Innlent

Tveir slösuðust á Hringbraut

Tveir menn slösuðust þegar bíll þeirra hafnaði uppi á hringtorgi fyrir framan JL húsið vestast á Hringbraut í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt. Þeir voru fluttir á Slysadeild til aðhlynningar og er ökumaðurinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Torgið er upphlaðið úr stórum steinum og er bíllinn stór skemmdur. Skömmu áður stökk maður út úr löskuðum bíl við Stóragerði í Reykjavík, eftir að hafa ekið á strætisvagnaskýli og girðingu, sem dróst á eftir bílnum. Sprungið var á öðru framhjólinu og hafði ökumaðurinn ekið á felgunni um stund, af ummerkjum að dæma. Hann er ófundinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×