Sveinn sætti rannsókn - málið látið niður falla 17. september 2009 11:58
Sveinn Friðfinnsson, sem grunaður er um að hafa svikið milljarða króna af grunlausum Svíum, sætti opinberri rannsókn íslensku lögreglunnar í eitt og hálft ár, áður en málið var látið niður falla. Sveinn Friðfinnsson, Íslendingur á fimmtugsaldri, er talinn hafa svikið milljarða króna út úr hundruðum Svía. Sænska fjármálaeftirlitið hefur varað við fyrirtæki sem honum tengist og saksóknari sænskur, rannsakar málið. Hann verst allra frétta. Eftir því sem fréttastofa kemst næst, voru Svíarnir sem létu Svein hafa peninga, þó meðvitaðir um að starfsemin væri á „gráu svæði" og höfðu sumir hugsað sér að komast þannig framhjá skattinum. Svíarnir bera harm sinn á torg á sænskri spjallsíðu, þó í skjóli nafnleysis, en nefna þar Svein. Fram kom í fréttum Stöðvar tvö í gærkvöldi, að margir telja sig hafa verið hlunnfarna af Sveini hér á landi, löngu áður en hann fór til Svíþjóðar. Þá kom fram að hann hefði hlunnfarið fjölda manna hérlendis og síðar ráðið sér lögmenn í því skyni að bæta þeim hluta tjóns sem fólkið hefði orðið fyrir. Einn þeirra, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir við fréttastofu, að hann hafi látið Svein fá tvær milljónir króna árið 2004. Peningana átti að ávaxta með gjaldeyrisviðskiptum. Hann segist síðan hafa áttað sig á því að þetta hafi verið svikamylla. Það sé ofar sínum skilningi nú, hvers vegna hann hafi látið Svein hafa peninga. Hann og tveir menn aðrir, sem töldu sig hlunnfarna í viðskiptum við Svein, kærðu hann til lögreglu fimmtánda desember 2005. Lögreglan hóf rannsókn á málinu. Í bréfi sem Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, lögfræðingur hjá Lögreglu, sendi kærandanum, fimmtánda mars í hittiðfyrra; næstum einu og hálfu ári síðar, segir að ekki þyki grundvöllur til að halda áfram opinberri rannsókn í málinu vegna kærunnar. Því hafi rannsókninni verið hætt.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira