Innlent

Álit Hagfræðistofnunar rætt á fundi fjárlaganefndar í dag

Sigríður Mogensen skrifar
Álit Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á greiðslubyrði vegna Icesave verður tekið fyrir á fundi fjárlaganefndar klukkan tvö í dag. Mikil gagnrýni hefur komið fram um álit Seðlabankans á sama máli, en Seðlabankinn telur að þjóðarbúið sé fyllilega fært um að standa undir greiðslubyrði Icesave samninganna.

Fjárlaganefnd hefur fundað stíft á síðustu vikum um frumvarp fjármálaráðherra um ríkisábyrgð á Icesave samningana. Ekki liggur enn fyrir hvenær Icesave frumvarpið verður afgreitt úr nefndinni en búast má við að það verði á allra næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×