Fleiri fréttir

Gera ráð fyrir 400 þúsund bólusetningum vegna flensu á Íslandi

Inflúensa A eða svokölluð svínaflensa hefur verið staðfest alls staðar á landinu nema í Vestmannaeyjum. Alls hafa 173 tilfelli af inflúensunni verið staðfest með sýnatöku hérlendis. Tilfellunum hefur farið fækkandi og er skýringin mögulega sú að sýnatökum er að fækka.

Leigubílaskýlið flutt úr Lækjargötunni

Til stendur að flytja leigubílaskýlið sem staðið hefur við Lækjargötu í Reykjavík yfir í Hafnarstræti og mun það standa fyrir framan hús nr. 16. Samkvæmt upplýsingum frá hverfisstöð Reykjavíkurborgar við Njarðargötu er gert ráð fyrir að nokkursskonar samgöngumiðstöð verði á planinu við Hafnarstræti og þótti því eðlilegt að flytja skýlið. Það er rétt að skemmtanaglaðir Reykvíkingar hafi þetta í huga í framtíðinni því líkur eru á að þeir grípi í tómt ef þeir ætla sér að freista þess að ná í leigubíl í Lækjargötunni í framtíðinni.

Stöðugleikasáttmálinn var ekki grín

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins minnir stjórnvöld á að stöðugleikasáttmálinn hafi ekki verið undirritaður upp á grín og að brýnt sé að koma verkefnum af stað.

Aldrei meiri umferð á þjóðvegum

Umferð á þjóðvegum landsins var meiri í sumar en nokkru sinni fyrr, samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar. Heldur dró úr umferð í fyrrasumar og var það meðal annars rakið til bensínhækkana.

Bruggverksmiðja í heimahúsi

Lögreglan á Suðurnesjum gerði upptæka stórtæka bruggverksmiðju í heimahúsi í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Þar fundust 40 lítrar af tilbúnum landa og 300 lítrar af gambra, ásamt áhöldum og tækjum til bruggunar og átöppunar.

Tekinn tvisvar á sama klukkutíma

Ökumaður var tekinn tvisvar á sama klukkutímanum í nótt fyrir of hraðan akstur. Annars vegar á Breiðholtsbraut á hundrað kílómetra hraða og hins vegar á Reykjanesbraut á 110 kílómetra hraða.

Lentu í árekstri undir áhrifum

Tveir voru fluttir á slysadeild og síðan í fangageymslur eftir árekstur tveggja bíla á Nýbýlavegi í nótt. Mennirnir voru í öðrum bílnum, en ökumann hins bílsins sakaði ekki.

Forstjórinn segir þörf á hörðum aðgerðum

Reynt verður eftir fremsta megni að komast hjá uppsögnum á Landspítalanum þótt mikill niðurskurðir blasi við. Þetta segir Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítalans, sem mun funda með starfsfólki spítalans í dag. Þó sé líklegt að starfshlutfall verði skert eða vöktum breytt.

Starfsgreinasambandið kallar eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar

Stöðugleikasáttmáli ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins var ekki undirritaður upp á grín, segir Skúli Thoroddssen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins í nýjum pistli á vef sambandsins. Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins leggur á það ríka áherslu að nú þurfi að koma verkefnunum af stað.

Hvers vegna eiga Íslendingar að greiða Icesave?

Af hverju ætti fólk sem kom hvergi nálægt Icesave reikningunum að greiða fyrir þá, bara af því að þeir búa á Íslandi? Þessarar spurningar spyr Nathan Lewis, sjóðsstjóri og pistlahöfundur á Huffington Post.

Sögufrægt herskip fundið á botni Faxaflóa

Staðfesting fékkst á því í dag að skipsflak á botni Faxaflóa, sem neðansjávarmyndir náðust af á mánudag, er sögufrægt bandarískt herskip, sem þýskur kafbátur sökkti í seinni heimstyrjöld. Gat eftir tundurskeyti sést greinilega á skipsskrokknum.

Varaþingmaður vill að forseti skýri afstöðu sína í Icesave málinu

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, þarf að útskýra hvers vegna hann synjaði fjölmiðlalögunum staðfestingar en ekki lögum um ríkisábyrgð á Icesave-reikningum Landsbankans, segir Sigurður Kári Kristjánsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar formanns flokksins.

