Innlent

Sjúkraflutningamenn vara við akstri undir áhrifum áfengis

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sjúkraflutningamenn á Suðurlandi vara ferðalanga við að aka undir áhrifum. Mynd/ Vilhelm.
Sjúkraflutningamenn á Suðurlandi vara ferðalanga við að aka undir áhrifum. Mynd/ Vilhelm.
Sjúkraflutningamenn á Suðurlandi vilja brýna það fyrir ferðalöngum sem hyggja á heimferðir í dag eftir verslunarmannahelgina að ganga úr skugga um að ökumenn séu allsgáðir.

„Ökumenn verða að muna að það tekur líkamann lágmark sólarhring að losa sig við áfengi úr blóðinu. Séu menn enn undir áhrifum áfengis getur það haft áhrif á dómgreind ökumanna og getur það haft afdrifaríkar afleiðingar. Á undanförnum árum hafa mörg banaslys orðið í umferðinni sem beint má rekja til ölvunaraksturs," segir í orðsendingu frá Jóhanni K. Jóhannssyni, formanni Félags sjúkraflutningamanna á Suðurlandi.

„Ljóst er að mikil umferð verður um Suðurlandsveg í dag og eru ökumenn minntir á að sýna tillitsemi og þolinmæði. Þeir sem erum með hjólhýsi eða fellihýsi í togi eru beðnir að veita þeim sem á eftir koma svigrúm í framúrakstur en jafnframt eru aðrir ökumenn minntir á að fara ekki í framúrakstur sé þess ekki þörf," segir Jóhann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×