Innlent

14 ára á stolnum bíl

MYND/GVA

Lögreglan á Seofossi handtók tvo fjórtán ára pilta laust eftir miðnætti, eftir að hafa stöðvað þá á stolnum bíl rétt utan við bæinn. Þeir voru að sjálfsögðu réttindalausir líka, auk þess sem bíllinn var bremsulaus þannig að lögregla lét flytja hann brott með kranabíl.

Þeir voru þó ekki undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Forráðamenn piltanna og fultrúar bernaverndarnefndar voru kallaðir á lögreglustöðina vegna málsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×