Innlent

Þrjú ný tilfelli af inflúensu A greindust um helgina

Haraldur Briem sóttvarnalæknir.
Haraldur Briem sóttvarnalæknir.

Alls hafa verið staðfest þrjú tilfelli af nýrri inflúensu A (H1N1)v yfir verslunarmannahelgina og er því heildarfjöldi staðfestra tilfella samtals 54. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum og ennfremur er þess getið að enginn hafi orðið fyrir alvarlegum veikindum.

Þá segir að fólkið sem um ræðir sé á aldrinum 16-25 ára, þar af er einn útlendingur og tveir Íslendingar með búsetu á suðvesturhorni landsins. Að lokum hvetur sóttvarnalæknir lækna til sýnatöku hjá sjúklingum með inflúensulík einkenni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×