Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gjaldeyrisvarasjóðslánin jafn brýn nú og í nóvember Gjaldeyrisvarasjóðslánin frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Norðurlöndunum eru alveg jafn brýn núna og þau voru þegar samningurinn var gerður við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í nóvember á síðasta ári. 17.9.2009 15:15
Einn á spítala vegna svínaflensu Þann 6. september höfðu alls höfðu 193 einstaklingar greinst með inflúensu A(H1N1)v, þekkt sem svínaflensa, hér á landi samkvæmt veirufræðideild Landspítalans. 17.9.2009 15:10
Fosshótel hætta að rukka sjúklinga fyrir gistingu Fosshótel hafa tekið þá ákvörðun að láta af beinni innheimtu gjalda af sjúklingum og aðstandendum þeirra fyrir gistingu á sjúkrahóteli vegna álits Umboðsmanns Alþingis sem birt var í gær. 17.9.2009 14:49
Yfirlýsingar að vænta frá þríeykinu Þingmenn Borgarahreyfingarinnar hafa fundað í allan dag um framtíð sína innan stjórnmálahreyfingarinnar. Formaðurinn er bjartsýnn á að þeir muni starfa áfram fyrir hreyfinguna. Von er á yfirlýsingu frá þríeykinu síðar í dag. 17.9.2009 14:32
Fimm smyglarar handteknir á einni viku Fimm meintir fíkniefnasmyglarar hafa verið stöðvaðir af tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli á einni viku. Allir eru þeir í haldi lögreglunnar en búið er að krefjast gæsluvarðhalds yfir þeim öllum. 17.9.2009 14:05
Leggja væntanlega til framhaldsrannsókn á bankahruninu Rannsóknarnefnd Alþingis skilar niðurstöðum sínum um bankahrunið eftir nokkrar vikur. Í byrjun næsta mánaðar fær nefndin skýra mynd af stöðu mála og í framhaldinu verður tekin ákvörðun um endanleg skil. Þá verður ár fá því að bankarnir féllu. Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndarinnar, telur ekki ólíklegt að gerðar verði tillögur um framhaldsrannsókn á einstökum þáttum bankahrunsins. 17.9.2009 13:35
Kona á sextugsaldri stal brjósthaldara Rétt tæplega sextíu ára kona var dæmd fyrir að stela brjóstahaldara og nærbuxum í Héraðsdómi Suðurlands í dag. 17.9.2009 13:30
Eyðilögðu golfvöll á golfbíl Tveir ungir menn voru dæmdir fyrir eignaspjöll þegar þeir keyrðu golfbíl á golfvellinum við Strönd í Rangárþingi ytra í júlí á síðasta ári. Samkvæmt ákæruskjali þá óku þeir golfbílnum með þeim afleiðingum að þeir brutu fimm golfstangir við flatir auk þess sem þeir skemmdu sandgryfjur og fleira. 17.9.2009 12:55
AGS: Steingrímur heldur enn í vonina Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir það vonbrigði ef endurskoðun áætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart Íslandi verði ekki tekin til endurskoðunar í þessum mánuði. Sjóðurinn hefur tengt endurskoðunina lausn Icesavedeilunnar, en forsætisráðherrar Hollands og Bretlands hafa enn ekki svarað bréfi Jóhönnu Sigurðardóttur vegna málsins. 17.9.2009 12:52
Skatttekjur borgarinnar dragast saman um milljarða Áætlanir Reykjavíkurborgar gera ráð fyrir skatttekjur lækki um rúmlega 6% eða tæplega 2,5 milljarða króna, fjármagnstekjur lækki um 1,3 milljarða og velferðarútgjöld aukist um tæplega 2 milljarða króna. Reynt verður að forgangsraða í þágu grunnþjónustu, barna og velferðar. 17.9.2009 12:51
Innbrotsþjófur gekk beint í flasið á húsráðendum Lögreglan handtók innbrotsþjóf nálægt Úthlíð í Reykjavík á tíunda tímanum í morgun. 17.9.2009 12:01
Sveinn sætti rannsókn - málið látið niður falla Sveinn Friðfinnsson, sem grunaður er um að hafa svikið milljarða króna af grunlausum Svíum, sætti opinberri rannsókn íslensku lögreglunnar í eitt og hálft ár, áður en málið var látið niður falla. 17.9.2009 11:58
