maðurinn skapað almannahættu en auk tjónsins á bílunum urðu sótskemmdir á þriðja bílnum auk þess að sprungur komu í rúður hússins sem bílarnir stóðu við. 9.2.2010 14:37
Eyrarrósin afhent á Bessastöðum í næstu viku Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum mánudaginn 15. febrúar kl. 16.00 og er það í sjötta sinn sem viðurkenningin er veitt. Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd úr hópi umsækjenda: tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra, Eiríksstaðir í Haukadal og Skjaldborg - heimildarmyndahátíð á Patreksfirði.E 9.2.2010 13:09
Hafnar ásökunum um okurlánastarfsemi Árni Páll Árnason gagnrýndi harðlega starfsemi fyrirtækja sem veita smálán gegnum netið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Hann sagði að lán til ungmenna á þúsund prósenta vöxtum væru siðlaus sjóræningjastarfsemi. Jafnframt hyggst ráðherrann beita sér fyrir lagasetningu til að takmarka starfsemi fyrirtækja eins og Kredia. Leifur A. Haraldsson, framkvæmdastjóri Kredia, segist ekki geta tekið undir orð ráðherrans. 9.2.2010 12:30
Ógn við samfélagið Samstarf vélhjólaklúbbsins MC Iceland, áður Fáfnis og erlendra deilda Hells Angels glæpasamtakanna sem og fyrirhuguð innganga íslenska hópsins í samtökin skapar hættu á aukinni skipulagðri glæpastarfsemi á Íslandi og felur því í sér ógn við samfélagið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni vegna ákvörðunar yfirvalda að senda Leif Ivar Kristanssen, foringja Hells Angels samtakanna í Noregi, sem var stöðvaður við komuna til landsins í gær aftur til Noregs með flugi í morgun. 9.2.2010 12:26
Sumarlokanir leikskóla lengja biðlista Fulltrúi Samfylkingar í leikskólaráði Reykjavíkurborgar furðar sig á að meirihlutinn hyggist lengja biðlista eftir plássi enn frekar með því að spara sér að ráða afleysingafólk í sumar. Hún efast um að sparnaðurinn skili sér. 9.2.2010 12:25
Andmælabréfin hafa verið send út Rannsóknarnefnd Alþingis hefur sent út andmælabréf til þeirra einstaklinga í stjórnkerfinu sem nefndin telur að hafi hugsanlega sýnt vanrækslu í starfi í aðdraganda bankahrunsins. 9.2.2010 12:01
Telur Svandísi brjóta gegn stjórnsýslulögum Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hafi brotið gegn stjórnsýslulögum þegar hún hafnaði skipulagi Þjórsárvirkjana. Dæmi eru um að sveitarfélög séu með ákvæði um gjaldtöku fyrir aðalskipulag í sérstökum samþykktum, sem ráðherra hefur staðfest. 9.2.2010 12:00
Selja fasteignir án réttinda Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, segir allt of algengt að sölumenn komi fram sem fasteignasalar án þess að vera það. Slíkt sé grafalvarlegt líkt og nýlegt dæmi frá Danmörku sýni þegar rúmlega 70 sölumenn á fasteignasölum voru kærðir til lögreglu af eftirlitsaðilum fyrir að sigla undir fölsku flaggi. 9.2.2010 11:58
Enn fundað um Icesave Nú stendur yfir fundur stjórnar og stjórnarandstöðu um Icesave, í fjármálaráðuneytinu. Rætt er við erlenda ráðgjafa, þar á meðal Bandaríkjamanninn Lee Buchheit sem fenginn hefur verið Íslendingum til aðstoðar í málinu. 9.2.2010 11:17
