Innlent

Smábátaeigendur efast um lögmæti tvöföldunar vaxta

Kristín María Birgisdóttir skrifar

Smábátaeigendur, sem vilja láta frysta lán sín áfram, eru ósáttir við að frystingin hafi það í för með sér að vextir lánanna hækki um allt að hundrað prósent og að myntbreyting verði gerð á lánunum. Framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda efast um lögmæti aðgerðanna.

Mikil óánægja er meðal smábátaeigenda vegna málsins og hefur Landssamband smábátaeigenda sent formlega kvörtun til stjórnvalda.

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri sambandins segir að í kjölfar bankahrunsins hafi stjórnvöld gefið þau tilmæli til lánastofnana um að lán yrðu fryst til allt að tveggja ára án nokkurs kostnaðar, né breytinga á skilmálum.

Skilmálarnir séu þeir að lán sem sett voru saman í jenum og svissneskum frönkum verði breytt í evrur og jafnvel að lánastofnanir fái vilyrði lántakans til að breyta öllum lánum í íslenskar krónur.

Örn segist vita um aðila sem þegar hafi skrifað undir slíka skilmála. Margir séu þegar komnir upp við vegg og neyðist til þess til að fá áfram frystingu á lánunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×