Innlent

Umferð gengur vel

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Umferð til Reykjavíkur hefur gengið vel það sem af er degi og hefur lögreglunni ekki borist tilkynning um nein slys. Lögreglumenn í Borgarnesi segja að umferðin hafi verið róleg í morgun. Upp úr eitt hafi hún tekið að þyngjast örlítið. Lögreglumenn á Selfossi segja að umferð um Suðurlandsveg sé ekki enn tekin að þyngjast og geta þeir sér þess til að fólk fresti heimkomum úr helgarferðum vegna góðs veðurs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×