Umboðsmaður ætlar að fylgjast með kynningarefni Icesave-kosninga Umboðsmaður Alþingis ætlar ekki að hefja sérstaka athugun á því hvort kynningarefni sem gert er af stjórnvöldum í tengslum við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu í Icesave-málinu sé í samræmi við réttmætisreglu og að þar sé gætt að því að öll framsetning sé eins hlutlæg og kostur er. Umboðsmaður mun hins vegar fylgjast með því áð næstu dögum og vikum hvernig kynningarstarfsemi stjórnvalda verði háttað í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. 9.2.2010 10:47
Steingrímur Hermannsson jarðsunginn í dag Útför Steingríms Hermannssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, fer fram á í dag klukkan tvö frá Dómkirkjunni í Reykjavík. 9.2.2010 10:19
Mótmæla bílalánum Íslandsbanka Samtökin Nýtt Ísland boða til mótmæla fyrir utan höfuðstöðvar Íslandsbanka við Kirkjusand í hádeginu vegna bílalána bankans. 9.2.2010 10:17
Norskur stjörnulögfræðingur í mál við Ísland Norski lögfræðingurinn Morten Furuholmen hefur í nógu að snúast. Hann er nú á Íslandi til að undirbúa málshöfðun gegn íslenskum stjórnvöldum fyrir að neita norskum Vítisenglum um landgöngu. 9.2.2010 10:12
Jarðskjálftar á Reykjaneshrygg Jarðskjálftahryna hófst á Reykjaneshrygg í gærkvöldi með að minnstakosti fimm skjálftum að styrkleika yfir þremur á Richter. Sá snarpasti mældist 3,9. Töluverð virkni hefur verið á svæðinu síðan og hafa nokkrir skjálftar mælst tæplega þrír á Richter í nótt. Upptök skjálftanna eru á tæplega tíu kílómetra dýpi. 9.2.2010 07:59
Kveikt í ruslagámi við Skipholt Eldur var kveiktur í ruslagámi við Skipholt í Reykjavík í nótt. Töluverður eldur var í gámnum þegar slökkvilið kom á vettvang, en hann stóð ekki hættulega nálægt byggingum við götuna. Þrátt fyrir að eldurinn hafi verið slökktur á skammri stundu, skemmdist gámurinn talsvert. Brennuvargurinn er ófundinn. 9.2.2010 07:56
Þungum áhyggjum lýst á fjölmennum fundi á Eskifirði Þungum áhyggjum var lýst vegna fyrirætlana stjórnvalda um að fyrna núgildandi kvótakerfi, á fjölmennum fundi á Eskifirði í gærkvöldi. 9.2.2010 07:54
Fáein loðnuskip að veiðum Fáein íslensk loðnuskip eru að veiðum út af ósum Rangánna, á milli lands og Vestmannaeyja, en síðasta norska loðnuskipið hélt heimleiðis í gær eftir löndun á Fáskrúðsfirði. 9.2.2010 07:51
Biðlistar lengjast að óbreyttu Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fulltrúi í leikskólaráði, telur víst að biðlistar eftir leikskólavist hjá Reykjavíkurborg muni lengjast mikið á næstu mánuðum vegna þeirrar ákvörðunar að breyta 9.2.2010 06:45
Leiðtogi norskra Vítisengla handtekinn í Leifsstöð Leiðtogi norskra Vítisengla var handtekinn í Leifsstöð við komuna til landsins í gær. Hann verður líklegast sendur aftur til Noregs nú á áttunda tímanum. 9.2.2010 06:30
Er sáttur eftir krefjandi ár „Staðan er mjög góð og mun aðeins batna á næstunni,“ segir Theo Hoen, forstjóri Marel. Hann bætir við að alþjóðlega fjármálakreppan hafi gert flestum fyrirtækjum erfitt fyrir á síðasta ári. Geti Marel vel við unað. „Ég er sáttur,“ segir hann. 9.2.2010 06:00
Óttast verðfall verði jörðin Nauteyri seld Nokkur óánægja mun nú vera meðal landeigenda í innanverðu Ísfjarðardjúpi með að sveitarstjórn Strandabyggðar virti viðlits 15 milljóna króna tilboð Hraðfrystihússins Gunnvarar í jörðina Nauteyri á Langadalsströnd með því að ákveða að gera fyrirtækinu gagntilboð. 9.2.2010 06:00