Geir Haarde í skandinavískum spjallþætti Geir Haarde fyrrverandi forsætisráðherra verður á meðal gesta í hinum geysivinsæla spjallþætti Skavlan sem sýndur samtímis í sænsku og norsku ríkisstöðvunum. Þátturinn fer í loftið á morgun klukkan sjö að íslenskum tíma og geta áskrifendur Fjölvarpsins horft á þáttinn á SVT 1 eða NRK 1. 17.9.2009 10:41
Símasvindl frá Túnis: Hringdi 300 sinnum í íslenska konu „Ég er með þrjúhundruð missed calls,“ segir kona sem virðist hafa lent í svikahröppum frá Túnis en þeir hringja linnulaust í farsíma hennar. Í fyrstu svaraði hún en þá talaði maðurinn á línunni enga ensku. Eftir nokkurt þóf áttaði konan sig á því að hann talaði hrafl í frönsku, en sjálf talar hún tungumálið. 17.9.2009 09:37
Samið um launahækkun starfsmanna HS Orku Starfsmannafélag Suðurnesja, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar hafa undirritað og samþykkt nýjan kjarasamning við HS Orku hf. 17.9.2009 09:32
Grunaður um að taka upplýsingar frá RSK án leyfis Grunur leikur á að forráðamaður IT ráðgjafar og hugbúnaðarþjónustunnar ehf., sem ætlaði að fara að birta upplýsingar um tengsl fyrirtækja og einstaklinga úr fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra, hafi tekið með sér í heimildarleysi ýmsar upplýsingar þegar hann hætti störfum hjá ríkisskattstjóra. 17.9.2009 07:22
Reynt að hífa Skátann GK upp Reynt verður í dag að hífa upp fiskibátinn Skátann GK sem sökk við bryggjuna við Daníelsslipp á Akranesi í gær. 17.9.2009 07:21
Kannabisplöntur í Mosfellsbæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann nokkrar marijuanaplöntur í ræktun í Mosfellsbæ í gær og lagði hald á þær. 17.9.2009 07:11
Féll fimm metra niður á steingólf Karlmaður slasaðist mjög alvarlega þegar hann féll hátt í fimm metra niður á steingólf í kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal í gær. 17.9.2009 07:07
Framlögin yndislegt bænasvar Kröftug viðbrögð landsmanna í kjölfar neyðarkalls ABC barnahjálpar hafa orðið til þess að hægt verður að fjármagna starfsemi barnaheimilis í Keníu næstu mánuði, segir Guðrún Margrét Pálsdóttir, formaður ABC barnahjálpar. Alls söfnuðust tæplega fjórar milljónir króna inn á reikning ABC, og hefur obbi þeirrar upphæðar farið í að greiða skuldir sem höfðu safnast upp og greiða rekstur mánaðarins, segir Guðrún. 17.9.2009 07:00
Fjórar nýjar ráðherranefndir Fjórar ráðherranefndir munu starfa innan forsætisráðuneytisins eftir endurskipulagningu innan stjórnkerfisins sem nú stendur yfir. Stofnaðar verða ráðherranefndir um efnahagsmál og ríkisfjármál til viðbótar við ráðherranefndir um Evrópu- og jafnréttismál sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag. 17.9.2009 06:30
Lætur pólsku lögregluna vita Vararæðismaður Póllands bíður nú eftir að fá lista frá íslensku lögreglunni með nöfnum pólsku mannanna sem hafa verið handteknir á síðustu vikum á Íslandi. Þeir eru grunaðir um fjölmörg innbrot á og í kringum höfuðborgarsvæðið. 17.9.2009 06:00
Óttast fjárhagsvanda hjá seðlabankafólki Seðlabankinn segir að verði laun yfirmanna lækkuð niður fyrir laun ráðherra og sú lækkun látin ganga niður launastigann geti starfsmenn fjármálastofnana ríkisins lent í fjárhagserfiðleikum með óheppilegum afleiðingum. 17.9.2009 05:00
Óttast um börnin og berst gegn GSM-sendi Íbúi í Grindavík hefur kært til bæjaryfirvalda uppsetningu á átján metra háum GSM-sendi í tuttugu metra fjarlægð frá húsi hans. Byrjað var að reisa sendinn áður en hann var grenndarkynntur, en eftir kæru Guðmundar Sverris Ólafssonar er það ferli hafið. Guðmundur safnar nú undirskriftum gegn sendinum. 17.9.2009 04:00