Stöðvaður á yfir 190 kílómetra hraða

Ökumaður á vélhjóli var stöðvaður eftir að hann hafði mælst á 192 kílómetra hraða á þjóðvegi 1, rétt austan við Selfoss eftir hádegið í dag. Maðurinn var færður á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Maðurinn verður ákærður vegna athæfisins enda sagði lögreglumaður á Selfossi í samtali við Vísi að hraðinn væri það mikill að hann væri búinn að sprengja alla „sektarskala".

Bílþjófur handtekinn í Laugardal

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í Laugardal í gærkvöld vegna bílþjófnaðar. Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Bílnum var stolið í Kópavogi fyrr um daginn.

Þiggja á annað hundrað milljóna króna frá OR

Ráðgjafarfyrirtækið Arctica Finance, sem er í eigu fyrrverandi starfsmanna Landsbankans, þiggur á annað hundrað milljóna króna, fyrir ráðgjöf til Orkuveitu Reykjavíkur. Fyrirtækið fær peningana fyrir að finna kaupanda að hlut Orkuveitunnar í HS orku.

Jóhanna skrifaði starfsbræðrum bréf vegna Icesave

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sendi starfsbræðrum sínum í Bretlandi og Hollandi bréf í síðustu viku vegna samþykktar Alþingis á lögum um ríkisábyrgð í tengslum við Icesave samningana. Óskaði Jóhanna atbeina þeirra til að ná fram farsælli lausn að því er varðar Icesave málið og fjallaði um hugsanlega fundi forsætisráðherranna.

Meintur tóbaksþjófur áfram í gæsluvarðhaldi

Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem var handtekinn ásamt tveimur öðrum mönnum í Árbæ í fyrrakvöld en þeir eru grunaðir um að hafa brotist inn í verslun í Hraunbæ.

Ekið á níu ára stúlku

Ekið var á gangandi vegfarendur á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Níu ára stúlka varð fyrir bíl á Rauðalæk síðdegis og var hún flutt á slysadeild.

Reyna að bæta skuldastöðu einyrkja

Stjórnvöld kanna sérstaklega hvernig unnt er að bæta skuldastöðu einyrkja sem eiga í miklum greiðsluerfiðleikum. Margir þeirra hafa lagt allt undir, bæði atvinnurekstur og heimili.

Grunaður yfirheyrður vegna vídeóleigubruna

Maður hefur verið yfirheyrður vegna brunans í Laugarásvídjói síðustu helgi. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns, var maðurinn látinn laus eftir yfirheyrslur en rannsóknin heldur áfram.

Fleiri greinast með svínaflensu

Alls hafa 168 greinst með svínaflensu (H1N1) vegna sýkingu á Íslandi sem staðfest voru á veirufræðideild Landspítala, samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu. Þar af eru 92 karlar og 76 konur. Í síðustu viku höfðu 162 greinst með flensuna.

VG vilja einkavæða bílastæðahús borgarinnar

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks samþykkti tillögu VG á fundi borgarráðs í dag um könnun á kostum þess að bílastæðahús borgarinnar verði seld. Tillagan var samþykkt með fimm atkvæðum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna. Fulltrúar Samfylkingarinnar bókuðu hinsvegar fyrirvara við málið og sátu hjá.

Ásættanleg niðurstaða fyrir borgina

Niðurstaðan eftir rúmlega hálfs árs söluferli Orkuveitu Reykjavíkur á hlut sínum í HS Orku er góð fyrir Orkuveitu Reykjavíkur og eigendur hennar, að fram kemur í tilkynningu frá borginni. Borgarfulltrúar meirihlutans styðja söluna.

Lögðu fram á þriðja tug fyrirspurna varðandi HS Orku

Fulltrúar Samfylkingar og VG lögðu fram á þriðja tug fyrirspurna varðandi söluna á HS Orku á fundi borgarráðs í dag. Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fulltrúi flokksins í stjórn Orkuveitunnar, segir málið yfirgripsmikið og því hafi minnihlutaflokkarnir lagt fram fyrirspurnirnar.