Vonast eftir 140 listamönnum „Íbúum Skagastrandar fjölgaði um 21 prósent á síðasta ári miðað við þá 108 listamenn sem bjuggu í bænum á vegum Ness listamiðstöðvar. Miklu munar um þá 173 listamenn sem til Skagastrandar hafa komið frá upphafi,“ segir á skagastrond.is. 9.2.2010 06:00
Stofna samtök Evrópusinna Stofnfundur nýrra samtaka Evrópusinnaðra sjálfstæðismanna verður haldinn í Þjóðmenningarhúsinu á föstudag. Samtökin bera nafnið Sjálfstæðir Evrópumenn. 9.2.2010 06:00
Flokkarnir hafa fengið 130 milljónir í styrki frá borginni Styrkir Reykjavíkurborgar til stjórnmálaflokkanna, sem eiga kjörna fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur, nema samtals 129,5 milljónum króna á árunum 2007-2010. 9.2.2010 05:00
Sveitarfélögin ráða við flutning stofnana Flutningur á rekstri heilbrigðisstofnana frá ríki til sveitarfélaga er að mati forsvarsmanna sveitarfélaganna og forstjóra heilbrigðisstofnana vel gerlegur og jafnvel til bóta. Hins vegar virðist þessi hugmynd ekki hafa verið rædd af alvöru víðar en á Suðurnesjum. 9.2.2010 05:00
Ísland með 93 af 100 stigum Ísland er í fararbroddi í mengunarstýringu og nýtingu náttúruauðlinda og því efst landa á lista yfir góða frammistöðu í umhverfismálum, segir í skýrslu sem bandarísku háskólarnir Yale og Columbia hafa nýverið sent frá sér og gefin er út á tveggja ára fresti. 9.2.2010 05:00
Útboð á mötuneyti Landspítala ógilt Bjóða þarf aftur út rekstur á mötuneyti Landspítalans segir kærunefnd útboðsmála sem kveður Ríkiskaup hafa brotið á Sláturfélagi Suðurlands með því að vísa frá tilboði fyrirtækisins í útboði í fyrra. 9.2.2010 04:00
Skutlar fólkinu heim í kojuna „Þetta er nú aðallega vinna um helgar,“ segir Jóhann Unnar Guðmundsson, sem fengið hefur jákvæða umsögn hreppsnefndar Hrunamannahrepps um starfsemi leigubílaþjónustu í hreppnum. 9.2.2010 04:00
Nýstárleg leið til að fá karla á fund Fundur Ódýrara er fyrir karl og konu að mæta saman á morgunverðarfundinn Fjölbreytni í forystu en fyrir einstakling að skrá sig til leiks. Á fundinum verður greint frá leiðum sem viðskiptalífið hyggst fara til að fjölga konum í forystusveit atvinnulífsins auk þess sem nýjar tölur Creditinfo um kynjahlutföll í atvinnulífinu verða birtar. 9.2.2010 04:00
Vegurinn liggi um Varmahlíð Skipulagsnefnd Skagafjarðar er andvíg áformuðum flutningi hringvegarins þannig að hann liggi ekki lengur um Varmahlíð heldur frá Arnarstapa að Sólheimagerði. 9.2.2010 03:45
SÁÁ er of stór biti fyrir okkur „Auðvitað eru það vonbrigði að þeir skuli ekki finna aðrar leiðir til að fást við sinn niðurskurð,“ segir Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri, um þá ákvörðun SÁÁ að loka göngudeild samtakanna á Akureyri í vor. 9.2.2010 03:30
Kosningin í samræmi við reglur „Niðurstaðan er sú að þessi kosning hafi verið í samræmi við reglur. Úrslitin standa því óbreytt,“ segir Stefán Pálsson, formaður kjörnefndar VG í Reykjavík. Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi og frambjóðandi í prófkjöri VG fyrir sveitastjórnarkosningarnar, sem fram fóru í gær kærði 8.2.2010 23:28