Ræða lán og styrki frá ESB Íslenskir embættismenn eiga í viðræðum við Evrópusambandið um efnahagslegan stuðning sambandsins við Ísland. Frumkvæðið kom frá ESB í október, skömmu eftir bankahrunið. 17.9.2009 03:30
Heilsusjúkrahús á Ásbrú: Óska eftir 2 milljónum evra Stofnað hefur verið félagið Iceland Health sem mun bjóða upp á sérhæfða heilbrigðisþjónustu og heilsutengda ferðaþjónustu á Íslandi fyrir fólk frá öðrum löndum. Starfsemin verður í húsnæði á Ásbrú sem áður hýsti spítala Varnarliðsins á Keflavíkurvelli og nálægum byggingum. 16.9.2009 21:30
„Við skríðum ekki heim og leggjumst undir sæng" „Menn mega kalla þetta hvað sem þeir vilja, svona er veruleikinn í dag og það er ekkert leyndarmál," segir Björn Þorri Viktorsson lögmaður og fasteignasali sem sagður var stunda kennitöluflakk í kvöldfréttum Rúv. Björn Þorri rekur tvær lögmannstofur og tvær fasteignasölur við annan mann. Nýlega var skipt um kennitölur á þessum fyrirtækjum sem skulda umtalsvert fé. 16.9.2009 20:48
Ólétt kona með amfetamín í niðursuðudósum Síðastliðið laugardagskvöld stöðvaði tollgæsla í Flugstöð Leifs Eiríkssonar konu við komu frá Kaupmannahöfn. Konan, sem er um þrítugt frá Litháen, reyndist vera með um 850 grömm af ætluðu amfetamíni í niðursuðudósum. Konan, sem er barnshafandi, hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 25.september. 16.9.2009 19:22
Segir starfsleyfi frá Persónuvernd hafa skort Ríkisskattstjóri segir að IT Ráðgjafar og hugbúnaðarþjónusta hafi ekki haft starfsleyfi frá Persónuvernd þegar samningur var gerður um miðlun upplýsinga úr hlutafélagaskrá. Samningurinn var gerður í trausti þess að slíkt leyfi lægi fyrir áður en niðurhal og notkun upplýsinga hæfist. Þegar í ljós kom að svo var ekki var lokað fyrir aðgang hlutaðeigandi. 16.9.2009 19:11
Ríkisstjórnin vill eitthvað annað en álver á Bakka Tveimur vikum áður en viljayfirlýsing um álver við Húsavík rennur út kveðst ríkisstjórnin ætla að horfa til fleiri kosta. Sveitarstjórn Norðurþings bókaði hins vegar í gærkvöldi að aðrir raunhæfir kostir hefðu ekki litið dagsins ljós og vill framlengja verkefnið með Alcoa. 16.9.2009 19:03
Samningar að nást um raforkusölu frá Búðarhálsi Gengið verður frá samningum um sölu raforku Búðarhálsvirkjunar til álversins í Straumsvík á næstu dögum. Forstjóri Landsvirkjunar gerir ráð fyrir að virkjanaframkvæmdir fari á fullt næsta sumar en segir að menn verði að vera opnir fyrir öllum möguleikum til fjármögnunar. 16.9.2009 18:46
Íslenski svikahrappurinn í Svíþjóð var með handrukkara á hælunum Íslenskur maður á fimmtugsaldri er talinn hafa staðið fyrir umfangsmiklum pýramídasvindli í Svíþjóð. Sænska fjármálaeftirlitið telur að svindlið nemi milljörðum íslenskra króna. Svikaslóð mannsins teygir sig mörg ár aftur í tímann og til margra landa. 16.9.2009 18:45
Margfalt fleiri kannabisverksmiðjur upprættar Lögreglan hefur upprætt margfalt fleiri kannabisverksmiðjur í ár en mörg ár á undan. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Ríkislögrelgustjóra hefur lögreglan lagt hald á 9544 kannabisplöntur það sem af er árinu 2009. Allt árið í fyrra var lagt hald á 893 plöntur. Að meðaltali lagði lögreglan hald á um 1240 kannabisplöntur á árunum 2002 - 2007. 16.9.2009 16:51
Traust á Jóhönnu hefur snarminnkað á hálfu ári Fjármálaráðherrann Steingrímur J. Sigfússon nýtur mests trausts hjá Íslendingum samkvæmt nýrri könnun frá MMR en hann mældist með 37,7 %. Næst kemur Jóhanna Sigurðardóttir með 36% en athygli vekur að 58,5% prósent Íslendinga sögðust bera mikið traust til hennar í febrúar síðastliðnum. Því er ljóst að traust á henni hefur snarminnkað eða um 22 prósent á hálfu ári. 16.9.2009 15:58