Borgarráð frestar afgreiðslu á sölu HS orku

Borgarráð Reykjavíkur hefur að ósk fulltrúa minnihlutans í ráðinu ákveðið að fresta um viku afgreiðslu á sölu á hlut Orkuveitur Reykjavíkur í HS Orku til Magma Energy.

Ísafjarðarleiðin að styttast um 72 kílómetra

Byrjað verður eftir helgi að leggja klæðningu á Arnkötludalsveg en með honum hverfur síðasti ómalbikaði kaflann á leiðinni milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. Verktakinn segir fátt geta komið í veg fyrir að vegurinn verði opnaður fyrir mánaðamót. Vestfirðingar fagna í dag vígslu Mjóafjarðarbrúar en með henni losna þeir við síðustu malarkaflana á Djúpvegi.

Ekki mútugreiðslur

„Þarna er lítið sveitarfélag að takast á við gríðarlega stórt verkefni sem kostar mjög mikið og það er ekkert óeðlilegt að það sé farið fram á það við framkvæmdaaðila að hann greiði kostnað sem fellur á sveitarfélagið," segir Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, um greiðslur Landsvirkjunar til sveitarfélaga vegna fyrirhugaðra virkjana. Ekki sé um mútugreiðslur að ræða.

Fórnalömbin samúðarfull með starfsmanni á plani

„Við finnum til með manninum. Hann þarf greinilega á hjálpa að halda,“ segir Kristjana Kristjánsdóttir en hún ásamt manni sínum, Raymond McQueen og vinafólki ætluðu að taka bensín á Olís í Norðlingaholti í gærdag.

Tjá sig ekki um hugmyndir um skattahækkanir á álfyrirtæki

„Við tjáum okkur ekki um þetta mál nema við fáum um það formlegt erindi frá stjórnvöldum,“ segir Erna Indriðadóttir, framkvæmdastjóri samfélags- og upplýsingamála Alcoa Íslandi sem rekur álverið á Reyðarfirði, aðspurð um yfirlýsingar varaformanns fjárlaganefndar Alþingis sem vill að hærri skattur verði lagður á álfyrirtæki.

Segir Rúv hafa sýnt sér vanvirðingu og ruddalega framkomu

Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri ætlar í meiðyrðarmál við Rúv vegna ummæla sem látin voru falla í hádegisfréttum útvarpsins á mánudagsmorgun. Þar var því haldið fram að Ólafur hefði látið leggja fé inn á sinn eigin reikning en ekki til Frjálslyndaflokksins. Ólafur segir að með þeim ummælum hefði Rúv verið að þjófkenna sig.

Stálu barnavagni og heimabíói

Tveir menn af erlendum uppruna voru dæmdir í 30 og 60 daga skilorðsbundið fangelsi til þriggja ára fyrir að stela meðal annars barnavagni að andvirði 129 þúsund króna.

Vilja stýra Borgarahreyfingunni

Hópur fólks hefur tilkynnt um framboð í stjórn Borgarahreyfingarinnar en landsfundur hreyfingarinnar fer fram laugardaginn 12. september. Í hópnum eru meðal annars Valgeir Skagfjörð, varaþingmaður, og Gunnar Sigurðsson, leikstjóri og einn af stofnendum hreyfingarinnar.

Ögmundur: Skýrslan slær öll met í yfirlæti

Heilbrigðisráðherra segir nýja skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) slá met í yfirlæti. Hann segir skýrslur stofnunnar unnar af einstaklingum sem upp til hópa aðhyllast hægri sinnaða markaðshyggju. Ráðherrann spyr hver greiði fyrir skýrsluna. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, gagnrýnir einnig skýrsluna.

Slasaðist í álveri

Kalla þurfti út menn fjá Björgunarfélagi Akraness til að ná niður manni sem hafði slasast uppi á 12 metra háu sílói í álverinu á Grundartanga í gær. Björgunarmennirnir bjuggu um hann í börum og létu hann svo síga niður, þar sem sjúkraflutningamenn tóku við honum og fluttu hann á sjúkrahúsið á Akranesi. Maðurinn mun ekki hafa slasast alvarlega.

Fiskitorfa af óþekktri tegund

Skipstjóri á síldveiðiskipi, sem var á leið til Vestmannaeyja í nótt, lóðaði á stóra fiskitorfu austur af Vestmannaeyjum.

Sjá næstu 50 fréttir