Jarðkjálftar við Eldey Hrina jarðskjálfta hefur fundist við Eldey á Reykjaneshrygg í kvöld. Stærsti skjálftinn var um 3,9 á Richter en hann fannst þegar klukkan var átta mínútur gengin í ellefu. Að minnsta kosti fjórir aðrir minni skjálftar hafa mælst í kvöld. 8.2.2010 22:57
Viltu kaupa flottasta símanúmer í heimi? Símafyrirtækið Nova fór um helgina af stað með uppboð á símanúmerinu 777 7777, sem stjórnendur fyrirtækisins telja að sé flottasta símanúmer í heimi. Lágmarksboð í númerið var 10 þúsund krónur en hæsta boð stendur nú í 112 þúsund krónum. 8.2.2010 20:41
Möguleikar Húsavíkur aukast Ákvörðun umhverfisráðherra að stöðva Þjórsárvirkjanir styrkir stöðu Norðurlands í samkeppni um iðnaðaruppbyggingu og gæti dregið úr líkum á því að álver rísi við Húsavík. 8.2.2010 18:37
Segir smálán „siðlausa sjóræningjastarfsemi“ Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, hyggst beita sér fyrir lagasetningu sem kemur böndum á starfsemi fyrirtækja sem veita smálán. Hann segir lánveitingar til ungmenna með mörg þúsund prósenta vöxtum siðlausa sjóræningjastarfsemi. 8.2.2010 18:45
Bloggið kemur upp um tryggingasvindlara Dæmi eru um að upp komist um íslenska tryggingasvindlara í kjölfar gáleysislegra skrifa þeirra á bloggi og öðrum netsíðum. Einn svikarinn gekk svo langt að gorta sig á alheimsnetinu af vátryggingasvindli sem hann hafði kokkað upp. Talið er að tryggingafélögin tapi milljörðum á tryggingarsvikum árlega. 8.2.2010 18:29
Leiðindaskjóða fékk á kjaftinn Tveir sextán ára piltar voru handteknir í Reykjavík í fyrrinótt eftir að hafa látið dólgslega og ógnað vegfarendum. Piltarnir heimtuðu fjármuni og áfengi af fólki sem þeir mættu á förnum vegi. Annar þeirra var vopnaður hnífi sem lögreglan lagði hald á. 8.2.2010 16:59
Sex gefa kost á sér hjá Samfylkingunni í Árborg Sex frambjóðendur gefa kost á sér í forvali Samfylkingarinnar í Árborg, fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. 8.2.2010 16:49
Skipar fjárhaldsstjórn yfir Álftanes Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur ákveðið að skipa fjárhaldsstjórn til að hafa forystu um endurskipulagningu fjármála Sveitarfélagsins Álftaness 8.2.2010 16:33
Fyrrverandi umhverfisráðherra vill verða forstjóri Útlendingastofnunar Jónína Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, er á meðal 10 umsækjenda um embætti forstjóra Útlendingastofnunar. Umsóknarfrestur rann út á fimmtudaginn síðasta en embættið var auglýst laust til umsóknar þann 15. janúar. Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn frá og með 1. apríl 2010. 8.2.2010 16:01
Þorleifur kærir utankjörfundaratkvæðagreiðsluna Þorleifur Gunnlaugsson sem lenti í öðru sæti í forvali Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík hefur kært utankjörfundaratkvæðagreiðsluna. 8.2.2010 14:59
Mikill erill hjá gæslunni í tengslum við loðnuveiðarnar Mikill erill hefur verið hjá Landhelgisgæslunni undanfarna daga vegna loðnuveiða Norðmanna djúpt undan Austfjörðum. Varðskip hefur verið við eftirlit á miðunum en gefinn var út loðnukvóti fyrir norsk skip upp á 28.431 tonn. Öll norsku skipin hættu veiðum í gær sunnudag og tilkynntu þau alls 27.745 tonna afla að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. 8.2.2010 14:46