Óheimilt að rukka um gistingu á sjúkrahóteli Landspítalanum er óheimilt að rukka fyrir þjónustu á sjúkrahóteli við Rauðarárstíg sem rekinn er samkvæmt þjónustusamningi Landspítalans og Fosshótela ehf. 16.9.2009 15:42
Múslimskt bænaherbergi vekur athygli í Tyrklandi Háskóli Íslands hefur opnað bænaherbergi þannig að múslimar í Háskólanum geta beðið yfir daginn. Það voru nemar í finnsku sem óskuðu eftir formlega eftir því að slíkt herbergi væri til taks fyrir múslima. Það var svo samþykkt af yfirstjórn skólans. 16.9.2009 15:39
Rjúpnaveiðitímabilið hefst 27. október Tveimur helgum verður bætt við rjúpnaveiðitímabilið í ár en á móti kemur að veiðihelgar verða styttar úr fjórum dögum í þrjá. Því verða veiðidagar átján eins og í fyrra. Nú verður veiði heimil á föstudögum, laugardögum og sunnudögum og tímabilið hefst frá og með 27. október og stendur til og með 6. desember, samkvæmt ákvörðun umhverfisráðherra. 16.9.2009 15:24
Íslendingur sagður heilinn á bakvið sænska svikamyllu Íslendingur á fimmtugsaldri er grunaður um að vera heilinn á bakvið fjársvik í Svíþjóð sem gætu numið milljörðum íslenskra króna. Sagt er frá málinu í sænska dagblaðinu Dagens Industri en svikamyllan er sögð vera áþekk þeirri sem bandaríski fjársvikarinn Bernard Maddoff setti á laggirnar og fékk langan dóm fyrir. 16.9.2009 15:16
Slasaðist í sturtuklefa Sjúkrabílar voru kallaðir að Laugardalslaug fyrr í dag en kona mun hafa hrasað í sturtuklefanum og dottið. 16.9.2009 14:56
Sóley staðin að ólöglegum veiðum Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-Sif stóð í gær togbátinn Sóleyju SH-124 að meintum ólöglegum togveiðum undan Barða milli Önundar- og Dýrafjarðar. 16.9.2009 14:55
30 tonna trébátur sökk í morgun Tæplega 30 tonna trébátur, Skátinn GK 82, sökk við slippsbryggjuna á Akranesi á tíunda tímanum í morgun en báturinn hafði legið við bryggjuna í um viku. 16.9.2009 14:45
Sjö mánaða fangelsi fyrir innbrot í Kópavogsnesti Þrítugur karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í sjö mánaða langt fangelsi fyrir að hafa þann 25. september í fyrra brotist, í félagi við 26 ára gamla stúlku, inn í Kópavogsnesti á Nýbýlavegi. Þaðan stálu þau sjóðsvél sem hafði að geyma að minnsta kosti 25. þúsund krónur í reiðufé. Jafnframt stal parið 6 vindlingalengjum. 16.9.2009 14:15
Nígerísk fjársvik auglýst í Morgunblaðinu Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjórans hefur varað við atvinnuauglýsingum sem birtust í Morgunblaðinu dagana 19. og 29. ágúst og 8. september, undir yfirskriftinni „Job opportunity". 16.9.2009 14:10
Vilja bráðabirgðafangelsi í Bitru Fangelsismálayfirvöld vilja helst leigja húsnæðið Bitru sem er í grennd við Selfoss undir nýtt bráðabirgðafangelsi, samkvæmt heimildum Vísis. Húsið Bitra var á sínum tíma notað sem kvennafangelsi en síðustu ár hefur verið rekið þar gistiheimili. Páll Winkel fangelsismálastjóri vildi í samtali við Vísi ekkert láta hafa eftir sér um málið annað en það að fangelsið þyrfti að geta hýst 10 - 20 fanga og uppfylla ákveðin skilyrði sem væru gerð til fangelsa. 16.9.2009 13:20
Óánægja með skipan ferjumála Bæði Vestmannaeyingar og Vestfirðingar eru óhressir með skipan ferjumála þessa dagana. Engin ferja leysir Baldur af hólmi á meðan hann sinnir siglingum fyrir Herjólf, sem er í slipp, og Eyjamenn segja Baldur allt of lítinn í verkefnið. 16.9.2009 12:18